Tíminn - 23.08.1968, Síða 3
FÖSTUDAGUR 23. ágúst 1968.
Annríkt hjá Loft-
leiðum
; Annríkt verður hjá Loftleiðum
á næstunni vegna gestakomu til
: ráðstefnunnar „Nordisk Byggedag"
sem haldin verður í Reykjavík.
Laugardaginn 24. þ. m. kemur
. fyrsta Rolls Royce leiguflugvél
' Loftleiða frá Helsingfors og Stokk
i hólmi með 189 farþega, en daginn
i eftir tvær leiguflugvélar, önnur
Rolls Royce vél með 189 farþega
' og DC-6B með 82.
Að ráðstefnunni lokinni, laug
, ardagsmorguninn 31. þ. m. munu
; 580 gestir ráðstefnunnar fljúga
■’héðan með þrem leiguflugvélum
i Loftleiða til Skandinavíu frá
; Keflavík, tveim Rolls Royce flug
i vélum og einni DC-6B flugvél.
Auk þess mun þá verða í Keflavík
• áætlunarflugvél Loftleiða á leið til
1 Skandinaviu, fullsetin farþegum.
,'Mun afgreiðslufólk Loftleiða á
. Keflavíkurflugvelli þurfa að ann
ast brottför 460 farþega á vegum
‘ Loftleiða á tímabilinu frá kl. 8
• —9.30 þenna laugardagsmorgun,
: auk annarra farþega, sem trúlega
■ munu vera þar á ferð á sama tíma.
Námskeið fyrir söng-
og tóniistarkennara
Söngkennarafélag íslands hefur
íhaft forgöngu um námskeið fyrir
■ söng- og tónlistarkennara dagana
. 29. ágúst — 7. sept.
Fengnir hafa verið 3 kennarar
, frá Danmörku til að kenna á
, þessu námskeiði, sem á að fjalla
um sönginn sjálfan og söngkennslu
; fyrst og fremst. Lögð verður á-
; herzla á kórstjórn og kórsöng, en
ýmis önnur efni tekin fyrir, t.d.
I þjóðdansar og hreyfing eftir tón
• list.
Kennararnir, sem koma eru:
■ Svend G. Asmussen, sem er þekkt
ur kórstjóri og kennari í Dan-
■ mörku. Kona hans Hanna Asmus
sen og Fru Klari Fredborg. Þau
' þrjú hafa haldið slík námskeið
víðsvegar í Danmörku m. a. við
Danmarks Lærer-hþjskole.
Tónlistarskólinn í Reykjavík lán
ar húsnæði fyrir námskeiðið í nýja
húsinu við Skipholt 33, en þar er
aðstaða mjög góð eins og vænta
má. Samhliða námskeiðinu verð
ur höfð sýning á útgáfustarfsemi
„Musikhþjskolens forlag“ Egtved
Danmörku. En þetta forlag er eitt
athafnasamasta nónataforlagið á
Norðurlöndum og gefur út nótur og
ýmis konar kennsluefni fyrir skól-
ana en kórlög og ýmis stærri verk
fyrir kóra og hljóðfæraflokka.
Ýmsir aðilar hafa lagt fram
fé til að standa straum af kostn-
aði við þetta námskeið, t. d.
Fræðslumálaskrifstofan, Fræðslu
skrifstofa Reykjavíkur og Lands-
samband blandaðra kóra.
Þátttöku má tilkynna til
Fræðslumálaskrifstofunnar eða til
formanns félagsins Guðmundar Guð
brandssonar í síma 30305.
Styrkur til rannsókna
á handritum Bólu-
Hjálma rs
Hinn 14. ágúst 1968, á afmælis
degi dr. Rögnvalds Péturssonar,
var úthlutað styrk úr minningar
sjóði hans til eflingar íslenzkum
fræðum. Ein umsókn barst, frá
Eysteini Sigurðssyni, cand. mag.,
og var honum veittur styrkurinn,
sem nemur 35.000 krónum, til
rannsóknar á handritum Bólu-
Hjálmars og til athugunar á stíl
hans.
Sjóðsstjórn skipa prófessorarnir
dr. Halldór Halldórsson, dr. Stein
grímur J. Þorsteinsson og há-
skólarektor Ármann Snævarr, for
maður, en vegna fjarvistar hans
tók prófessor Árni Vilhjálmsson,
vararektor, sæti hans í stjórn-
inni.
(Frétt frá Háskóla íslands).
Bæklingur um akstur
á akreinum.
Frá því hægri umferð gekk í
gildi hefur allmikið borið á því,
að ökumenn aki að ástæðulausu,
á vinstri akrein, þar sem tvær eða
fleiri akreinar eru fyrir sömu
akstursstefnu. Hefur þetta oft og
tíðum haft í för með sér jnikið
óhagræði og valdið umferðartöf-
um, þegar tvær eða fleiri bifreiðar
aka samhliða neðan við eðlilegan
umferðarhraða. Einnig getur það
hent, að sá ökumaður, sem lang-
tímum saman ekur á vinstri ak-
rein, finnst sem hann aki í vinstri
umferð og getur það orðið til þess
að hann falli í „vinstri villu“ í
umferðinni.
Lögreglan í Reykjpvík og Um
ferðanefnd Reykjavíkur hafa á-
kveðið að beita sér gegn þessu
vandamáli og munu lögregluþjón
ar verða næstu daga við þær göt
ur, sem skipt er með akreinum til
að leiðbeina ökumönnum um rétt
val akreina. Munu þeir stöðva þær
bifreiðar, sem telja má að ekið
sé að gstæðulausu á vinstri ak-
rein og afhenda ökumönnum þeirra
leiðbeiningabækling um akstur á
akreinum, sem fyrnefndir aðilar
hafa gefið út.
I boði í Sovétríkjunum
Á síðastliðnu vori fengu Menn-
ingar- og friðarsamtök íslenzkra
kvenna boð um að senda kvenna
sendinefnd til hálfs mánaðar dval
ar í Sovétríkjunum í boði Kyenna
sambands Sovétríkjanna.
Af hálfu M. F. í K. fóru utan
Soffía Guðmundsdóttir fró Akur
eyrardeild sam'takanna og var
hún formaður sendinefndarinnar
og frá Reykjavíkurdeild þær
Njóla Jónsdóttir og Sigríður
Jóhannesdóttir. Ennfremur var
Olöfu Pálsdóttur myndhöggvara
boðið að taka þátt í förinni en
Ólöf er ekki félagsbundin.
Dvaiizt var í Sovétríkjunum síð
ari hluta júlí'mánaðar, fyrst í
Moskvu, síðan var farið til Volgo
grad. Þaðan lá leiðin til Armen
ín og var dvalizt í nokkra daga
í höfuðborginni, Erevan og ná-
grenni. Á leiðinni til baka var
komið við á Krím og dvalist tvo
daga á Jalta, en þaðan flogið aft
ur til Moskvu. Frú Liselotte Guð
jónsson, kona íslenzka sendiherr
ans í Moskvu, dr. Odds Guð-
jónssonar, ferðaðist með sendi-
nefndinni um Armeníu og Krím.
Er komið var aftur til Moskvu og
leið að lokum dvalarinnar í Sovét
ríkjunum höfðu þau sendiherra
hjónin móttöku í íslenzka sendi
ráðinu fyrir sendinefndina og þær
Framhald a Dis. lb.
TÍMINN________________________3
Hið nýja hús Sparisjoðsins við Skólavörðustíg hefur vakið athygli fyrir sérstætt útlit. (Tímamynd Gunnar)
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis flytur í eigiö húsnæði
f dag opnar Sparisjóður Revkja
viikur og nágrennis afgreiðslu í
eigin húsnæði, nýbyggingunni að
Sk,ólavörðustíg 11.
Sparisjóðurinn hefir alla tíð
verið í leiguhúsnæði, fyrst að
Hverfisgötu 21, en lengst af að
Hverfisgötu 26, þ. e. á horni Hverf
isgötu og Smiðjustígs, en það
húsnæði er fyrir löngu síðan orðið
allt-of lítið og ófullnægjandi.
Með tilkomu hins nýja húsnæð
is breytast öll starfsskilyrði spari-
sjóðsins, og mun hann geta tekið
að sér ýmis konar þjónustu, sem
ógerningur hefir verið að leysa af
hendi í hinu mjög svo takmark-
aða húsnæði, sem hann hefir bú-
ið við til þessa.
Sparisjóðurinn var stofnaður 23.
janúar 1932 að frumkvæði nokk
urra manna úr Iðnaðarmannafélag
inu. Þrem mánuðum síðar, eða
28. apríl 1932, tók sparisjóðurinn
til starfa.
Sparisjóðsinnstæður í Spari-
sjóði Reykjavíkur og nágrennis
eru nú 305 milljónir króna, og
varasjóður um 18 milljónir.
Starfsemi sparisjóðsins hefir
svo til eingöngu beinzt að því
að veita lán út á. íbúðarhúsnæði.
Framhald á bls. 15.
Alyktanir vegna innrásar-
innar i Tékkóslóvakíu
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
f gær og í dag hafa blaðinu
borizt nokkrar yfirlýsingar vegna
innrásar 5 Austur-Evrópuríkja í
Tékkóslóvakíu. Eru þessar yfir
lýsingar til viðbótar við þær, sem
birtust í blaðinu á fimmtudag, og
fara hér á eftir.
Frá Stúdentafélagi HÍ
Stjórn Stúdentafélags Háskóla
íslands ályktar eftirfarandi um
Tékkóslóvakíumálið 21. ágúst
1968:
„íslenzkir stúdentar fordæma í-
hlutun erlendra ríkja í innanríkis
mál Tékkóslóvakíu og lýsa yfir
einlægri samúð með þjóðum lands
ins.
Þessi atburður er ótvírætt brot
á stofnskrá Sameinuðu Þjóðanna,
og er skorað á ríkisstjórnina að
stuðla að upptöku málsins á Alls
herjarþingi Sameinuðu Þjóðanna
og lausn þess í anda samtakanna.-'
(Ályktun þessi var samþykkt
einróma og er afhent dagblöðum,
útvarpi, ríkisstjórn íslands og
sendiráðum Ráðstjórnarríkjanna
og Tékkóslóvakíu hér á landi).
Ályktun ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin gerði í dag á
fundi sínum svofellda ályktun:
Ríkisstjórnin fordæmir eindreg
ið hernám og frelsissviftingu
Tékkóslóvakíu, og jafnframt því,
sem hún lýsir djúpri samúð með
hinni tékknesku þjóð, harmar hún
það áfall, sem viðleitnin til að
draga úr viðsjám í heiminum hef
ur beðið við þessar óréttlætanlegu
aðfarir.
21. ágúst 1968.
(Frá ríkisstjórninni).
Samþykkt Æskulýðsfylkingar
innar og Alþýðubandalagsins
„Almennur útifundur haldinn í
Reykjavik 21. ágúst á vegum Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík og
Æskulýðsfylkingarinnar, sambands
ungra sósíalista, samþykkir eftir
farandj:
Innrás Sovéthersins ásamt herj
um annarra Varsjárbandalagsríkja
í Tékkóslóvakíu er ósamrýmanleg
grundvallarreglum um sjálfs- •
ákvörðunarrétt þjóða og gengur í.
berhögg við lýðræðis- og mann-
gildishugsjónir sósíalismans. Engin
gild rök hafa komið fram til rétt ■
lætingar þessari hernaðaríhlutun,,
Framhald á bls. 15
Sigurður Lfndal afhendir Karel Jordan, verzlunarfulltrúa í tékkneska
scndiráðinu, yfirlýslngu borgarafundarins í Gamla Bíó á miSvikudags-
kvöldiS. Cyril Kaspar, verzlunarfulltrúi, I miSið. (Timamynd__________Gunnar)
/