Tíminn - 09.07.1968, Page 14

Tíminn - 09.07.1968, Page 14
.14 N otað-nýlegt - nýtt Daglega koma barnavagn- ar, kerrur, burðarrúm, — leikgrindur, barnastólar ról ur, reiðhjól, þríhjól, vögg- ur og fleira fyrir börnin. Opið frá kl. 9—18,30. — Markaður notaðra barna- ökutækja. Óðinsgötu 4, sími 17178. (Gengið gegnum undir- ganginn). LAXVEIÐINET Framhaia aí bls. 1. fiskeldi aS hefjast í stórum stíl, og gefur auga leið, hvað það get ur þýtt fyrir þá, sem þarna eru að koma upp nýrri atvinnugrein, ef einhvei-jir aðrir gera sér lítið fyrir og hirða fiskinn áður en þeir, sem lagt hafa mikla vinnu og fjárhæðir til að rækta þennan fisk, fá hann aftur upp í fiskeid- isstöðvarnar. HARÐINDI Framhald af bls. 16 ldklega einna verst farið. Tii marks um það nefndi hann, að yfirleitt hefðu gömul tún far- ið betur út úr þessu. Hjá sér væri 20—30 ára gömul slétta fyrir ofan bæinn, og hún væri öll meira og minna kalin. Þá hitti Tíminn að máli Héð in Óiafsson bónda á Fjöllum í Kelduhverfi. Sagði hann, að þar væri 80% kal, og hafi svo verið sums staðar í þrjú ár, og ekki gróið að ráði. Undan- farið haifi kalið . verið mjög misjafnt, ög einn og einn _bær orðið illa úti. En núna í ár gengi þetta jafnt yfir alla. Hann sagði það athyglisvert, að eins árs sléttur séu nær ó- skemmdar. Tveggja ára sléttur séu allmikið kalnar, en 3—4 ára sléttur mest kalnar, og að mestu ónýtar. Aftur á móti séu gömlu túnin í Kelduhverf- inu lítið skemmd. Ég spurði Héðin að því hvað væri framundan. Hann sagði: „Það liggur náttúrulega fyrst fyrir, að maður mun lifa á svið um í vetur. Enda myndi þurfa að gerazt kraftaverk, ef hægt ætti að vera að bjarga þessu“. Blaðamaður Tímans kom einnig í Klifshaga í Axarfirði, en þar býr Grímur Jónsson, og hitti ég hann úti á túni, þar sem hann var að bera hús- dýraáburð á nær ósprottið flag sem var þó það eina af tún- inu, sem tilsýndar að sjá virt- ist hafa möguleika til að spretta. Þar var mikið kalið í fyrra, 60—70% af túninu. Sagði Grímur, að svo mætti heita að túnið væri alkalið núna. Að vísu stæðu upp úr einstaka toppar, sem spryttu þó ekki enn, en það færi auð- vitað eftir veðráttu. Grímur sagði. að ef allt færi eins vel og hugsazt gæti úr þessu með tíðarfar i sumar, þá fengi hann 15—20% uppskeru af túninu. Hann sagði, að fækka bústofni væri sama sem að gefast upp, enda væri sinn bústofn í lágmarki vegna und- anfarandi kalsumra. Grímur sagði, að Búnaðar- samband Noi-ður-Þingeyjar- sýslu hefði nýlega haldið fund þar sem rætt var um athugun á, hvort hægt væri að fá hjálp einhvers staðar að. Væri óljóst enn hvort nokkurs staðar væri hjálp að fá, og raunverulega lítil von til þess. Þá sagði hann, að nokkuð bæri á kali í útlhag'a, sem væri óvenjulegt. Sumir bændur í Axarfirði og Núpasveit reyna hafrarækt, en fjárhagsgeta til slíks er lítil. Hafa bændur á þessu svæði, eins og reyndar víðar, eytt miklu fé í fóðurbæti til að treina lífið í búfénu í vor, en það þurfti m.a. að gera vegna heyskorts í fyrra. Grímur sagði, að áburða- kaup hefðu verið með minna móti í sumar og vor. Blaðamaður TÍMANS fór austast að Leirhöfn, og hafði þar tal af tveimur bændum. Fyrst hitti ég að máli Helga Kristjánsson, sem er í raun og veru hættur búi, sonur hans, Jóhann, er fyrir búinu, en hann var ekki heima. Helgi er mjög fróður um allt ástand á þessu svæði, og hefur lengi haft forystu fyrir bændum þar. Hann sagði, að ekkert amaði að bændum þar fremur venju nema eyðilegg- ingin á túnunum, og vissi eng- inn enn þá hvað tæki við í haust. Hann sagði, að á Leirhafn- arlandi væru 1200—1300 ær á vetrarfóðrum og stærð túnsins við það miðuð, að það gæfi af sér hey fyrir allt þetta fé, enda er búið að rækta gífur-i lega mikið í Leirhöfn. En kýr1 hafa þeir aðeins fyrir heimil- ið. ! Taldi Helgi, að reikna megi með heyi af 10—15% af tún- inu miðað við góða sprettutíð. TIMINN í fyrra minnkaði hey af tún- inu um allt að 30% vegna kals, en þá eyðilagðist t.d. alveg túnið á Oddsstöðum á Melrakkasléttu. í fyrra snérust Leirhafnar- bændur þannig við vandanum, að þeir keyptu hey af Rangár- völlum, og heyköggla. En þrátt fyrir lítið hey í fyrra- haust, með þessari aðkeyptu viðbót, þá gekk allt fé vel fram, en það kostaði óhemju- mikil fóðurbætiskaup að auki. Víðast hvað í Norður-Þingeyja sýslu vantaði í fyrra 30—40% upp á heyfeng. Þetta hefur sitt að segja varðandi á- standið nú. f fyrra fór ekki að spretta fyrr en í síðustu viku júlí, en sú vika, og ágústmánuður björguðu málinu þá. Helgi sagðist ekki muna ann að eins sprettuleysi, og er þó orðinn gamall maður. T.d. kom hann heim erlendis frá til Leirhafnar haustið 1918, og þá vissi hann ekki til þess, að um hefði verið að ræða kal sem neinu næmi. Helgi sagði ástandið ekkert betra fyrir austan í Þistilfirð- inum og á Langanesi, nema helzt á jörðum lengst frá sjó. Þá sagði hann, að það, sem var gulkalið í fyrra, sé nú orð- ið svart. Loks talaði blaðamaður TÍM ANS við Árna Pétur Lund, bónda í Miðtúni. Hann var ný- lega á refaveiðum uppi í heið- inni, og sagði að þar væri ein og hálf skóflustunga niður á klaka, en heiðin er beitarland bænda þarna. Væri enginn gróður kominn í mýrar. Hann sagði, að á Búnaðar- sambandsfundinum, sem áður er um getið. hafi verið kjörn- ir tveir menn til-að fara með ályktanir fundarins til land- búnaðarráðherra og *þing- manna kjördæmisins, og munu þeir hafa farið til Reykjavík- ur. Er þetta fyrsta sendinefnd bænda, sem vitað er til að far- in sé á fund landbúnaðarráð- herra út af harðindunum nú í sumar. Þessir menn hafa með sér lýsingu á ástandinu, og rök semdir fyrir því, að eitthvað verði að gera, ef svæðið á ekki að leggjast meira og minna í auðn. Er sýnilegt, að framund- an eru stórar ákvarðanir um hvað eigi að gera. Árni sagði að i dag væri alls ekki til fóður handa sauð- fé á Sléttu, því að á sumum bæjum sé alls ekki til sting- andi strá í túni. T.d. nefndi hann að á 14 dagslátta túni á Grjótnesi, sem hann hefði með að gera, væri ekki til eitt einasta gras, allt það tún væri ónýtt. Þá væri einnig áberandi núna, að það hefði hann ekki séð áður, hvað úthagi væri kal! inn. Sagði hann, að jafnvel j berjalyng væri að deyja. Árni taldi það ekkert nýtt, j þótt seint sprytti á sumrinu á þessu svæði, en það væri eyði- leggingin, sem væri orðin í rót ínni, er væri aðalatriðið. Hann sagði. að þegar hann var að bera á í vor um 12. júní, þá virtist gras vera meira Lifandi en nú. Væri svo að sjá sem bað hefði dáið síðan. Sagðist hann vera búinn að bera á fyrir um 60 þúsund krónur og fengi kaunski kýr- fóður út úr því. Varðandi bað. hvort eitt- hvað /æri hægt að bjarga sér á útengjaslætti, höfðu þeir Helgi og Árni það að segja. að útengjar á þessum slóðum væri vfirleitt uppi á heiðinni, og hefðu ekki verið slegnar í áratugi oe því hálfónýtar í ár vegna sinu. Hefði þurft að slá þær annað hvort ár, ef ætti að nytja þær En svo spretta þær ekki einu -unni núna Síðasta frostnótt á þessum slóðum var 28. júní, og þá und anfarið hafði frosið látlaust á hverri nóttu niður við sjóinn. Nokkuð hefur verið rætt um grænfóðurræktun. Sagði Árni að það kostaði alveg byltingu, og til þessa hafi engin sprettu tíð verið fyrir það. — Slíkt er ekki hægt að _ gera á einu sumri, — sagði Árni. Þeir sögðu, að á Langanesi væri eitthvað um að bændur bæru áburð á útengi, en um það væri ekki að ræða í ná- grenni Leirhafnar, þau ,væri ekki til þar. Um kalið yfirleitt sögðu þeir að þetta væri þriðja árið í röð, sem stórkal væri á túnum, en enn þá væru engar niðurstöð- ur fengnar um hvað veldur. Ilafði Árni — og fleiri bænd ur, sem blaðamaður Tímans hefur rætt við á þessu ferða- lagi — orð á, að þeir væru hissa á því að landbúnaðarráð- herra sjálfur skuli ekki fara um þessi svæði til þess að sjá það með eigin augum, við hvað er að berjast, svo að hann geti gert sér betri grein fyrir því en ella, hversu alvarlegt á- standið er. Þeir vilja fá hann norður til þess að sýna honum ástandið eins og það er. Um framsveitir Suður-Þing- eyjasýslu, Aðaldal, Bárðadal og Mývatnssveit, er að vísu sömu sögu að segja og annars staðar á þessu svæði, að kal er þar í túnum, og að vísu er sprettan lítil, alveg eins og í Eyjafirði, en þegar menn hafa séð heil ræktarflæmi gjör ónýt, þá þykir ekki mikið um það að segja. En veðráttan hefur einnig verið þar óblíð. Um frostið í Aðaldalnum er bezta dæmið, að í vetur fraus í vatnsleiðslu er liggur í fjárhúsin á Hólma- vaði. Nú, í júlí er ekki enn þiðnað í leiðsilunni! LANDSMÓT Framnaid af bls. 3. þar skammt frá. Einnig munu dansleikir verða í Valaskjálf á Egilsstöðum á föstudags- laug ardags og sunnudagskvöld. Nú eru komin upp á mótssvæðinu skýli, sem hýsa munu hina ýmsu starfsemi. sem þar fer fram. Þessi skýli eru sex tals- ins, og stærsta þeirra, eru fjörutíu fermetrar. Þarna verða m.a. söluskýli, upp- lýsingamiðstöð, búningsklef ar o.fl. Þá mun kjörbíll ganga um svæðið. Björn Magnússon kvað undirbúning miða vel á- fram, en að sjálfsögðu í mörg horn að líta. Menn hafa al- mennt brugðizt vel við kalli, og lagt fram vinnu aðra að- stoð. Mun verða kappkostað að gera mótssvæði, sem allra bezt úr garði, til þess að mót- ið geti farið sem bezt fram, og verið sem eftirminnilegast. Nú vona menn að veðrið haldist gott, og leiðir sem allra flestra liggi að Eiðum um næstu helgi. GUÐM. THORODDSEN Framhaid aí öls. 3. forstöðumaður Ljósmæðraskóla ís lands, og síðustu árin var hann sérfræðingur við Kleppsspítala. Hann gegndi ýmsum öðrum störf- um um ævina, og var sæmdur ýmsum heiðursmerkjum fyrir störf sín. HÚSBRUNI Framha"! ai bls 3. Meðan á slökkvistarfinu stóð var mikil leit gerð að peninga veski, sem átti að vera einhvers staðar i húsinu Kvisaðist um mannþröngina sem horfði á brun ann að í veskinu væru allt að því 80 þús. kr og lannst mörgum spennandi, hvernig til tækist. ÞRIÐJUDAGUR 9. júlí 1968 Veskið fannst, en í því voru að- eins fimm þúsund krónur eins og eigandinn upphaflega gerði ráð fyrir. Og þrátt fyrir að veskið og seðlarnir væru brunnir og blaut- ir, fékkst andvirði seðlanna greitt. SKEMMDARVERK Framhald at Dls. 3. létt verk að skemma hana á mörgum stöðum, því fyrirstað- an var engin af manna hálfu. Þá var farið að mála mann- virki og flest á einn veg. Slag- orðin ísland úr NATO voru vinsælust. Einn varðmaður var í herstöðinni fyrrverandi. Er það íslendingur. Hringdi hann í sýslumann í Borganesi og bráðlega voru lögreglumenn sendir frá Akranesi áleiðis að varðstöðinni. Einnig héldu lög reglumenn úr Reykjavík af stað upp í Hvalfjörð. Akranes lögreglan var fyrst á staðinn. Var Reykjavíkurlögreglan lát- in vita að spellvirkjarnir væru á leið suður. Voru þeir tekn- ir á Kjalarnesi og fluttir til yfirheyrslu, sem stóð yfir í nótt. Kom þá í ljós að nokkr ir þeirra aðila sem voru að verki í Hvalfirði höfðu dundað sér við að mála slagorð fyrr, og þá á herskip fastaflota Nato. SKÍÐALYFTA Framhald ai bis 3. Veðurguðirnir voru af- mœlisbarninu hliðhollir, því að sólskin og blíða var báða dagana. Var því að vonum mjög fjölmennt við hátíðahöldin, se-m fóru hið bezta fram. Stefán Friðlbjarnarson, bæjarstjióri, setti hlátJíðina eftir hádegi á Laugardag, og síðan voru mörg ávörp flutt, kveðjur og gjafir. Siglifirðin-gar, búsettir í Reykjavík færðu bænum að gjöf kr. 250 þús. til kaupa á skíðalyftu, og ýmsar fleiri gjafir bárust. Hátíðadagskráin var fjöl breytt, fþróttaleildr, ske-mmtiþættir, söngur, o. fl. Þá var opnuð málverk-a- og Ij-ósmyndasýning, og bæði kvöldin var dansað í sam- komuhúsum bæjarins. Fóru hátíðahöldin hið bezta fram. HVANNALINDIR Framhald aí bls. 16 lindir að lokinni sánin-gu. Á þeirri leið eru tvœr ár, Kverk á, sem fólkið óð, og Kreppa sem er illvígt vatnsfall og lögðu þeir trébrú yfir hana. Hv'annalindir eru eitt afskekkt asta gróðurlendi hér á landi. Þar er gestabók í tóftum, sem kenndar eru við Fjalla-Eyvind, og hefur enginn skrifað í hana í þrjú ár. Þarna fundu þeir útigenginn hrút frá Brú á Jökul dal, og kom-u m-eð hann til byggða. Leiðangursmenn kváðu gróður ekki síður á veg kominn í Öræfunum, en í byggð og öræfin væru nú óvenju þurr. HRÖPUÐU Framhald af bls. 1. Það fyrsta sem vitað er um slys ið er að menn í bíl óku fram á annan mannanna sem var í bílnum sem valt. Var hann gang- andi á ferð skammt frá Stokks- nesi og var á leið eftir hjálp. Var fljótlega náð í hinn mann- inn og flugvél frá Keflavíkurflug- velli náði í mennina á laugardag. Voru þeir iagðir inn á sjúkrahús á Keflavíkurflugvelli. Við nánari athugun kom í ljós að hvorugur þeirra var alvarlega meiddur, munu beir báðir verða vinnufær- ir í bessari viku. ÞAKKARÁVÖRP Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig me® heimsóknum, gjöfum og heillaóskaskeytum á 70 ára afmæli mínu þann 29. júní s. I. Guð blessi ykkur öll. William Þorsteinsson, bátasmiður, Brekkugötu 23, Ólafsfirði. Útför eiginmanns míns, föður og tengdaföður, Guðjóns J. Jónssonar, Jaðarsbraut 39, Akranesi, fer fram fimmtudaginn 11. júlí kl. 2 frá Akraneskirkju. Þeim, sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á sjúrahús Akraness. Anna Björnsdóttir, börn og tengdabörn. Guðmundur Thoroddsen fyrrum prófessor og yfirlæknir við Landsspítalann, létt 6. júli. Börn og tengdabörn hins látna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.