Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. júlí 1968 TIMINN 7 HESTAR OG MENN HROSSASKRAF Sá kunni hestamaður og ferða- langur Sigurður Jónsson frá Brún flutti síðastl. sumar útvarpserindi sem hann nefndi Hrossaskraf. þeim tíma, (síðast í ágúst), og raunar alltaf eru margir, sem ekki hafa aðstöðu til að geta hlustað og er því mörgum fengur í að fá útvarpserindi á prenti. Einkum á þetta við þegar mál er kjarnyrt og efnismikið og sum orðatiltæki ekki auðskilin við skyndiheyrn. Því er þetta erindi nú birt hér og mun ýmsum þykja það nokkur fengur. — Vegna tak- markana á rými verður að tví- skipta erindinu og kemur seinni- hlutinn í næstu viku. G.Þ. Þegar farið er að lýsa einhverri langþekktri starfsemi og gylla hana eins og t. d. gerði As- geir Jónsson frá Gottorp um reið- mennsku í bókum sínum „Horfn- ir góðhestar I—II,“ þá dettur ýmsum öðrum í hug hvort nú sé ekki farið að halla til loka með þá færni og kunnáttu, sem þar er haldið fram. Slíka fræðslustarf- semi um gamalkunnug verk eða listir hefja ógjarnan — nema heimska ráði eða framhleypni — aðrir en þeir, sem þekkingu hafa og áhuga á starfsgreininni og ór- ar þá oft fyrir því — hvort sem þeim er það greinilega Ijóst eða ekki — að nú halli til muna frá fornum menningarbrag niður í afrækjuhátt og ómennsku. Við áróður og bendingar slíkra manna, sem Ásgeir var, getur svo tiltekizt, að aftur rísi alda vand- virkni og ræktarsemi, sem öllu fleyti í höfn, en hitt mun því miður tíðkast, að of seint er við brugðið og er það skiljanlegt, þar sem glöggustu mennirnir og starfs glöðustu kjósa heldur að vinna að hugðai-máli sínu mcð eigin höndum en að eyða orku og tíma í það að telja um fyrir sér heimsk- ari mönnum, eða latari og láta þá svo um þær framkvæmdir, sem óvíst er að þeir hafi höfuð til að skilja eða áhuga til að sinna. • Ásgeir frá Gottorp t. d. notaði hesta og sýndi afrek þeirra á með- an honum entist heilsa, en skrif- aði ekki að ráði um reiðmennsku né hestakosti fyrr en honum voru önnur störf við hrossaafskipti að mestu óvinnandi, því væri ef til vill rétt að athuga gang sinn og meta hversu horfir einkum ef illa horfir. Og nú er enn verr komið en þegar Ásgeir skrifaði. Breyttir tíðarhættir, krónusýki, leti og fólksleysi til allra sveita- starfa gera nú stórum erfiðara en var fyrir tuttugu til þrjátíu árum eða lengri tíma, að koma við nokkurri hrossarækt. Bæði er einyrkjum, sem mjög fer fjölg- andi í gisnandi byggðum, örðugt að tætast við álægja merar og graðhesta á annatíma, og eins er stórum hættara við, þegar fram- kvæmdir þyngjast, að einstakir umbrotamenn leggi undir sig alla slíka starfsemi á stórum svæðum og þá eru mistök þeirra, ef ein- hver verða, hai-t nær óbætanleg, en afglöp einstaklinga, sem láta niður falla nauðsynjaverk eða framkvæma heimskuhnykki, eru í ófélagsbundnu umhverfi seinverk- andi og oftar úrbótarhæf. Að nefna dæmi um herfileg af- glöp einstakra manna kynni að teljast meiðyrði, enda verður dæm um þeirra ekki flíkað að sinni, en nærtæk eru þau og hörmu- leg, mörgum kunn og víða orðin, en öllum má vera ljós sú afsök- un sumra þeirra flónsku, að ef mikilhæfur gallagripur lendir í byrjun í snillingshendur getur hann auðveldlega komizt hjá að sýna lýtin — ef til vill ill og mörg — fyrri en á afkomendum sín- um og þannig getur hann orðið átrúnaðargoð ótal ginningarfífla og orsök heilla hópa af mein- gripum, sem trauðla verður út- rýmt og sízt nema með löngum tíma. En góð tamning gallaðs undan- eldisgrips er ekki eina afsökun- in fyrir óheppilegu vali. Útflutn- ingur einkum útflutningur ótam- inna og lítt taminna hrossa hylur niðurstöður margrar ættræktrar og margra kyoblandana, þar sem af- leiðingarnar hverfa, þá frá rann- sókn, áður en öruggleg er úr skorið hverjar þær ætluðu að verða, og þá eru reikningsvillur eðlilegar í meðaltali matshæfra afkomenda og satt að segja ekk- ert metanlegt nema ytraborðið, sem að vísu hefir tognað í allar áttir, síðan sýningar hófust, en ef til vill meira fyrir batnandi tíðarfar en batnandi ræktunarvit. Útflutningur íslenzkra hrossa er ekki aðeins sams konar athöfn og að fela námsbók fyrir ncmenda, heldur er hann líka gat, sem lek- ur sumu af beztu gripunum frá innlendri ræktun í hendur útlend- inga, sem vitað er að sumir ætla sér að auðgast á að ala upp þar úti keppinauta heimaöldu hross- anna, og svo miklu er ræktunar- menning og yfirráðaskilyrði þar í löndum betri en hjá okkur, að vegna þess mismunar má það heita leikur að gera þar öll rækt- unarstörf örugglegar en hér. Það er aðeins hugsanlegt að landverð til hrossauppeldis og áhugi kaup- enda reynist þar öðruvísi en vit- að er hér og gæti það varið okk- ur þyngstu samkeppninni. Það að flytja út fylfullar merar og grað- hesta er samt svo fávíslegt að undrum sætir. Þó skiptir meiru að vita hvað maður ætlar að rækta og hvern- ig það á að verða í framtíð held- ur en hitt, þólt út flækist nokk- uð af þeim hrossum, scm betur hefðu verið kyrr heima og þar til framtímgunar. En hvernig eiga svo íslenzk hross að verða og á hvað ber mest kapp að leggja við ræktun þeirra? Fyrst og fremst þurfa þau að vera heilsugóð og þola land sitt, tíðarfar þess og afnot eigenda. íslenzk veðrátta er misfellasöm og einyrkjabú þolir það ekki að gangnamaðurinn, sem þá gjarnan er bóndinn sjálfur, verði úti í haustleitum, af því að fjallhest- arnir hans eru ekki færir um að þola hungur, vosbúð og erfiði í sameinaðri þrenningu um dægra skeið, þótt til kunni að þurfa að taka. Orkuna í skyndiafrek á hesta Fyrri hluti móti má auðveldlega fá fram mefi eldi og æfingu en loðnuna til þess að verja blóðheitan líkama fyrir hitaláti í áfellum eins og komu á Norðurlandi 1916 í fyrstu göng- um og aftur 1929—‘34 og ‘63 á sömu slóðum og sama tíma, þau þola ekki uppstrílaðir húshundar eða dekurbörn i marga ættliði. Hér var loðnan nefnd, þótt ljót þyki, en ekki mætti síður nefna háræðastyrk og hjartaþol, sem hvort tveggja æfist upp bezt á ungum aldri og við misjöfn kjör og er því öruggara hjá þeim landkynjum, sem ekki eru ræktuð upp til ákveðins leikaraskapar heldur haldið að þeirri íþrótt fyrst og fremst, að þola og seigl- ast. Og íslenzkur nytjahestur þarf ekki aðeins að þola íslenzkt veð- ur og íslenzkar brekkur og lang- ræði. Hann þarf fyrst af öllu að þola manninn sinn og hafa það lundarfar, sem minna bergður sér við álag og illhrinur heldur en jafnvel sá skrokkur. sem áður var ætlað að duga, kemur þar ekki illmennska til heldur ill nauðsyn.; En þeir hestar halda bezt trausti j til manns og hlýðni við mann, j sem upphaflega hafa vanizt frjáls- ræði og sjálfstæði en síðan tam- izt til samneytis við manninn og lært, að honum má löngum treysta og að aðra tíma verður að verja hann og fórna sér fyrir báða, þá komna í þær klípur, verðskuldað- ar eða ekki, — sem gildir heils- una og jafnvel lífið að sigrast á. Hér er að ég hygg, aðeins ein leið til og hún er sú sama og farin hefur verið frá upphafi ís- landsbyggðar, er að vísu köld eins og landið, en furðu raungóð, og hún er sú að láta hross sín alast upp á eigin framfæri svo sem verða má innan þeirra takmarka um forsjón og hjúkrun sem al- menningssmekkur og dýravernd- unarlöggjöf ákveða á hverjum tíma. Þá fæðast upp vinnugripir, sem uppkomnir þola veðráttu og annað álag eins vel og hrosslíkam- ir geta þolað erfiðleika. Þau hross sem þannig verða til eru sum svo eðlisforvitin að þau vilja öllu kynnast, og svo lundstyrk að þau hræðast hvorki mann né mis- fellu fyrri en eftir illa raun af öðru hvoru eða báðum. Slíkum hrossum verður auðnáð til beizl- unar og þau verða flóttalaus í umgengni á meðan viðbúð mannsins er hlýleg og réttlát. Þau verða auðtamin og fljót í gagnið, en þau verða sjaldan fyrir því að nokkur maður reynist þeim mun betur en þau væntu sjálf sem verða kann um lítt mannvön stóðhross og taka því sjaldan ann- arri eins tryggð við eiganda sinn og bezt má verða með lagaðan skálk eða gæfan styggðarára, því sú kynslóð er einnig til, sem er eðlistortryggin og mannhrædd og henni verður auk verka sinna að kenna að manninn beri ekki að óttast en eflaust að virða. Sá lærdómur fæst með einni að- ferð og aðeins einni: þeirri að halda stillingu sinni og rétt- sýni hvað sem í gerist og reyn- ast skynmunni sinni örugg for- sjón, vitrari og máttugri öllu öðru, sem hún kynnast kann. Að því fengnu og nógu marg- reyndu verður styggur hestur spakur og stundum svo innilegur vinur húsbónda síns, að fáir trúa nema séð hafi En réttlæti og stilling er ekki hverjum manni gefin og svo mjög skortir aðra hvora eða báða hjá fjólda manna, að fyrsti kostur allra hrossa verður að teljast hreinlyndi og hrekkleysi í þeirri blöndu, sem. heita mætti umburð- arlyndi. Þeir, sem annars óska fremur, ættu sjálfir að reyna að taka snúðinn af hraðvirkum og þróttgrónum hrekkjarfanli, hræðslugjörnum, tortryggnum og illviljuðum og greiða atkvæði sitt um kostina eftir þá reynslu, það yrðu að minnsta kosti traustari ummæli, sem svo fengjust, en úr- skui’ður óvalinnar heildar, því þegar til þess kviðdóms yrði kall- að væri dautt eða lemstrað af tamningaslysum eitthvað af stirð- ustu mönnunum og heimskustu og þannig sjálfrutt úr dómnum til sjúkrahúss eða grafar. Þótt aðeins hafi verið nefndur útflutningur hrossa hér að framan, þá hafa öll viðhorf verið miðuð við innan landsnytjar, enda verður svo að vera þar sem mikið af sauðfjár- búum landsmanna verður alls ekki stundað nema með tilhjálp hesta og stóðbú eru enn síður hugsanleg án vikahesta og þótt potlhross ein skyldi ala. Jafn vel holdanautabú kynnu að bæt- ast þar við. Leikföng handa útlendingum er aftur ráð að láta þá sjálfa um að smíða sér eftir sínum smekk úr hverju því hráefni, er þeim í hendur kemst, að minnsta kosti er það vænlegra en að ætla af- dalabændum á íslandi að geta til smekks eða óska slíkra manna um fram það, sem er almennt skyn- samlegt. I-Iér hefir að talið er við þau skilyrði, sem bóndinn þekkir, orðið breyting til bóta í ræktun nautgripa og sauðfjár. Ber að þakka það og viðurkenna, og væri freistandi að herma það um- bótastarf eftir, að því er til hrossa kemur, ef fært væri. En þar er ólíkur vandi við. Þótt miklu skipti að kýr eða kindur séu umgengnisgóðar þá er sá tregmælanlegi eiginleiki þeirra minna áríðandi en tilsvarandi geðslag hjá vinnufélaga eins og hestur er, þótt sleppt sé skemmt- unarhluta reiðmennskunnar. Það er því þúsundfaldur vandi að rækta hross borið saman við ann- an bústofn og líkist engu hugs- anlegu starfi nema helzt mann- rækt, ef hún kynni að verða stunduö. (iDIUÓN STYBK4RSS0N HÆSTARÉTTARLÖCMADUR AUSTURSTRÆTI 6 SiMI IR3S4 HLAÐ RUM Hlaírim henta allstatlar: { bamahcr* bergjiö, ungUngahcrbergW, hjánaher- bergiB, mmarbtlstaðinn, veiðihúiið, bamaheimili, heimavistarskóla, hótcl. Helztu lostir hlaðrúmanna «ru: ■ Rúmin má nota citt og extt sér eða hlaða þeim upp i tvxi eSa Jnjir hxCir. ■ Hægt er aS ö aukalega: Nittborð, stiga eSa hliSarborð. ■ InnaUmil rúmanna er 73x184 sm. Híegt er að fi rúmin meS baðmull- ar og gúmmldýnum eða in dýna. ■ Rúmín hata þrcfalt notagildt þ. e. kojur/einstaklingsrúm og'hjónaiúm. ■ Rúmin eru úr tekki eða úr brénni (brennirúmin eru minni ogódýrarí). ■ Rúmin era ðll f pörtum og tekur aðeins um tvxr mfnútur aS setja þau saman eða taka f sundur. HtJSGAGNAVERZLUN REYKJAVIKUR BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI11940 K E N T Á R rafgeymar, í bifreiðar, báta og vinnuvélar, 36 mismunandi stærð- ir, í allar bifreiðar, m.a. Cortina, VW, Skoda 1000, MB, Vauxhall, Fiat, — Renault. Þér getið fengið KENTÁR rafgeyma hvar sem er á landinu, eða til- senda gegn póstkröfu ,þar sem ekki er umboðsmaður. I F=^VLJ[\J I 1 - I—l>^Vl=TvJ^F=^F=-|F^EDI SÍrs/II 512-75 Sölustaðir í Reykjavík: Rafoeym;>M'nðslan Egill Vilhjálmsson, Hamarsbúðin h.f. Síðumúla 21 Laugavegi 118 Hamarshúsi og víðar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.