Vísir - 04.07.1977, Síða 4

Vísir - 04.07.1977, Síða 4
Mánudagur 4. jlill 1977 VÍSIR Viðrœður á ný um Rhódesíu Fulltrúar Bretlands og Bandaríkjanna koma saman í Lusaka enn einu sinni í þessari viku til að reyna að finna friðsam- lega lausn í deilunni um Rhodesiu. Flestir virðast svartsýnir á aö friðsamleg lausn fáist á málinu. Hvitur minnihluti stjórnar landinu, en meirihlutinn, svert- ingjar, vilja taka við völdum. Stjórn Ian Smith forsætis- ráðherra hefur verið treg til að gefa frá sér aðstöðu sfna. Diplómatar sem fylgjast með málinu segja að nú séu friðsöm- ustu leiðtogar svertingja jafnvel orðnir úrkula vonar um að árangur náist nema með skæru- hernaði. Segjast keyptir til að myrða ambassadorinn Nú ásakar Bhutto stjórn- arandstöðuna Tveir menn sem myrtu ambassador Thaiti í Rio de Janeiro/ lýstu því yfir við handtöku að fyrsti sendiráðsritari ambassadorsins hefði ráðið þá til verknaðarins. Sendiráðsritarinn, M. Louis Robert Mac Kenzie, neitaði i gær að hafa nokkuð með menn- ina né tilræðiö að gera. Tilræðismennirnir tveir voru handteknir stuttu eftir aö ambassadorinn, M. Delorme Mehu, var skotinn i bakið þegar hann var að yfirgefa bar á hóteli i borg í norðausturhluta Brasiliu. Annar tilræðismaðurinn hefur unnið fyrir sendiráðsritarann. Báðir mennirnir sögðust hafa átt að fá um 700 þúsund krónur fyrir verkið, en hefðu ekki fengið nema rúmar 20 þúsund krónur til að greiða fyrir far- gjöld Zulfikar Ali Bhutto, forsætisráð- herra Pakistan. Zulfikar Ali Bhutto, for- sætisráðherra Pakistan, hefur sakað stjórnarand- stöðuna þar f landi um að hafa gengið á bak orða sinna eftir gerð samnings við stjórnina um nýjar þingkosningar. Bhutto sagði á blaðamanna- fundi i gærdag, að þótt samning- urinn, sem undirritaður var sl. laugardag, ætti að teljast endan- legur, vildu stjórnarandstöðu- flokkarnir bæta 10 nýjum atriðum inn i hann. Stjórnarandstaðan hefur lýst yfir efasemdum um að kosningarnar geti farið heiðar- lega fram. Eftir þingkosningar i mars sl. neitaði. stjórnarandstaðan að viðurkenna úrslitin, og ásakaði Bhutto um að hafa svindlað. Þessar fjórar blómarósir eru fulltrú ir frændþjóða okkar á hinum Noröurlöndunum I Miss Universe keppninni, sem fram fer 16. júli. Stúikurnar voru á leið um New York fyrir helgina, og voru þá myndaöar fyrir framan hótel sitt. Þær heita, frá vinstri: Armi Anja Or- vokki frá Finnlandi, Inge Eline Erlandsen frá Danmörku, Ashild Jenny Ottesen frá Noregi, og Birgitta Lindvall frá Sviþjóð. Hnútukast á fundi Einingarsamtakanna Oeining ríkir á fundi Einingarsamtaka Afríku- ríkja eftir ásakanir leið- toga Eþíópíu um að nágrannar hans, Súdan og Sómalía, væru með sam- einaðtilræði gegn Eþíópíu. Mengistu Mengbutu, einræðis- herra Eþiópiu, sagði i ræðu á fundi Einingarsamtakanna i gær að löndin tvö reyndu að skapa upplausn i hlutum Eþiópiu. Fulltrúi Nigeriu lýsti yfir áhyggjum vegna deilu landanna þriggja, og sagði að Einingarsam tökin yrðu að finna aðferð til aö leysa deilumál milli aðildarrikja. Einræðisherra Nigeriu, Olesegun Obasanjo, sagði hins vegar á lokuðum fundi Einingar- samtakanna að ástæðan fyrir aukningu óeiningar innan þeirra væri aðallega „aðferðir svo- kallaðra vina okkar að utan.” Obasanjo mælti með stofnun nefndar sem gæti tekið að sér að lægja ófriðaröldur milli aðildar- rikja samtakanna. Ök á 29 manns á fundi Ku Klux Klan Tuttugu og níu manns slösuöust þegar hvítur maður ók á Jagúar sport- bil sínum á hóp áhorfenda aö Ku Klux Klan fundi í Plains í Georgíu, heimabæ Carters Bandaríkjafor- seta. Fundur Ku Klux Klan hófst eftir að tveir grunaðir kyn- ferðisafbrotamenn sem höfðu morð á samviskunni, gáfu sig fram við lögreglu i bæ austan viö borgina Americus i Georgiu. Klansmenn heimtuðu dauða- refsingu fyrir mennina á fundinum i Plains. Maðurinn sem ók inn i hópinn sem fylgdist með fundinum hefur verið ákærður um 19 laga- brot. Klansmenn i hvitum sloppum og áhorfendur þeyttust i allar áttir þegar maðurinn ók á tals- verðri ferð beint á fólkið þar sem það hlýddi á ræðumann. Fyrrum dómsmálaráðherra Uganda: Amin lét drepa alla sem hlógu að honum Fyrrum dómsmála- ráðherra Uganda sagði i viðtali við enska blaðið Daily Mirror um helgina að Idi Amin Ugandaforseti hefði verið svo reiður eftir Entebbe-björguninar, að hann hefði skipað að láta drepa alla sem hlógu að honum. Dómsmálaráðherrann fyrr- verandi, Godfrey Lule, flúði til Englands i siðustu viku. I viðtali við Daily Mirror sagði hann að Amin hefði hagaö sér eins og villidýr eftir að ísraelsmenn björguðu gislunum á Entebbe. Almenningur var hins vegar ánægður með að ein- ræðisherranna hafði verið auð mýktur. Þegar Amin frétti að fólk væri að hlæ.ia að honum, skipaði hann hermönnum að skjóta hvern þann sem sæist hlæja, sagði Lule i viðtalinu. Að sögn hans var 50 manna hópur fjarlægður frá strætis- vagnabiðstöð, og siðar allir myrtir fyrir að hafa hlegið að Amin. Aðeins einn maður var á vakt i flugturninum þegar íraelsmenn lentu á Entebbe- flugvelli. Lule sagði að þrátt fyrir það hefði Amin skipað svo fyrir að þrir flugumferðar- stjórar sem áttu fri skyldu einnig skotnir. Tveir starfs- menn veðurstofunnar á flug- vellinum voru einnig skotnir, sagði Lule.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.