Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 2
2 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 9. júlí 1968 ADIDAS KNATTSPYRNUSKÓR Hina heimsfrægu ADIDAS knattspyrnuskó eigum við nú, bæði fyrir gras -og malarvelli. — — Póstsendum — KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA Skódeild. Sími (96)-21400. Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 — Símar 31055 og 30688 AUGLÝSIÐ í TÍMANUM r i i SKARTGRIPIR yv/L —i i Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. — - SIGMAR & PÁLMI - Hverfisgötu 16 a. Súnl 21355 og Laugav. 70. Simi 24910 auppsagmr 3. starfsári Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi lauk 31. maí s.l. Nem- endur skólans voru alls 126, þar af 90 barnadeildum en 36 í I. og II. bekk gagnfræðastigs. Fastir kennarar voru 3 auk skólastjór- ans Sigurðar Helgasonar. Ráðs- kona var Guðrún Hallsdóttir, en auk hennar störfuðu 4 stúlkur við mötuneyti og ræstingu. Nemend- ur í heimavist voru að jafnaði 63—67. Kennslutilhögun var svip- uð og árið áður nema að því leyti að nemendur I. bekkjar gagnfræðastigsins voru nú allan veturinn í skólanum og 8 ára börn sem ekki eru skólaskyld, fengu 59 skóladaga. Félagslíf í skólan- um var mikið meðail nemend.a og íþróttaáhugi mikill. Margir gestir heimsóttu skólann að venju. Bindindismót var haldið í skól- anum með þátttöku nemenda Barna- og unglingaskólans í Stað- arsveit. I. bekkur gagnfræðastigs fór í náms- og kynnisför til Reykjavíkur í febrúar, en II. bekkur í 3ja daga skemmtiferð um Suðurland að prófum lokn- um. Heilsufar í skólanum var gott þar til síðustu vikurnar að inflú- ensa herjaði á nemendur. Próf- um lauk 22. maí. Barnaprófi luku 13 nemendur og hlaut hæstu eink- unn Anna Kristín Stefánsdóttir frá Stóru-Þúfu, 8.70. Unglingaprófi luku 15 nemendur og hlaut hæstu einkunn Kristín Jóhannesdóttir frá Jörfa, 9.48. Hlaut hún verð- laun úr Bóka- og menningarsjóði skólans fyrir frábæra ástundun við nám og námsárangur. Sjóð iþennan íltofnaði Félag Snæfell- inga og Hnappdæla í Reykjavík fyrir tveim árum með mjög mynd arlegu framlagi. Handavinna nem enda var mjög fjölbreytt og mynd arleg og var hún til sýnis skóla- slitadaginn. HARÐVIÐAR ÚTIHURÐIR TRÉSMIÐJA Þ. SKÚLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 Frá Réttarholtsskóla. Réttarholtsskólanum var slitið föstudaginn 31. maí. í skólanum voru 667 nemendur í 24 bekkjar- deildum. 222 í I. bekk, 200 í II. bekk, 158 í II. bekk og 87 í I. bekk. Við skólann störfuðu 24 fastir kennarar og 17 stundakennarar. Hæstar einkunnir á prófi hlutu þessir nemendur: í I. bekk Vil- mundur ilhjálmsson 9.30, í II. bekk Ólafur Stefánsson, 9.33, í III. bekk (utan landsprófs) Hjör- dís Óskarsdóttir 8.15. 85 gagnfræðingar útskrifuðust úr skólanum. Hæstu einkunn á gagnfræðaprófi hlaut Guðrún Finnsdótitr, IV. bekk A, I. ágætis einkunn 9.01. Undir landspróf gengu 60 skóla nemendur og 2 utanskólanemend- ur. Af skólanemendum stóðust 58 prófið (aðaleinkunn 5.00) en 46 nemendur fengu framhaldseink- unn (meðaltal 6.00 í landsprófs- greinum) eða 76,7 % Hæstu einkunn á landsprófi hlaut Magnús Guðmundsson, I. ágætiseinkunn 9.31. ið skólaslit gaf skólastjórinn, Ástráður Sigursteindórsson, yfirlit yfir skólastarfið og úrslit prófa og ávarpaði að lokum hina ungu gagnfræðinga. Ennfremur afhenti hann bóka- verðlaun þeim nemendum, sem skarað höfðu fram úr í námi. Þetta var 12. starfsár skólans. Gagnfræðaskólinn á Akureyri. Gagnfræðaskólanum á Akur- eyri var slitið 1. júní, og fór at- höfnin fram í hinum nýja hátíða- og samkomusal skólans, sem tek- inn var 1 notkun í vetur. í skólanum voru í vetur 720 nemendur, sem skiptust í 19, bók- námsdeildir og 7 verknámsdeild ir. Kennarar voru 42, 29 fasta- kennarar og 13 stundakennarar. 98 gagnfræðingar brautskráðust að þessu sinni, 72 úr bóknáms- deild og 26 úr verknámsdeild. Hæstu einkunnir á gagnfræðaprófi hlutu Jóhanna Jónsdóttir, I. 8.06, Jóhannes Axelsson, I. 8.04, og Ingibjörg Antonsdóttir, I. 8.00. Til landsprófs miðskóla innrit- uðust 79 nemendur, þar af 1 ut- anskóla. Landspróf stóðust 58, en 44 náðu réttindaeinkunn til inn- göngu í menntaskóla. Hæstu með- aleinkunnir í landsprófsgreinum hlaut Gunnar Þórðarson, I. ág. 9.33. Hæstu aðaleinkunn í skólan- um á þessu vori hlaut Hólmfríð- ur Vignisdóttir, I. bekk, I. ág. 9.28. Þau hlutu bæði bókaverð- laun fyrir yfirburði í námi. Aðrir verðlaunahafar voru þess- ir: Guðrún Jóhannesdóttir hlaut farandbikar fyrir hæstu einkunn í íslenzku á gagnfræðaprófi. Lions klúbburinn Huginn verðlaunaði pilt og stúlku fyrir beztan árang- ur í stærðfræði, bókfærslu, vélrit- un og ritleikni á gagnfræðaprófi. oru það þau Ragna Pálsdóttir og Jóhannes Axelsson. Jóhanna Jónsdóttir fékk bókaverðlaun frá danska kennslumálaráðuneytinu fyrir kunnáttu í dönsku og Ragna Pálsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Guðrún Jóhannesdóttir og Sesselja Steinarsdóttir verðlaun frá þýzka sendiráðinu í Reykjavík fyrir kunnáttu í þýzku. Þá voru þeir Jóhannes Axelsson, umsjónar- maður skóla, Sigurbjörn Gunnars- son, formaður skólafélagsins, Magnús Sigfússon og Páhni Jakobsson verðlaunaðir fyrir for- ystu í félagsmálum. Félagslíf var mjög gott í vetur, en leiðbeinendur nemenda í þeim efnum voru kennararnir Einar Helgason og Ingólfur Ármanns- son. Mörg fþróttamót voru háð og námskeið haldin. t.d. í mvndlist. skák og bridge, og naut skólinn þar stuðnings æskulýðsráðs og æskulýðsfulltrúa Akureyrar. Nokkrir málfundir voru haldnir, og 2 tölublöð komu út af skóla- blaðinu Frosta. 10 skemmtisam- komur voru á vetrinum, allar mjög vel sóttar og fóru prýði- legn fram. Veglegastar voru ára mótadansleikur, árshátíð og grímu dansleikur. Nokkrir afmælisárgangar voru viðstaddir skólaslitin og færðu skólanum veglegar gjafir. Skúli Flosason, málarameistari, afhenti skólanum háa fjmupphæð í bóka safnssjóð fyrir hönd 20 ára gagn- fræðinga, frú Erla Hrönn Ás- mundsdóttir afhenti myndarlega peningagjöf til hljómplötukaupa frá 10 ára gagnfræðingum og Sig- urður Sigurðsson, verzlunarmaður, talaði fyrir hönd 5 ára gagnfræð- inga, sem gáfu skólanum forkunn arfagran og vandaðan ræðustól. Allir minntust ræðumenn dvalar sinnar í skólanum hlýjum orðum. í lok skólaslitaathafnarinnar á- varpaði skólastjórinn, Sverrir Páls son, brautskráða nemendur og árnaði þeim heilla og blessunar. Hagaskóli. Hagaskóla var slitið föstudag- inn 31. maí. í skólanum voru í vetur 812 nemendur í 28 bekkjar- deildum. Fastir kennarar við skólann voru 25 og 19 stundakennarar. ið skólauppsögn ræddi skóla- stjórinn, Björn Jónsson, um starf Hagaskóla - á liðnu starfsári, lýsti úrslitum prófa og afhenti gagn- fræðingum prófskirteini. f I. bekk tóku 238 nemendur próf. Hæstu aðaleinkunn hlaut Brynhildur Scheving Thorsteins- son, 9.37. Unglingapróf þreytti 241 nem- andi. 233 stóðust prófið. Hæstu aðaleinkunn hlaut Ingibjörg Har- aldsdóttir, 9.16. Landspróf miðskóla þreytti að þessu sinni 81 nemandi. Stóðust allir miðskólapróf, og 73 náðu framhaldseinkunn. Hæstu aðal- einkunn á landsprófi hlaut Hafliði Gíslason, 9.71. Gagnfræðaprófi luku 112 nem- endur og auk þess 2 nemendur utan skóla. Hæstu aðaleinkunn á gagnfræðaprófi hlaut Jón Unn- dórsson, 8.84. Margir nemendur hlutu bóka- verðlaun fyrir afrek í námi og vel unnin störf í þágu skólans. Húsmæðraskólinn Laugalandi. Húsmæðraskólanum á Lauga- landi í Eyjafirði var slitið þann 14. júní að viðstaddri skólanefnd og gestum. Sóknarpresturinn, séra Bjartmar Kristjánsson predikaði, en forstöðukona skólans frk. Lena Hallgrímsdóttir ávarpaði náms- meyjar og afhenti þeim próf- skírteini. — Hún gat þess að skól- inn hefði starfað í tæpa 9 nám- uði og hefði hann verið fullskip- aður, eða alls 40 nemendur og hefðu þeir allir lokið prófi. Hæstu einkunn hlaut Oddný Snorradótt- ir, Hjarðarhaga, Eyjafirði, 9.35. Forstöðukona gat þess að mikl- ar og góðar breytingar hefðu far- ið fram á skólahúsinu síðastliðið sumar. Ennfremur skýrði hún frá því, að þann 11. maí s.l. hefðu gamlir nemendur heimsótt skól- ann, en það voru 30, 20 og 10 ára nemendur og færðu þeir skólan- um fagrar og dýrar gjafir. Seinna í vor barst skólanum einnig mikil og vegleg gjöf frá sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu. Allt þetta bæri að þakka en þó væri mestu um vert þann hlýhug sem streymdi að skólanum úr öllum áttum og bak við allar aóðar eiafir laeei —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.