Vísir - 15.11.1976, Side 27

Vísir - 15.11.1976, Side 27
 byggwm borðum ost Allir krakkar vilja verða stórir og sterkir. Hver vill annars láta lemja sig eins og fisk? Já, við skulum borða það hollasta, sem til er. Það má halda langa ræðu ÍÍ|| vítamínin, próteinin, kalkið, allar þessar orkulindir sem osturinn geymir. En það er nóg' að vita, að ostur gerir mann sterkan. ÞETTA VAR ÞAÐ SEM VANTAÐI S.B. Hafnarfirði hringdi Ég hafði gaman af sögunni um Óla Jó og Rió trióið i þessum nýja þætti ykkar i blaðinu á föstudaginn. Þetta var einmitt það sem vantaði i Visi, einhvern léttan dálk með stuttum fréttum og vangaveltum, og svo falla auðvitað alltaf til alls konar skringilegar fyrirsagnir og úr- klippur, sem þið getið notfært ykkur úr hinum blöðunum i svona þátt. Ekki fannst mér þetta sist gott á föstudaginn, þar sem ég er framsóknarmaður, þvi að þarna kom vel fram, hve vel ykkur er orðið til dómsmála- ráðherrans okkar og að þið látið hann njóta sannmælis. Ég vona, að Sandkornið ykkar verði dag- lega i blaðinu. er talið? Hvar K.Bj., Keflavik hringdi: Við hér suðurfrá fylgjumst að sjálfsögðu vel með sjónvarpinu nú i skammdeginu ekki siður en aðrir landsmenn og kunnum vel að meta margt. Til dæmis finnst mér hafa vel tekist til með val á efni i þá dagskrárlengingu, sem nú er orðin á sunnudags eftir- miðdögunum og er rétt að þakka fyrir það. Hitt finnst mér furðulegt, að sumir þeirra stuttu fræðslu- þátta, sem sýndir hafa verið strax eftir fréttir undanfarna daga urp hættur i heimahúsum hafa verið mjög óvandaðir að allri gerð, aðeins myndir og i besta falli músik með, en fræðslutextann hefur alveg vantað. Hvað á þetta að þýða? Það eru til dæmis menn að benda á alls kyns hluti, að þvi er virðist i samhengi við einhverja frásögn, en við fáum ekki að heyra orð um þessi atriði, til dæmis varðandi tengingu á raf- magnsinnstungum. Sonur minn einn, sem mikið situr við sjónvarpið heldur þvi fram, að skýringin á þessu sé sú, að þessir stuttu fræðsluþætt- irhafi verið fluttir i einhverjum heimilisþætti i sjónvarpinu fyrir fáeinum árum. Þá segir hann, að einhver hafi talað með myndunum, en hvers vegna er það ekki núna. Það væri gaman að heyra, hvaða skýringar þeir sjónvarpsmenn gefa þessu. Þetta þjónar ekki nægilega varnaðartilgangi sinum svona með hálfkáki. Frœðsluþœttír, sem mœlost vel fyrir G.J. Ólafsfirði hringdi: „Mig langar að koma á fram- færi þakklæti til sjónvarpsins fyrir þættina um liffæri manns- ins og heilsuvernd, sem verið hafa á dagskrá siðdegis undan- farnar helgar, og varð ég var við að þetta efni mæltist ekki siður vel fyrir hjá yngri áhorf- endunum á minu heimili en þeim eldri. Fyrsti þátturinn „Ég er hjarta Jóa”, var einstaklega skemmtilegur og vel úr garði gerður, og sá siðari, sem fluttur var um magann i Jóa, þótti mér einnig hinn forvitnilegasti. Ég man bara ekki eftir að jafn-vel útskýrtog framreitt fræðsluefni hafi verið i sjónvarpinu um langt skeið og er þvi ástæða til að þakka þetta. Ég sá á kynningu á undan þáttunum, að þeir eru að ein- hverju leyti unnir upp úr grein- um, sem birst hafa i banda- riska timaritinu Readers Dig- hest og er þvi ekki að furða, að þeir séu vandaðir. Kunningi minn sagði mér, að hann hefði lesið þessar greinar, til dæmis „Ég er hjarta Jóa”, i timaritinu Úrvali og þótt hún forvitnileg þar, en aftur á móti hefði þetta allt er snýr að starf- semi hjartans orðið augljósara og skiljanlegra i þessari greinargóðu fræðslumynd i sjónvarpinu. Meira af svo góðu. MA EKKI STÆKKA MATUNARKLEFANA? Kristin hringdi: Mér dattsvona i hug að slá á þráðinn til ykkar, þar sem ég var að koma úr búðarrápi. Ég þurfti að kaupa föt á sjálfa mig og þvi fylgir auðvitað rölt i fata- verslanirnar i borginni, og auð- vitað verður maður að máta svo allt passi nú þegar til kemur. En mikið skelfing finnst mér litið lagt upp úr þvi að mátunar- klefar séu góðir i mörgum verslunum. Húsnæði það sem verslanirnar eru i er oft mjög litið, en það er þó ekki i öllum tilfellum. En allt of viða eru mátunarklefarnir svo þröngir og litlir, að maður verður næst- um þvi með lagni að smokra sér i og úr. Einhver spegilómynd er á veggjum viðast hvar, en hann kemur bara ekki alltaf að not- um, þvi klefinn er svo þröngur að maður stendur með nefið i speglinum. Væri nú ekki hægt að ráða bót á þessu og stækka klefana, svo það fari betur um viðskiptavin- inn? < i 1 <

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.