Tíminn - 03.11.1968, Page 1
Gerizt áskrifendur að
TÉmanum.
Hringið í síma 12323
Auglýsing í Tímanum
kernur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Skreið til
Frönsku-
Kamerún
KJ-Reykjavík, laugardag
í þessari viku hefur verið
afskipað rúml. tvö hundr-
uð tonnum af skreið á veg-
um Sjávarafurðadeildar
SÍS, og fer þessi skreiðar-
sending til Frönsku Kam-
erún í Afríku.
Skreið þessi var lestuð
á Snæfelisneshöfinum, Akra-
nesi og hér á Suð-vestur-landi,
og er hún á frá mörgum aðil-
um. íslenddngar hafa nokkrum
sinnum áður selt skreið til
Frönsku Kamerún, en þetta
mun vera mesta magn sem selt
hefur verið þangað í einu lagi.
Með afskipun á þessum rúm-
lega tvö hundruð tonnum af
skreið hafa skreiðarbirgðirn-
ar í landinu minnkað nokkuð,
en svo sem margsinnis hefur
verið sagt frá áður, þá hefur
Framihald á bls
HAFÍSHÆTTAN ENGU MINNI EN SÍÐASTLIÐINN VETUR
Berjaáti
er lokið
Hann er eins og dúðaður
barnungi þessi þröstur, sem
sat á trjágrein í einum garði
borgarinnar, þegar ljósmyndar
inn átti leið fram hjá. En það
eru ekki umbúðirnar, sem gera
hann svona ummálsmikinn held
ur er hann búinn að innbyrða
sinn vetrarforða, og er nú búst
inn og myndarlegur af berja
áti. Það veitir heldur ekki af,
því veturinn gæti átt eftir að
reynast honum þungur í skauti
að minnsta kosti hefur hann
þegar sýnt hvað kaldur og nap
ur hann getur orðið. Sennilega
er það þó snjórinn, en ekki
kuldinn, sem þrösturinn óttast
mest, því snjórinn kcmur í veg
fyrir, að hann geti aflað sér
matar. (Ljósmynd Gunnar)
Birgðasöfnun þarf a
Ijúka fyrir áramótin
IGÞ-Reykjavík, laugardag.
Vetur er genginn í garð, og hefur kuldinn verið heldur
ómjúkur undanfarna daga. Norður af íslandi hefur kuldinn
að sjálfsögðu verið töluvert meiri, og íshellan á því svæði
hefur raunar verið óvenju mikil í allt sumar. Hvað þekkingu
snertir stöndum við nú betur en áður að vígi við að fylgjast
með hafísnum. Og þótt ekki sé ástæða til að vera með hrak-
spár, þá er hafísinn, eins og undanfarin ár, svo að segja
við bæjardyrnar. Með þetta í huga snéri Tíminn sér til
Stefáns Valgeirssonar, alþingismanns, en hann á sæti í Haf-
ísnefndinni, og spurði hann hvað gert hefði verið til að und-
irbúa okkur undir hugsanleg vandkvæði af völdum hafíss.
Til hliðsjónar ér það, að í fyrra
vetur var lítið um olíu og kjarn-
fóður á sumum ver*lunarstöðum,
þegar hafísinn kvaddi dyra. Þa'ð
var hrein heppni, að þetta skyldi
ekki leiða til stórvandræða. ís-
inn var þá á stöðugri hreyfingu
og fraus því aldrei saman. >að
leið því ekki langur tími á milli
þess að skip gætu brotizt til
hafna.
Skýrsla í september
Hvað hefur Hafísnefndin lagt
til að gert verði, til að tryggja
hafíshættusvæðið Stefán?
Nefndin skilaði allítarlegri
greinargerð til ríkisstjórnarinnar
í byrjun septembermánaðar. Var
hún tvíþætt, annars vegar um
störf nefndarinnar og hins veg-
ar um, hvað gera þarf að okkar
dómi, til að tryggja það, að ekki
verði skortur á brýnustu nauð-
synjum, þó hafís hindri sigling-
ar um lengri tíma norður og aust
ur fyrir land. Það, sem við töld-
um nauðsynlegt að gera af hálfu
ríkisvaldsins, var þetta í stuttu
máli:
Að skipuleggja rannsóknir á
möguleikum fyrir hafísspám. Að
skipuleggja ískönnunarflug. Að
fela án tafar einhverjum aðila yf-
irumsjón með að auka og fá á
leigu geymslurými fyrir olíu, og
sjá um, að birgðasöfnun eigi sér
stað fyrir áramót, fyrst og fremst
á olíu og kjarnfóðri á því svæði,
sem hafís getur hindrað sigling-
ar, og að ríkisstjórnin beiti sér
fyrir því, að fjárskortur hindri
ekki nauðsynlegar framkvæmdir
til aukninga birgðarýmis og til
birgðasöfnunar.
Birgðir til 4—5 mánaða.
Við lögðum til, að frá Horni
til VopnafjarÖar yrðu birgðir
miðaðar við 4 til 5 mánaða notk-
un, en á Vestfjörðum fyrir vest-
an Horn og Austfjörðum sunn-
an Vopnafjarðar yrði miðað við
3 mánaða birgðasöfnun. Athugun
leiddi í ljós, að geymslurými fyr
ir kjarnfóður og neyzluvörur al-
mennings væri alls staðar nægj-
anlegt. Hins vegar vantar mikið
á, að geymarými fyrir ólíu sé fyrir
ir hendi til nauðsynlegrar birgða-
söfnunar. Á Norðurlandi er geyma
FraminaJd a ois. 13
SAIGON-STJÓRNIN MÓTMÆLIR
NTB Saigon, Hanoi, Singapore.
New York, laugardag.
-k Nguyen van Thieu, forseti
Suður-Víetnam, skýrði þjóð sinni
frá þvi í niorgun, að Saigon-
stjómin myndi ekki senda full-
trúa til friðarviðræðnanna, sem
hefjast eiga i París á miðviku
dag, ef fulltrúar Þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar kæmu fram sem sjálf-
stæðir samningsaðilar og stjórn
Norður-Víetnam setti ekki trygg-
ingu fyrir því. að hún æflaðl ekki
að notfæra sér stöðvuu loftái-ás-
anna til þess að bæta hernaðar
aðstöðu sína.
ir Hanoi-útvarpið skýrði frá því
nákvæmlega sólarhring eftii til-
kynningu Johnsons um hlé á
sprengjuárásum, að Norðin- Víet-
nam myndi taka þátt ' fjögurra
aðila friðarviðræðunum í París,
en það fæli þó ekki í sér viður-
kcnningu á Saigoii-stjóruinni, seni
aðeins væri leppstjórn.
Það má óllitm ljóst vera. að
friðarviðræðurnar í París verða
bæði langar og erfiðar, og búast
má við, að fyrst svo erfiðlega
gengur að koma sér saman um
formsatriði og grundvöll viðræðn
anna, þá taki fyrst í linúkana.
þegar til eiginlegra friðarumleit
ana kemur. Þó er almennt álitið,
að friðarhorfur í Víetnam hafi
aldrei verið betri en nú.
Ilanoi ineð í París.
Stjórn Norður Víetnam til-
kynnti i dag, að fulltrúar lienn
ar myndu taka þátt í friðarvið
ræðununi (—Saigon, Hanoi, pjóð
frelsishreyf., Washington), sem
hefjast eiga í París á miðviku
daginn, en um leið var tekið
skýrt fram, að Norður-Víetnam
myndi halda áfram baráttunni,
unz fullum sigri yrði náð í til-
kynningunni sagði, að Norður-
Víetnamar hyggðust sitja við
samningaborðið með fulltrúum
Suður-Víetnam og Bandaríkja-
stjórnar. Hins vegar var lögð á-
herzla á,að Hanoi viðurkenndi ekki
■tjórn Thieus sem tulltrúa óinn
Framhald á bls. 13
Stefán Valgelrsson