Tíminn - 23.08.1968, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 23. ágúst 1968.
AIRAM RAFHLÖÐUR
Stál og plast fyrir Transistortæki og vasaljós.
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS
SkólavörSustíg 3. Sími 12975/76.
Jaðarsmótið 1968
dagana 24. og 25. ágúst.
Hljómar leika bæði kvöldin
Ma'estro eru gestir mótsins
Fjöllistamaðurinn
Maurice del Monte
skemmtir.
Ferðir frá Gúttó
Tjaldstæði
Veitingar á staðnum
Fjölbreytt skammtiatriði
Omar Ragnarsson
Júdó-sýning
Skemmtiþáttur
fþróttir
UNDIRBÚNINGSNEFND
Kennarar
Kennara vantar að barna- og unglingaskóla
Þorlákshafnar.
Upplýsingar gefa skólanefndarformaður í síma
3632 og skólastjórinn í síma 3638.
SKÓLANEFND.
Kaffi í Reykjadal,
Mosfellssveit
Kvennadeild styrktarfélags lamaðra og fatlaðra,
efnir til kaffisölu sunnudaginn 25. ágúst kl. 15.
Gómsætar kökur og brauð.
Ferð frá Umferðamiðstöðinni kl. 2,15, —
til baka kl. 19,00.
STJÓRNIN.
Kaupfélag norðaustanlands
vill ráða verzlunarstjóra. Aðeins vanur maður
kemur til greina.
Upplýsingar gefur Starfsmannahald SÍS.
TÍMINN
ÞORSKURINN ER HREINN
Alltaf af og til heldur maður,
að nú sé það komið stórtækifær
ið, sem bjargað geti íslandi úr
klóm verðbólgu og annars kon
ar efnahags-óáran. Svoleiðis var
það um daginn, þegar maður að
nafni James Smith hringdi frá
Waslhington. Hann kynnti sig
sem eiganda verzlunar, sem
verzlaði eingöngu með ,,hreinar“
fæðutegundir.
Næstu fimm mínúturnar fóru
í' nauðsynlegar útskýringar á
„hreinar" fæðutegundir, og ég
held, að ég hafi ekki laumað út
úr mér einu orði meðan Hr.
Smith lauk upp fyrir mér þess
um buldu leyndardómum. Hann
sagði mér, að allur matur, sem
vanalegt fólk æti, væri ban-
eitraður. Allt grænmeti, sem
ræktað væri í Ameríku, Væri
úðað í skordýraeitri og yxi þar
að auki undir himni saurguðum
reyk og eimyrju frá þúsundum
iðnfyrirtækja. Allt kjötmeti
væri af skepnum, sem ætu gras
.. af landi, sem úðað hefði verið
ýmsum banvænum efnum, og
þessi dýr hefðu sömuleiðis and
að að sér óþverranum úr loft-
inu. Öll eiturefnin settust í
holdið, sem við síðan ætum.
Ekki tæki betra við, þegar
maður ætlaði að snúa sér að
fiskmetinu, sagði þessi speking
ur. Allur fiskur, sem veiddur
væri skemmra en fimm hundr
uð mílur frá ströndum hér,
væri uppfullur af eiturefnum,
sem hann fengi í sig í sjó mung
uðum saur og iðnaðarsorpi úr
stóránum. Þetta eitur settist
mest í hausinn og næst sporði
fisksins, og væri því alls ekki
óhætt að éta nema miðstykkið
og varla það.
Hr. Smith sagði mér, að tveir
frægir læknar stæðu bak við
þessar kenningar, sem krystöll-
uðust í því, að flestar meinsemd
ir og krankleikar bandarísku
þjóðarinnar stöfuðu af þessari
eitruðu fæðu. Hann, Hr. Smith,
hefði því ákveðið að koma þjóð
sinni til aðstoðar á hættustund,
og hefði hann nú sett á stofn
verzlun í höfuborginni, sem ein
göngu hefði á boðstólum
„hreina“ fæöu. Sagðist hann
fá nautakjöt frá Argentínu, hum
ar frá Ástralíu, sérstaklega rækt
að grænmeti frá Pennsylvaníu,
og nú vildi hann athuga með að
fá bæði lambakjöt ag fisk frá
íslandi. Annar af læknunum
góðu, hefði komist að þeirri nið
urstöðu, að sjórinn kringum ís
land væri „hreinastur“ í heimi,
því íslendingar væru svo fáir,
að úrgangurinn úr þeim væri
eins og dropi í hafið. íslenzku
lömbin væru á fjalli alla sína
ævi, og ætu ekkert nema heil-
næmt fjallagras, sem aldrei
hefði kynnzt DDT sprautum.
Ég var auðvitað alveg andakt
ugur yfir þessu og sá fyrir
mér stórkostlega möguleika,
því Hr. Smith sagði oftar en
einu sinni, að prísinn væri sko
ekkert atriði. Viðskiptavinir sín
ir vildu borga fyrir vöruna, því
þeiir vissu, að heilsa þeirra og
líf væri að veði. „D.eilir þú við
lyfsalann um verðið á meðulun
um, sem læknirinn ráðleggur,
þegar þú verður veikur?” Þetta
síðasta sagði hann sigri hrós-
andi. Hann kvað unnendur
„hreinu“ matvælanna vera úr
betur efnaðri stéttum og vildu
þeir fyrir alla muni ná sér í
„hreinan" þorsk og „hrein“
lömb, og væri þeim skítsama,
hvað það kostaði!
Hr. Smith sagðist bráðlega
mundu eiga erindi til Harris-
burg, og ætlaði þá að líta við
og ræða málin nánar. En það
leið og beið'og ekkert heyrðist
frá þessumsjálfskipaða velgjörð
armanni bandarísku þjóðarinn
ar og kannske líka þeirrar ís-
lenzku. Var ég farinn a<f halda,
að hann hefði ef til vill sjálf-
ur verið búinn að éta of mikið
eitur og væri nú fallinn í val-
inn. _
Svo var það í gær, að hann
allt í einu skaut upp höfðinu
og var þá kominn hingað alla
leið til Harrisburg. Þetta var
hraustlegur náungi, einn af þess
um fimmtugu mönnum með tví
tugu skrokkana. Hann leit á
mig með vorkunn, og sagðist
• alltaf hafa haldið, að íslend-
ingar, sem ætu ekkert nema ó-
eitraðan mat, myndu bera af
Bandaríkjamönnum, sem marg-
ir hverjir væru að veslast upp,
eins og rottur, sem étið hefðu
eitur. Ég afsakið mig með því,
að ég væri búinn að vera hér
í nokkur ár, og fengi ekki nema
af og til harðfisktutlu að heim-
an, sem væri náttúrulega langt
frá því að vera nóg til að við-
halda hraustlegu útiliti og
góðri heilsu.
Hann var ennþá bjartsýnni nú,
en þegar ég talaði yið hann í
símann. Sagðist vera að kaupa
aðra verzlun í Washington, og
gæti séð sig í anda verða að
keðju. (Allir, sem hér eru í
bisness, hafa drauma um að
verða að keðjum). Fleira og
fleira fólk væri að sjá, að kenn
ingin um eitrun fæðunnar væri
sönn, og alltaf yxi hópur þeirra,
sem vildu kaupa „hreina"
fæðu.
Ég hætti við að kveikja mér
í pípunni, sem ég hafði troðið í,
og laumaði henni í vasann svo
lítið bar á. Ég gat rétt ímynd
að mér, að tóbakssog myndi
fara í taugarnar á þessum ný-
fundna stórvini mínum. Lögð-
um við nú á ráðin með það,
hvernig ísland mætti verða til
að hjálpa honum í herferðinni
gegn eitrinu. Ætlaði hann að
senda frystibifreið sína til
Harrisburg að viku liðinni, og
skyldi hún þar lesta ómenguð
þorsk- og ýsu-flök.
Ég komst ekki hjá því að
finna þennan indælis þef, sem
lagði út úr vitum Hr. Smiths,
þá er við kvöddumst. Hélt ég
í fyrstunni að maður yrði svona
andsætur af að snæða einungis
„hreinan" mat. Eftir nokkra
umhugsun og eftir að hafa and
að að mér djúpt í annað sinn,
komst ég samt að þeirri niður
stöðu, að þetta væri hreinn og
ómengaður áfengisþefur!
Þykir mér líklegt, að „hrein
fæðumenn" verði af og til að
skola sig innan, og hvað er þá
hreinna, tfcrara og öruggara en
örlítið brennivínstár?
Þórir S. Gröndal.
★ JP-Innréttíngar frá Jónt’ Péturssyni, húsgagnaframleiSanda — augiýstar I
sjðnvarpf. Stilhreinat) sterkar og val um viðartegundir og harðplast- Fram-
leiðir einnig fataskápa.
A5 aflokinni viítækrl kSnnun teljum vI5, aB Sta5la5ar hentt t flestar 2—5
herbergja fbúSir, elns og þær eru byggSar nú. Kerfi okkar er þannig gert, a5
ottast má án aukakostnaSar, staSfæra innréttinguna þannig a5 hún henti. (
allar fbúSir og hús.
Ailt þettá
•Ar Seljum. staðlaðar eldhús-
Innréttingar, þaS er fram-
leiSum eldhúsinnréttingu og
seljum me5 öllum raftæk|um
og vaski. Verð kr. 61-000,00 -
kr. 88.500,00 og kr. 73 000,00.
ir Innifalið 1 verSinu er eid-
húsinnrétting, 5 cub/f. is-
skápur, eldasaipstæða. me5
tveim ofnum, grillofnl og
bakarofni, lofthreinsari me5
kolfllter, sinki - a - matlo
uppþvottavél og vaskur, enn-
fremur söluskattur-
★ Þér getið valiS um inn-
lenda framleiðslu á eldhús-
um og eflenda framleiðslu.
fllelsa seni er stærsti eldhús-
framleiðandi á meginiandl
Evrópu.)
ir Einnig getum við sm!5a5
innréttlngar eftir teikningu
og óskum kaupanda.
ir Þetta er eina tilraunin, a5
þvf er bezt verður vitað til
að leysa öll. vandamál ,hús-
byggjenda- varðandi eldhúsiS.
★ Fyrir 68.500,00, geta
margir boðiö yður eldhúsiitn-
réttlngu, en ekki er kunnugt
Um, að aðrir bjóði yður. eld-
húsinnréttingu, með eldavéi-
arsamstæðu, viftu, vaski,
uppþvottavél og fsskáp fyrir-
þetta verð. — Allt innijaliS
meðal annars söluskattur kr.
4.800,00.
SöluumboS
fyrlr
JP
-innréttingar.
Umboðs- & helkfverzlun
Kirkjuhvoli - Reykjavik
Slmar: 21718,42137