Tíminn - 26.10.1968, Síða 7
LAUGARDAGUR 36. októ'ber 1968. _______TIMINN_____________________________________________________7
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjómarskrifstofur i Eddu-
húsinu, simar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af-
greiðslusími: 12323. Auglýsingasimi: 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 130,00 á mán. innanlands. —
f lausasöiu kr, 8.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f.
Ráðleysisfálm
Það kom glögglega fram í útvarpsumræðunum í
fyrrakvöld, að sá vandi, sem nú er við að fást í efna-
hagsmálum, er jafn stórfelldur og raun ber vitni, vegna
þess að reynt hefur verið að leyna þessum vanda í meir
en tvö ár, rneðal annars til að blekkja þjóðina fyrir
kosningarnar á síðasta ári. Ennfremur er vandinn svo
stórfelidur vegna þess, að meinið hefur verið látið
grafa um sig. Það hefur ekki verið ráðizt að rótum
meinsins, heldur hefur haldlaust bráðabirgðakák og ráð-
leysisfálm verið einkenni ráðs-tafana ríkisstjórnarinnar.
Höfuðmeinsemdin er, þótt vissulega séu viðurkennd
þau áföll, sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir vegna verð-
falls útflutningsafurða, röng stjórnarstefna. Henni hefur
verið haldið áfram með þrotlausri þrákelkni stjórnar-
herranna, þótt ein sönnun hafi fengizt um það á sönnun
ofan, að hún leiðir ekki til farnaðar þjóðinni og at-
vinnuvegum hennar.
Undanfarin misseri hefur það blasað við öllum, sem
eithvert skyn bera á þessi mál og opin augu vilja hafa,
að stórfelldur vandi var framundan. Ríkisstjórnin hefur
hins vegar haldið að sér höndum og hún hefur ekki
einu sinni látið hagstofnanir sínar afla nægra upp-
lýsinga um þetta alvarlega ástand, þvi eftir tveggja
mánaða svokallaðar viðræður stjórnmálaflokkanna, eru
þær varla hafnar ennþá, vegna skorts á gögnum og
skýrslum um hið raunverulega efnahagsástand. Því legg-
ur ríkisstjórnin nú fram fjárlagafrumvarp, sem er hreint
málamyndaplagg og til þess eins að fullnægja ákvæðum
stjórnarskrárinnar um að fjárlagafrumvarp skuli lagt
fram í upphafi hvers reglulegs Alþingis.
Halldór E. Sigurðsson, ræðumaður Framsóknarflokks
í útvarpsumræðunum, dró þesasr staðreyndir ljóslega
fram. Hann sagði að ríkisstjórnin reyndi að afsaka að-
gerðaleysi sitt með því, að ekki hafi þótt rétt að gera
ráðstafanir í efnahagsmálum, fyrr en séð yrði, hvort
síldveiðarnar gengju vel eða ekki. Fyrir löngu hafi hins-
vegar verið ljóst, að ekki einu sinni metsíldveiði hefði
getað leyst vandann. Ekkert sannaði betur, hversu hald-
laus fullyrðingin um síldveiðarnar væri, en 20% tollur-
inn, sem ríkisstjórnin lagði á í ofboði í byrjun september,
án þess að hafa nokkra heildarsýn yfir efnahagsmálin,
enda minnti sú framkvæmd á aðgerðir þeirra, sem fram
kvæma áður en þeir hafa að fullu losað svefninn.
Halldór Sigurðsson sagði, að vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar síðustu 11 mánuði sönnuðu bezt það ráðleysi og
fálm, sem ríkt hefði í efnahagsmálastjóm landsins. Það
yfirlit væri svona:
Nóvember 1967: Gengisbreyting, sögð sérlega vel
undirbúin.
Desember '67: Fjárlagaafgreiðsla. Tollalækkun um
250 milljónir boðuð síðar.
Janúar '68: Uppbótakerfið aukið um 320 millj. ofan
á gengislækkunina.
Febrúar '68: Tollalækkunin var aðeins 160 milljónir
f staðinn fyrir 250 milljónir.
Marz '68: Hækkun á tekjustofnum, áfengi, tóbaki og
fl. og fl., frestun ríkisútgjalda til framkvæmda, stofnað
til nýrrar lántöku vegna ríkisútgjalda.
Apríl: Skattahækkun vegna vegamála 160—190 millj.
Maí —júní: Síldarvíxillinn samþ., fjárhæð ókunn.
Júlf—ágúst: Viðbótaruppbætur til frystihúsa 25 millj.
Sept: 20% tollur á allan innflutning og ferðagjald-
eyri — 5—600 milljónir miðað við heilt ár.
Október: Fjá»-lagafrumvarp lagt fram — hefur enga
raunhæfa þýðingu.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvfemdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
Fréttamaður „Politiken" i Belgrad:
Jugóslavar óttast að nýr Stal-
inismi hefjist í Sovétríkjunum
Það getur haft mikil áhrif á sambúðina milli austurs og vesturs
JÚGÓSLAVNESKIR kommú-
nistar óttast æ meira að leið-
togar Sovétríkjanna séu í
þann veginn að aðhyllast ný-
Stalínisma, sem ekki veiti mik
ið svigrúm til umbótaviðleitni
í Tékkóslóvakíu né aukins
frjálsræðis í Austur-Evrópu yf
irleitt.
Leiðtogarnir í Kreml hafa
heitið að hverfa á burt með
meginhlutann af hernámsliði
sínu frá Tékkóslóvakíu, en
reyndir rýnendur álíta eigi að
síður, að stjórn Sovétríkjanna
ætli í raun og veru að þjarma
að ríkinu unz það hefur svip-
aða aðstöðu og Austur-Þýzka-
land. Pólland og Búlgaría, —
og þarna verði ekki höfð hlið-
sjón af því frjálsræði í menn-
ingarmálum og efnahagsmál-
um og efnahagsendurbótum
sem Ungverjum hefur verið
leyft að koma á undangengin
ár.
Hér eystra er yfirleitt álit-
ið, að Sovétleiðtogarnir ætli að
nota Tékkóslóvakíu sem dæmi
til viðvörunnar kommúnista-
flokkum í Austur-Evrópu, sem
hugsanlegt væri að tækju upp
á því að reyna að koma á til-
raunum til frjálsræðis í stjórn
málum eða efnahagsmálum, án
þess að hafa tryggt sér sam-
þykki Kreml-stjórnarinnar fyr
irfram. Talið er, að þessari á-
bendingu sé fyrst og fremst
haldið að Rúmenum, sem
hneigjast til frjálsræðis, og
hinni hófsömu stjórn í Ung-
verjalandi Efalaust er ætlun-
in að sýna uppreisnarmönn-
um, að þeir geti átt von á allt
annarri og ómýkri meðferð en
hinir sæta, sem hollir eru
Moskvumönnum í hvívetna.
RÚSSAR náðu fyrsta tatk-
marki sínu í Tékkóslóvakíu um
daginn méð undirskrift samn-
ingsins, sem gerir setu rúss
nesks hers til „bráðabirgða" í
Tékkóslóvakíu löglega. Næsta
skrefið er talið að vera að fá
yfirlýsingu leiðtoganna í
Tékkóslóvakíu um, að yfirvof-
andi hætta á „gagnbyltingu" I
sumar hafi réttlætt innrás
Sovéthersins. Fróðir menn hér
eru þeirrar skoðunar, að stöð-
ugur þrýstingur Rússa að rík-
isstjórninni í Prag knýi slíka
yfirlýsingu fram innan
skamms.
Rússar þurfa á þessari rétt-
lætingu að halda til þess að
endurvekja traust kommú-
nistaflokksins í Vestur-Evrópu
sem hafa fordæmt innrásina í
Tékkóslóvakíu. Leiðtogarnir )
Kreml gera sér enn vonir um
að geta kvatt saman alheims-
ráðstefnu hollra kommúnista-
flokka til staðfestingar á rétt-
mæti hinnar sovésku stefnu.
Kommúnisttaflokkar 65 landa
eða svo höfðu fallizt á þátt-
töku í slíkri ráðstefnu, sem
átti að koma saman 25. nó-
vember í haust en mótmæli
kommúnistaflokka í Vestur-Ev
rópu gegn hernámi Tékkósló
vakíu gerðu frestun óhjá-
kvæmilega.
Leiðtogar Sovétríkjanna
TITÓ
þjarma að forustumönnunum
í Prag til þess að knýja fram
skjallega staðfestingu á rétt-
lætingu innrásarinnar, og sam
tímis er lagt hart að mikilvæg-
ustu kommúnistaflokkunum í
Vestur-Evrópu, sem nú eru
klofnir um afstöðuna til at-
burðanna í Tékkóslóvakíu. 20
—30 af hundraði kommúnista-
flokkanna í Frakklandi, Ítalíu
og Finnlandi hafa lýst sig and
víga fordæmingu flokksins á
innrásinni. Leiðtogarnir í
Kreml hafa lýst yfir, að þeir
séu reiðubúnir að fallast á
klofning flokkanna ef nauð-
syn krefur. og ennfremur er
kunnugt, að ekki hafa, að svo
komnu, verið innt af hendi
mikilvæg fjárframlög, sem
flokkar þessir eru háðir að
verulegu leyti.
MlðSTJÓRN kommúnista-
flokks Ítalíu heldur fund nú
á næstunm. þar á í fyrsta
sinni að ræða opinberlega að
hve miklu leyti flokkurinn eigi
að segja skilið við Moskvu.
Ekki er unnt að segja fyrir
um, hver niðurstaða umræðn-
anna verði, en ítalir eru kunn
ir að því að jafna ágreining
og fresta ákvörðunum um mik-
ilvæg mál.
Slíkur fundur sem þessi fjali
ar um „hin almennu mál, sem
snerta baráttuna gegn heims
valdasinnum" og þar verða
mál Tékkóslóvakíu ekki rædd.
Kínverjar verða fordæmdir,
svo og tilraunir Júgóslava til
frjálsræðis, en lýst yfir fylgi
við skelegga stefnu Rússa í
málefnum Þýzkalands og
málefnum Þýzkalands og
hinna nálægari Austurlanda.
Þá mun og verða samþykkt
yfirlýsing til staðfestingar
þeirri kenningu Rússa, að hert
barátta gegn vestrænni heims
valdastefnu hafi f för með sér
nauðsyn á eflingu alþjóðlegs
aðhalds og yfirstjórnar, bæði
ríkjanna í Austur-Evrópu og
heimshreyfingar kommúnista.
SOVÉTMENN gera ráð fyr-
ir að hafa náð fullu valdi á
kommúnistaflokki Tékkó
slóvakíu. oegai fvrirhuguð ráð
stefna verður haldin i vor.
„Samstarfsmenrí' eins og Al-
ois Indra og Vasil Bilak —
(sem frjálslyndir menn í
Tékkóslóvakíu höfðu úthýst
fyrir löngu) — eru farnir að
sitja fundi flokksleiðtoga í
Tékkóslóvakíu á nýjan leik.
Gamlir fylgismenn Novotnys
eru búnir að mynda virkan
áróðurshóp utan flokksforyst-
unnar, og þar eru þeir meðal
annarra Anton Kapek og Kar-
el Mestek.
Þá er einnig gert ráð fyrir,
að klofningurinn meðal fyrr-
verandi umbótamanna haldi á-
fram að grafa um sig, sam-
tímis og umheimurinn — og
þó sérstaklega erlendir komm
únistaflokkar — taka að
gleyma hinni hersetnu Tékkó-
slóvakíu.
Jósef Smrkovsky, hinn vin-
sæli forseti þingsins, er efst-
ur á hinum svarta lista Sovét-
manna og gert er ráð fyrir, M
að hann dragi sig í hlé þá og g
þegar. Alexander Dubchek, for I
maður fiokksins, er í afleitri 8
aðstöðu. Dragi hann sig í hlé, i
losna Moskvumenn við fyrir- p
höfnina við að undirbúa brott-
rekstur hans. Verði hann hins
vegar kyrr á sínum stað og
framkvæmi hin ströngu skil-
yrði, sem Rússar settu í samn-
ingnum, glatar hann vinsæld-
um sínum bæði meðal Tékka
og Slóvaka. og þá verður auð-
velt verk að fjarlægja hann
eins og pretssaða sítrónu“
eins og komizt var að orði
hér.
ÞRÁTT fyrir þá einingu,
sem virzt hefir ríkja meðal
leiðtoganna í Prag til þessa,
eru þegar risin ágreiningsefni
með umbótasinnunum Veru-
leg ástæða virðist til að ótt-
ast, að viðvarandi þrýstingur
af hálfu Sovétríkjanna knýji
þá Oldrich Cernik forsætis-
ráðherra og ef til vill einnig
Ludvig Svobota forseta til sam
vinnu við nýja flokkaforustu,
sem Sovétmenn ráði yfir og
starfi í anda þeirra Indra og
Bilaks.
Að því er áhrærir ágrein-
ing flokksforustu Sovétmanna
um afstöðuna til Tékkóslóva-
kíu er það álit fróðra manna
hér, að þar hafi ekki verið um
að ræða ágreimng um stefnu-
mið, heldur framkomu oe að-
ferðir Þeir Kosygin forsætis-
ráðherra, Mikhai) Suslov. Al-
exander áielepin Dimitri Pol-
inskij varaforsætisráðherra og
Boris Ponomarev ritari flokks
ins andmæltu innrásinm 20.
ágúst. Enginn þeirra tók þá
afstöðu af samúð með tilraun-
unum. sem verið var að gera
1 Tékkóslóvakíu, eða vegna
umhyggju um frelsi smáþjóð-
anna. (Jugoslavneskir leiðtog-
ar minnast nú allt í einu ör-
laga baltnesku ríkjanna árið
1940 þegar þau voru innlim-
uð í Sovétríkin) Talið er, að
hinir reyndu leiðtogar í Kreml
hafi annað hvort séð fyrir þá
erfiðleika. sem hlytu að skap-
ast á Vesrurlöi ,mm og meðal
kommúmstahrevf ngarinnar
þar, eða álitið að reyna bærí
Framh á bls. 11. I
---------»