Vísir - 30.03.1977, Blaðsíða 4

Vísir - 30.03.1977, Blaðsíða 4
m Miðvikudagur 30. mars 1977. visir. Vilja kenna hvor ððrum um árekstur fluavélanna Áköf deilda hefur nú brotist upp á yfirborðið vegna árekstrarins á anta Cruz-flugvellin- um, þar sem 570 manns létu lifið. Talsmenn flugfélaganna KLM og Pan Am bera blak af flug- stjórum sinum hvor í sinu lagi, Eitt hjólastellið undan vélunum var meðal þess fáa sem heillegt slapp úr árekstrinum og brunanum. og segja að tilgátur um orsök árekstrarins alltof snemma fram bornar, meðan rannsókn slyssins sé ekki lengra komin. Juan Linares, aðstoöarflug- vallarstjóri, og van Reysen frá KLM, sem unnið hefur að rannsókninni af hálfu hollend- inga, segja báðir, að hljóðrit- anir af samtölum flugturnsins og flugstjóra KLM-þotunnar sýni,að KLM-þotan hafi einung- is fengiö fyrirmæli um aö vera viðbúin til að hefja flugtak, þegar hún lagði af staö eftir flugbrautinni. Van Reysen sagði frétta- mönnum ennfremur, að Pan Am-þotan hafi átt að beygja út af flugbrautinni og inn á hliðar- braut, en farið framhjá hliðar- brautinni og haldið áfram á móti KLM-þotunni. Stefnduþærbeinthvor á aöra, þegar áreksturinn varð. Talsmenn flugfélaganna hafa brugðist hart við þessum út- skýringum. KLM I Amsterdam segir það algerlega útilokaö, að flugstjóri þeirra hafi lagt af staö i flugtak án leyfis. Talsmaður Pan Am heldur þvi fram, að þeirra flugstjóri hafi farið aö nákvæmlega eins og vera ber á flugvelli. Gagnrýndi hann ótimabærar upplýsingar af rannsókninni. MATAREITRUN UM BORÐ I JUMBOÞOTU Júmbóþota frá hollenska flugfélaginu KLM nauð- lenti í Sydney í morgun með marga farþega sína kvalda af matar- eða vatnseitrun. Fjöldi sjúkrabifreiða beið á flugvellinum, þegar vélin lenti, og voru sextán farþegar fluttir sam- Talsmaður Bucking- ham-hallar neitaði i morgun að segja nokkuð um hjónabandshug- leiðingar Karls krón- prins breta og Mariu- Ástriðar prinsessu af Lúxembúrg. Daily Mail skrifaði i gær, að efnt heföi veriö til fundar i Laeken-höll i Belgiu 8. desember siðasta til aö ræöa hjónabands- horfur þessara tveggja. Þann fund eiga aö hafa setið EHsabet drottning, Filipus prins, Karl prins og Maria-Ástriöur prinsessa, belgisku konungshjón- in og kirkjuleiötogar kaþólskra og ensku biskupakirkjunnar. stundist á sjúkrahús, en þeir eru nú sagðir vera á leið til sæmilegr- ar heilsu. Farþegar sögöu fréttamönnum að milli 60 og 90 þeirra hefðu veikst. Vélin var á leiðinni frá Amster- dam til Sydney með viðkomu i Zurich, Dubai og Singapore. Telja starfsmenn KLM, að farþegarnir Blaðið bendir á, að sá meinbugur sé á hjónabandinu, að prinsessan sé rómversk-kaþólsk en prinsinn mótmælendatrúar. Verði prinsinn þvi að afsala sér erfðarétti til krúnunnar, nema unnusta hans kasti trú og gangi i ensku biskupakirkjuna. Nafn Karls prins hefur verið tengt hinum og þessum stúlkum i fréttum siðustu ára, en Daily Mail heldur þvi fram, að hann hafi af ráðnum hug látið sjá sig i fylgd þessara stúlkna til þess að leiða fólk á villigötur. Blaðiö heldur þvi fram, að hann hafi fellt hug til prinsessunnar, þegar hann kynntist henni 1974, meðan hún var við enskunám i London. Maria-Astriður prinsessa er út- lærð hjúkrunarkona og les um þessar mundir lög. hafi veikst af vatni, sem tekið var i Dubai. Nokkrir farþeganna höfðu fundið til lasleika á leiðinni frá Dubai til Singapore, en ekki sagt til sin fyrr en á leiðinni frá Singapore til Sydney, þegar fleiri farþegar höfðu veikst. Astralskur læknir var i vélinni og hjálpaði hann áhöfninni að að- stoða sjúklingana. Bréf Hem- ingways Bréf Ernest Heming- ways til foreldra sinna á þeim tima sem hann var að uppgötva hvað i hon- um bjó, voru seld i gær fyrir 65 þúsund dollara á uppboði hjá Sothebys i London. Þetta eru einu bréfin frá skrifum hans til fjölskyldunnar á þeim tfma, sem rithöfundaferill hans var að hefjast. Þau eru frá árinum 1920 til 1928. Þá var hann fréttamaður, en siðan fluttist hann til Parisar, þar sem vel- gengni hans hófst. Það var bandarískur safnari, sem keypti bréfin, og er þetta hæsta verð, sem fengist hefur fyrir bréf eftir Hemingway. Einnig var þarna til sölu hand- ritið að fyrstu tveim köflum sög- unnar ,,The Sun Also Rises”, sem aldrei hefur verið gefin út. Hand- ritið fór á 22 þúsundir dollara. Ernest Hemingway Polanski sakaður um nauðgun Kvikmy nda leikstjór- inn, Roman Polanski, kom fyrir rétt í Los Angeles í gær til að svara til saka fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot við þréttán ára stúlku. Skólastelpur eltu leik- stjórann um ganga dóm- hússins og báðu hann um eiginhandaráritun, en Polanski stjakaði þeim frá sér. Dómarinn las yfir honum á- kærurnar gegn honum, en siðan fékk Polanski að fara gegn tryggingu. Honum er gefið að sök, að hafa tælt 13ára telpu til heimilis Jack Nicholson leikara, undir þvi yfirskyni, að hann ætlaöi að taka af henni myndir fyrir frönsku útgáfu tímaritsins Vogue. En i staðinn gefið telp- unni fikniefni og brotið á henni, meðan hún var i vimunni. Þegar telpan kom heim til sin seint um kvöld, kvöddu foreldr- ar hennar lögregluna til, og braust hún inn i hús Nicholsons. Þar var þá enginn nema Ange- lica Houston, 26 ára vinkona Nicholsons og fannst kókain i veski hennar. Polanski á yfir höfðu sér allt að 50 ára fangelsi, ef hann verð- ur fundinn sekur um ákæruat- riöin. Hann heldur fast fram sakleysi sinu. Karl prins hefur verið oröaöur viö hinar og þessár stúlkur slðustu árin. Sést hann hér skála viö flotaforingjadóttur. Karí príns í giftingarhug?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.