Tíminn - 09.10.1968, Qupperneq 1
Gerizt áskrifendur ð
Tímanum.
Hringið í síma 12323
ALÞINGI A
MORGUN |
Forseti íslands hefur sam- 1
kvæmt tillögu forsætisráðiherra
kvatt reglulegt Alþingi 1988 til j
fundar fimmtudaginn 10. þ. m. |
og fer þingsetning fram að
lokinni guðsþjónustu í Dóm*
kirkjunni, er hefst kl. 13,30. Sr.
Sigurður S. Haukdal, sóknar-
prestur mun predika.
Foreætisráðuneytið, 8. októ-
ber 1968.
Ályktanir ráðstefnu um málm- og skipasmíðaiðnaðinn:
LANAMALIN KOMIST
í VIDHLÍTANDIHORF
Tilbúreir er
konan fannst
OO-Reykjavík, þriðjudag.
Meðlimir björgunarsveita skipu
leggja leit að konu sem hvarf að
heiman frá sér á mánudagskvöld.
Er myndin tekin eftir hádegi í gær
er víðtæk leit átti að hefjast, en
til þess kom ekki því konan sem
Framhald 3 bls 14
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
í ítarlegum ályktunum ráðstefnu málm- og skipasmíðaiðn-
aðarins, sem haldinn var í Reykjavík 27.—28. september
síðastliðinn, segir m.a., að nauðsynlegt sé að koma lánamál-
um iðngreinarinnar í viðhlítandi horf. M.a. taldi ráðstefnan
brýna nauðsyn bera til „að þegar verði komið á fót lánakerfi
til þess að aðstaða hér verði a.m.k. jafngóð fyrir kaupendur
innlendrar framleiðslu og þar með sköpuð eðlileg samkeppn-
isaðstaða til handa þessum þjóðnýtu atvinnugreinum.
Ályktanir ráðstefnunnar fjalla
um fjóra þætti málm- og skipa-
smíðaiðnaðarins: fjármálin, skipu-
lagsuppbyggingu málmiðnaðarins,
samkeppnisaðstöðu málm- og
skipasmíðaiðnaðarins og iðnmennt
un og tækniþróun.
Bætt lánaaðstaða
í ályktuninni um fjármálin seg-
ir, að til þess að iðnaður þessi
geti þjónað þjóðnauðsynlegu hlut
verki sínu, telji ráðstefnan nauð-
synlegt að fjármálum hans verði
komið í viðhlítandi horf eftir það
mikla erfiðleikatimabil, sem iðn-
greinarnar hafa orðið að þola.
Bendir ráðstefnan á eftirfarandi
höfuðatriði:
„Meginorsök þess, að íslenzkur
málm- og skipasmíðaiðnaður hefir
að undanförnu farið halloka fyrir
erlendri samkeppni, er að hag-
kvæm lán hafa verið í boði erlend
is frá í samkeppni við innlenda
málmsmíði, sem lítt hefur haft að
gang að lánum til viðgerðaverka.
Framhald á bls. 14
Hundruð aðkomumanna á síldarstöðunum fyrír austan:
SÆMILEG ATVINNA
ÞÓ AD SÍLDIN SÉ TÝND
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Fjöldi aðkomufólks er nú
komið til síldarbæjanna á
Austfjörðum, og hefur þetta
fólk haft allsæmilega vinnu
að undanförnu þrátt fyrir
það, að síldin hafi verið sögð
„týnd“.
Til Raufarhafnar er komið all-
margt fólk, en þaðan fóru þó
nokkrar stúlkur til Seyðisfjarðar
í gær. Hefur aðkomufólkið verið á
Raufarhöfn í um það bil hálfan
mánuð, og má segja, að það hafi
haft um 10 vinnudaga á þeim
tíma. Þegar ekki hefur verið söit-
un hefur fólkið haft tímavinnu á
söltunarstöðvunum, og hefur
henni verið skipt jafnt eins og
venja er til.
Til Seyðisfjarðar munu vera
komnir milli 400 og 500 aðkomu-
menn og konur til sildarvinnu
Hingað til hefur verið allsæmileg
vinna hjá þessu fólki, og bæði í
gær og í dag var saltað á Seyðis-
firði. Aðkomufólkið hefur verið í
tvær vikur á Seyðisfirði eins og
á Raufarhöfn. Búið er að salta í I sjósaltaðrar síldar, sem þar hefurl Töluvert margt aðkomufólk er
um 10 þúsund tunnur þar, auk | komið á land. I Framhald a bls. 15.
IíE&kís!
„Humphrey rak rýting
í bakið á Kólumbusi!"
EKH-Reykjavík. þriðjudag.
Allt virðist ganga Hubert Humprey, forsetaframbjóðenda demókrata í Bandaríkjunum, í óhag þessa dagana. ítalsk-
ameríska sögufélagið hefur enn aukið á áhyggjur varaforsetans með því að lýsa yfir að félagsmenn þess muni
berjast eftir mætti á móti Humprey í forsetakosningunum, vegna þess að hann hafi átt þátt 1 að koma á lögum
sem kveða svo á að 9. október ár hvert skuli vera haldinn hátíðlegur sem dagur Leifs Eiríkssonar.
„Hvers vegna 9. okt.“, spyr
John Lacorte. fors. sögufélags
ins, „hvers vegna ekki 12. des.
eða 11. apríl? Og hvers vegna
er haldið upp á dag Leifs
Eiríkssnnar, sem tangiega er
eignað að hafa fundið Ameríku
fyrstur Evrópumanna. þrem
dögum á undan degi Kólum
busar, er rétlilega fann Amer-
íku fyrstur manna?1
Lacorte skýrði frá þvi í dag
að á morgun 9. okt. myndu
félagar í ítalsk-ameríska sögu-
félaginu aka í bílalest frá New
York til Washington til að
mótmæla degi Leifs Eiríksso-n
ar og útkomu 20 milljón ein-
taka af minningarfrímerikjmn
til heiðurs landkönnuðinum og
víkingnum Leifi Eiríkssyni.
Lacorte sagði ennfremur að
ítalsk-amerís'ka sögufélagið
Framhald á bls. 14