Vísir - 30.03.1977, Qupperneq 20

Vísir - 30.03.1977, Qupperneq 20
VÍSIR Miövikudagur 30. mars 1977. Hundrað þús- und fyr- ir höggið Hundraft þúsund krónur sættist maöur nokkur á aö greiöa lögregluþjóni vegna höggs sem hann veitti lög- regluþjóninum i andlitiö fyrir nokkru. Atburðurinn átti sér stað i miðborginni i Reykjavik. Lög- regluþjónninn var þar á varð- göngu ásamt öðrum og veitti maðurinn honum höggið að ósekju. Mál þetta fór ekki fyrir sakadóm heldur sættist maðurinnsem fyrr segir á að greiða lögregluþjóninum þessa upphæð. — EA Bernharður bíður heim- fararleyfis Séra Bernharður Guömundsson og fjölskylda lians eru enn i Addis Abeba i Eþiópiu. Þau biöa þar eftir vegabréfsáritun til aö fá aö fara úr iandi og eru að ganga frá úmsum málum sinum. Biskupsskrifstofan sagöi Vísi i morgun að ekki væri búist við aö þau hæfu heimferðina, fyrr en um miöjan april. Það er nú tiltölulega kyrrt i Eþiópiu, þrátt fyrir áfram- haldandi skæruur i norður- hluta landsins. Allt errólegt i höfuðborginni og séra Bern- harður og fjölskylda höfðu það gott, þegar siðast frétt- ist. —ÓT Jíii rólegt við Kötlu ,,Þaö hefur allt veriö rólegt þarna á svæöinu viö Kötlu siö- an á dögunum aö hræringarn- ar uröu” sagöi Páll Einarsson hjá Kaunvisindastofnun há- skólans er viö höföum sam- band viö hann í morgun til ab forvitnast um hvort eitthvaö væriaö gerast á Kötlusvæðinu þessa stundina. ,,Þessi kveisa sem hún fékk þá stóö ekki yfir nema i klukkustund en siöan hefur hún ekkert bært á sér umfram þaö sem verið hefur vanalegt I ár” sagöi Páll. — klp— Sólarlandaferðir nú allt órið um kring — og aldrei jafn mikið framboð og í sumar Mjög aukiö framboö er á sóiarlandaferöum i sumar og þykir sumum feröaskrifstofu- mönnum óliklegt aö farnar verði allar þær ferðir sem búiö er að auglýsa. Þá eru feröa- skrifstofur nú aö taka upp nýj- ungar sem veröa til þess aö ekk- ert lát verður á sólarlandaferö- um allan ársins hring. Það er i rauninni ekkert nýtt að i upphafi „vertiðár” séu aug- lýstar fleiri ferðir en farnar verða. Það hefur oft verið gert áður að hafa framboð mikið i byrjun. Þegar svo pantanir fara að berast og linurnar skýrast, er stokkað upp og ákveðið endan- lega hvaða ferðir verða farnar. Hinsvegar eru ferðaskrifstof- urnar nú orðnar sex talsins og hafa bætt við löndum, þannig að framboð hefur aldrei veriö jafn mikið og núna. Þá eru nú úr sögunni skilin milli sumar og vetrarvertiöar. Sumar skrifstofurnar eru nú farnar að skipta áætlunum beint af Kanari og yfir á aðrar Spánarlendur fyrir sumariö, og skipta svo án hlés, yfir á Kanari aftur, þegar þar að kemur. Ferðaskrifstofan Sunna bætir um betur og býður nú Kanari- eyjar og Mallorca allt árið. Guðni Þórðarson forstjóri segir að með þvi aö gera heils árs- leigusamninga við hótel, fáist töiuverð verðlækkun og verður hún látin koma fram i sumar- verði á Kanari og vetrarverði á Mallorca, meðan verið er aö kynna þessa staði á nýjum árs- timum. Að sögn ferðaskrifstofanna er þegar farið að berast töluvert af pöntunum. Ekki mun það vera neitt óvenjulega mikið, en þó er að verða uppselt á nokkra vin- sælustu staðina á besta timan- um. —ÓT. Rekstrarjöfnuður ríkissjóðs 1976: Mikill mismunur upphœð eililífeyris lífeyrissjóðanna: Byrjað að hreinsa Byrjaö er aö hrcinsa burt rústir Bernhöftstorfunnar, sem brann á laugardaginn var. Þaö er fjármálaráöu- neytiö sem ákvaö þessa hreinsun, en fulltrúi frá hús- friöunarnefnd Reykjavikur- borgar mun fylgjast meö verkinu og hiröa þaö, sem heillegt getur talist úr rústun- um. Það er sem kunnugt er rikið, sem á Bernhöftstorfuna, og það verður þvi rikisvalds- ins, i samráði við borgaryfir- völd, aö ákveöa endanlega, hvað gert verður á lóðinni. Ljósmynd-Jens. Róðherrar fengu 1358 þúsund í fyrra en hjúkrunarkonur 330 Mikill munur er á þvi hversu háan ellilifeyri hinar ýmsu starfsstéttir fá úr lifeyris- sjóöum sinum. Á síöasta ári var t.d. mebal- tals ellilifeyrir hjúkrunar- kvenna 330 þúsund krónur, og barnakennara 056 þúsund krón- ur, en meöal ellilifeyrir alþing- ismanna var 956 þúsund krónur og ráðherra 1358 þúsund, segir I mars-hefti Félagstíðinda Starfsmannafélags rikisstofn- ana. A siöasta ári fengu 66 aðilar bætur úr alþingismannadeild. Lifeyrissjóðs starfsmanna rikisstofnana. 37 fengu makalif- eyri, samtals 17.6 milljónir, og 29. ellilifeyri, samtals 27.2 milljónir. Sama ár fengu niu aðilar úr ráðherradeildinni. Þrir ' fengu makalifeyri að upphæö 2.4 milljónir króna, en 6 ellilifeyri að upphæð 8.1 milljón. Ef teknar eru saman maka- ogellilifeyrisbæturkemur iljós, að i fyrra fengu 66 aðilar 44.8 milljónir króna úr alþingis- mannadeildinni, og 9 aðilar 10,5 milljónir úr ráöherradeildinni. Sama ár fengu 140 bótaþegar einungis 38.2 milljónir króna úr lifeyrissjóði sjómanna. —ESJ Jákvœður í fyrsta sinn sfðan 1972 Rekstrarjöfnuður rikissjóðs varð hagstæður i fyrra um nokkur hundruð milljónir, og er það I fyrsta sinn síðan áriö 1972, en þá var rekstrarjöfnuöurinn hagstæöur um 100 milljónir króna. Þetta kemur fram i skýrslu fjármálaráðherra um afkomu rikissjóðs 1976, sem lögö var fram á þingi i gær. Þar kemur einni fram, að rekstrarútgjöld voru i fyrra lægra hlutfall af vergri þjóðar- framleiðslu en þau hafa verið siðan 1973. Samkvæmt bráða- birgðatölum námu heildarút- gjöldin I fyrra 27.3% af þjóðar- framleiðslunni, en árið 1975 31.4%. Ef rekstrarútgjöldin hefðu átt aðhalda sama hlutfalli i fyrra og árið þar á undan hefðu fjárlögin þurft að hækka um 10 milljarða króna. —ESJ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.