Tíminn - 04.10.1968, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 4. október 1968.
TIMINN
í danssal Uilton hótelsins
í Briissel var fyrir skömmu
haldin afmælisvoizla. Boðs-
gesitir voru bæði' belgískir og
bandarískir og .meðal hinna
bandarísku voru 109 hljóðfæra
leikarar úr Fílharmoníuhl.ióm-
sveit New Yorkborgar. Tón-
ligtarmennirreir áttu þó alls
ekki að lcika fyrir dansi. held
ur voru þeir venjulegir gcstir
í afmælisyeizlu hins heims-
fræga stjórnanda og tónskálds
Leonard Bernstein, sém var
að halda upp á fimmtugsaf-
mælið. Meðal afmælisgjaf-
anna má nefna upphaflcga út-
gáfu á ólokinni tíundu sinfón
íu Mahlers, stereotæki tii
hljómflutnings í heimahúsum
og meðal listaverka: Eftirlík-
ingar af höfðum þriggja tón
listarmanna, mynduðum í
smjör, væntanlega hraðfryst.
Þungur dómur um
tíu ára stjórn
Það er ekki áð ástæðulausn,
að ungir Sjálfstæðismenn krefj
ast „byltingar" í skólakerfinu
eftir tíu ára vandræðastjórn
ílialds og krata á skólamálum
landsins, þar sem kyrrstaðan
hefur ráðið mestu.
Kratar eni sífellt að reyna
að hæla sér af frammistöðu í
skólamálum en ]>ora aldrei að
segja meira, en það hafi verið
„hreyfing" á skólamálum. Það
orð á að ná yfir öll stórvirkin.
Ungum íhaldsmanni sem. skrif-
ar Staksteina Morgunblaðsins
þykir nóg um þetta skrum
Krata og segir um skólamálin
í gær:
„En menn verða að gera sér
grein fyrir því, að við höfum
dregizt svo langt aftur úr að
gera verður róttækar ráðstaf-
anir strax til þcss að ráða bót
á því. Þess vegea er þess að
vænta, að ekki verði gerð til-
raun til að gera of mikið úr
smávægilegum lagfæringum
hér og þar. Þær eru lofsverð-
ar svo langt sem þær ná, en
hetur má ef dúga skal.‘“
Þavna eiga Kratar vafalaust
sneið. en fyrst og fremst er
þetta þungur áfellisdómur um
skólamálastjórnina á „viðreisn
ar“-áratugnum. Þá höfum við
sem ságt „dregizt svo Iangt
aftur úr að gera verður róttæk
ar ráðstafanir strax til þess
að ráða bót á því“.
Þess vegna ber að varast að
hælast um yfir smávægiíegum
Fra.mhald á bls. 11.
Okumenn í Nissa kjosa freni
ur stuttklæddan umferðar-
stjórnanda, en rauða götuvita.
Auk þess segja kunnugir að
umferðin gangi mun betur
þannig.
:• 43 ára gamall Frakki er
■ mest umtalaði maður í Frakk-
landi um þessar mundir, að
IDe Gaulle einum undanskild-
um André Tursad er orðinn
heimsfrægur fyrir afrek sem
hann á eftir að vinna, og er
þegar orðinn þjóðhetja í heima
landi sínu. Tursad er flugmað
urinn sem á að fljúga Con-
cordeþotunni í reynsluferðinni,
sem verður innan skamms.
IBlaðamenn í Frakklandi
segja að erfiðara sé að ná við
tali við Tursad en að fá Mao
formann til að viðurkenna að
innst inni sé hann kapitalisti.
Sagt er að frönsk stjórnvöld
hafi banJ^að Tui-sad að tala
T Vio blaðrmenn eða láta hafa
Íseitt eftk" sér á prenti eða
i útvarpi. Erú fréttamenn að
vonum gramir vegna meðferð
arinnar og segja alls kyns sög
ur af viðskiptum sínum við
þjóðhetjuna. Nýlega birtist
eftirfarandi í frönsku blaði,
en harður fréttamaður er sagð
ur hafa náð sambandi við flug
manninn.
| — Hvers vegna gerðust þér
flugmaður monsieur Tursad?
— Svona nærgöngulum
spurningum svara ég ekki.
— Er það satt að synir yðar
ætli að gcrast flugmenn?
— Hver gefur yður heimild
til að hnýsast í mín einkamál?
Þessi ungfru stjórnaði um
ferðinni með glæsibrag, n-ema
hvað hún átti stundum í vand
ræðum með að koma henni af
stað aftur.
★
Hverjir eru uppállialdsrit-
höfundar 'yðar?
— Spurningar yðar eru
dónalegar og nærgöngular.
Concordeþotan var reynd ný-
lega á flugvelli í Toulouse.
Tursad sat við stýrið en tröll-
aukin dráttarvél dró ferlíkið
fram og til baka á flugbraut
unum.
Dráttarvélarstjórinn fékk
allt í einu skipun frá flug-
stjóranum um að sleppa flug
vélinni og var hún látin keyra
á eigin vélaafii eftir flugbraut
inni og komst allt upp í 60 km.
hraða á klukkustund. Flugvæla
smiðirnir stóðu við brautina
og grétu af gleði. Þegar frækn
asti flugstjóri í heimi sté út
úr vélinni, var hann spurður
hvort hann hafi ekki fundið til
ótta í svaðilförinni.
— Ég hafði svo mikið að
gera við stjórnina að það var
enginn tími til aö hugsa um
voðann.
★
Við erum vön því að láta
okkur nægja að mæla tímann
í klukkustundum, mínútum og
sekúndum en vísindamönnum
nægir ekk;i slík ónákv'æmni.
Sífeilt finna þeir1 ^eiðir til
þess að minnka mælieiningar
tímans. Á alþjóðaþingi vís-
indamanna í atóm-rafeinda-
Framsóknarflokkurinn hefur
undanfarin missiri lialdið því
fram að ríkisstjórnin ætti að
segja af sér og nýjar kosning-
ar að fara fram. Rökin eru
þau, að stjórnarflokkarnir hafi
sagt þjóðinni ósatt um ástand-
ið í efnaliagsmálum og blekkt
hana mjög með ósönnum
skrumlýsingum af góðu ástandi
og miklum blóma, síðan hafi
enn betur komið í Ijós að
stjórnin réð ekki við vandann
eða verkefnin, sem biðu henn-
ar, eins og bún hefur rní játað
í verki.
Ungir Sjálfstæðismenn tóku
hreinlega undir þessa skoðun
stjórnarandstæðinga með því
að lýsa yfir á þingi sínu fyrir
nokkum dögum, „að halda eigi
nýjar kosningar við fyrsta tæki
færi og eigi síðar en næsta
sumar“.
Bjarni formaður Sjálfstæðis
flokksins liefur ætíð mótmælt
kröfu stjórnarandstæðinga um
nýjar kosningar mjög harðlega
og sagt, að þjóðin hafi veitt nú-
verandi stjórnarflokkum meiri-
hluta og þeim úrskurði eigi að
hlíta út kjörtímabilið. Ekki ei-u
ungir Sjálfstæðismenn sama
sinnis. Þeir heimta kosningar
strax hvað, sem Bjarni segir.
Ekki verður þetta talin trausts
yfirlýsing á Bjarna og aðra for-
ystumenn, þótt Morgunblaðið
setji eftirfarandi fyrirsögn á
fréttina af þessari ályktun
þings: „Fyllsti stuðningur við
forystu Sjálfstæðisflolcksins.“
Skoðun þingsins áréttaði síð
an einn forvígismaður ungra
ílialdsmanna með þessum orð-
um í viðtali við Mbl.:
„Ef þá brestur getu til úr-
Jausnar, eiga þeir að segja af
sér“.
fræði sem haldið var fyrir
fimm árum var því lýst yfir
að vísindamönnum hefði tekizt
að mæla tímann í þúsupd millj
ónasta úr sekúndu, nano-sek-
úndur. Þótti þetta á sínum
tlma mikill vLsindasigur.
Á þin,gi í Versölum I Frakk-
landi á dögunum þar sem fjall
að var um atóm-rafcindafræði
kom fram að tekizt hcfur að
greina tímamælinguna niður
í picco-sekúndur, eða billjón
asta hluta úr sekúndu — á
þessum tíma fer ljósið 1.5
millim.
Minnsti tími sem enn hefur
verið mældur eru 5 picco-
sek. Picco-mælieiningin er mið
uð við þann tíma sem tekur
elektrónunu að fara einn snún
snúning um atómkjarnan, ein
umferð elektrónunnar er samá
og 1 picco-sek.
★
De Gaulle forseti getur ver
ið meinyrtur, ef hann vill það
við hafa og stendur saimstarfs-
mönnum hans af fáu meiri
stuggur cn að hitta hann þeg
ar sá gállinn er/ á honum.
Eitt sinn er de Gaulle var
staddur í Algier kom einn ráð
herra landsins til fundar við
hann klæddur í stuttar buxur
eins og tíðkast á Bermúdaeyj
um, því að steikjandi sólarhiti
var úti.
De Gaulle horði lengi á ráð-
herrann. „Herra minn“ sagði
hann meinhæðinn, ,,hvar er
húlagjörðin yðar?“
Hinn nýi forsætisráðiiierra
Kanada Piorre Elliott Trud
eau, er önnum kafinn maður.
Þegar hann sækir ekki tán-
inga dansleiki, eða skýzt að
tjaldabaki til þess að heilsa
upp á fallegar leikkonur eða
tízkudömur, sinnir hann stund
um alvarlegri störfum. Nýlega
var hann til dæmis boðaður
á fund hjá félagi blaðaútgef-
enda í Ottawa, en við það
tækifæri útnefndu blaðamenn
hann Hfeiðursfélaga og Trudeau
reyndi síðan að hengja sjáif
an sig í hálsbindinu sem blaða
menn fengu honum sem merki
um útnefninguna.
Ef til vill hefði íhaldsmönn
unum fjendum hans verið
skemmt, ef „hengingin“ hefði
ekki verið einn liðurinn í
stefnu forsætisráðherrans, en
hann hyggst svipta öllum
virðuleika eða stirðbusalegum
hátíðabiæ af kanadísku rík
isstjórninni. Hann vill gera
þingið að samastaö skemmli-
legra og hugmyndaauðugra
manna í nánum teng'sium við
almúgann og hinn síbreytilega
nútíma.
A VfÐAVANGI
Elcki traustsyfirlýsing