Vísir - 12.02.1977, Blaðsíða 3
3
vism
Laugardagur 12. febrúar 1977
„Slítum ekki meiri-
hlutanum á meðan
málið er óafgreitt"
— sagði Kristmann Jónsson, bœjarfulltrúi
Framsóknarflokksins á Eskifirði, í viðtali við Vísi
Enn er óvfst, hvort keypt verftur hús fyrir dvalarheimili aldraðra.
eskfirðinga.
„Ég veit ekki hvaða af-
leiðingar þetta hefur"
— sagði Guðmundur Á. Auðbjörnsson, bœjar-
fulltrúi Sjálfstœðisflokksins, í viðtali við Visi
fast viö úöur mótaOa stefnu i
þessu máli, og þvl lýst, a6 það sé
bæjarsjóði ofviöa eins og sakir
standa að ráðast i húsakaup i
þessu skyni. Sagði i bréfinu, að
ef ekki næðist samkomulag um
þetta efni væri grundvöllur
meirihlutasamstarfsins brost-
inn”, sagði Jóhann.
„Rúmri viku siðar, eða á
fimmtudagskvöldið, var svo
haldinn bæjarstjórnarfundur,
og þar fluttu bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins tillögu um,
að gert yrði 8 milljón króna
tilboð i þetta hús, og að tvær
milljónir, sem áður var ætlunin
aö færi til undirbúningsvinnu
viö dvalarheimili, færu i þessi
húsakaup. Þeta var samþykkt
með fjórum atkvæöum gegn
þremur.
Þegar fjárhagsáætlunin hafði
svo verið endanlega samþykkt,
án þess að gerðar væru breyt-
ingar til hækkunar eða lækk-
unar á niðurstöðutölum, stóö ég
upp og lýsti þvi yfir, að ég notaði
rétt minn til aö fella um sinn úr
gildi ályktunina um húsa-
kaupin”.
Hvað verður um
meirihlutann?
Aðspurður um, hvaða áhrif
þetta hefði á meirihlutann og
stöðu bæjarstjórnar, sagði
Jóhann, að ekki lægi fyrir, hvaö
yrði um meirihlutasamstarfið,
utan það, sem fram kæmi I bréfi
alþýöuflokksmanna og fram-
sóknarmanna til sjálfstæðis-
manna. Það kæmi væntanlega i
ljós á næsta bæjarstjórnarfundi,
hvort nýr meirihluti yrði mynd-
aður.
„Varöandi bæjarstjórann er
þrennt til: Að honum verði sagt
upp af öðrum meirihluta, að
hann segi upp sjálfur, ef hann
telur, að þarna sé verið aö fara I
ógöngur og vill ekki una þvi, eða
að hann sitji áfram með ein-
hverjum hætti.Um það er ekki
gott að segja nú, en við öllu sliku
má búast”, sagði hann.
—ESJ
,M
„Þar sem bæjarstjóri mun
óska eftir úrskurði félagsmála-
ráðherra, er endanleg af-
greiðsla þessa máls óljós. A
meðan svo er tel ég ekki rétt að
viö gerum neitt i þá átt að slita
þessu meirihlutasamstarfi”,
sagði Kristmann Jónsson, ann-
ar fulltrúi Framsóknarflokksins
i bæjarstjórn Eskifjarðar, i við-
tali viö Visi.
Framsóknarmenn, sjálfstæð-
ismenn og alþýðuflokksmenn
hafa haft meirihlutasamstarf i
bæjarstjórninni á Eskifirði, en
alþýðubandalagsmenn verið i
minnihluta.
„Við tókum það skýrt fram I
bréfi til sjálfstæðismanna”,
sagði Kristmann, „að viö teld-
um ekki ástæðu til að halda
meirihlutasamstarfinu áfram,
ef þessi tillaga þeirra yrði sam-
þykkt”.
Kristmann sagöi, aö bæjar-
fulltrúar sjálfstæðismanna
heföu myndað meirihluta með
alþýðubandalagsmönnum um
þetta tiltekna mál, en hann vissi
ekkert um, hvort úr þvi yrði
eitthvað meira.
„Viö erum þeirrar skoðunar”,
sagði Kristmann, „að það sé
óráðlegt fyrir bæjarfélagið að
leggja út i svona fjárfestingu,
þegar við stöndum I öðrum stór-
framkvæmdum. Við erum t.d.
að byggja hér skóla, sem mun
kosta bæjarsjóð töluvert á ann-
að hundrað milljónir. Ef við ætl-
um að koma honum upp á næstu
árum, þá getum við ekki sett
mikiö fé i annað á meðan”.
„Ég veit ekki hvaða afleiðingar
þetta kann að hafa, og vil engu
spá fram i timann um það”, sagði
Guömundur A. Auöbjörnsson
annar fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins i bæjarstjórn Eskifjarðar I
viötali við VIsi.
„Viö bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins bárum þessa til-
lögu upp, og hún var samþykkt
með atkvæðum okkar og bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins. Af
okkar hálfu er þessi tillaga
hugsuö sem bráöabirgðalausn á
miklum vanda sem eldra fólkiö
býr við. Það er ekki hægt að láta
þetta eldra fólk biða endalaust”,
sagði Guðmundur.
Aðspurður hvort þetta þýddi að
-meirihlutinn hefði klofnað sagði
Guömundur:
„Ég veit ekki hvað skal segja
um það. Það er þarna ágreining-
ur. Það kemur svo i ljós siöar,
hvort hann veldur þvi að um al-
gjöran klofning verði aö ræða.”
—ESJ.
— ESJ
Hafist varhanda um byggingu nýs skólahúsnæðis á Eskifirði haust-
“'1975- Það kostar bæjarfélagiö töluvert á annaö hundraö milljónir
aö hyggja skólann.
Bokarar mótmœla lœkkun á verði brauðs:
Aðeins gert til
að lœkka vísi-
tðluna?
Bakarar hafa mótmælt harö-
lega þeirri ákvörðun verðlags-
yfirvalda að lækka útsöluverð á
brauöi rétt fyrir siðustu mánaða-
mót, og telja þá lækkun einungis
gerða til að lækka framfærslu-
visitöluna réttáður en reikna átti
dt verðlagsbætur á iaun.
í samþykkt frá stjóm Lands-
sambands bakarameistara er þvi
lýst yfir að þetta sé engin tilvilj-
un, en hins vegar telji bakarar sig
„vanbúna til að t'aka á sig þær
byrðar, sem skyndilagfæring á
visitölu framfærslukostnaðar
hefur i för með sér.”
1 yfirlýsingunni segir, að allar
tilraunir til að koma á „raunhæfu
og réttlátu verðmyndunarkerfi á
brauðvörum hafa strandað á
áhugaleysi og skilningsleysi
verðlagsyfirvalda”. Bakarastétt-
inni i heild sé refsað fyrir hag-
kvæmari innkaup á hráefni, en
heildversluninni heitið „umbun”
fyrir hagstæð innkaup.
Þá segir, að afkoma fyrirtækja
i þessari iöngrein sé afleit, og hafi
ýmsir rekstrarliðir hækkaö um
93-119% frá nóv. 1974 tilnóv. 1976
A sama tima hafi verðið á algeng-
ustu brauðvörum verið haldið
niðri og nú siðast lækkað.
—ESJ.
Mun minni vinna í
uppmœlingu en áður
Siðustu tvö árin hefur uppmæl-
ingavinna hjá trésmiöum á
Akureyri dregist verulega sam-
an.
Það kom fram á aöalfundi
Trésmiöafélags Akureyrar,
sem haldinn var 3. febrúar s.l.,
aö þetta væri fyrst og fremst
vegna þess, að nýjar gerðir
steypumóta hafa komið til. Ekki
hefur enn verið gert samkomu-
lag milli félagsins og Meistara-
félags byggingarmanna á
norðurlandi um nýjan taxta
fyrir þessar mótageröir, en
stjórnir félaganna hafa gert
samkomulag um að stefna aö
gerð sllks taxta.
Helgi Guömundsson, húsa-
smiöur, var endurkjörinn for-
maður félagsins á aðalfundin-
um.
Rússneskum diplómötum
tvisvar vísað fró þot-
um á leið til íslands
— Neituðu að sýna hvað þeir höfðu
meðferðis í farangri sínum
fá islenska starfsmenn til aö
ganga i ábyrgð fyrir sig en
dönsk yfirvöld neituöu aö taka
þaö til greina.
Flugfélagið hefur enda ekk-
ert aö gera með öryggisvörslu á
Kastrup-flugvelli og gæti ekki
hafn nein áhrif á dönsk yfir-
völd, þótt þaö reyndi.
Svipáö geröist svo um
mánuði siðar. Þá var sendi-
herra Israels á leiðinni til Is-
lands og danska stjórnin fyrir-
skipaði sérstakar öryggisráð-
stafanir.
Við þetta tækifæri var mjög
nákvæm leit gerð i farangri far-
þeganna og þeim var gert aö
ganga I gegnum vopnaleitarhliö
eins og venjulega. Þetta gekk
allt velog fljótlega fyrir sig, þar
til kom að rússnesku diplómöt-
unum.
Þeir harðneituðu að láta leita
Ifarangri sinum. Dönsku örygg-
isverðirnir voru harðir i horn að
taka og sögðu að ef þeir gætu
ekki sannaö að þeir hefðu
„hreint mél i feröatöskunum”,
færu þeir hvergi.
Niöurstaðan varð sú að rúss-
arnir uröu eftir meö sinn far-
angur, hvað sem nú i honum
var. ~~áT,
Rússneskum diplómötum hef-
ur tvisvar verið meinað að fara
með flugvélum frá Kaup-
mannahöfn til tslands, vegna
þess að þeir hafa neitaö að und-
irgangast venjulegt öryggiseft-
irlit.
1 fyrra skiptið var það í mai
1975. Þá varö mikiö stapp og
læti þvi diplómatarnir tveir
voru komnir um borð I þotu
Flugfélags Islands, þegar
dönsk yfirvöld tóku ákvöröun
um að beita hörku.
Danskir öryggisveröir fóru
um borð i flugvélina og sóttu
mennina tvo. Þeir reyndu þá að
Rússarnir sátu frekar eftlr en að fara i gegnum vopnaieitartæki
dana.