Tíminn - 03.11.1968, Qupperneq 16
10-20 í forseta-
framboíi vestra
- og einn göltur
Talið er sennilegt, að um 75 milljónir manna muni fara
á kjörstað á þriðjudaginn kemur í Bandaríkjunum og
kjósa næsta forseta þess lands. Sá forseti — ef einhver
nær kjöri — mun taka við embætti 20. janúar næst
komandi, og sitja í fjögur ár að öllu forfallalausu. Auk
þess munu Bandaríkjamenn kjósa 34 af 100 þingmönn-
um í Öldungadeild Bandaríkjaþings og alla þingmenn
fulltrúadeildarinnar, 435 talsins. Einnig 21 ríkisstjóra.
Aðeins tveir eru taldir koma til greina sem sigurvegar-
ar í forsetakosningunum, Hubert Humphrey, varafor-
seti Bandarikjanna, frambjóðandi demókrata og Richard
Nixon, frambjóðandi republikana.
En Bandaríkin eru stór, og
eins og gengur og gerist, þá er
þar mikið af sérkennilegu fólki.
Vonlegt er því, að nokkuð beri
á sliku fólki á kosningatímum,
og er ætlunin hér á eftir, að
skýra nokkuð frá því.
Stjörnuspámenn bera kápuna
á báðum öxlum í þessari kosn-
ingabaráttu sem öðrum, þótt
þeir telji stjörnurnar fremur
benda til sigurs Richards Nix-
ons. Eða, eins og bandaríska
\dkuritið „Time", sagði nýlega
um álit stjörnuspámannanna:
„Nixon er heppinn- Hann er
steingeit, sem er t.ákn stjórnun
ar, og menn, sem fæddir eru
í þvf stjörnumerki, eru beztir
frgmkvæmdamenn. Auk þess
kemur Júpíter, pláneta góðs
gengis, honum til aðstoðar, og
i byrjun nóvember er staða plá
netanna mjög hagstæð honum.
En hann verður að gæta sín.
Plútó, pláneta breytinganna,
ber við Marz 30. október, og
sú staðreynd, að bæði Uranus
pláneta hins óvænta, og Júpíter
stefna að sól Humphreys, er
honum (Humphrey) til ávinn-
ings“.
Samt sem áður telja flestir
stjörnuspámenn, að Richard
Nixon muni sigra á þriðjudag-
inn — og þarf ekki stjörnuspá-
menn til.
Auk frambjóðenda tveggja
stóru flokkanna — demókrata
og republikana — eru fimm
aðrir frambjóðendur í kjöri í
einhverju fylki Bandaríkjanna
— og margir til viðbótar eru
eins konar sjálfskipaðir fram-
bjóðendur.
Fylgismestur þessara „auka-
frambjóðenda" er að sjálfsögðu
George Wallace, frambjóðandi
„Bandaríska sjálfstæðisflokks-
ins“, sem virðist hafa meira
fylgi en frambjóðandi „auka-
flokks" hefur haft i banda-
ískum forsetakosningum um
langt árabil. Er Wallace á at-
kvæðaseðlinum f öllum 50 ríkj
um Bandaríkjanna.
Þeir aðrir frambjóðendur,
sem eru á atkvæðaseðlum í
einu eða fleiri ríkjum eru þess
ir:
Henning A. Blomen, fram-
bjóðandi „Socialist Labor
Parthy". Þessi fiokkur er sá
marxíski flokkur, sem lengst
hefur starfað í Bandaríkjunum.
Var hann stofnaður árið 1890,
og hefur þvi starfað í 78 ár.
Árið 1964 bauð flokkurinn fram
í 16 rikjum, og fékk þá rúm-
lega 45 þúsund atkvæði, eða
nokkru færri en 1960, er hann
hlaut rúmlega 47 þúsund at-
kvæði.
Frcd Halstead, frambjöðandi
„Socialist Workers Party“. Sá
flokkur var stofnaður árið 1938
af stuðningsmönnum Leon
Trotsky, rússneska byltingar-
leiðtogans, sem myrtur var með
öxi árið 1940 í Mexikó. Flokk
urinn bauð fram í 11 ríkjum
árið 1964, og fékk rúmlega
32 þúsund atkvæði — eða 8
þúsundum færri en í næstu for
setakosningum á undan.
Frú Charlene Mitchell, fram-
bjóðandi Kommúnistaflokksins
— ung blökkukona. Kommún-
istaflokktirinn bauð síðast fram
í forsetakosningum árið 1940,
en þá fékk frambjóðandi hans
Earl Browder, rúmlega 46 þús-
und atkvæði.
E. Harold Munn eldri er
frambjóðandi „Prohibition
Party“, þ.e. flokksins, sem vill
koma á algjöru áfengisbanni í
Bandaríkjunum. Flokkur þessi
var stofnaður árið 1869 til að
koma fram málefnum templ-
ara. Er þetta elzti flokkurinn
meðal smáflokkanna. Árið ’64
var frambjóðandi flokksins á
atkvæðaseðlinum í 11 ríkjum,
og hlaut rúmlega 23 þúsund
atkvæði.
Auk þess eru í eins konar
framboði frambjóðendur ým-
issa hægri flokka, sem heita
ýmsum nöfnum. Má þar til
nefna „Constitution Party“,
„Theoeratic Party“, „Conserva-
tive Society of America“,
„Greenback", Tax Cut“, Uni-
ted Taxpayers11 og „American
Vegetarian". Þessir flokkar eru
þó ekki á atkvæðaseðlunum.
Svo er heldur ekki um ýmis
konar sérvitringa og skringi-
legheitarfólk, sem einnig er í
Framtoald á 15. síðu.
239. tb!. — Sunnudagur 3. nóv. 1968. — 52. árg.
Nixon og kona hans fagna hér stuðningsfólki sínu, sem fyllir járnbrautarstöðina í Kansas City,
en hjónin fóru þar um 16. okt. s. I. á leið sinni til Missouri, en þar ætlaði Nixon að ávarpa fund
„Bandariskra bænda framtíðarinnar".
Edmund Muskie iildungadeildarmaður virðir hér fyrir sér mynd, sem áköf stuðningskona réttir
að honum á kosningafundi í Trenton í New Jersey 10. október.
Hubert Humphrey ávarpar hér mikiuii fólksfjölda á götu í Kansas City í Missouri 15. október s.l.