Tíminn - 12.11.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 12.11.1968, Blaðsíða 8
8 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 12. nóvember 1968. „Ýli þín af sul arlaus fyrir næsti Sagt frá nýútkominni bók Guðlaugs Guðmundssonar, Reynistaðabræðrum Á miðjum Kili getur að líta allmikið af beinum, sem liggja þar á víð og dreif í brekku við hól í hrauninu. Þessi bein týna reyndar tölunni með ári hverju, enda eru þau orðin allmörg árin, sem þau hafa legið þarna. Bein þessi munu vera leifar af fé og hrossum, þeirra Reynistaðabræðra úr Skagafirði, sem urðu úti þarna í öræfunum, ásamt mönnum sínum og skepnum fyrir nær tveimur öldum. Höfðu þeir farið suður til fjárkaupa eftir niðurskurðinn vegna fjárkláðans, sem hingað barst á síðari hluta 18. aldar. Gengu þeim seint fjárkaupin og urðu úti á norðurleið. Það er áhrifamikil sjón ferða- manni að virða fyrir sér bein þessi, og flestum verður tíðhugs- að um hvaða sögu þessar göml j menjar hafi að geyma meðan v'ð- dvöl er höfð við hraunhólinn, sem nú er nefndur Beinahóll. Við, sem komum á Kjöl á miðju sumri get um ekki varizt þeirri hugsun, að öræfafegurðin muni hafa nokkuð annan og kuldalegri svip að haust og vetrarlagi í hríðarveðrum. Og ef jarðneskar leifar veslings dýr anna, sem þarna urðu að láta líf ið, hefðu mál, þá hefðu þær ugg laust óhugnanlega sögu að segja Og senn verða ekki þessi gömlu bein til að minna okkur á örlög bræðranna frá Reynisiað og fylgd arliðs þeirra. Margur ferðamaður teKur heim með sér hrosslegg eða kjálka úr kind til minningar um komu sína á þennan sögufræga stað, og þannig hverfa þau eitt af öðru. Já, mörgum hefur orðið tíð- hugsað um afdrif Reynistaða- bræðra en um þau eru slitróttar og ósamhljóða frásagnir. Einn af þeim mönnum, sem snemma urðu sagnirnar um afdrif leiðangursins hugstæðar, er Guðlaugur Guð- mundsson, verzlunarmaður og höf undur barnabókarinnar Vinir dýr- ajina. Hann fékk ungur áhuga á aö sjá staðinn þar sem leiðangur inn á að hafa orðið úti fyrir nær tvöhundruð árum, en þó varð það ekki fyrr en fyrir nokkrum árum að hann kom á Beinahól í fyrsta sinn, þá full-orðinn maður Strax þá á heitum sumardegi fékk hann mikla löngun til að kanna sögu þessa atburðar, og ákvað liann að kynna sér allar fáanlegar sagnir um hann. Eftir að Guðlaug ur fór að kynna sér þessar gömlu heimildir fór hann að velta því fyrir sér, hvort hann gæti ekki skrifað bók um þennan atburð. Ákvað hann að reyna það og nú rúmum þremur árum síðar er árangurinn kominn í ljós, nýút- komin bók, sem ber nafnið Reyni staðarbræður. Guðlaugur hefur stuðzt við þær beimildir, sem hann taldi beztar og mest við Söguþætti Gísla Kon- í áðssonar. Þá hefur hann talað við gamla menn, einkum úr Hreppum, sem kunnu ýmsar sögur af veru Reynistaðarbræðra þar sunnan- lands, sem ekki hafa birzt á prenti fyrr. Þegar heimildir þraut og sér staklega þegar segir frá atburð- um þeim er í óbyggðum gerast styðst Guðlaugur við eigin hug- leiðingar um atburðarásina og endalok mannanna. Hefur hann leitazt við að brúa bilið mill þeirra sagnapunkta sem geymzt hafa svo úr verði samfelld saga. Guðlaugur byggir einnig frásögn sína að nokkru ieyti á eigin reynslu, því að hann tók þátt í hliðstæðum fjárrekstp á kreppn árunurn Rak íann þá ásamt fleiri mönnum 700 lömto úr Vatnsdal suður heiðar fyrir Ok að haust- lagi Var það 10 daga rekstrar leið. Á aí'ari kápusíðn er kort af leið þeirri sem rekstrarmenntrnir munu líklega hafa farið allt fró efstu bæjum í Hreppum sem pa voru í byggð norður til Beinahóls. Þá er í bókinni æftartaia Revni- staðarbræðra eftir Bjarna Jónas- son, bónda á Eyjólfsstöðum i Vatns c'al. Halldór Pétursson het'ur teikn að myndir við söguna en auk þess eru ljósmyndir frá þeim slóðum á Kili þar sem leiðangurinn á að hafa orðið úti. Að öðru levti skipt ist bókin í þrjá kafla auk eftir Guðlaugur GuSmundsson mála, nefnast þeir Reynistaðabræð ur, Jón Austmann, Reynistaðar Grána. Sagan hefst norður í Skagafirði árið 1780 en þar bjuggu þá á hinu forna höfuðbóli og klausturjörð, Reynistað, Halldór Bjarnason Ví- dalín, klausturhaldari, og kona hans, Ragnheiður Einarsdóttir. Bæði voru þau h]ón stórrar ættar og auðug að fé. Og var Ragnheið ur skörungur mikill, gáfuð og framkvæmdasöm og hafði ekki minni forystu um búsýstu en bóndi hennar. Þau hjónin áttu margt barna, en aðeins tveir synir þeirra koma við sögu. Sá eldri hét Bjarni og var um tvítugt. Er honum lýst sem fríðleiksmanni, mannvænleg um og glaðlyndum, en orðhvatur var hann og mesti æríngi. Urðu glettur aans stundum fullgráar, og urðu tveir pi estar til þess að spá honum illra örlaga er þeir reid.i- ust honum fyrir tiltæki hans. Hljóðuðu báðir spádómarnir á þá leið, að Bjarni ætti eftir að deyja úr sulti. Yngri sonurinn, Einar, var 11 ára. Honum er lýst sem ein’stökum efnispilti, gáfuðum, stilltum og ljúfum. Þótti öllum vænt um hann' er honum kynntust. Jón Austmann, hét ráðsmaður á Reynistað og var hann skyldur Halldóri bónda. Getið er um, að ekki verði Jón talinn göfugmenni, drengskapar- eða tilfinningamaður. Hann haifi verið skapharður og óvæginn og oft bætt lítið um fyr ir kotungum og klausturlandset- um. Þrátt fyrir þessar staðhæfing ar er Jón engan veginn ógeðfelld ur í sögunni. Hann er mikill fyrir sér og hið mesta karlmenni. Þeg ar erfiðleikarnir steðja að finnur hann mjög fyrir þeirri ábyrgð að honum beri að koma leiðangrin um heilum heim og fyrir kemur að þessi harðgeri maður finnur fyrir viðkvæmni og vöknar um augu. Sagan segir frá því, að mikil fjárfæð er á Norðurlandi eftir a'ð niðurskurði lauk 1779. Sumarið eft ir 1780 hugðust Reynistaðahjón endurnýja fjárstofn sinn, og sendu Bjarna, son sinn, og Jón Austmann suður á 1 andi til fjárkaupa. Voru þeir vel útbúnir og höfðu með sér nokkra klyfja- hesta, sem báru m. a. drjúga sjóði í silfurpeningum og smáðuðu silfri, sem kvensilfri, en'á þessum tíma var algengt að slíkir gripir væru notaðir sem gjaldmiðill. Seint um sumarið sendu þau Reynistaðahjón tvo menn suður til að aðstoða Bjarna og Jón við fjár kaupin. Annar var landseti þeirru Sigurður á Daufá en hinn Einar sonur þeirra. Hjónin urðu ekki á eitt sátt um að senda Einar í fór þessa. Halldóri /arnst hann of ungur, komið væri fram á haust og allra veðra von. En Ragnheiður vildi að Einar færi. Hún taldi að hann mundi auðvelda þeitr. félög i um fjárkaupin og auk þess væri j hann stór og þroskaður og hefði aldrei orðið misdægurt. Leiðangur j inn ætti að geta lagt upp norður aftur strax úr fyrstu réttum og I Jón Austmann ríður frá Reynistaðabræðrum. þá væri vetur enn ekki genginn í garð. Varð það úr að Ragnheiður réði þessu. Einar var engan veginn fús tii fararinnar. Hann var skyggn og hvað eftir annað er því lýst, að hann hafi verið sannfærður urn að enginn mundi aftur koma úr þessari för. Þeim fjórmenningum gekk öll- um vel suður bæði þeim er fyrr fóru og síðan Einari og Sigurði. Fóru þeir víða um Suðurland og gengu fjárkaupin ekki vel í fyrstu en úr rættist er Einar kom í hóp inn. í Vestur-SkaftafeUssýslu gengu fjárkaupin betur því að þangað hafði fjárkláðinn aldrei komizt og því meiri fjárstofn. Ýmsum atburðum er lýst, sem gerðust meðan Reynistaðamenn dvöldu sunnanlands, og þótti sunn anmönnum mikið til gjörvileiks þéirra koma. Margoft kom það fyrir að reynt var að koma í veg fyrir að leiðangurinn héldi norður Kjöl, en dvölin syðra hafði orðið lengri en til stóð og kominn nóvem ber. Einkum urðu ýmsir til að bjóða Einari litla að dvelja hjá sér um veturinn, en hann var kvíð inn og enn jafn sannfærður um, að enginn þeirra kæmi heim úr þessari ferð. En allt kom fyrir ekki. Reyni staðarmenn voru ákveðnir að kom ast norður. í dögun mánudaginn 6. nóvember var lagt af stað. Átta bændur úr Hreppum fylgdu Stað armönnum áleiðis, og þá háfði ungur maður Guðmundur Daða son ráðist til farar með þeim norð 1 ur. Svo nú voru þeir 5, mennirnir sem ætluðu norður Kjöl. Sunnan- j menn fylgdu Reynistaðarmönnum vestur yfir Jökulfallið, en síðan skildu leiðir. Var þá kominn mð- vikudagur. Hrepptu Sunnlending ar ill veður á leið heim, en veður hélzt lengur allgott í óbyggðum. En útlitið var ekki gott og eitt hvað síðar skall óveðrið einnig á þá norðanmenn. Komust þeir al- drei lengra en að hraunhólnum. Næsta vor fundust l£k þeirra Sigurðar á Daufá og Guðmundar Daðasonar í tjaldi þeirra félaga. Lík Reynistaðarbræðra og Jóns Austmanns fundust ekki. Um vor-. ið fann kona mannshönd í vettling við Blöndu. Á þumal vettlingsins voru saumaðir stafirnir J. A., upp- hafsstafir Jóns Austmanns. Og 65 árum síðar fundu Skagfir'ðingar bein tvéggja manna í klettaskoru skammt frá tjaldstað Reynistaðar manna, voru það álitnar vera jarð neskar leifar bræðranna. Ýmsar getgátur hafa verið áð því leiddar með hvaða hætti dauð daga fimmmenninganna hefur bor ið að. Þá hafa ýmsir talið að lík bræðranna hafi verið rænd og þau síðan falin. Því sennilega var eitthvað eftir af silfrinu sem þeir fóru með suður. Var þannig talin fundin skýringin á því hversvegna líkin tvö fundust á öðrum stað mörgum áratugum síðar. Þá var talið að maður einn hefði sézt bera silfurhnappa, sem voru á fötum Bjarna frá Reynistað Þótti það styðja þá skýringu að um rán hefði verið að ræða Guðlaugur Guðmundsson er ekki sammála þeim sögum sem / Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.