Tíminn - 09.10.1968, Page 2

Tíminn - 09.10.1968, Page 2
2 TÍMINN Ég skrapp heim til íslands í sumar og sá þá sjónvarpið ykk ar i fyrsta sinn, og varð mjög hrlfinn af. Bæði varð ég hrif inn af menningarblænum á dag- sfcránni, og svo líka, hve sfcýrt myndin sést á skerminum. Ég held ég hafi varla séð skýrara sjónvarp hérna í henni Amer íku, og er litsjónvarpið þá ekki undanskilið. En svo á landinn auðvitafS heimtingu á því allra bezta, efcki satt? Það versta var, að skýrleiki íslenzka sjónvarpsins magnaði upp hjá mér heimilisdeilur, þegar hingað kom aftur. Við sjáum nfl. ekki nærri eins skýrt í ofckar sjónvarpi. Blessunin hún konan min var búin að segja mér í tvö eða þrjú ár, að hún vissi orsökina fyrir ó- skýrleika okkar sjónvarps. Það þyrfti einfaldiega að snúa loftnetinu, og ég var náttúr- lega búinn að þrjóskast við all an þennan tíma að fara upp á þakið og kippa þessu í lag. Var ég kannske ekki búinn að segja ykkur frá loftnetinu. Það var þegar hann Kalli, vin ur okkar og fyrrverandi ná- granni, flutti úr hverfinu, að hann spurði mig, hvort ég vildi ekki kaupa af sér þetta for- láta loftnet. Ég hafði náttúr- lega ekki brjóst í mér til að hafna þessu, sérstaklega þeg ar hann setti það með í kaup- in, að hann skyldi fara upp á þak og koma gripnum fyrir. Þetta var stórflókið tæki, langt fyrir ofan minn vísinda- lega .skilning, en það sómdi sér vel, með angana í allar áttir, trjónaði þarna uppi á þakinu spennt við strompinn. Þræðirn ir voru síðan leiddir inn í hús ið og tengdir við tækið. Þegar ég tók eftir, að víða var öll einangrunin farin af vírunum, gaf' Kálli þá skýringu, að tík in sín hefði nagað hana af! Upp á það var svo lappað með ein- angrunarbandi. Svo var sezt nið ur og horft á sjónvarp hið nýja. Ekki veit ég nákvæmlega, hvenær sjónvarpsmyndin fór að óskýrast, en það var svo skrítið, að við settum það aldrei í samband við loftnetið hans Kalla. Hann var líka búinn að telja okkur trú um, að við mynd um sjá miklu betur eftir til- komu loftnetsins. Hvernig gat það líka staðizt, að það sæist verr eftir tilkomu netsins! Og sérfræðingur eins og Kalli hafði séð um verkið. Sí möguleiki kom sem sé aldrei til gpeina, og svona liðu mánuðir og ár. Alltaf af og til var konan að minna mig á að skreppa nú upp á þakið um næstu helgi og snúa loftnetinu. Og allan þennan tíjna var ég búinn að koma mér und- an þeim loftfimleikum. Þangað til á sunnudaginn er var. Þá var ég enn einu sinni að mála utanhúss, og notaði við verkið minn nýja forláta ál- stiga, sem ég hafði keypt á út- sölu um daginn. Nú var mér ekki undankomu auðið, og bless uð konan hætti ekki fyrr en hún sá á eftir mér upp á þak- ið. Það þýddi ekkert þótt ég útskýrði fyrir henni, meðan ég fikraði mig upp eftir stiganum skjálfandi á beinunum, hve hættulegt þetta væri, og hvað verða myndi um hana, ef ég dytti niður og hálsbryti mig. Eina svarið, sem ég fékk, var: „Fyrst Kalli gat það, þá get- ur þú það.“ Ég huggaði mig við það að það væri reyndar gott, að konan skyldi hafa svona mikla trú á hugrekki mínu. Skröngliðist ég nú alla leið upp að strompinum, reyndi að \ / MIÐVIKUDAGUR 9. október 1968. Að hafa sjón- varpsloftnet m tylla mér, en hélt í hann dauða haldi á meðan. Sá ég nú, að netið hans Kalla var eitt feikn armikið loftnetsmastur, þegar maður ^ar kominn svona ná- lægt. Kastaði ég nú mæðinni og reyndi að stemma stigu við fótaskjálftanum og undraðist um leið, hve heimurinn liti öðru vísi út séður ofan af þaki. Jæja, konan kallaði til mín, að hún ætlaði nú inn að kveikja á sjónvarpinu. Skyldi ég síðan byrja að snúa loftnetinu rétt- sælis, nokkra sentimetra í einu, en hún myndi koma út eftir hvern snúning og kaila upp til mín, hvort myndin væri farin að lagast. Byrjaði nú snúning urinn. Einum fimm sinnum sneri ég, og einum fimm sinn- um kom konan út og tilkynnti, að ekki væri myndin neitt skýr ari. Tók ég nú cftir því, að slak inn á þráðunum, sem tengdir voru við sjálft loftnetið, var farinn að minnka við að ég var búinn að snúa þetta oft. En það var engan bilbug á konunni að finna, og hún bað mig snúa meira og meira. Brátt heyrðist brestur og þræðirnir slitnuðu báðir frá loftnetinu! Spratt við þetta út á mér kaldur sviti, því ég sé fram á alls kyns vandræði og líklega áframhald andi þakverm við að lagfæra þetta. Ég yrði líklega að kalla Kalla mér til hjálpar. En ég hafði ekki tíma til að hugsa hugsunina til enda, því innan úr húsinu heyrði ég mik ið ljróp í blessaðri konunni, og svo kom hún stökkvandi út, dansapdi stríðsdans. „Sagði ég þér efcki, sagði ég þér ekki!! Það þurfti ekkert nema snúa loftnetinu! Núna sést alveg fer lega vel, og meira að ségja á öllum stöðvum. Alveg eins og tækið sé orðið splunkunýtt aft ur!“ Hvað á maður að segja und ir svona kringumstæðum, hald andi sér í stromp uppi á þafci, ringlaður og skjálfandi með ó- tengt loftnetið hans Kalla gnæf andi yfir sér. Ég sagði sko akkúrat ekki neitt, heldur skrönglaðist aftur niður hugs- andi, að ég skyldi nú aldeilis taka hann Kalla til bæna, þeg ar ég sæi hann næst. Þórir S. Gröndal. Vörubílar - Þungavinnuvélar Höfum mikið úrval af vöru bílum og öðrum þunga- vinnutækjum. Látið okkur ! sjá um söluna. Bíla- og búvélasalan v/Miklatorg. Sími 23136, - heima 24109 Sklill BORÐ FYRIR HEIMILI OG SKRIFSTOFUR DE LUXE ■ frAbær gæði ■ * FRlTT STANDANDI ■ ■ STÆRÐ: 90X160 SM ■ VIÐUR: TEAK ■ ■ FOLlOSKÚFFA ■ ■ ÚTDRAGSPLATA MEÐ B GLERI Á ■ SKÚFFUR ÚR EIK ■ HÚSGAGNAVERZLUN REYEJAVÍKUR BRAUTARHOLTI 2 * SÍMI 11940 Kernámsárin „1940-45“, seinni hluti verður brátt frumsýndur Gerð seinni hluta kvikmynd ar Reynis Oddssonar, Hernáms- árin „1940—45“‘ — 67/68, er nú alveg að ljúka. Er ráðgert að frumsýna hana nú um miðj an október. Munu sýningar hcfj ast samtímis í Reykjavík og á Akureyri, en seinna verður hún sýnd í flestum kvikmyndahús- um landsins. Þessi hluti er beint framliald af mynd þcirri sem sýnd var í Háskólabíó og Stjörnubíó fyrir um það bil ári. Eins og flestir muna fjallaði fyrri hlutinn um gang stríðs- ins almennt og gaf fólki tæki- færi til að fylgjast með gangi mála í Evrópu jafnframt her- námi íslands. Síðari hlutinn _er aftur á móti allur tekinn á ís- landi, settur saman úr heim- ildamyndum, sem kvikmynda- félög í Hollywood tóku hér á striðsiárunum. Einnig eru þætt- ir sem teknir eru á síðustu tveim árum sérstaklega fyrir þessa mynd. Eru það meðal annars viðtöl við ýmist fólk, sem mikið kom við sögu stríðs ins hér. Það skal tekið fram til að forðast missStilning, að þótt myndin sé unnin að miklu leyti úr myndum, sem teknar voru fyrir rúmum 20 árum, eru gæði kvikmyndatökunnar fyllilega þau sömu og við sjáum á kvik- myndatjaldinu í dag. í Ijós kom, þegar fyrri hlut- inn var sýndur. að fólki fannst hlutur íslands heldur litill. Úr þessu er bætt nú, þar sem þessi mynd fjallar eingöngu um ís- larvd og máfefni þess, samskipti amerísku hermannanna við Is- lendinga og er m.a. sýnt. hvern ig Amerikanarnir eyddu frí- stundum sínum hér, svipmynd ir frá böllum og „partýum“. Þá er og ,,ástandinu“ gerð all- ítarleg skil. Er óskandi að fólk láti liggja milli hluta þótt kunn ugu andliti bregði fyrir, eða einhver þekki sjálfan sig. Lýst er einni mest umtöluðu og frægustu orustu, er háð var í síðari heimstyrjöldinni og lýs ir yfirhcrs'höfðingi og aðal- hetja ánnars bardagaaðilans aðdraganda og gangi átakanna. Hér er átt við Selsvararorrust- una og er hin fræga kempa Pétur Hoffmann Salómonsson í aðalhlutverki. Kafli er um njósnir Þjóð- verja hér á landi og viðtöl við aðila, sem smyglað var í land af þýzkum kafbátum að nætur- þeli. Þetta er atriði, sem ekki hefur verið í hávegum haft fyrr. Þessi hluti myndarin'nar er heldur lengri en sá fyrri, tek- ur u.þ.b. tvo tíma í sýningu. Spannar hún árin 1941—45, að viðbættum kafla, sem tekinn var í þessu ári og í fyrra, af ungu fólki á íslandi í dag. Kannað er viðhorf þe-sSa unga fólks til stríðsáranina, nútíðar og framtíðar. Er sá hluti í lit- um. Vinna við myndina hefur staðið allt s.l. ár. Er hún held- ur seinna á ferðinni en áætlað var upphaflega. Stafar það af því, hve erfitt reyndist að afla mynda, sem gerðu það kleift að láta alla myndina gerast hér á laindi. Eitt atriði úr myndinni, sem senn verður frumsýnd. /

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.