Tíminn - 26.10.1968, Qupperneq 1

Tíminn - 26.10.1968, Qupperneq 1
i I I i Gerizt áskrifendur ð Tíinanuni. Hringið í síma 12323 Auglýsing í límanum kemur dagiega fyrir a»gu 80—100 þúsund lesenda. i Þingmenn í Straumsvík EJ-Reykjavík. föstudag. Alþingismenn héldu um þi'jú- leytið í dag til Straumsvikur að skoða þar allar helztu framkvæmd ir vegna álbræðslunnar, sem þar er að rísa. Halldór Jónsson, stjórn arformaður ÍSAL, og ýmsir starfs menn fyrirtækisins, tóku á móti þingmönnunum og skýrðu þeim frá helztu atriðum í sambandi við þessar framkvæmdir. Þingmennirnir fóru síðan um allt svæðið og skoðuðu mannvirk in, en á eftir voru veitingar í boj5i álfyrirtækisins. Þar þakkaði Ól- afur Björnsson, prófessor, fyrir góðar viðtökur fyrir hönd þing- forseta. Lauk heimsókninni um sexleytið í dag. Myndin hér að ofan var tekin er alþingismennirnir voru að ganga um athafnasvæðið. (Tímamynd - GE) SEX NJOSNARAR FLUÐU EN 1 VAR HANDTEKINN NTB-Bonn, föstudag. Sejt austur-þýzkir njósnarar — toppnjósnarar að sögn —, sem stundað hafa njósnir í Vestur-Þýzkalandi, hafa sloppið yfir landamærin til Austur-Þýzkalands að sögn talsmanns vestur-þýzku rikisstjórnarinnar í dag. Því var aftur á móti harðlega neitað, að um mistök leyniþjónustu og lögreglu væri að ræða í þessu sambandi. Talsmaður ríkisstjórnarinnar, Konrad Ahlers, sagði ,að það væri „rangt og villandi“, sem Ham- borgarblaðið „Die Welt“ sló upp á forsíðu sinni í dag, að njósnar- arnir hefðu verið aðvaraðir um að gagnnjósnaþjónustan væri á hælum þeirra. Sagði Ahlers, að fjórir njósnaranna, tvenn hjón, hafi verið kölluð til Austur-Þýzka- lands vegna sundurlyndis, sem leiddi til þess að yfirmenn þeirra töldu hættu á að þau yrðu af- hjúpuð og handtekin. Tveir aðrir njósnarar hefðu síðan flúið eftir að þriðji njósnarinn hafi verið handtekinn. Hafi þeir augsýnilega óttast, að hinn handtekni myndi ljóstra upp um þá. , Frásögn Die Welt kom ofan á fjölda sjálfsmorða herforingja og háttsettra embættismanna, sem vakið hefur athygli og ugg í Vest- ur-Þýzkalandi. Sagði blaðið, að svo virtist, sem flótti njósnaranna sex væri að kenna enn einum mis j tökum vestur-þýzkra öryggisiög-1 reglumanna,- þar sem fylgzt hafi verið með þessu njósnurum í margar vikur. Blaðið fullyrti, að meðal njósn- aranna væru vísindamenn og víxl- ari, og hafi þeir stundað njósnir í mörg ár. Hafi þeir lagt mesta áherzlu á að afla sér upplýsinga ; um þróun og framleiðslu vopna í Framkfurt, Köln og Karlstorue, en þar er m.a. kjarnorkurannsóknar stöð. Sagði blaðið, að þeir hafi ver ið aðvaraðir, og því tekizt að flýja áður en lögreglunni tókst að safna saman nægum sönnunargögnum. Ahlers vildi engar nánari upp- lýsingar gefa um málið, en við þetta er tengd tilkynning sú, sem út var gefin á miðvikudaginn, um að ungur rafmagnsverkfræðingur við rannsóknarstöðina í Karlsruhe ha.fi verið handtekinn. grunaður um njósnir fyrir Austur-Þjóðverja Siálfsmorðsaldan var umræðu- efnið í vestur-þýzka þinginu í dag Enunháld á bks. 10 Evrópuráisnefndin EJ-Reykjavík, föstudag. Evrópuráðsnefndin, sem hér hefur setið að fundum síðustu daga, lauk störfum í dag og héldu nefndarmenn til Þing- valla, að Soginu og um Hvera- gerði, en í fyrramálið halda þeir utan. Blaðamenn hittu nefndarmenn í hádcginu, og voru þeir spurðir um ýmis evrópsk vandamál og starfsemi Evrópuráðsins. Kom fram, að á fundl Evrópuráðsins í janú- ar næstkomandi, verður tekin ákvörðun íim, hvaða afstöðu skuli taka til aðildar Grikk- lands að ráðinu. Karl Czernetz formaður nefndarinnar, sagði erfltt að segja til um, hver sú afstaða yrði, en aftur á móti væri það ríkjandi skoð- un, að ríki, sein ekki býr við á förum lýðræðislegt stjórnarfar, gæti ekki verið fullur aðili að Evr- ópuráðinu. Á blaðamannafundinum gerði Þór Vilhjálmsson, full- trúi upplýsingadeildar Evrópu ráðsins, grein fyrir nefndinni og fundarhöldum hennar hér. en síðan ræddi formaður nefndarinnar, Czernetz, sem Framhald á bls. 10 10 GEIT1IR TÝNAST í BJÖRGUM ÓH-Þórshöfn. f gær var gerður út leið- angur til þess að ná geitun- um, sem Björn Ingvarsson lög reglustjóri á Keflavíkúrflug- velli á, en þær hafa gengið úti og verið týndar í tvö ár. Þetta voru upphaflega 13 gelt ur, sem Lúðvík Jóhannsson, bóndi í Heiðarhöfn átti. Hugð ist hann leggja niður búskap og haustið 1966 voru geitum- ar komnar í sláturhús, þegar Björn sá þær og festi kaup á þeim. Ætlaði Lúðvik að geyma þær fyrir Bjöm yfir veturinn, þar sem færð spíllt- ist, eftir að Bjöm keypti geit- féð, og ekki var hægt að koma þeim suður til Keflavflcur með bfl, eins og hann hafði ætlað sér í fyrstu. En fljótlega eftir að Björn hafði fest kaup á geitunum, hurfu þær úr HeiðarfjaUinu, þar sem þær höfðu verið, og fréttist ekkert til þeirra fyrr en menn á bátnum Ver frá Norðfirði sáu þær í sumar í Skálabjörgum, yzt á Langanes inu. Þeir sáu reyndar ekki nema þrjár geitur, en menn héldu, að kannski væru fleiri geitur þama í björgunum, en þau eru um 20 til 25 km norð- ar en Heiðarfjallið, þar sem Iþœr voru, síðiast þegar til þeirra fréttist. í björgunarlei8angrinum í gær tókst að ná geitunum þremur upp úr björgunum. Höfðu menn verið með net meðferðis, sem nota átti til þess að handsama geiturnar, : en þær virtust nú svo spakar, að ákveðið var að reyna að , reka þær. Geiturnar stóðu ró- , legar í um 30 metra fjarlægð frá leiðangursmönnum, og virtu þá fyrir sér. En þegar mennirnir fóru að hóa á þær, komu þær á flugferð og þeir misstu þær á milli sín niður **, í bjargið aftur. Sigurður Níels PYamtoaild á bls. 10 KOMUR HER MEÐ LENGSTAN MEÐALALDUR EJ-Reykjavík, föstudag. íslenzkar konur hafa lengstan meðalaldur í heiminum, eða 76 ár. í öðru sæti eru norskar kon- ur, sem lengi vel voru í efsta sæti ásamt Svíþjóð, Hollandi, Frakklandi og Ukrainu. Þetta kemur fram í manntals- iskrá Sameinuðu þjóðanna, sem nýlega er komin út. Samkvæmt þessari skrá voru jarðarbúar um mitt síðastliðið ár 3.42 milljarðar talsins, og hafði fjölgað um 65 milljónir frá ár- inu næst á undan. Þýðir það, að á hverjum degi þetta ár hafi 180 þúsund börn fæðzt. Fram kemur í bókinni, að % hlutar jarðarbúa hafast við i van- þróuðum ríkjum. Ilelmingur jarð ( Eramhald á bls. 10

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.