Tíminn - 04.10.1968, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 4. október 1968.
TIMINN
9
DENNI
— Þetta hlýtur a3 vera hræSi
legt — þa3 halda allir hver í
DÆMALAUSI
SJÓN VARPIÐ
Föstudagur 4. okt. 1968:
20.00 Fréttir.
20.35 Vatn til Eyja: Senn líð-
ur a3 því a3 langþráður
draumur Vestmannaeyinga
raetist, og þeir fái gott, renn
andi vatn í hús sín. I mynd
þessari er saga vatnsveitu-
málsins rakin og sýnt, þeg-
ar neðansj ávarleiðslan var
lögð siaðstliðið sumar. Þulur
er Magnús Bjarnfreðsson.
20.55 Spretthlauparinn Jesse
Lárétt: 1 KynkvísLaniia 6 Fát 7
Öfugur tvíhljóði 9 Tónn 10 Hnött
urinn 11 StafrófsröS 12 1001 13
Æði 15 komist nær.
Krossgáta
Nr, 133
Lóði-étt: 1 Mannorðsmissir 2
ísland 3 Auðveld uppgöngu.
4 Öfug stafrófsröð. 5
Óhreinkaðist 8 Ennfremur
9 Bandlegg 16 Bor 14 Tveir
eins.
Ráðning á gátu nr. 132.
Lárétt: 1 Absalon 6 Ána 7
TS 8 Ám 10 Andláts 11
Kú 12 A1 13 Att 15 Naust
in.
Lóðrétt: 1 Arftakan 2 Sá
3 Andlits 4 La 5 Námslán 8
Snú 9 Áta 13 AU 14 TT.
34
Owens. — Bandaríski íþrótta
maðurinn Jesse Ovi'ens heim
sækir Olympíuleikvanginn í
Berlín. f .myrtdinni eru sýnd
ar svipmyndir frá Olympíu-
leikunum 1936, er Owens
vann fern gullverðlaun og
einnig sjást helztu leiðtogar
„Þriðja ríkisins“. íslenzkur
texti: Ásgeir Ingóifsson.
21.40 Maverick: fslenzkur texti
Ingibjörg Jónsdóttir.
22.30 Erlend málefni. Umsjón:
Markús Örn Anlonsson.
22.50 Dagskrárlok.
Fyrir jólin lá við að hún byggði
mér út úr bænum.
— Það er ( mikið að gera
á sveitabæjum, sagði kaupmaður.
— Hvort sem á sveitabæ er eða
ekki, verður allt kvenfólk ómögu-
legt fyfir jól, hvein í Óla Pétri.
— Svona er Malín á elliheimilinu,
og ekki hún ein og hjálparstúlk-
an, heldur allar kerlingarnar líka.
Endranær verður að þjóna þeim
í öllu, en fyiir jólin þykjast þær
verða að hjálpa til, allar saman!
— Séu þær ekki ómögulegar að
öðru leyti, eru þær naumast hættu
legar, gegndi Kristín og hló.
— Ætli ég komi ekki einhvern
daginn og kíki á eymdina, bætti
Óli Pétur við.
— Þú gætir l'íka litið inn til
okkar einstöku sinnum, sagði Ósk
ar. Það var ekki oft sem Óli Pét-
ur gerði vart við sig hjá syni sín-
um.
— Já, það getur verið, svar-
aði Óli Pétur kæruleysislega.
— Það var nú það, já, sagði
Olli. — Var þá nokkuð meira?
— Nei, þakka. Verið þið þá sæl
ir. Kristín gekk til idyra- — Líði
þér vel, afi og berðú Grétu kveðju
mína, Óskar.
— Hún er stúlka, sem segir
sex þessi dótturdóttir þín, sagði
kaupmaðurinn við Óla Pétur þeg-
ar hún var farin. Hinrik á Neðra-
bæ gæti ekki náð í neina betri.
Er þetta ekki annars klappað og
klárt milli þeirra.
Óli Pétur yppti öxlum. — Jú,
ef hún þá kærir sig um hann. En
ungdómurinn nú til dags . . .
Meðan þessu fór fram hafði
Betu tekist að koma sér upp í
kerruna
— Hér er ágætt í aftursætinu,
sagði hún. — Þá hef ég eitthvað
til að halda mér í. En um að gera
að aka nú ekki svo hratt, Kristín,
að vagninn velti.
_ Kristín hló og kinkaði kolli til
Óla skeifnasmiðs.
— Nú er búið að koma Betu
fyrir, svo nú færð þú að losna.
Þakka þér fyrir hjálpina.
— Ég kem þá daginn eftir morg
undaginn, mælti Óli.
— Gott er það, bless!
Kristin slakaði ögn á taumhald-
inu, og Vega tók þegar til fót-
anna. Hún var svo viljug
að Kristín varð undir eins að
halda aftur af henni.
— Ekki of hratt, góða Kristín
mín! sagði Beta í bænarrómi. Hún
var hrædd.
— Þú mátt vera róleg, gegndi
Kristín hughreystandi. — Það er
ekki hægt að fara í spretti á kerru
með þremur innanborðs.
Eiríkur virti dáttarhestinn fyr
ir sér, en hugsaði þó ekki ein-
göngu um hann, heldur og um
stúlkuna sem ók. Það var eitfchvað
í fari hennar sem honum geðj-
aðist fjarska vel að og nú kom
það einmitt greinilega í ljós. Hún
einbeittd sér svo mjög að öllu sem
hún tók sér fyrir hendur. Setning-
in sem er svo algeng, „lifandi
áhugi,“ átti einkar vel við um
hana. Lifsþróttur var henni í hlóð
borinn. Hún virtist lifa sig inn í
hvað eima. En um slíkar hugsan-
ir þagði hann vitaskuid þunnu
hljóði.
— Vega er fallega vaxin, sagði
hanp í þess stað. — Aðeins of
gildváxin, kannski.
— Það veitir ekki af þegar far-
ið verður að vinna með hana í
skóginum, svaraði hún. — Þá verð
ur hún ekki lengi að rölta af sér
spikið.
— Svona hest langar mig til að
eiga, mælti Eiríkur í aðdáunar-
róm. — Og ég skal líka geta eign-
azt hann.
Kristín leit snöggt til hans.
Hann var manna liklegastur til
að ná því takmarki sem hann
setti sér, varð henni hugsað er
hún sá atorkusvipinn á andliti
hans. En hún ræddi ekki heldur
um neitt nema hestimn.
— Já, húm er ágætur skógar-
hestur, verður sjálfsagt prýðileg
til undaneldis líka.
— Það ætti hún að geta orðið.
— Við vorum að hugsa um að
hleypa til hennar í ár, svo hún
eignaðist folald að ári, en það
er enginn foli hér í nágrenninu,
sem okkur líkar.
— Ekki það?
— Nei. Herragarðsfolinn er
fallegur á að líta, en það kemur
ekkert sérlega gott undan hon-
um, fætumir ekki nógu sterkleg
j ir.
Eiríkur kinkaði kolli. —, Á ég
j að segja þér hvern þið ættuð að
i fá handa Vegu?
í Kristín sneri sér að honum með
I áhuga. — Veizt þú um góðan
fola, sem ekki er allt of langt í
burtu?
Aftur kinkaði hann kolli. —
Það eru tveir fallegir stóðhestar
við kappreiðavöllinn. Það er
hrokk í Vegu.
— Hvort það er! hrópaði
Kristín í hrifningu. — Þú ættir
bara að sjá til hemnar í góðu
sleðafæri!
— Þið ættuð einhvern tíma að
reyna hana á isbrautinni.
— Ég hefi minnzt á það við
pabba, en hann vill það ekki.
— Hvers vegna ekki?
— Hann segir að ef byrjað sé
á slíku, verði alit annað vanrækt,
svo það komi ekki til mála.
— Það var slæmt.
— Já, Kristín stundi við. —
Þetta barst líka einu sinini í tal
á Neörabæ, en þeir Knútur og
Hinrik voru báðir á sama máli og,
pabbi, svo ég varð auðvitað að
láta í minni pokann.
— En það á ekki að þurfa að j
vanrækja neitt, þótt hesti sé j
hleypt á sleðabrautinni öðru ■
hverju. i
— Nei, það finnst mér ekki
heldur. En pabbi stendur í þeirri j
meiningu, að þjálfunin taki of i
mikinm tíma frá annarri vinmu.
— Hún gerir það ekki. Bezta
þjálfunin fyrir stilltan hest er að
ganga í skóginum.
— Þú ert víst talsvert kunnug-
ur kappreiðum!
— O, ekki svo mikið sem ég
vildi. Ég hefi aðeins ekið nokkr-
um sinnum á sleðabraut.
— Hefirðu gert það? spurði
Kristín steimhissa. — Hefir þú
nokkurn tíma hlotið verðlaun?
— Ó, nei, nei, svaraði Eiríkur
og hló, — ekki tel ég það.
— Bn þú hefur að minnsta
kosti keppt, héit Kristín áfram og
var ekki laust við að hún öfund-
aði Eirík. — Hvaða hest varstu
með?
— Ég átti hann sjálfur.
En hann var ekki svo röskur að
hann skaraði fram úr. Þrettán
vetra og vanaöur, ágætur í skóg-
inum, en óvanur hraðhlaupi, svo
ekki var við því að búast að hann
færi fram úr. Ég var aðeins með
að gamni mínu.
Kristín varp öndinni svo hátt,
að heyra mátti. — Ég skyldi
gjarna vinna til að verða síðust,
bara ef ég fengi að taka þátt I
keppninni. En stúlkur mega frá-
leitt keppa.
— Ekki þar sem veðbanki er,
en það hafa heir sjaldan við vetr-
arhlaupin.
— Ilugsa sér ef ég fengi ein-
hvern tíma að keppa með Vegu
á ísbraut! mælti Kristín og það
var auðhe.vrð þrá í rödd hennar
— Iívernig heldur þú að það
myndi takast?
— Mætti segja mér að þið kæm
ust langt, svaraði Eiríkur af sann
færingu. — Bara að hún hafi ekki
óhreinan gang eða hlaupi upp.
— Ekki trúi ég að hún myndi
gera það.
— Það er ieitt að hún skulj
ekki fá að sýna hvað í henni býr.
— Líklega fær hún það aldrei,
svaraði Kristín dapurlega. — En
nú skal ég að minnsta kosti
sýna þér það.
— Góða mín, stúlka, ekki fara
hratt! Beta tók andköf.
Kristín hló. — Þú veizt ekki
hvað hratt er. Ég ætla bara að
gefa henni slakan taum allra
snöggvast.
Hún gerði það, og svo var sem
Vega tæki a sig aðra og hressi-
legri reisn, er hún jók ferð-
ina. 1
— Nei, en Kristín! Kristín!
æpti Beta i skelfingu.
— Þetta er svo sem ekkert,
sagði Kristín hlæjandi.
— Nei, en maður finnur að
hún er ferðmikil, sagði Eiríkur
ÚTVARPIÐ
Föstudagur 4. október.
7.00 Morgunútvarp. 1200 Há-
degisútvarp.
13.15 Lesin
dagskrá
næstu viku. 13.30 Við vinnuna.
14.40 Við, setn heima sitjum:
Kristmann Guðmundsson les.
15.00 Miðdegisútvarp. 16.15
Veðurfregnir. Tónlist eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson. —
17.00 Fréttir. Tónlist eftir
Mozart. 17.45 Lestrarstund fyr
ir litlu hörnin. 18.00 Þjóðlög.
Tilkynningar. 19.00 Fréttir. Til
kynningar. 19.30 Efst á baugi:
Elias Jónsson og Magnús Þórð-
arson fjalla um erlend mál-
efni. 20.00 Sónata í G-dúr fyrir
fiðlu og píanó eftir Guillaume
Lekau. 20.30 Sumarvaka. 21.35
Tólf etýður op 10, eftir Chopin.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.15 Kvöldsagan: 22.35 Kvöld
tónleikar. 23.20 Fréttir í stuttu
máli. Dagskrárlok.
Laugardagur 5. október
7.00 Morgunútvarp 12.00 Há-
degisútvarp 13.00 Óskalög sjúkl
inga Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir
15.00 Fréttir
15.15 Laugar
dagssyrpa í umsjá_ Haligríms
Snorrasonar. 17.15 Á nótum
seskunnar Dóra Ingtvadóttir og
Pétur Steingrímsson kynna nýj
ustu dægurlögin. 17.45 Lestrar
stund fyrir litlu börnin 18.00
Söngvar í léttum tón. 18.20 Til
kynningar 18.45 Veðurfregnir.
19.00 Fréttir. Tilkynningar 19.
30 Daglegt líf Árni Gunnarsson
fréttamaður sér um þáttinn. 20.
OO Gömlu dansarnir 20.35
,,Misgáningu>r“ smásaga eftir
Guy de Maupassant. Baldur N
Pálmason islenzkaði. Baldvin
Halldórsspn leikari les. 20.55
Þættir úr „Carmina Burana“
eftir Carl Orff. 21.25 Leikrit:
„Haust“ eftir Curt Goetz. Áður
útv. 1963. Leikstjóri: Helgi
Skúlason. 22.00 Fréttir og veður
fregnir. 22.15 Danslög 23.55
Fréttir i stuttu máli. Dags>krár
lok.
I