Tíminn - 04.10.1968, Page 8
r
8
iHiniHí TÍMINN
—•wrrjT)AC'--;. október 1968.
er föstudagurinn 4. okt.
Franciscus
Tungl í hásuðri kl. 23.15
Árdegisháflæði í Rvk kL 4.09
HEILSUGÆZLA
Sjúkrabifreið:
Sími 11100 i Reykjavík. í Hafnar-
firði í síma 51336.
Slysavarðstofan f Borgarspitalanum
er opin allan sólarhringinn. Að-
eins móttaka slasaðra. Simi 81212.
Naetur og helgidagalæknir er i
síma 21230.
Neyðarvaktin: Sími 11510, opið
hvern virkan dag frá kl. 9—12 og
1—5, nema laugardaga kl. 9—12.
Upplýsingar um læknaþiónustuna
i borginni gefnar I simsvara
Læknafélags Reykjavíkur i sima
18888.
Næturvarzlan I Stórholti er opin frá
mánudegi til föstudags kl. 21 á
kvöldin til kl. 9 á morgnana. Laug.
ardaga og helgidaga frá kl. 16 *á
daginn til 10 á morgunana.
Kópavogsapótek: Opið virka daga
,frá kl. 9—7. Laugardaga frá kl.
9—14. Helgadaga frá kl. 13—15.
Næturvörzlu í Hafnarfirði aðfara-
nótt 4. okt., annast Grímur Jóns-
son, Smyrlahrauni 44, sími 52315.
Næturvörzlu í Hafnarfirði aðfara
nótt 5. sept. annast Kristján Jóhann
esson Smyrlahrauni' 18. Sími 50056.
Næturvörzlu í Keflavík 4. 10 ann
ast Kjartan Ólafsson.
Næturvörzlu Apóteka í Reykjavík
28. sept — 5. okt. annast Háaleitis
Apótek — Reykjavíkur Apótek.
SIGLINGAR
Ríkisskip: Esja er í Reykjavík Her
jóifur fer frá Vestmannaeyjum kl.
21.00 í kvöld til Reykjavíkur. Blikur
er á leið frá Austfjörðum til Reykja
víkur. Herðubreið er á Austurlands
höfnum á norðurleið.
Skipadeild SÍS: Arnarfell er í
Arkangelsk. Jökulfell fer í kvöld
frá Grimsby til íslands. Dísarfell
lestar á Austfjörðum. Litlafell los
ar á Norðurlandshöfnum. Helgafell
er. á Akureyri.
Stapafell fór í morgun frá Seyðis
firði til Norðurlandshafna. Mæliíell
er í Brussel, fer þaðan væntanlega
12. þ. m. til Arkangelsk. Meike fór
í gær frá Grimsby til Kx>tterdam
Joreefer átti að fara í gær frá Akur
eyri til Reyðjarfjarðar. Fiskö er á
Hornafirði.
FLUGAÆTLANIR
Loftleiðir h. f.: Leifur Eirfksson er
væntanlegur frá NY kl. 10.00. Fer
til Luxemborgar kl. 11,00. Er vænt
anlegur til baika frá Luxemborg kl.
02.15. Fer til New Yorik kl. 03,15
Guöríður Þorbjamardóttir er vænt
anleg frá NY kl. 2330 Fer til Lux
emborgar kl. 00.30. Bjarni Herjólfs
son er væntanlegur frá Luxemborg
kl, 0345 Fer til NY kl. 04.45.
FÉLAGSLlF
Kvenfélag Neskirkju:
heldur fund þriðjudaginn 8. okt.
kl. 8,30 í félagsheimilinu. Rætt um
vetrarstarfið og basarinn. Til
skemmtunar, upplestur. Stjórnin.
Kvenfélag Laugarnessóknar:
heldur sinn fyrsta fund á vetrinum
mánudiaginn 7. okt. kl. 8,30 í fund
arsal kirfkjunnar. Stjórnin.
KVIKMYNDA-
"LltlAbíú’' KLtJBBURINN
Tékkneesk kvikmyndahátíð
Sýningar daglega kl. 21,00
nema fimmtudaga.
Þessa viku: „Rómansa fyrir
trompet", eftir Otakar Vavra.
Handknattleiksdeild ÍR
Æfingatímar
4. fl. karla: Sunnudagar kl. 6.20
Fösbudagar kl. 8.30. Háloga-
land.
3. fl. karla: Föstudagar kl. 9.20
Laugardaga kl. 5.30, Háloga-
land.
2. fl. karla: Mánudagar kl. 10.20
Réttarholtsskóli; þriðjudagar
kl. 8.30. Laugardalsihöll og
miðvikudagar kl. 8.40, Réttar-
holtss'kólL
.á 1
Kvenfólkið er að reyna að eyðileggja • verzlun Jóa. Ég varaði konurnar við því Gerið þetta ekki. Barinn er stolt og
að taka lögin í síuar hcndur. gleði Jóa!
DREKI
/VlOU'CKIM I ./vJPEFs
Beinagrindur frá gamla spánska flak-
inu? Nei, nýtízku beinagrindur. Það er
ekki undarlegt þó sumir vilji halda gest
um í burtu.
1%:
Þetta er það sem glæpamennirnir kalla
.... þetta er grafreittir glæpamanna.
Halldóra B. Björnsson rithöfundur
lézt á Landsspítalanum laugardag
28. sept. eftir löng og erfið veik
ind.. Halldóra vann mikið að rit-
störfum, einkum seinni árin og
safnaði einnig frásögnum um þjóð
legan fróðleik, og um skeið átt!
hún fasta þætti í Sunnudagsbiaði
Tímans.
Hún tók virkan þátt í félagsmál
um og var um tíma form. í Rithöf.
fél. íslands.
Minningarathöfn um Halldóru B.
Björnsson verður í diag Id. 10.30 4.
okt. í Dómkirkjunni og verður hún
jarðsett sama dag að Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd Hennar verður
minnzt í næstu íslendingaþáttum
Tímans.
SÖFN QG SÝNINGAR
Frá 1. október er Borgarbókasafn
ið og útibú þess opið eins og hér
segir:
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29A
Sími 12308.
Útláns og lestrarsalur: Opið 9—12
og 13—22. Á laugardögum M. 9—12
og 13—19. Á sunnudögum kl. 14—19.
Útibúið Hólmgarði 34.
Útlánsdeild fyrir fullorðna: Opið
mánudaga kl. 16—21, aðra virka
daga, nema laugardaga kl. 16—19.
Lesstofa og útlánsdeild fyrir böm:
Opið alla virka daga, nema laugar
daga, kl. 16—19.
Útibúið Hofsvallagötu 16
Útlánsdeild fyrir böm og fullorðna:
Opið alla virka daga, nema laugar
daga kl. 16—19.
Útibúið við Sólheima 27. Siml
36814.
Útlánsdeild fyrir fullorðna: Opið
alla virka daga, nema laugardaga kl.
14—21.
Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn:
Opiö alla virka daga, nema laugar
daga, kl. 14—19.
Bókasatn Seltiarnarness er oplð
mánudaga lcl 17,15 - 19.00 og 20—
22 Miðvikudaga kl 17.15—19.00
Föstudaga kl, 17,15—19.00 og 20—
22.
um uppiskroppa með eyðu
blöð undiir fyrstu og aðra að-
vörun. Auk þess er reynsla okk
ar sú, að síðasta aðvörun ber
langbeztan árangur“.
„Kemurðu enn að biðja um
frí“ sagði akrifstofustjórinn
byrstur við sendisveininn. „Það
er fróðlegt að vita hvaða
ástæðu þú færir nú fram. Þú
ert búinn að vera fjórimi sinn
um vdð útför afa þíns á þessu
ári“.
„Já, og nú er amma að gifta
sig í fimmta sinn í dag“, anz-
aði snáðinn.
Maður aokkur fékk tilkynn-
in.gu frá skattheimtuskrifstof-
unni. „Síðasta aðvörun", stóð
á hennl með stórum stöfum.
„Ef þér greiðið ekki þegar
skattinn yðar, verður hann inn
heimtur með lögtaki án frek
ari aðvörunair.“
Maðurinn fór þegar í stað
á skrifstofuna til að borga skatt
inn. „Ég hefði verið búinn að
borga“ sagði hann, „ef ég hefði
fengið aðvörun áður“.
„Það vill svo til“ sagði af-
greiðslumaðurinn, „að við er
— Ég held bara að Jón þoli ekki að vera fyrirliði liðsins.
Strætisvaginn var þéttsetinn
þegar ákaflega gildvaxin kona
kom upp í hann. Hún leit í
kringum sig og sagði síðan:
„Ætlar ekki einbver herrann
að láta mér eftir sætið sitt?“
Lítill og ákaflega grannur
maður stóð upp og sagði: „Ég
skal láta yður eftir miniKlitla
skerf.“
Maður stóð á götuhorni og
beið eftir þvi að eitthvað hægð
ist um í umferðinni svo" að
hann kæmist yfir götuna. Biðin
varð löng, því að bílarnir
streymdu áfram í þéttri, órofa
fylkingu. Loks rofaði svolítið
til og sá hann þá mann standa
hinum megin. Hann kallar til
hans: „Heyrið mig, hvernig
bomust þór þangað sem þér er
uð?“
„Það var ósköp auðvelt" kall
aði maðurinn á móti, „ég er
fæddur hérna megin.“
Það var kvenfélagsfundur og
umræðuefnið var stofnun tóm
stundaheLmilis fyrir æskulýð
inn. Ung kona lagði orð í belg
og sakaði félagssyst-ur sínar um
að vera gamaldags í hugsunar
hætti. „Það þarf unga konu
til að stjórna æskulýðsheimil
inu okkar“ sagði hún, „konu
sem er nógu ung til þess að
vita hvað unglingana langar til
að gera.“
„Og nógu gr.mla“ sagði rosk
in kona þuríJÆga, „til þess a’ð
sjá um að þeir geri það ekki.“
Frú sagði vijj nýju vinnukon-
una: — Dóttir mín vill að við
borðum kl. 6 í kvöld, og svo för-
um við út strax eftir matinn“.
— Ágætt, svaraði vinnukonan.
— Og eigum við svo að þvo upp
þegar við komum heim? j