Tíminn - 09.10.1968, Síða 13

Tíminn - 09.10.1968, Síða 13
MTÐVIKTJDAGUR 9. október 1968. ÍÞRÓTTIR TÍMINN iHl 13 Rekstur Laugardalshalk arínnar endurskoðaður að ef sjónvarp gæti notað vélar sínar og sýnt myndir frá keppni, hefði það ómetanlegt auglýsinga gildi. Þar fyxir utan háir hin slæma birta leikmönnum oft í keppni. Af nógu er að taka. Ekki hafa verið gerðar neinar ráðstafanir til að koma í veg fyrir lekann í höll inni, sem gerir vart við sig annað veifið. Áhaldageymslur eru af skornum skammti. Kostnaður við ræstingu haliarinnar er stórum meiri fyrir það, að niðurföll eru Hugsanlegt, að flótti íþróttafólks úr höllinni verði stöðvaður. AffReykjavík. — íþrótta- síða TÍMANS hefur áreiðan- legar heimiidír fyrir því, að fyrir dyrum standi fundir hjá borgaryfirvoldunum, þar sem rekstur Laugardalshallarinn- ar verður endurskoðaður með tilliti til þess ástands, sem skapazt hefur að undanförnu, en íþróttahreyfingin telur sig vart hafa efni á að leigja höll ina að óbreyttu. Enn þá hefur ekkert heyrzt frá handknattleikstforystunni um þetta mál, en mjög líklegt er, að málið verði rætt á ársþingi Handknatt- leikssambands íslands, sem háð verður um næstu helgi. Einnig er Dfldegt, að málið verði reifað á ársþingi Körfuknattleikssambands fslands. Á þessu stigi málsins er ómögu- legt að segja um, hver viðbrögð borgaryfirvaldanna verða. Hitt er ljóst, a3 núverandi ástand er með öllu óþolandi. Það er ekki stætt á þv£, að íþróttafólk okkar af yngri kynslóðinni verði að heyja keppni srna í Hálogalandsbraggan um á meðan Laugardalshöllin stendur ónotuð. Þetta hljóta allir að sjó. Þegar borgaryfirvöldin taka rekstur Láugardalshallarinnar til endurskoðunar, væri ekki úr vegi að láta fara fram allsherjarrann sókn á ýmis konar mistökum við gerð hallariranar. T. d. er lýsing in fyrir neðan allar hellur. Gam an væri að fá svör við því, hvort í ráði er að bæta hana, en eins og nú háttar, er illmögulegt að taka ljósmyndir í höllinni og sjón varpsvélar er ekki hægt að nota. Þetta bakar íþróttunum tjón, því allt of fá. Fleira mætti telja, en látum þetta nægja. Kostirnir við höll ina _eru langtum fleiri en gallam- ir. íþróttahreyfingunni er mikill hagur af Laugardalshö'liinni, sér staklega, ef henni er gert kleift að halda kappmót sín þar án þess að bíða fjárhagslegt tjón af. Bandarískt úr- valslið hingað -— leikur á föstudaginn í Reykjavík. Körf.uknattleikssamband íslands fær óvænta heimsókn ó föstudag- inn 11. þ. m. 'Hinn heimsþekkli körfu kn attleiksþj álf ari, Jim Mc Gregor, sendi KKÍ símiskeyti og Sigursælir KR-ingar Á myndinni hér að neðan sjá um við 3. flokk a í KR, en f'lokkurinn sigraði mjög glæsi lega í nýafstöðnu haustmóti, unnu alla sína leiki og skoruðu 16 mörk gegn 1. Á myndinni eru, fremri röð t. v.: Einar Árnason, Atli Héð insson, Jakob Möller, ívar Giss urason, Grétar Guðmundsson og Árni Steinarsson. Aftari röð: Sigurður Indriðason, Björn Pét ursson, Steinþór Guðbjartsson, Magnús Ingimundarson, Gunn ar Guðmundsson, ísak Sigurðs son og þjálfarinn, Guðbjörn Jónsson. Á myndina vantar tvo leik- menn, þá Baldvin Eliasson og Þorvald Ragnarsson. kvaðst verða á ferð með Loftleið um til Evrópu með úrvalslið körfu knattleiksmanna á vegum Gillette Oompany í Boston. Lið .þetfa er úrval körfuknatt- leiiksmanna frá ýmisu.m þekktum háskólaliðum í Bandaríkjunum. Mc Gregor er þekktur fyrir þjálf arastörf, m. a. hefir hann þjálfað landslið Ítalíu, Grikklands, Tyrk lands, Austurríkis, Svíþjóðar o.g Perú. Hefir McGregor jafnan náð frábærum árangiri með þau lið, sem ,hann hefir stjórnað. Litlar upplýsingar ligg'ja fyrir enn sem komið er um einstaka leiik menn en vitað er að þeir koma frá f.rægum liðum, svo sem San Diego State, Winconsin State, South Carolina University, Idaho State og Al’bany State University of New York. Gillette liðið mun keppa hér einn leik við úrvalslið K.K.Í. Leik urinn fer fram i íþróttahöllinni í Laugardal n. k. föstudagskvöld og hefst kl. 20.30. Landsliðsnefnd KKÍ mun velja tilraunalandsl., en eins og menn vita eiga íslendingar fyrir hönd u.m að leika við Svia, Dani, Aust ur-Þjóðverja og Tékka í Stokk- hólmi í maí I vor. Viðurkenn- ing fyrir prúðmannlega framkomu Alþj.knattspyrnusambandið hef ur ákveðið að veita því knatt spyrnuliði á OL í Mexíkó, sem sýnir bezta íþróttalega fram- komu, sérstaka viðurkenningu. Þessi ákvörðun samibandsins miðar að því að útrýima grófum o.g ljótum leik, og heppnist til- raunin vel, verða sllkar viður kenningar einnig teknar upp í heimsmeistarakeppninni, sagði Sir Stanley Rous, forseti sam- bandsins. Á fundi Alþjóðaknattspyrnu- samibandsins, sem haldinn var í Guadalajara í Mexíkó, var einnig ákveðið, að einungis mætti sietja tvo varamenn inn á í leikjutn á OL. Valsmenn leika gegn Víking i kvöld. Hér s|ást Sigurður Dagsson Stefán Sandholt í baráttu við Sigurð Einarsson, Fram. og Rvikurmótinu haldið áfram í kvöld Alf-Reykjavík. — f kvöld, mið vikudagskvöld, verður Reykjavík urmótinu í handknattleik haldið áfram í Laugardalshöllinni. Fara þá fram þrír leikir í meistara- flokki karla og einn lcikur í meist araflokki kvenna. Keppnin hefst kl. 20 með leikn um í kvennaflokki. Mætast þá Val ur og KR. Valsstúlkunum gekk illa með Víking og náðu aðeins jafntefli. Hvað skeður í kvöld? Strax á eftir leika Fram og Ár mann í karlaflokki. Ætti Fram, sem hefur forystu í mótinu á samt ÍR — bæði liðín með 4 stig — að vinna auðveldlega. Þá mæt ast KR og ÍR og ætti það að geta orðið spennnandi leikur. Loks mæt ast Valur og Víkingur og verður örugglega barizt í þeim leik. Neikvæð þróun í dómaramálum S. 1. sunnudag þegar leikið var í Reykjavíkurmótinu í hand knattleik var Gylfi Hjálmars- son einn af dómurum kyölds ins. Gylfi er einn af meistara- flokksleikmönnum Fram og verður að telja það mjög nei- kvæða þróun ef leikmenn úr meistaraflokki eiga að dæma leiki í móti þar sem þeir eru sjálfir þátttakendur. Slíkt hefur ekki skeð lengi og. má heizt ekki ske aftur. Það er ekki verið að væna þesesa menn um hlutdrægni en það fer bezt á því að þessu sé ekki blandað saman sérstak lega ef eitthvað krítískt“ skeð ur í leik þar sem þeir dæma, e. t. v. atriði, sem ræður úr- slitum leiks. Á sama hátt væri óæskilegt, að Karl Jóhannsson dæmdi meistaraflokksleiki í móti, þar sem hann er sjálfur þátttakandi í. Og sömuleiðis eiga þjálfarar liðanna ekki að dæma. Mikill hörgull er á dómur um og er mikil blóðtaka fyrir handknattleikinn að missa þessa menn frá dómarastörfum, sér staklega eftir að tveggja dóm arakerfið var tekið upp. En við verðum að athuga, að við leysum ekki allan vandann með þv£ að láta þessa menn dæma. Vandinn verður einungis leyst ur með því að fjölga í dómara stétt. Ef dómarafélagið treyst ir sér ekki til að koma því í kring, verða félögin sjálf að grípa í taumana og gera ráð- stafanir. — altf.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.