Tíminn - 26.10.1968, Page 9
, F-ösmmAÆiTJB as. (Atífcfer-lá»8.
TIMINN
9
DENNI
DÆMALAUSI
Aumingja maurarnir. LeiSinlegt
aS þeir skyldu ekki athuga hvaS
þér er illa viS dýr
53
v y
n ii 14 r—
Lárétt: 1 Fisk 6 Dalverpi 10
TVeir ejns bókstafir 11 Ekki held
ur 12 Yfirhafnix 15 Skipastóll.
Krossgáta
152
Lóðrétt: 2 Ýta fram 3
Yrki 4 Skipverjar 5 Spratt
7 Uppsátur 8 Samskipti 9
Kona 13 Máttur 14 Glöð.
Riáðning á gátu no. 151:
Lárétt: 1 Amman 6 Ridd
ari 10 Ö1 11 Ók 12 Klandri
15 Hroll.
Lóðrétt: 2 MCD 3 Aða 4
Frökk 5 Mjkil 7 H1 8 Don
9 Rór 13 Aur 14 Dal.
17.40 fþróttir
Efni m.a.: Leikur Chelsea
og Leicester City og efni
frá Olympíuleikunum.
20.00 Fréttir
20.30 Vetrarkoma
Það haustar að og fuglamir
halda á brott. Vetrarsnjóar
falla og frostið herðir, ána
leggur smátt og smátt nnz
hún er hulin klakabrynju.
Staðfuglar eiga erfitt upp-
dráttar og skipaferðir verða
stopular og leggjast jafnvel
niður, en börnin kætast og
sér á ísnum.
20.40 Skemmtiþáttur Lucy Ball
Lucy kaupir snekkju. íslenzk
ur texti: Kristmann Eiðsson
21.05 Sekvens fyrir segulband,
dansara og ljós. — eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson.
Dansar eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur.
21.20 Brúðkaup Figarós
Gamanleikur í 5 þáttum
eftir Beaumarchais. Sam-
nefnd ópera Mozarts er
byggð á þessu leikriti.
Leikstjóri: Jean Meyer
Aðalhlutverk: Jean Meyer,
Louis Seigner, Georges
Chamarat. Jean Piat og
Micheline Boudet. fslenzkur
texti: Dóra Hafsteinsdóttir.
23.10 Dagskrárlok.
Hvflíkt bein, Pétur — Hverjum skyldi það tilheyra.
Jóhann og Eiríkur voru komn-
ir heim úr skóginum fyrir stundu,
og búnir að snæða kvöldverð. Þeg
Jóhann kom úr hesthúsinu,
fylgdist Eiríkur aftur inn með
honum. Anna varð hissa, því ella
var hann vanur að hraða sér heim
sem mest hann mátti. Oftast fór
hann beint heim úr skógarvinn-
unni.
— Eigið þið nokkurn kaffisopa
handa okkur áður en Eiríkur fer
heim? spurði Jóhann.
— Já, hér er verið að hita
kaffi, gegndi Kristín. — Bezt er
að hafa allt undirbúið kveldinu
áður, og nú ætla ég að reka ykk-
ur í rúmið öll saman, svo ég
hafi frið í eldhúsinu sjálf á eft-
ir! bætti hún við í spaugi.
Eiríkur tóð kyrr í gættinni
með húfuna í höndinni, Og Anna
leit spyrjandi til hans. — Fáðu
þér sæti, Eiríkur!
Hann tyllti sér á sófann. —
Þakka, ég stóð bara og var að
hugsa.
— Um hvað? spurði Kristín.
__ Þú ert svo alvarlegur í kvöld.
— Maður hefur sínar áhyggj-
ur öðru hvoru.
— Allir hafa þá sögu að segja,
mælti amma og kinkaði kolli. —
En yfirleitt lítur það alltaf ver
út en verður, þegar til kastanna
kemur. Hvað eina getur lagast,
ef maður bara gefst ekki upp.
— Svona hugsar amma ævin-
lega, sagði Anna til skýringar.
— Það er rétt hjá möipmu,.
mælti Jóhann. — Þetta mun' Ííka
lagast hjá þér Eiríkur, þegar til
kemur.
— Það er verst fyrir mömmu,
anzaði Eiríkur. — Hún er ein-
sömul allan daginn og hefur allt
of mikinn tíma til áð gefa áhyggj
unum gaum.
Þá sauð á kaffikatlinum og
Anna tók hann ofan.
— Nú skulum við að minnsta
kosti fá okkur kaffi og piparkök-
ur.
— Og láta hugann reika til
Lúsíu, sem kemur með ljós í
myrkrinu, bætti amma við.
— Hún á að minna okkur á
það, að hversu dimmt sem kann
að vera, birtir þó um síðir. Því
mátt þú ekki gleyma, Eiríkur.
— Hvað gekk að Eiríki? spurði
Anna, þegar hann var farinn.
Jóhann gat leyst úr því. — Það
kom fyrir hann ónotalegt atvik.
Honum hefur borizt krafa um
greiðslu á háum reikningi, sem
hann er búinn að borga fyrir
löngu síðan. En kvittuninni hef-
ur hann glatað, svo hann hefur,
engar sannanir fyrir að hafa greitt!
upphæðina.
— Heldur þú, að það sé rétt
hjá honum? spurði Anna tortrygg
in. — Kaupmaðurinn hlýtur að
muna þetta.
— Hann er látinn, og það er
eftirmaður hans, sem ber fram
kröfuna.
— En það er slóðaskapur af
ÍEirSki að geyma ekki kvittun-
ina!
— Það þart nú ekki mikið til
að þess konar leggist til hliðar,
sagði amma.
— Hvernig getur hann þá far-
ið að? varð Önnu að orði.
— Allt útlit er fyrir, að hon-
um sé nauðugur einn kostur, að
greiða reikninginn öðru sinni.
Hann hefur beðið mig um fyrir-
framgreiðslu á einhverju af kaup-
inu sínu.
, -- /Et.lar þú að láta það eftir
honum?
— Ég verð víst að gera það.
Þeir bóta málssókn, ef skuldin
verður ekki greidd fyrir þann
fimmtánda.
— Er hún há?
— Ó-nei, en eins og á stendur,
er það meira en nóg fyrir þau,
það er svo mikill kostnaður, sem
þau leggja í.
— Mig grunar nú ýmislegt um,
hvernig þau kunni að vera, mælti
Anna hugsandi. — Við þekkjum
lítið til þeirra. Hver veit nema
þau ætli sér að komast yfir pen-
ingana......
— En mamma þó! mælti Krist
ín. — Maður er ekki lengi að
finna, hvort fólk er þannig, og
þú mátt vera viss um, að bæði
Eiríkur og móðir hans eru ákveð-
in í að standa fyrir sínu.
— Það held ég líka, amma
lagði orð í belg. — Og sé hægt
að hjálpa einhverjum, á maður
að gera það. Því tapar enginn
á til lengdar.
— Já, þegar svona kemur fyr-
ír, er sjálfsagt að hjálpa. — Ei-
ríkur er vanur að geyma allar
kvittanir, en nú er María alveg
eyðilögð út af því að það er henni
að kenna, að kvittunin hefur glat
azt. Hún bjó sem sé um farang
ur þeirra, er þau fluttu hingað.
— Ef þú hjálpar þeim, lagast
1 þetta allt, svo þá er ekki meir
j um það að ræða, sagði Kristín
!— Drekkið nú í botn og farið
síðan að sofa. Þáð þætti mér
vænt um, því þá get ég búið
bakkana út af mestu leynd.
Agnes hafði spfnað snemma og
var glaðK-öknuð. þegar kristín
kðm til að vekja hana um miðja
nóttina. Læddust þær nú niður
í eldhús og Kristín klæddi bæði
sig og systur sína, meðan þær
hituðu sér kaffi. Allt var undir-
búið, svo þær þurftu lítið ann
að að gera.
— Má ég sjá mig í speglinum?
spurði Agnes, meðan Kristín var
að festa rauðberjakransinn á höf-
uð henni.
— Já, skoðaðu þig, sagði Krist-
ín brosandi, — ég læt þá á mig
á meðan, svo ég geti ég kveikt á
kertunum.
Agnes horfði á spegilmynd sína
af ódulinni áðdáun, en Kristín
klæddist einum allra síðasta og
fegursta náttkjóli ömmu sinnar
og batt löngum, ljósbláum silki-
borða um mitti sér. Er hún hafði
lokið því, leit hún sjálf út eins
og brúður, nema hvað slæðuna
og ennisdjásnið vantaði.
Síðan læddust þær upp stigann,
Agnes á úndan og hélt á bakka
með kaffibollum og kertaljósum,
Kristín á hæla henni með sjálf-
an kaffibakkann. Ömmu var æv-
inlega borið fyrst. Utan við dyr
hennar hófu þær lúsíusönginn
skærum rómi.
Amma settist upp í rúmi sínu
og til fóta henni reis Tepra upp
á framfætur og starði stórum
augum á þessi óvæntu fyrirbæri.
— Mikið er þetta fínt, elskurn
ar mínar! sagði amma og sló sam
an höndum. Og hvað þetta er
yndisleg, lítil Lúsia!
Agnes þokaðist að rúminu,
hægt og hátíðlega, án þess að
hreyfa höfuðið og settist á rekkju
stokkinn. Þegar Kristín var að
hella í bollann, kom Agnes auga
á köttinn og hátíðleikinn hvarf
af andliti hennar í einum svip.
Hún skellihló.
— Lítið á Tepru! Hún þekkir
mig ekki!
— Hún er utan við sig af ljósa
dýrðinni, svaraði amma.
— Ljósin speglast í augunum
á henni.
— Líka í augum ömmu, sagði
Kristin.
— Já, endurtók amma hrærð
í huga, — Þau speglast alveg inn
að hjartarótum. Ég yrði víst fyr-
ir æði miklum vonbrigðum, ef
engin Lúsia kæmi til mín. Það
er ekkert eins fallegt og Lúsían!
— Jú, jólagrenið, gegndi Agn-
es. — En svo er Lúsía næst því.
Kristín var sammála ömmu. —
Það er fallegur siður.
— Það á að verða nokkuð sér-
stakt núna, sagði Agnes.
— Eins og hvað? spurði amma.
Kennslukonan á að vera Lúsía,
— Lúsíuhátíð í skólanum.
Kennslukonan á að vera Lúsía,
þegar dimma tekur undir kvöld-
ið, stelpurnar þernur og strákarn
ir stjarnálfar. Svo eigum við að
fara til elliheimilisins og syngja
og gefa fólkinu kaffi.
— Mikið held ég það verði
glatt! mælti amma.
— Já, það kann áreiðanlega að
meta að hugsað sé til þess öðru
hvoru og eitthvað gert fyrir það
anzaði Kristín.
Pabba og mömmu var borið
kaffi næst á eftir ömmu, og síð-
an fannst þeim svo skrítið, að
Jón skyldi ekki vera heima til að
fá kaffi lika.
— Heldurðu, að nokkur Lúsía
komi til hans á búnaðarskólan-
um?
— Já, örugglega. En nú verð-
ur örðugra fyrir okkur að fara
Lúsíuferð til hinna, þegar hann
er ekki til að hjálpa okkur.
HLJÓÐVARP
Laugardagur 26. október
Fyrstl vetrardagur
7.00 Morgunútvarp
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.00 Háskólahátíðin 1968
15.30 Á Iíðandi stund.
Helgi Sæmundsson ritstjóri
rabbar við hlustendur.
15.50 Harmonikustund
16.15 Veðurfregnir.
Á nótum æskunnar
17.00 Fréttir.
Tómstundaþáttur barna og
unglinga, Jón Pálsson flytur.
17.30 Þættir úr sögu fornaldar.
Heimir Þorleifsson mennta-
skólakennari talar í fyrsta
þætti um „frjósama hálf-
mánann“ og upphaf menn-
ingar.
17.50 Söngvar í léttum tón.
18.20 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Vetrarvaka.
a. Hugleiðing við missira-
skiptin
Séra Páll Þorleifsson fyrr
um prófastur flytur.
b. Kominn er veturinn"
Kammerkórinn syngur
lag eftir Helga Pálsson;
Ruth Magnússon stjórnar.
e. „Fáðu mér beinið mitt,
Gunna“
Kristján Bersi Ólafsson
og Hai-aldur Ólafsson
taka saman dagskrárþátt
um drauga.
d. Kórsöngur: Kammerkór-
inn syngur íslenzk lög.
e. „Bónorðið“
Saga og leikþáttur
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Dansskemmtun útvarpsins f
vetrarbyrjun
(01.00 Veðurfregnir frá Veð
urstofunni).
02.00 Dagskrárlok.