Tíminn - 03.09.1968, Side 1
MtBsm
mm/n
Af staö
í skóla
Fyrsti skoladagurmn í Reykja
vík var í gær, og þá mættu
þessir tveir herramenn í Aust-
urbæjarskólanum. Fyrsti skóla
dagurinn er alltaf stór stund í
Iífi hvers einstaklings, og þa'ð
er gott að fá fylgd mömmu
(Tímamyndir Gunnart
Börnin aðvöruð
um að ergja ekki
innrásarliðið!
f dag var fyrsti skóladagur
barna um alla Tékkóslóvakíu. f
fyrsta tíma eftir sumarfríin fengu
börnin alvarlega aðvörun um að
taka ekki þátt í ncinu sem ergt
gæti Rússana. Aðvörunin kom
frá Frantisek, aðstoðarforsætisráð
herra, sem í útvarpsávarpi varaði
sérstaklega — börn á aldrinum
sex til sextán ára — við að efna
til mótmælaaðgerða við útvarps
síöðina eða á Vencelas-torginu.
Kennararnir endurtóku aðvörun
aðstoðarforsætisráðherrans *
fyrsta kennslutímanum. Kennslu
kona ein skýrði þó frá því að hún
fyrir sitt leyti hefði sagt börnun
um sannleikann: — Ég gat ekki
fengið mig til þess að segja börn
unum neitt annað og ég veit að
99% kennara i landinu er eins far
ið og mér.
Hið opinbera ríkisútvarp í
Tékkósióvakíu hefur fengið skip
un um, greinilega frá æðri stöð
um, að efla þjóðerniskennd fólks
ins. Stór hluti útsendinganna er
þjóðleg tónlist og upplestur úr
sögulegum ritvenbum og er lögð
aðalálherzlan á þau tímalbil sem
Tékkóslóvar hafa þuuft hvað mest
á þjóðernistilfinningum að halda
t. d. frá tímum hernáms Frakka,
Austurríkismanna, Ungverja og
Þjóðverja.
Orðið ,jhernám“ mó nú ekki
lengur nefna i tékkneskum blöð-
um og af útsendingum tékkneskra
útvarpsstöðva má merkja að
stnöng rits'koðun sé á fréttastof
um þeirra. Útvarpið í Bratislava
sagði frá því í dag, að stjóm
Framhald á bls. 15.
Miklar umræður um verðlagsmálin á aðalfundi Stéttarsambands bænda.
Bráðabirgðaverð sett á
framleiðsluvörur bænda
- verðí verðlagsgrundvöllur ekki kominn fyrir 25. septemb.
KJ-Reykjavík, mánudag.
Aðalfundi Stéttarsambands
bænda. sem hófst á laugardaginn
að Skógum, lauk í morgun, og
höfðu þá umræður um verðlags
mál landhúnaðarins staðið til kl.
fjögur f nótt. Eitt aðalmál fundar
ins voru verðlagsmálin, og gerði
fundurinn einróma þá ályktun í
því máli, að verði ákvörðun verð-
lagsgrundvallar á framleiðsluvör
um bænda ekki lokið fyrir 25.
september-setji stjórn Stéttarsam
bandsins bráðabirgðaverð á fram
leiðsluvörurnar. 27 fundarmenn
tóku til máls um verðlagsmálin.
Að lokinni skýrslu stjórnarinn-
ar á laugardaginn, sem Gunnar
Guðbjartsson formaður Stéttarsam
bandsins flutti- voru umræður um
skýrsluna, en síðan hófust nefnd
arstörf:
í sambandi við verðlagsmálin
samþykkti fundurinn eftirfarandi:
^Aðalfundur Séttarsambands
bænda 1968 telur algjörlega óvið
unandi og vítir þá niðurstöðu og
þann drátt, ,sem vairð á verðlagn
ingu landbúnaðarvara 1967. Þess
vegna t-elur fundurirn óhjákvæmi
legt að stjórn Stéttarsambandsins
setji nú til bráðabirgða verð á
framleiðsluvörur bænda verði
ákvörðun verðlagsgrundvallar ekki
lokið fyrir 25. september.
Verði niðurstaða ver'ðlagningar
sú, að enn vanti á það verð er
stjórn Stéttarsambandsins telur
unandi við, skal hún leita heim
ildar til að gera sölustöðvun sam
kv. 17. gc. samþykktar Stéttarsam
bandsins.
Kjör og afkoma bænda er nú
þannig að þeim er efnahagsleg
og siðferðisleg nauðsyn að standa
fast saman og verja og sækja rétt
sinn eins og bezt má verða.“
Um áburðarmálin var gerð éftir
farandi ályktun:
,,Aðalfundur Stéttarsambands I stéttinni fjölbreyttan kalkblandað
bænda 1968 ítrekar enn á ný kröf an áburð.
ur sínar um skjótar úrbætur í Skorar fundurinn á landibúnaðar
áburðaimálum, sem tryggi bænda I , Framhald a bls. 14.
20þúsund
hafa látizt
í NA-lran
NTB-Teheran, mánudag.
Miklir jarðskjálftar hafa orð
ið í Norð-austurliluta íran um
helgina og samkvæmt óopinber
um heimildum hafa þeir orðið
20 þús. manns að bana. Að
þvf er gefið hefur verið upp af
opinberri hálfu hafa 12 þús.
manns látið lífið en 50 þús.
meiðzt meira eða minna á svæði
sem nær til rúmlega 100 bæja
og þorpa. Meir en þrjátíu þess
ara bæja munu vera rústir ein-
ar og f mörgum þeirra hefur
enginn komizt lífs af og þar eru
götur og hús mannlausar og
óhugnanlega eyðilegar. Jarð
skjálftamir hafa svipt a. m. k.
100 þús. manns heimilum sín-
um.
A mánudag ríkti þjóðarsorg í
Iran að fyrirskipan yfirvalda.
Víðsvegar um landið stóðu
________Framhald á bls. 15.
Ráðstefna um nýjungar í starfi
og skipulagi Framsðknarflokksins
Verður haldin á Selfossi í lok september.
Ak-Reykjavík, mánudag.
Framkvæmdastjórn Framsókn
arflokksins hefur ákveðið að efna
til landsráðstefnu um skipulag
Framsóknarflokksins, flokksstarf-
ið, endurnýjún þess og uppbygg
ingu núna í septemberlok, og verð
ur ráðstefnan haldin á Selfossi dag
ana 28. og 29. september.
Hefur framkvæmdastjórn flokks
ins falið skipulagsráði flokksins
að anmast allan undirbúning ráð-
stefnunnar ásamt starfsmönnum
flokksins. Er frá þessu skýrt í
viðtali við Ólaf Rágnar Grimsson,
formann skipulagsráðsins, hér í
blaðinu í dag, en þar segir hann
einnig nánar frá hlutverki skipu-
lagsráðsins og störfum til þessa.
Helztu þátttakendur i ráðstefn
Framhald á bls. 15.