Vísir - 30.03.1977, Blaðsíða 5

Vísir - 30.03.1977, Blaðsíða 5
Valsmenn sluppu meö skrekk- inn í gærkvöldi þegar þeir léku við ÍR i 1. deild Islandsmótsins i handknattleik. iR-ingar höföu töglin og haldirnar meiri hluta leiksins eða þar til rúmar tiu min- útur voru til leiksloka — þá breyttu valsmenn stööunni úr 20:20 i 20:24 og gerðu þar með út um ieikinn sem lauk 23:25 fyrir Val. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem sigur Vals hangir á bláþræði. Siðast sigruðu þeir Þrótt með eins marks mun og þar áður Hauka — lika með eins marks mun. Leikur IR og Vals var ekki vel leikinn. Valsvörnin var afar slæm til að byrja með — og markvarsl- an engin. IR-ingar komust i 4:0 áður en valsmenn komust á blað og þessum mun héldu þeir lengst- um i fyrri hálfleik — það virtist vera nóg að skjóta á valsmarkið — allt „lak” inn. Undir lok hálf- leiksins tókst þó völsurum aðeins að minnka muninn með tveim siðustu mörkunum — og i hálfleik var staðan 14:12 fyrir IR. Valsmenn tóku fljótlega til þess ráðs að setja mann til höfuðs Ag- ústi Svavarssyni — og þetta setti strax svip á leik IR-liðsins sem var hálfráðaleysislegur, en þá losnaði um Brynjólf Markússon sem skoraði hvert markið á eftir öðru — eða þar til valsmenn settu mann til höfuðs honum. Þar með fór allur broddur úr sókn IR og þegar sjö minútur voru liðnar af siðari hálfleik voru valsmenn búnir að jafna metin 16:16. Siðan skiptust liðin á um að halda forystunni — eða þar til staðan var 20:20 að valsmenn gerðu út um leikinn með þvi að skora fjögur mörk i röð — og lokatölurnar urðu 23:24 sem fyrr greindi. Hjá 1R var Brynjólfur Markús- son besti maðurinn. en auk hans átti Sigurður Svavarsson ágætan leik og var drjúgur að vanda. Ag- úst Svavarsson byrjaði vel en eft- ir að hann var tekinn i gæslu bar litið á honum. Jón Pétur Jónsson átti stórleik Nú er búist við „markaregni" ú Wembley í kvöld „Ég þori ekki að lofamörgum mörkum i kvöld. Það er best að segja sem minnst um það fyrir- fram. En það ætti að vera óhætt að lofa þvi að Luxemborg skorar ekki” sagöi Kevin Keegan þegar hann var beðinn að giska á hvern- ig England „afgreiðir” Luxem- borg i HM-riðlinum i knattspyrnu i kvöld. - England þarfnast þess að skora mikið af mörkum þvi að eina von enskra er að vinna Italiu á heimavelli og þá er liklegt að markatala ráði hvort þaö verður England eða Italia sem kemst til Argentinu i úrslitin. Liðið sem leikur i kvöld verður þannig skipað: Clemence, Gid- man, Watson, Hughes, Keegan, Kennedy, Francis, Channon, Royle, Hill og Cherry. En staðan i riðlinum er nú bessi: Italia 2 2 0 0 6:1 4 England 3 2 0 1 6:4 4 KR-ingar búnir að skrifa undir! Frjálsiþróttadeild KR hef- ur nú gert skriflegan samn- ing við sovéska frjálsiþrótta- þjálfarann Alexeyev og er hann væntanlegur innan tiðar hingað til landsins. Að sögn þeirra KR-inga er samningurinn gerður til eins árs og vænta þeir mikils af störfum sovéska þjálfarans — og með komu hans hingað til Iandsins komi nýtt lif I frjálsar íþróttir. Finnland 3 1 0 2 9:7 2 Luxemborg 2 0 0 2 2:11 0 Johnny Giles teflir fram sama liði og tapaði 0:2 i Frakklandi i fyrri leik liðanna, að þvi undan- skildu að Stepleton getur ekki leik ið vegna meiðsla. Það er vissu- lega áfall fyrir ira, en i stað hans valdi Giles félaga sinn úr WBA Ray Treacy. En irska liðið verður þannig skipað: Kearns, Mulligan, O’Leary, Martin, Holmes, Daly, Giles, Brady, Treacy, Heighway, Giv- ens. Staðan i riðlinum er þessi: Frakkland 2 110 4:2 3 Búlgarfa 1 0 1 0 2:2 1 Irland 1 0 0 1 0:2 0 Þriðji HM leikurinn á Bret- landseyjum f kvöld er leikur Wal- es og Tékkóslóvakiu. Tékkarnir til alls liklegir þessa dagana, og þeir unnu Grikkland 4:0 i æf- ingarleik á dögunum. Sigri tékkar i leiknum i lvöld, er staða þeirra i riðlinum það góð, að erfitt verður að stöðva þá, þvi að þeir hafa þegar unnið skota i Prag. En staðan er þessi: Tékkoslóvakia 1 1 0 0 2:0 2 Skotland 2 1 0 1 1:2 2 Wales 1 0 0 1 0:1 0 John Toshack. Liverpool, leik- maðurinn snjalli mun ekki leika með velska liðinu i kvöld. Hann var í gær settur i gips vegna meiðsla á fæti og verður i þvi'ör- ugglega næstu 3 vikurnar. En Mike Smith framkvæmdastjóri velska landsliðsins hefur valið Davies. Thomas, Evans, Jones, Phillips, Griffiths, ! F'lynn Yorath, Mahoney, Sayer, Ueacy. Leikið i gær. 2. deild: Nott.For.—Orient 3:0 3. deild: Lincoln — Chester 3:3 Preston —Sheff. Wed. 4:1 Swindon — York 5:1 4. deild: Watford —Doncaster 5:1 með Val að þessu sinni og þegar mest reið á i siðari hálfleik skor- aði hann mikilvæg mörk en alls gerði hann sjö mörk i siðari hálf- leik. Auk hans átti Þorbjörn Guð- mundsson góðan leik. Mörk IR: Brynjólfur Markús- son 11(2) Sigurður Svavarsson 5, Agúst Svavarsson 4 (1) og þeir Sigurður Gislason, Vilhjálmur Sigurgeirsson og Bjarni Bessason eitt mark hver. Mörk Vals: Jón P. Jónsson 9, Þorbjörn Guðmundsson 9 (5) Steindór Gunnarsson 2, Gisli Blöndal 2 og þeir Jón Karlsson, Stefán Gunnarsson og Bjarni Gunnarsson eitt mark hver. Valur-Fram á Meloveili Meistarakeppni Knattspyrnu- sambands tslands heldur áfram á Melavellinum i kvöld kl. 20, og þá leika Fram og Valur siðari leik sinn. Valur sigraði í fyrri leik lið- anna 1:0, og með sigri í leiknum i kvöld geta valsmenn tryggt sér sigurinn i meistarakeppninni f ár. En staðan I keppninni er þessi: Valur Fram Akranes Jón Karlsson sækir hér að vörn IR-inga. Sigurður Svavarsson er til varnar og bægir hættunni frá. Ljósmynd Einar. Víkingar sýndu fátt sem gladdl — en leikur þeirra í 1. deildinni í gœrkvöldi nœgði þó til að vinna 26:22 sigur gegn þrótturum Það var ekki burðugur hand- knattleikur sem Vikingur, annað forustuliðið i 1. deildinni i hand- boltanum, sýndi I Laugardals- höllinni I gærkvöldi gegn Þrótti. Að vísu sýndi Vikingur nóg til að sigra i leiknum með 26 mörkum gegn 22, en varla verða þeir is- landsmeistarar i handknattleik eins og þeir sýndu hann i gær. Annað er það íhugunarefni hvern- ig handknattleikurinn virðist á niðurleið um þessar mundir, og þeir 172 áhorfendur sem borguðu aðgangseyri i Höllinni í gærkvöldi fengu ekki mikla skemmtun fyrir. Þróttarar tóku strax forystuna i leiknum i gær og komust i 3:1, en Þorbergur jafnaði fyrir Viking. Þeir Sveinlaugur og Konráð komu Þrótti yfir a f tur með þrem- ur mörkum, og siðan náðu þrótt- arar að halda forystunni alveg framundir lok fyrri hálfleiks, en þá jafnaði Vikingur 11:11, með góðri aðstoð slakra dómara. Fljótlega i siðari hálfleiknum náði Vikingur siðan yfirhöndinni. Mestur varð munurinn i hálf- leiknum 5 mörk, en lokatölurnar sem fyrr sagði 26:22. Það er ekki mikið að marka þennan sigur Vikings og varla vinna þeir mörg af „sterkari” liö- unum ideildinni þannig. I þessum leik var það einstaklingsframtak- ið sem gilti; menn áttu góöa kafla af og til, t.d. Þorbergur i byrjun leiksins þegar hann skoraði 5 af 7 fyrstu mörkunum og siðan Páll Björgvinsson og Viggó Sigurðs- son i siðari hálfleik þótt Viggó væru mislagðar hendur þess á milli. Þróttarar léku þennan leik hvorki betur né verr en maður átti von á. Þeir sem skáru sig úr i liðinu voru Konráð Jónsson sem var drjúgur við markaskorunina er á leikinn leið og skoraði reynd- ar öll mörk Þróttar siðustu 15 minútur leiksins nema 2. Þá má nefna Sveinlaug Kristjánsson sem átti góða kafla. Mörk Vikings: Þorbergur 6, Viggó 6, Ólafur E. 5, Páll 4 (2), Björgvin 3, Erlendur 1, ólafur J 1. Mörk Þróttar: Konráð 9 (1), Sveinlaugúr 5, Gunnar Gunnars- son, Halldór Bragason og Jóhann Frimannsson 2 hverv Sigurður Sveinsson og Bjarni Jónsson 1 hvor. Dómarar voru Georg Árnason og Geir Thorsteinsson og voru vægast sagt lélegir. Maður er vanur slakri dómgæslu i islands- mótinu, en frammistaðan nú var mun slakari en gerist og gengur i þeim efnum. gk— í STAÐAN ) Staðan i 1. deiid islandsmótsins i handknattleik er nú þessi: Valur — ÍR 25:23 Vikingur — Þróttur 26:22 Valur 11 9 0 2 247:210 18 Vikingur 11 9 0 2 271:240 18 FH 10 6 1 3 236:211 13 Haukur 11 5 2 4 222:223 12 ÍR 11 4 2 5 226:240 10 Fram 10 4 1 5 209:214 9 Þróttur 10 0 3 7 188:221 3 Grótta 10 0 1 9 194:235 1 Markhæstu leikmenn eru þessir: Hörður Sigmarss. Haukum 80:30 Þorbj. Guðm. Val 66/15 Ólafur Einars. Vik. 61/14 Jón Karlsson Val 61/22 Geir Hallsteins. FH 59/10 Viöar Simonars. FH 58:21 Næstu leikir eru á fimmtudag. Þá leika Grótta / iR og FH/Þróttur. Valsmenn sluppu með skrekkinn! — þeir voru lengstum undir gegn ÍR en tókst að tryggja sér sigur í leiknum á siðustu mínútunum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.