Tíminn - 05.09.1968, Page 3
FIMMTUDAGtTR 5. september 1968.
TÍMINN
3
Aðalefni SAMVINNDNNAR
jslenzkur landbúnaður”
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Samvinnan, fjórða hefti þessa
árgangs, er komin út, og er aðal-
efái hennar „íslenzkur lamdibún-
aður“. Eru í heftinu margar grein
ar um ýmsa bætti landbúnaðar-
miála eftir þekkta menn.
Gunnar Bjariiason, ráðunautur
BÍ, ritar greinina ,,Ný viðhorf og
ný skref“, Björ.n Stefánsson, bún
aðarlhagifræðingur urn „Fjárfest-
ingu í landbúnaði og lífskjör
sveitafólks", Inddði G. Þorsteins-
son, rifchöfundur, greinina „Lág-
lendið mun gera þá ríka”, Gunn-
ar Guðbjartsson, formaður Stéttar
sambands bænda greimlna „Hver
verður stefnan í landbúnaðarmál-
um í fraimtíðinni?", Jóhann Franks
son de Fontenay, tilraunastjóri,
Hvolsvelli, greindna „Fóðuröflun
á íslaindi", Ólafur Geir Vagnsson
búfræðingur um „Menntun
bænda“, Jóhannes Torfason bóndi,
Tonfalæk, „Ný viðhorf“ og Agnar
Tryggvason, framkvæmdastjóri,
greinina „Afurðir og afurðasala
— sögubrot".
Margt annað efni er að finna
í þessu hefti Samvinnunnar. í
þættinum „Menn sem settu svip
á öldina“ er að þessu sinni ritað
um Nasser, forseta Egyptalands,
og greinar eru m.a. um stefnur
í bókmenntakönnun, forsetakosn-
ingarnar, „uppreisn æskunnar",
kosningarnar í Svíþjóð í haust,
séra Caimilo Torres og þjóðfrelsis
baráttuna í Colombíu og „Kristna
trú frá sjónarmiði guðleysingja",
en þá grein ritar Gísli Gunnars-
son.
Nokkrir leikarar og starfsmenn Leikfélagsins viS upphaf ieikársins.
Maður og kona frumsýnt
hjá Leikfélaginu í sept.
Starfsárið er hafið hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur. Fyrir nokkru
komu leikarar í Iðnó og starfsfólk
saman í fyrsta sinn að loknum
sumarleyfum, og þegar daginn eftir
hófust æfingar á tveimur fyrstu
verkefnunum, sem frumsýnd verða
'í haust, Manni og konu og Yvonne
Búrgundarprinsessu eftir Gom-
browicz.
Leikárinu lauk 19. júní s. 1. með
síðustu sýningu á Heddu Gabler,
en aðsókn að þeirri sýningu var
svo mikil, að Hedda verður sýnd
að nýju nú í haust, og auk þess er
ráðgert að fara með hana í stutta
leikför til Akureyrar um mánaða
mótin september-október.
• Strax þann 20. júní lagði leik
flokkur Leikfélagsins af stað út
á land með Koppalogn Jónasar
ÁrnasOnar, sem sýnt hafði verið
í Iðnó frá því á jólum, lengst allra
leikrita á leikárinu. Koppalogn var
sýnt 19 sinnum á Norður- og Aust
urlandi, og hefur nú verið sýnt sam
tals 72 sinnum, en sýningar hefjast
á Koppalogni aftur í Reykjavík
um miðjan október. Þriðja leik
ritið frá fyrra leikári, sem sýnt
verður í haust, er svo skopleikur
inn Leynimelur 13, sem frumsýnd
ur var í mai í vor og hlaut mikla
aðsókn.
Leikhússfcjóri, Sveinn Einarsson
ávarpaði samstarfsfólk sitt að
loknu sumarleylfinu og lýsti því
sem framundan er í leikhúsinu nú
í haust. Ennfremur ræddi hann
ný viðhorf í húsbyggingarmálum
félagsins, en þau mál verða rædd
á aðalfundi Leikfélagsins, sem hald
inn verður þriðjudaginn 3. septem
ber n. k.
Hinn vinsæli alþýðusjónleikur,
Maður og kona, verður frumsýnd
ur upp úr 20. september. Er þetta
önnur sviðsetning L. R. á leikn
um, sem þeir Emil Thoroddsen og
Indriði Waage sömdu upp úr hinni
sígildu sögu Jóns Thoroddsens, en
þessi leikgerð var frumsýnd í
Iðnó á jólum fyrir 35 árum. Síðan
hefur leikurinn verið sýndur bæði
á vegum Fjalakattarins og Þjóð
leikhússins. Það er Jón Sigur-
björnsson, sem sviðsetur Mann
og konu að þessu sinni, en leik
myndir teiknar Steinþór Sigurðs
son. Brynjólfur Jóhannesson leik
ur Séra Sigvalda, en hann lék sem
kunnugt er þann fræga klerk við
frumuppfærsluna 1933. Regína,
Þórðardóttir fer með hlutverk
Þórdiísar í Hlið, Valgerður Dan
er Sigrún og Þorsteinn Gunnars
son, Þórarinn sfcúdent. Vaidimar
Helgason leikur Hjálmar tudda, en
það hlutverk fór hann einnig með
1933.
Leikritið . um Yvonne Búrgund
arprinsessu eftir Witold Gombro
wicz er eitt þeirra nútímaleikrita
sem mesta athygli hafa vakið víða
erlendis á síðustu árum. Höfundur
inn er pólskur að uppruna, en hef
Framhald á bls. 15.
Þorsteinn frá Hamri fær
30 þús. úr minningarsjóði
Ara Jósefssonar skáids
Stjórn Minningarsjóðs Ara
Jósefssonar skálds úthlutaði i
fyrsta skipti úr sjóðnum á þrítug
asta afmælisdegi Ara, 28. ágúst
síðastliðinn. í skipulagsskrá sjóðs
ins er til þess ætlazt að úr honum
sé úthlutað verðlaunum til ungra
skálda og listamanna. í samræmi
við það ákvað stjórn sjóðsins ein-
róma að úthluta Þorsteini frá
Hamri 30.000 krónum sem, viður
kenningu fyrir unnin verk og upp
örvun til frekari afreka. Þorstein
frá Hamri þarf ekki að kynna.
Hann hefur með verkum sínum
skipað sér framarlega á meðal is-
lenzka skálda og sýnt að hann er
þroskaður, þrótfcmikill rithöfundur
sem mikils má af vænta.
Stjórn Minningarsjóðs Ara Jósefs
sonar.
Leikár Þjóðleikhússins hefst
með frumsýningu á Fyrirheitinu
Mánudaginn 2. september hélt
Þjóðleikhússtjóri fund með öllum
leikurum Þjóðleikhússins og for-
stöðumönnum hinna ýmsu deilda
leikhússins. Það hefur verið venja
á undanförnum starfsárum að halda
slflcan fund á fyrsta vinnudegi í
september. Leikárið hófst að þessu
sinni nokkru fyrr en venjulega, eða
nánar tiltekið, þann 26. ágúst.
Á fundinum ávarpaði þjóðleik
hússtjóri starfsfólk leikhússins og
bauð það velkomið til starfa á hinu
nýbyrjaða leikári.
! Ennfremur taldi hann upp helztu
verkefni, sem eru á sýningarskrá
Þjóðleikhússins á þessu leikári og
eru þetta aðaliverkefnm:
Þann 21. þ. m. verður fjrrsta
frumsýningin í Þjóðleikhúsinu á
leikritinu. Fyrirheitið eftir Aleks
ei Arbuzov, en þessi leikur hefur
undanfarin tvö ár verið sýndur á
leikhúsum nágrannalandanna við
miklar vinsældir. Leikstjóri er
Eyvindur Erlendsson, en aðalhlut
verkið er leikið af Arnari Jóns
syni, Leikmyndir gerir Una Coll
ins.
Þann 27. ágúst s. 1. hófust æfing
ar á leikriti Brechts, Púntila og
Matti vinnumaður hans. Leikstjóri
er Wolfgang Pintzka, einn af aðal
leikstjórum við Alþýðuleikhúsið í
Austur-Berlín og hefur sett Pún
tila á svið bæði í'Finnlandi og
Svíþjóð.
Pintzka starfaði lengi við hið
fræga leikhús Brecht í Berlín og
nam leiklist undir handleiðslu Bert
holt Brechts. Sannarlega er það
mjög gott fyrir Þjóðleikhúsið að
fá jafn reyndan mann og Wolf
gang Pintzka er, til að stjórna
þessu ágæta og skemmtileg^ leik
riti Bertholts Brechts. Pintzka kom
hingað til landsins s. 1. vor ræddi
þá við ýmsa starfsmenn leikhúss
ins og skipaði í hlutverk, en aðal
hlutverkin eru leikin af: Róbert
Arnfinnssyni, Kristbjörgu Kjeld
og Erlingi Gíslasyni. Leikurinn
verður frumsýndur 4. október n.
k.
Um 20. október hefjast svo sýn
ingar á leikritinu Hunangsilmi,
eftir Shelagh Delaney. Leikurinn
var sýndur fjórum sinnum vorið
1967 á Litla sviðinu í Lindarbæ,
en nú verður leikurinn sýndur á
leiksviði Þjóðleikhússins. Aðalhlut
verk verða leikin af Brynju Bene
diktsdóttur og Þóru Fdðriksdótt-
ur. Leikstjóri við sýninguna í
Lindarbæ vorið 1967 var Kevin,
Palmer.
Þá hefjast sýningar á leikriti.
Guðmundar Kambans, Vér morð-
ingjar, þann 27. september, en
leikurinn var sýndur 12 sinnum á ’
s. 1. leikári við frábærar undirtekt •'
ir og ágæta aðsókn. Auk þess var ■■
Framhald á bls. 15.
Þjóðleikhússtjóri ásamt leikurum við upphaf leikársins.
i