Tíminn - 05.10.1968, Qupperneq 1
Viðræðum Tékka og Sovétmanna lauk í Moskvu í gær:
Tékknesku leiðtogarnir
knúðir til undanhalds!
NTB-Moskvu, föstudag,
Tveggja daga viðræður tékk-
neskra og sovézkra leiðtoga lauk
í Moskvu í kvöld. Alexander
Dubcek, Oldrich Cernik og Gustav
Husak, leiðtogi Slóvaska komm-
únistaflokksins tóku þátt í við-
ræðunum af hálfu Tékkóslóvaka,
SfLDIN
TÝND!
OÓ-Keykjavík, föstudag.
Gott veður er nú á síldar-
miðunum fyrir norðaustan land
og sjólag sæmilegt .Síidveiði-
skipin leituðu i nótt og í
dag um allan sjó en fundu
litla síld, og það litla sem vart
var við stóð djúpt og þýddi
ekki að kasta.
Síldin sem fannst var nokkru
austar en veiðisvæðið, þar sem
síðast var veiði. Rúm vika er
nú liðin síðan fiotinn fékk síð-
ast síld. Á fimmtudag í fyrri
viku skalil á rok á miðunum og
hefur verið bræla á þeskum
slóðum síðan og hafa um 100
íslenzk síldveiðiskip haidið sjó
og beðið betra veðurs. Þegar
svo lygndi í gærkvöldi var far-
ið að leita að síld, en eins og
fyrr segir virðist hún hafa
stungið af.
I en æðstu leiðtogar Sovétrikjanna,
þeir Kosygin, Brésnev og Pod-
gorny fyrir hönd Kreml-stjórnar-
innar. f yfirlýsingu, sem birt var
í lok fundarins kemur fram að
! herlið Varsjárbandalagsins verð-
. ur áfram í Tékkóslóvakíu eftir að
1 ástandið þar er komið í eðlilegt
horf, og að tékkneska stjómin
skuldbindur sig til að gera allt
sem hugsanlegt sé til þess að
Moskvusamkomulaginu verði
framfylgt. Tékkneska sendinefnd-
in hélt heim í kvöld stuttu eftir
að yfirlýsingin var birt.
Um erlent herlið í Tékkóslóvakíu
segir svo í yfirlýsingu fundarins:
„Einn liður samningaviðræðn-
anna voru umræður um nærveru
hersveita Varsjárbandalagsins í
Tékkóslóvakíu. Viðræðuhóparnir
tveir komu sér saman um að und
inrita samkomulag um staðsetn-
ingu herliðs Varsj'árbandalagsins
á tékknesku umraðasvæði til
bráðabirgða. Samkvæmt samning
Framhald á bls. 14
Innflutnings-
bann á saltfisk
til Portúgal?
Síldarsöltun á Vopnafirði á dög
ununt. (Tímamynd:—Gunnar)
KJ-Reykjavik föstudag.
f blaðinu Dansk Fiskeri Tid-
ende, sem út kom fyrir skömmu,
er frétt frá fískimálaráðunaut
Dana f London um söluhorfur á
saltfiski í Portúgal. Er sagt frá
þvf, að þúast megi við innfltitn-
ingsstöðvun á saltfiski til Portú-
gal um tíma, þar sem í landinn
séu 6—8000 lestir af óseldum salt
fiski.
Segir í fréttinni að orsök þess
ara miklu saltfiskbirgða sé að
á miðju ári 1967 hafi saltfiskinn-
flutndngurinn til Portúgal verið
gefinn frjáls. Segir í blaðinu að
inn hafi verið fluttar óheppilegar
stærðir af salbfiski og lélegir
flokkar frá Spáni. íslandi, Noregi
og Vestur-Þýzkalandi.
í fréttinni segir að innflytjenda
Framhald á bls. 14.
ÚEIRÐIRNAR Í MEXIKÚ: SAMSÆRI
NTB-Mexico City, föstudag.
Opinberlega er því haidið
fram í Mexíkóborg að 25 manns
hafi fallið í óeirðunum á mið
vikudagskvöld, en talsmenn
ríkisstjómarinnar segja að ó-
eirðimar geti hafa verið liður
i vel skipulögðu samsæri er
miðaði að því að eyðileggja heið
ur landsins fyrir Ólympíuleik-
ina. Hinar gífurlegu óeirðir
virðast ekki ætla að hafa áhrif
á straum ferðamanna til Ólymp
íulcikana og hafa mexíkönskum
ferðaskrifstofum aðeins borizt
fáar afpantanir végna ástands-
ins í landinu.
Allt er með kyrrum kjör-
um í Mexíkóborg í dag en
vopnaðir verðir og hervagnar
voru hvawetna í miðborginni,
enda hefur mexíkanska stjórnin
lýst því yfi(- að hún muni bæla
niður með hörku hverja þá
tilraun sem gerð verður til þess
að koma af stað nýjum óeirð-
um.
Yfir fimmtíu þúsund ferða-
menn eru þegar komnir til
Mexíkóþorgar tii þess að vei-s
viðstaddir leikana. Hótel og
ferðaskrifstofur segja að þeim
hafi aðeins borizt fáar afpant-
anir vegna óeirðanna og for-
ráðamenn hins stóra Hilton hó
tels í hjarta Mexíkóborgar full
yrða að þeim hafi engin af
pöntun borizt. Flestar ferða-
skrifstofur halda því þó fram
að afpantanir nemi 5%, en
taka fram að ferðamannastraum
urinn geti þó talizt mjög eðli-
legur.
Framhald á bls. i4.
KAMBARNIR
LOKS LAG-
FÆRÐIR!
KJ-Reykjavík, föstudag.
Fyrir dyrum stendur nú
nokkur lagfæring á Suður-
landsvegi í Kömbum, og er
það svo sannarlega tími til
kominn því nú upp á síð-
kastið hefur vegurinn ver-
ið svo að segja ófær fyrir
minni bíla, — og jafnvel
stærri bila líka.
í hinum miklu rigningum
sem gerði um síðustu helgina
í ágúst, spilltist vegurinn mik
ið. Fór ofaniburðurinn í burtu
á köfium, svo upp úr stóðu
berar klappirnar. Hefur vegur
inn af þessum sökum veriS
mrjög slæmur yfirferðar.
Nú mun í ráði, að gera nokk
rar endurbætur á veginum. Er
ætlunin að sprengja í burtu
verstu klappirnar sem skaga út
í veginn, og síðan mun eiga að
bera vel ofan í hann. Þá mun
verða gerð vatnsrás norðan-
megin við veginn, svo vatn
flæði ekki eins yfir hami í rign
mgatíð.
Er ekki að efa að þeir sem
þarna eiga leið um, munu
fagna þessari lagfæringu, —
sem hefði átt að koma miklu
fyrr, en hér verður ekki um
neina breytingu á veginum
sjálfum áð ræða, heldur að-
eins reynt að lagfæra verstu
kaflana.
Ekki hafa verið gerðar nein
ar stórbrevtingar á veginum
í Köm'bum um margra ára
skeið, og mun þar aðallega j
hafa valdið, að óviss'a héfur
rílri um framtíðarveginn aust-
ur fyrir fjall.
ÚTTAZT STÚRFELLT ATVINNULEYSI BYGGINGAMANNA
Almennur fundur i Trésmiðafé
lagi Reykjavíkur, haldinn 3. okt.
1968, Ieggur áherzlu á nau'ðsyn
þess að þegar í stað séu gerðar
ráðstafanir. til þess að koma i
veg fyrir stórfelit atvinnulcysi
bpgginganianna. Þegar á síðasta
vetri var um alvarlegt atvimiu-
leysi að ræða, í suniar hcfur at-
vinna verið af skornum skammti
og verði ekki að gert, er fyrir-
sjáanlegt, að atvinnuleysi í vetur
verður mun víðtækara cn á síðasta
vetri og mjög iiiikið vandamál.
Mikill meirihluti byggingamanna
hefur atvinnu við ibúðarhúsabygg
Jngar. Á því sviði er svo ástatt, að
mjög margar íbúðabyggingar, sem
hafnar voru á síðasta ári, hafa
stöðvazt og í ár hcfur miklu minna
verið hafið af byggingu nýrra
íbúða en áður. Ástæðnn er stór-
felldur samdráttur á tekjum al-
mennings og skortur á fjármagni.
Fundurinn skorar á stjórnar-
völdin að gera nú þegar ráðstaf
anir til þess að haldið verði áfram
þeim íbúðarhúsabyggingum, sem
hafnar eru, með því að tryggja
Byggingasjóði ríkisins, og öðrum
jaeim sjóðum, sem varið er til
íbúðarhúsabygginga, nægilegt
fjármagn, til þess að standa við
lögbundnar skuldbindingar sínar,
svo koma megi í veg fyrir að skort
ur á ibúðarhúsnæði verði sívax
andi vandamál á nýjan leik.
Fundurinn bendir sérstaklega á
það að hér er um að ræða at-
Framhald á bls. J4.