Tíminn - 23.08.1968, Side 12
/
m
TIMINN
m m
NRASINITEKKOSLOVAKIU
FÖSTUDAGUR 23. ágöst 1968.
Tékkar standa saman
Framhald af bls. 1
sertdingum hertiSs trl Tékkó-
slóvakíu, og þykir það sýna,
að búizt sé við sívaxandi and-
spyrnu Téfcka og Slóvaka
gegn innrásarliðinu.
• Fréttir seint í kvöld
hermdu, að blað, sem út kom
í Prag í kvöld, hafl fullyrt að
þeir Alexander Dubeek, Josif
Smrkovsky, F. Kriegel og J.
Spacek, hafi í dag verið flutt-
ir flugieiðis til AAoskvu. Jafn-
framt var fullyrt í dag, að
O. Cernik hafi farið sömu
leið fyrr í dag.
• Fjórir tékkneskir ráð-
herrar voru staddir í Júgó*
slavíu, þegar land þeirra var
hernumið. Þeir tilkynntu all
ir í morgun að þeir myndu
halda áfram stjórnarstörfum
sínum utan landamæra Tékkó
slóvakíu.
★★ Nýr og harkalegri þáttur í
.þróuninni í Tékkóslóvakíu í dag
hófst með tilkynningu, sem sett var
upp um alla höfuðborgina, þar
sem íbúunum var ■ fyrirskipað að
halda sig innan dyra á heimilum
■sínum frá kl. 22 á kvöldin til kl.
05.00 á morgnana, og einnig var
öll fundarstarfsemi bönnuð. Stóð
í tilkynningunni, að ef fólk safnað
ist saman á götum, yrði á það lit-
ið sem ögrun, og myndi þá skotið
á mannfjöldann. Ávarp þetta
var undirritað af L. Velichko, hers
höfðingja, sem er hernámsstjóri í
Prag-héraðinu, augsýnilega fyrir
hönd hernámsliðsins í landinu.
irk Hinn mikli fjöldi ungmenna,
sem safnazt hafði saman á Wen-
ceslastorgi, fékk fyrirskipanir
gegnum hátalara um að hverfa af
torginu fyrir kl. 17 V dag, en ef
' svo yrði ekki, þá myndi sovézku
hermennirnir skjóta. Unga fólkið
hlýddi eigi fyrirskipun þessari, en
hrópaði þess í stað slagorð til
stuðnings Alexander Dubcek og
félögum hans, sem nú eru í haldi,
og hæddu einnig sovézku hermenn
ina, sem stóðu allt 1 kringum þá
með byssur sínar tilbúnar.
irk Á meðan héldu sovézkir
skriðdrekar í átt til torgsins, og
skömmu eftir að fresturinn var út
runninn, hófu sovézku hermennirn
ir skothríð, en fólksfjöldinn hrökl
aðist í allar áttir og í skjól eftir
megni. Ekki er vitað með vissu
hvort einhverjir hafi látið lífið
irk Skothríðin á Wenceslas-
torgi er aðeins ein af mörgum
táknum um andspyrnuvilja hinn
ar hernumdu tékkóslóvösku þjóð-
ar í dag. Alls staðar að af land-
inu streymdu fulltrúar frá flokks-
félögunum til Prag í dag til að
sitja flokksþing tékkneska komm
únistaflokksins, sem eiginlega átti
að hefjast í næsta mánuði, en var
færður fram. Þótt margir fulltrúar,
einkum frá Slóvakíu, hafi verið
hindraðir í að komast til Prag,
voru um 1100 af um 1500 þing-
fulltrúum viðstaddir, þegar fund
urinn var haldinn í dag. Hann var
haldinn á leynilegum stað, senni
lega í einhverri stórri verksmiðju
byggingu í, eða nálægt hinni her
numdu höfuðborg.
I irk Frjálsar tékkneskar útvarps
Etöðvar tilkynntu síðdegis, að flokks
þingið hefði með 1.094 atkvæðum
gegn einu samþykkt yfirlýsingu,
þar sem fullum stuðningi er lýst
við Dubcek-stjórnina. — Umbóta
stjórnin er áfram hin löglega
stjórn landsins, og sérhver, sem
ekki er því samþykkur, á á hættu
að vera rekinn úr flokknum, sam
kvæmt tilkynningu í Prag-útvarp
inu, sem örskömmu síðar var lok
að af hernámsliðinu.
irk Flokksþingið tilkynnti, að
allsherjarverkfall, sem standa
myndi um óákveðinn tíma, myndi
hefjast á hádegi á föstudag, og
að ýmsar aðrar ráðstafanir yrðu
einnig gerðar, ef Sovétmenn og
aðrir hernámsaðilar hyrfu ekki
úr landi með herlið sitt innan 24
klukkustunda, og slepptu úr haldi
þeim lpiðtogum, sem í haldi eru.
★★ Áður en Prag-útvarpið hætti
sendingum, tilkynnti það að Sovét
menn hefðu sett Dubcek úrslita-
kosti. Var þar krafizt að hann
héldi útvarpsræðu til þjóðarinnar
og hyllti hernámsliðið sem „frels
ara“ Tékkóslóvakíu.
★★ Aðrar óstaðfestar fregnir
hermdu í dag, að yfirmaður inn-
rásarliðsins, Ivan Pavlovsky, hers
höfðingi frá Sovétrikjunum, hafi
veitt þeim stjórnmálaleiðtogum,
sem enn eru „frjálsir“, frest til
miðnættis I kvöld að skipa nýja
ríkisstjórn án þátttöku Dubcek-
manna. Ef þetta gerist ekki, þá
muni hernámsliðið skipa sjálft
•ríkisstjórn, og hafa fjórir íhalds
samir kommúnistar verið nefndir
sem hugsanlegir ráðherrar: Jozef
Lenart, fyrrum ráðherra, Vasil Bil
ak, leiðtogi slóvanskra kommúnista
Alois Indra, fyrrum formaður
skipulagsráðs ríkisins og Ritir
hershöfðingi.
★★ Samkvæmt tilkynningum ým
issa frjálsra útvarpsstöðva, kom
til átaka og skothríðar í mörgum
tékkóslóvönskum bæjum, án þess
að nákvæmar tölur séu fyrir
hendi um fallna og særða. í Prag
eiga a. m. k. 6 að hafa látið lífið,
og a. m. k. 8 í Bratislava, en
aðrar heimildir herma að tala fall
inna geti verið tífallt þessar töl-
ur.
★★ Sovézkur fréttaritari í
Prag skýrði frá því í dag, að á-
hafnir sovézkra brynvagna hefðu
hlotið alvarleg meiðsl, þegar
tékkneskir andspyrnumenn gerðu
göt á eldsneytistanka vagnanna og
kveiktu í þeim.
★★ Deildir úr öryggislögreglu
Tékkóslóvakíu, sem hefur gerzt
skósveinar hernámsliðsins, hand
tóku í dag fjölda háttsettra borg-
ara um allt landið, að því er Prag
útvarpið tilkynnti áður en sovézk
ir hermenn ruddust inn í það og
það varð að hætta sendingum.
Tæknimenn og útvarpsfréttamenn
hófu að nýju síðar sendingar á
bylgjulengd Pragútvarpsins með
leynilegum aukasendi á Prag-
svæðinu.
★★ Aðeins tvö Prag-blöð, flokks
málgangið Rude Pravo og verka-
lýðssamtakablaðið Prace, komu
út í dag, bæði fordæmdu her-
námið, jafnframt því sem Rude
Pravo fullyrti, að hernámsliðið
yrði sífellt taugaóstyrkara, og
varaði landsmenn við að sýna and
spyrnu er gæti kostað mannslíf.
★★ Næstum allur venjulegur at
vinnurekstur lá niðri í Prag í dag.
Síðdegis voru aðeins örfá bakarí
og nýlenduvörubúðir opnar og
Sovézkir skrlðdrekar og þyrlur á tékknesku landsvæði.
HernaöarhlutfölEin
Samkvæmt upplýsingum frá
Herstjórnarstofnuninni í Lond
on, nemur heildarherafli árás-
arríkjanna 5, Sovétríkjanna,
Austur-Þýzkalands, Póllands,
Ungverjalands og Búlgaríu,
hátt á fjórðn milljón manna,
eða um 3.880 000 manns. Fasta
her og loftvarðlið Tékkóslóv-
akíu telur þar í mót um 225.
000 manns. auk 40.000 manns
í varaliði.
Talið er, sð í herafla Sovét-
ríkjanna séu 3.220.000 manns,
og einnig hafi rikin á að skipa
250.000 manna varaliði, þar
með talið öryggis- og landa-
mæravarðliðið.
í fastaher og loftvarnarliði
Tékkóslóvakíu eru u.þ.b.
250.000 manns, en varalið og
landamæravarðlið Tékka telur
auk þess samtals um 40.000
manns.
Landher Sovétríkjanna, sem
sennilega hefur u.þ.b. tveimur
milljónum manna á að skipa,
er skipt í 140 herdeildir, en
vígbúnaður þeirra er nokkuð
' misjafn, og talið er, að u.þ.b.
helmingur deildanna sé vígbú-
inn að fullu Talið er þó, að
hægt sé að vigbúa allar deild-
irnar með skömmum fyrirvara,
enda þótt 1/4 af þeim hafi lé-
legan útbúnað og þurfi á veru
legum styrk að halda
Herdeildir Rtússa eru stað-
settar svo scm hér segir: 20
eru í Austur Þýzkalandi, tvær
í Póllandi, f.’órar í Ungverja-
landi, 60 htrdeildir í Sovét-
ríkjunum vestan Úralfjalla og
norðan Kákasus, 10 í. Mið-
Sovétríkjunum, 30 í sunnan-
verðum ríkjunum og 15 her-
deildir eru staðsettar í Asíu-
löndum Sovétríkjanna. í loft-
varnarliði Sovétríkjanna eru
um 10250 flugvélar.
Tékkneski herirm skipÉtsf: i
14 deildir, þ.e. fjórar áanö-
drekasveitir og 19 fótgöngu-
liðsveitir. f loffacarnd®fe
Tékkóslóvakíu era 600 fö^vél
ar.
Þá skýrir herstjóíaarstofn
unin frá herafla annarra rfkja
Varsjárbandalagsins. Sam- ,
kvæmt þeiœ upplýsingum era
127.000 manns í herliði Aust-
ur-Þýzkalands, 270.000 manns
í herjum Póllands, 154.000
manns í Búlgaríu, 102.000
manns í Ungverjalandi.
85.000 manns eru í tveimur
skriðdrekasvtitum og fjórum
fótgönguliðss-citum f Austur-
Þýzkalandi. f loftvarðliðinu
eru 25.000 manns, og það á
300 orrustuflugvélar. í örygg-
is- og landaroæravarðliði Aust
ur-Þjóðverja eru samtals 70.
000 manns.
Framhald á bls. 15.
var vöruúrvalið í þeim sáralítið.
Svo virtist sem þegar væri skoll
ið á sérlega áhrifamikið allsherjar
verkfall í Prag, að því er hinn
þekkti fréttaritari Reuters, Vin-
cent Buits greindi frá í greinar-
gerð sinni í kvöld.
■krk Útsendingar BBC á rúss-
nesku voru enn truflaðar í dag af
rússneskum útvarpstruflurum, að
sögn talsmanns brezku útvarps-
stöðvarinnar BBC. Byrjað var að
trufla útsendingar stöðvarinnar á
rússnesku á miðvikudag og er það
í fyrsta sinn síðan 1963. Orsökip
til þessarra aðgerða er innrás Sov
étríkjanna í Tékkóslóvakíu, en út
sendingar stöðvarinnar á tékkn-
esku hafa ekki verið truflaðar
enn. Talsmaður ameríska sendi-
ráðsins í London upplýsti í dag,
að útsendingar amerísku útvarps
stöðvarinnar Voice of America, á
rússnesku væru einnig truflaðar.
200.000 manna fundur
í Belqrad
Rúmlega 200 þús. manns tók í
i \
dag þátt í fjöldafundi, sem hald-
inn var í miðborg Belgrad, til
þess að votta leiðtoga tékkneska
Ikommúnistaflokksins stuðning
sinn. Hundruðir tékkneskra ferða
manna í Júgóslavíu veifuðu fána
ættlands síns og hrópuðu mót-
mæli gegn hinu sovézka hernámi.
Utanríkisráðherra Tékkóslóvakíu,
sem nú er sagður á leið til New
York til þess að tala máli þjóðar
sinnar hjá Sameinuðu þjóðunum,
tók á móti þúsundum fundarmanna
eftir fjöldafundinn við tékkneska
sendiráðið. Hann þakkaði íbúum
Belgrad fyrir afstöðu þeirra:
— Þetta er sönn sósíalistísk al-
þjóðahyggja, og fyrir okkur tákn
ar stuðningur ykkar raunhæfa og
mikla von, sagði Hajek við mann
fjöldann, sem hróp^ði taktfast og
í sífellu: „Tito — Dubcek" og
„Burt með hervagnanna". Hinn
tékkneski ambassador í Belgrad,
Wladislav Simovic, kyssti tékkn
eska fánann meðan manfjöldinn
hrópaði and-sovézk slagorð.
í dag var efnt til mótmælaað- '
gerða fyrir utan sovézk sendiráð •
víðsvegar um heim, brotnar hafa
verið rúður með steinkasti og;
stöðugur formælingakór hefur •
verið fyrir utan sendiráðin í
mörgum stærri borgum heimsins.
Til viðbótar þessum mótmælaað-
gerðum hafa ríkisstjórnir og for-.
ráðamenn alþjóðastofnanna sent
Sovétríkjunum og öðrum rétttrún'
aðar kommúnistaríkjum í Austur- ',
Evrópu mótmæli eftir friðsamlegri,
leiðum en engu að -síður harðorð
og kröftug.
Ríkisstjórnir eða þjóðþing í eft'
irtöldum löndum, Astralíu, Dan
mörku, Noregi, fsrael, Ghana, Bur
undi, ftalíu, Grikklandi, Indlandi,
Kenýa, Tanzanía og Ethiópíukeis
ari Haile Selassie skoruðu í dag
á Sovétríkin og fylgifiska þeirra
að hverfa á braut úr Tékkóslóv-
akíu með hernámsliðið. Áður
höfðu mörg önnur ríki beint lík-
um tilmælum til Sovétstjórnarinn-
ar.
I