Vísir - 15.07.1977, Side 3
vism Föstudagur
15.. júll 1977
Timbursmyglið á Keflavíkurflugvelíi:
Ákvörðun um
málshöfðun
tekin í
Ákvörðun hefur ekki
verið tekin um hvort
rikissaksóknari telur
ástæðu til máls-
höfðunar vegna
timbursmyglsins út af
Keflavikurflugvelli.
Er ákvöröunar ekki að vænta
fyrr en eftir mánaðamót, sam-
kvæmt upplýsingum rikissak-
sóknara, Þórðar Björnssonar.
Tefst málið vegna þess að sá
W W m
agust
fulltrúi rikissaksóknara sem
hefur annast rannsókn málsins
er farinn i sumarfri.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá i Vfsi snýst málið um smygl
eins starfsmanna Varnarliðsins
á timbri út af Keflavikurflug-
velli, en það notaði hann við
sumarbústaðabyggingu austur i
Hreppum.
Hefur hann nú látið af störfum
hjá Varnarliðinu, samkvæmt
eigin ósk samkvæmt heimiidum
sem Visir hefur aflað sðr.
—AH
Minkur á fund hjá
hreppsnefndinni
Óvæntur gestur kom
i heimsókn á fundi
hreppsnefndar Skaga-
hrepps fyrir skömmu.
Að sögn blaðsins
Dags á Akureyri var
hreppsnefndin að fjalla
um vandamál sveitar-
félagsins þegar
heyrðust undarleg
hljóð.
„Fundurinn var haldinn i
gömlu skólahúsi hreppsins að
Kálfshamri, Oddvitinn var i
miðri ræðu að útskýra tekjur og
gjöld sveitarsjóðs, er hljóöin
heyrðust og truflaöi það fundar-
störf.
En rétt á eftir kom stór og
ófeiminn minkur upp úr gólfinu
og i staö sveitarmála, hófst
árangurslaus eltingarleikur,”
segir i frétt Dags.
—ESJ.
„Umferð kaupskipa
um Reykjavíkurhöfn
hefur stóraukist“
— segir Einar Thoroddsen,
yfirhofnsögumaður við Reykjavíkurhöfn
,,Ég er nú búinn að
vera hér viðloðandi i
rúm tuttugu ár” sagði
Einar Thoroddsen,
yfirhafnsögumaður við
Reykjavikurhöfn,
þegar blaðamaður og
ljósmyndari Visis litu
við h já honum á dögun-
um.
Hann sagði, að nú störfuðu við
hafnarskrifstofuna 6 hafnsögu-
menn og 5 vélstjórar á þremur
hafnsögubátum.
Auk þess annast hafnarskrif-
stofan rekstur dráttarbátsins
Magna, en á honum eru 8 menn
á tveimur vöktum.
Aðspurður um helstu
breytingar i rekstri hafnarinnar
siðustu tuttugu árin, sagði
Einar, að langmestu
breytingarnar hefðu orðiö með
tilkomu Sundahafnarinnar, „án
hennar væri hér rikjandi algert
öngþveiti” sagði Einar.
Þá hefði tilkoma Granda-
garðsins og Norðurgarðsins haft
i för með sér miklar breytingar
til batnaðar.
Loks sagði Einar, að umferð
kaupskipa um höfnina heföi
stóraukist en fiskiskipa dregist
Einar Thoroddsen, yfirhafn-
sögumaður.
saman. Heildarumferðin heföi
þó vaxið gifurlega.
Einar Thoroddsen hefur sem
fyrr segir aö baki langan starfs-
feril við Reykjavikurhöfn. Hann
hefur verið yfirhafnsögumaður
frá 1955 og var þar áður yfir-
maður og skipstjóri á togurum i
fjöldamörg ár. —H.L.
Röskir menn hafa að undanförnu unnið að þvi að mála kirkjuna i Vest-
mannaeyjum, og tók fréttaritari Visis I Eyjum, Guðmundur Sigfússon,
þessa mynd af þeim við það tækifæri.
VOLKSWAGEN
VESTUR-ÞYSK
GÆÐAFRAMLEIÐSLA
LT SENDIBÍLLINN FRÁ VOLKSWAGEN
Fáanlegur í ýmsum gerðum, — t.d. full
yfirbyggður, sem pallbfll, — eða grind
með ökumannshúsi tilbúinn til yfirbygg-
ingaraðósk yðar.
Volkswagen LT hefir margt sameiginlegt
með vörubíl. Kraftmikla vél fram f, og
mikið rými aftur í, allt frá 7.85 rúmm.
upp f 10.4 rúmm. í sendibílnum, og frá 6
til 7.5 ferm. á pallbílnum.
LT Volkswagen gegnir hlutverki vöru- og
sendibils, þannig að ef sendibíll er of
lítill, en vörubfll af stór — þá er senni-
lega LT frá Volkswagen einmitt sá bíll,
sem hentar yður.
Fáanlegur með bensfn- eða dieselvél
Viðgerðir- og varahlutaþjónusta.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sfmi 21240