Tíminn - 02.10.1968, Page 6
TÍMINN__________ MIÐVIKUDAGUR 2. október 1968.
Þeir sviðsetja Puntila
eftir Bertolt Brecht
m
■■
og fagur. Hiún getur einnig ver
ið Ijót og klúr. Hann vill þvinga
okkur til þess að fara að hugsa
til að verða siðferðilega virk.
Þeir Pintzka og Grund, 6em
hingað eru komnir til að starfa
með leikurum og öðru starfs
fólki Þjóðleikhússins að upp-
setningu á einu leikriti Brechts
hafa báðir starfað í, leikhúsi
hans við Schiffbauerdamm í
Berlín þar sem Berliner Ens
emble er til húsa. En svo nefnd
ist og nefnist enn hópur leik-
húsfólks, er Breoht vann með
á sínum títna og enn heldur
áfram í hans anda.
Austur-þýzku leikhúsmennirnir Wolfgang Pintzka og Manfred Grund, sem um þessar mundir starfa vis Þjóð-
leikhúsið, skoða eina finnska dagblaðið, sem fyrirfannst í Reykjavík, en það á að notast í leikritinu Puntila
bóndi og Matti vinnumaður hans, sem frumsýnt verður á föstudagskvöld. Tímamyndir GE
„Ef Puntila bóndi og Matfi vinnumaður verður skemmtileg og fróðleg leiksýn-
ing, sem vekur áhorfendur til nokkurrar íhugunar, en þó fyrst og fremst ef leikhús-
gestir eiga ánægjulegt kvöld í leikhúsinu, þá er árangrinum náð og við ánægðir“,
sagði Wolfgang Pintzka leikstjóri, er við náðum tali af honum í síðustu viku. Þeir
eru á einu máli um þessa skoðun Pintzka, og aðstoðarmaður hans, Manfred Grund,
sem hefur unnið leikmyndir, teiknað búninga og segir, í samráði við leikstjóra, fyrir
nni stóður og hreyfingar leikaranna og margt fleira.
Síðustu vikurnar hefur verið unnið af kappi í Þjóðleikhúsinu. Leikrit Bertolt
Brechts hefur verið æft kvölds og morgna undir nákvæmri leikstjórn austur-þýzka
ieikstjórans Pintzka, og fyrir tæpri viku kom samstarfsmaður hans Grund, honum
til aðstoðar. Við litum inn eitt kvöldið á æfingu, en þá var farið yfir tvær stuttar
„myndir“ leiksins hvað eftir annað, allt fram að miðnætti. Hvert atriði grandskoð-
að og fágað til hins ýtrasta. Næsta dag var síðan tækniæfing og voru þá ljós og
önnur tæknileg atriði tekin til jafnrækilegrar athugunar, jafnvel dagblað, sem nota
á í leikritinu, er talið æskilegast að sé finnskt í húð og hár.
Þýzki rithöfunduirinn og lei'k
stjórinn Bertolt Brecht samdi
Puntila í Finnlandi á stríðsár-
unum. Leikurinn gerist þar og
ber nokkurn blæ finnsks þjóð
lífs. í þessu leikriti Brechts
sem öðrum leikritum hans kem
ur fram hárbeitt þjóð'félaigs-
gagnrýni í þetta sinn undir yf-
irborði gamanleiksins. Hann
ræðst gegn því óréttlæti, sem
þeir minnimáttar í þjóðfélag
inu eru beittir; sýnir okkur í
ljósi miskunnarlausrar gagn-
rýni heim síns tíma (og nú-
ti'mans?) þar sem hinum ríka
leyfist all. Byltingarmaðurinn
ureent vill vekja okkur til
umhugsunar, láta okkur sjá
hversdagslega atburði og stað
reyndir í nýju ljósi. Hann vill
ekki að við sitjum í salnum
og lifum okkur inn í það, sem
fram fer á leiksviðinu, óvirk
að öðru leyti en því að láta
leikritið og höfund þess spila
á tilfinningar okkar eins og
hljóðfæri. Listin er í hans aug
um ekki einungis háleit, göfug
TJintzka nam við leiklistarhá-
skóla í Weimar og Leipzig og
lagði í fyrstu einkum stund á
leiklistarsögu og leiklistarvís-
indi. Hann rannsakaði sérstak
lega starfsáðferðir Brechts og
fékk tækifæri t. þ. a. starfa
með honum í Berliner
Ensemble og fylgdist með er
Brecht setti upp leikrit sitt Der
Kaukasische Kreidekreis.
Pintzka var boðið að verða að-
stoðarmaður Brechts og svo
fór að loknu háskólaprófi að
hann sneri sér fyrst og fremst
að leikstjórn. „Því miður . dó
Brecht um aldur fram“, segir
Pintzka. En Pinfzka hélt áfram-
að starfa með Berliner
Ensemible allt til 1963. Hann
vann með hinum fræga leik-
stjóra Erich Engel, sem fyrstur
manna setti upp Túskildings-
óperu Brechts, við uppsetningu
sama leikrits meira en 20 ár
um síðar. Einnig vann Pintzka
að uppsetningu leikritsins
Sohveyk im Zweiten Weltkrig.
Síðar gerðist Pintzka leik
bússtjóri í Gera í Thiiringen
og stjórnaði þar einnig leikrit
um. Árið 1967 réðist hann leik
stjóri við Berliner Volksbiihne
við Luxemborgplatz í Austur-
Berlín. Manfred Grund, sem
Pintzka nefnir í gamni Mackie
hníf eftir einni persónunni í
Túskildingsóperunni, er aðal-
leikmyndasmiður leikhússins
en þeir félagar hafa starfað
saman í meira en 10 ár. Þeir
eru einnig báðir meðlimir í list
rænni stjórn leikhússins. Þar
eru þeir Pintzka og Grund að
Á æfingu. Manfred Grund, Þorsteinn Þorsteinsson þýðandi leiksins, GuSlaugur Rósinkranz þjóSleikhússtjóri,
Wolfgang Pintzka.
reyna að vinna með aðferðum
og í anda Berliner Ensemible í
leikhúsi, sem að nokkru leyti
tekur ólík ve,rkefni og hefur
aðra stefnuskrá.
★
Þeir segja okkur nokkuð frá
verkefnum þeim sem unnið er
að í Berliner Volksbiihne um
þessar mundir. Þar er verið
að leika Mysterium Buffo eftir
Rússann Majakowski. Leikrit
Majakowskis segir upphaflega
Heimsókn á
æfingu í
Þjóðleikhúsinu
þar sem tveir
nemendur
BRECHTS
vinna nú með
íslenzkum
leikurum
frá uppbyggingu Rússlands eft
ir stjórnarbyltinguna, en hefur
verið staðfært og þýzka leik
sýningin sýnir uppbygginguna
í Austur-Þýzkalandi eftir stríð
ið. Þá er leikrit ítalska skálds
ins Dario Fo „í sjöunda lagi:
Steldu svolitið minna“ á verk
efnaskrá leikhússins. Er það í
fyrsta sinn sem þetta leikrit
er leikið i þýzkumælandi landi.
í þriðja lagi sýnir Berliner
Volksbúhne Ieikrit Frakkans
Armands Gattis „V fyrir Viet
nam.“ Það gerist í Pentagon,
aðsetursstað varnarmálaráðu-
neytis Bandaríkjanna. Af aðal
hlutverkum má nefna lögreglu
stjórann Meea öð u nafni John
son forseta, herra Quadrature
öðru nafni Mc Namara fyrrver
andi hermálaráðher,ra. Nota
þeir rafmagnsheila til að reikna
út gang hugsanlegs stríðs fyrir
fram. Að sögn fjallar leikritið