Tíminn - 03.09.1968, Page 13

Tíminn - 03.09.1968, Page 13
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 / sömarsins, i hálfleik á efnhverjum stfórleikjum árslns. í hálfleik I lelk Fram eg Vals síSasta leik íslands- mótslns afherrtl Elnar Björnsson formaöur rátlsins, slg urvegurunum I Mlðsumarsmóti Reykjavíkur verölaun in og mættu fyrirllöar fétaganna til aö taka við þeim. Tallð frá vlnstri. Vikingur sigurvegarl í 1. flokki. Víking ur 2 flokkur B, Fram 3. flokkur B KR, fjórði flokkur B, Valur 5 fiokkur B, og Fram 5. flokkur C. (Tímamynd Gunnar) Evrépukeppnislið Vals í vandræðum með Selfoss Víkingur sigraöi í vonzku veðri og er áfram í 2. deild klp-Reykjavík. „Aldrei á minni ævi hefur mér verið eins kalt,“ sagði einn af leikmönnum Víkings, er við hitt- um harm að máli eftir heim- komu Víkinga frá ísafirði á sunnu dag, en þangað fóru þeir til að leika síðari leikinn, um neðsta sætið í 2. deild. Nokkuð, sem enginn hafði reiknað með að mundi ske, eftir leiki Víkings á Reykjavíkurmót- inu. Ekki er annað hægt að segja, en að þeir hefðu bjargað „and- litinu“ fyrir vestan, þrátt fyrir veðrið, sem var með allra versta móti, 2 stiga hiti, 8 vindstig og úrhellisrigning á meðan á leikn- um stóð. Það er því ekki að undra, þótt leikmanninum hafi verið kalt, en það hefur þeim .líklega öllum, 22 leikmönnunum, verið, sem léku við þessar aðstæður. Víkingur sigraði í leiknum og sýndu góðan leik, einn sinn bezta á sumrinu. Bera þeir því með sóma nafnið VÍKINGAR, að hafa getað leikið góða knattspyrnu við þessar aðstæður. f hálfleik var staðan 1-0 fyrir Víking, eftir sjálfsmark ÍBÍ. í síð- ari hálfleik bættu nafnarnir Jón Ólafsson og Karlsson við tveim mörkum fyrir Viking. ísafjörður má muna fífill sinn fegurri í knattspyrnunni. Fyrir nokkrum árum lék liðið við góð- an orðstír í 1. deild, en síðan hefur liðinu vegnað illa, og nú er svo komið, að 3. deildin blasir við því. HEIMSMET Bandaríkjamaðurinn Matthews setti nýtt heimsmet í 400 metra hlaupi á móti í Bandaríkjunum nú um helgina, hljóp á 44,4. / klp-Reykjavík. 1. deildar lið Vals og mótherji Benfica í Evrópukeppninni, eftir rúma 15 daga, ánu í miklum , vandræðum með 2. deildar lið Selfoss, í leik, sem fram fór á Selfossí á sunnudag. Það var framlina Vals, sem bjargaði liðinu frá stórtapi, en hún var með frískasta móti í þetta sinn, en það sama var ekki hægt að segja um vörnina hjá Vals- mönnum, en hún er búin að gera r............ ■■■— ■- Heimsmetin fjúka á úrtökumóti USA Klp-Reykjavík. Allt útlit er á því, að USA verði yfirburðasigur- vegarar í sundi á Olym- píuleikunum í Mexikó, sem hefjast þann 12. næsta mán aðar, eins og þeir voru á síðustu leikum, í Tokyo 1964. Á úrtökumóti Batid/iríkj- anna fyrir Olympíuleikana, sem fram fór á Langasandi í Kaliforníu nú um helg- ina, voru sett 3 heimsmet í karlagreinum á föstudag, og fyrr í vikunni voru sett 8 heimsmet í kvennasund- greinum. Það má því ætla, að enn Framhald á bls 14 L„.„......................^a Valur — Selfoss — 4:3 margan Valsmanninn gráhærðan í sumar, og þeir, sem sáu þenn- an leik, hafa áreiðanlega bætt við mörgum gráum hárum, svo léleg var hún í þetta sinn. Selfyssingar, en þó sérstaklega miðherji þeirra, Sverrir Einars- son, sem er eldfljótur og fylginn sér, gerðu vörninni lífið leitt í þetta sinn. Eftir 8 mínútna leik hafði Sverrir hlaupið hana tvisv- ar sinnum af sér og skorað í bæði skiptin. Hermann lagaði markatöluna fyrir Val með heppnismarki, eftir 15 mínútna leik. En Sverrir var enn á ferð „með Vals-vörnina á hælunum" stuttu síðar og bætti við sínu þriðja marki í leiknum. í hálfleik var staðan 3-2 fyrir Selfoss. í síðari hálfleik var leikurinn spennandi og fjörugur fyrir hina mörgu áhorfendur, sem þarna voru mættir. En mörkin létu standa á sér, þegar 20 mín. voru til leiksloka, tókst Valsmönnum að jafna, og rétt fyrir leikslok skoruðu þeir, enn úr „heppnismarki" sigurmark sitt í leiknum. Leikurinn var skemmtilegur og fjörugur og oft vel leikinn, sér staklega átti framlína Vals létt- an leik, þar sem boltinn gekk manna á milli. Selfoss-liðið kom sannarlega á óvart í þessum leik, og sýndi, að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild. Dómari í leiknum var Valur Benediktsson og dæmdi mjög -vel. Kári Árnason ÍBA rekinn útaf í „Vináttuleiknum.' Litil vinátta / vináttuleik! Kári Árnason rekinn útaf í leik við IBV klp-Reykjavík/ Akureyringar hafa löngum ver- ið óánægðir með dómara þá, sem dæma leiki þeirra í íslands- og Bikarkeppninni. En nú á sunnudag fengu þeir einn af sínum eigin mönnum til að dæma leik á milli Akureyr- inga og Vestmannaeyja, í Bæjar- keppni milli þessara staða. Og dómarinn, Páll Línberg, sýndi það, að hann er ekki „betri“ en aðrir íslenzkir dómarar, og hann gerði nokkuð, sem enginn hefur gert fyrr. En það var að reka „átrúnaðargoð" Akureyringa, Kára Árnason, út af í leiknum. Kári fékk að finna fyrir hörku „Eyjarskeggja". eins og margir aðrir knattspyrnumenn, en hon- um líkaði ekki aðfarir þeirra (og undrar það engan) og kvartaði til dómarans, sem lét ekkert á sig fá og vísaði Kára út af ]fyrir mót- mæli við sig. Leikurinn var skemmtilegur og fjörugur frá byrjun til enda, en lítið fór fyrir „vináttunni11 í þess- ari vináttukeppni. því hart var leikið á- báða bóga. Kára tókst að skora 2 mörk fyrir Akureyr- inga, áður en hann fékk „passann“ en Vestmannaeyingar jöfnuðu. í leikslok var staðan jöfn, 2-2, en þá var framlengt, og.tókst Þormóði Einarssyni þá að skora sigurmarkið fyrir ÍBA. Miklar stöðubreytingar voru á , Framnalci ? bis 14 Lítið um knatt- ' SJöl.j spyrnu % Þróttur — Brelðablik — 2:0 klp-Reykjavík. Það var léleg knattspyrna, sem Reykvíkingar fengu að sjá um helgina. Aðeins einn leikur fór hér fram, og það einn sá léleg- asti, sem sést hefur í langan tíma þar að auki. í Bikarkeppni KSÍ lék Þróttur A og Breiðablik A, á gamla Mela- vellinum við góðar aðstæður, logn og glampandi sól. En þrátt fyrir það, var leikur- inn lítið spennandi, og fátt um fína drætti. Þróttur sigraði í leiknum 2-0 og mega teljast góð- ir með það. Breiðablik reyndi að leika knattspyrnu, en hún hvarf fljótt út í sandinn á móti Þrótturun- um, sem voru harðir og óvægir, höfðu meiri áhuga á að bregða mótherjanum, eða taka manninn frekar en knöttinn. Framhald á bls. 15. Knattspyrnumaður ársins 1968 klp-Reykjavík. Það er mikill áhugi hjá fólki á skoðanakönnun þeirri, sem TÍMINN er með um, hver verði kjörinn bezti knattspyrnumaður ársins 1968. Nú þegar, eða þrem dögum eft- ir að atkvæðaseðillinn kom í blaðinu, hafa á annað hundrað seðlar verið sendir til blaðsins, en þeir þurfa að vera komnir í síðasta lagi þann 20. þ.mán. En til að fá rétta mynd af áliti Islendinga, þurfa að koma mun fleiri seðlar, og því birtum við ‘ hér aftur atkvæðaseðilinn fyrir. þá, sem misstu af honum í föstu- dagsblaðinu. Og vonum, að enn fleiri sendi hann til dagblaðsins Tíminn -Íþróttasíðan pósthólf 370, Reykjavík, skrifstofuna Bankastræti 7, eða Ritstjórnar- skrifstofuna í Eddhúsinu, Lind- argötu 9a. Bezti knattspyrnumaðurinn 1968 Ég vel hr. Nafn félags SEM BEZTA KNATTSPYRNUMANN Á ÍSLANDI 1968. Nafn sendanda Heimilisfang Síml

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.