Tíminn - 17.11.1968, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið 1 síma 12323
Auglýsmg í Tímanum
kemur dagiega fyrir augu
86—160 þúsund lesenda.
251. tbl. — Sunnudagur 17. nóv. 1968. — 52. árg.
Sjóii Dagsbrúnar
stoiið í fyrrinótt
BANKARNIR ÞRENGJA AD
TÉKKA VIÐSKIPTUNUM
FB-Reykjavíkí laugardag
Frá og með mánudeginum geta
þeir, sem tékkaviðskipti eiga
við banka og sparisjóði átt von
á því, að þurfa að framvísa
persónuskilríkjum \ið af-
greiðslu. Jafnframt hætta þess
ar stofnanir almennt að kaupa
tékka á aðrar bankastofnanir,
er ætlazt er til að séu innleystir
með reiðufé. Þetta kemur fram
í auglýsingu frá samvinnunefnd
banka og sparisjóða, sera .birt-
ist í blaðinu í dag. Ennfrem-
ur er fólki þar bent á, að
beina sölu slíkra tékka til
þeirra stofnana, sem tékki er
gefinn út á.
Með þessari bi’eytingu er tek
in upp sú regla, sem hefur ver-
ið sjálfsögð og allsráðandi er-
lendis um langt skeið. Þar geta
menn ekki gengið í hvaða
bankastofnun sem er og selt
tékka gegn reiðufé. Er þar ætl-
azt til, að menn geri ananað
sem tékkinn er gefinn út a, og
ieita innlausnar þar eða selji
hann í eigin viðskiptabanka til
innborgunar á reikning.
Þessi breytta afstaða banka
og sparisjóða við kaup á um-
ræddum tékkum hefur þegar
komið fram í sumum banka
stofnunum, en er nú fyrst sam-
ræmd almennt. Valda henni
gerbreyttar aðstæður. Tékka-
viðskipti hafa margfaldazt und
anfarin ár, fjöldi afgreiðslu-
.^staða bankastofnana hefur auk-
Framhald á bLs 4
OÓ-Reykjavík, laugardag.
Innbrotsþjófar brutust inn í
skrifstofur verkamannafélagsins
Dagsbrúnar að Iándargötu 9, í
nótt. Þegar starfsfólk mætti til
vinnu sinnar í morgun var ófagurt
um að litast. Gler voru tekin úr
hurðum og brotizt hafði verið inn
í öll skrifstofuherbergin og skáp-
ar og skúffur brotnar upp. Stór
peningaskápur var brotinn upp og
stolið var miklu af peningum. Enn
er ekki vitað með vissu hve miklu
var stolið, en Hannes Stephensen,
gjaldkeri, áleit í morgun að þýfið
væri vart undir 200 þúsund krón-
um í peningum, en ekki var vitað
með vissu hvort bankabókum eða
ávísunum hafði verið stolið. Að
minnsta kosti tveir menn hafa verið
að verki og skildu þeir verkfæri
sín eftir á staðnum, en það eru
rafmagnsborvél, járnsög, stór meit
ill, sem gerður er fyrir loftbor, og
fleira sem innbrotsþjófum kemur
að gagni.
í morgun unnu rannsóknarlög-
reglumenn að athugunum á vett-
vangi og starfsmenn Dagsbrúnar
reyndu að gera sér grein fyrir
tjóninu. í umsjá Dagsbrúnar eru
margir sjóðir og voru ekki
allir peningar, sem voru
á skrifstofunum, á sama stað,
og sama er að segja um banka-
bækur og önnur verðmæti. Þar
sem brotizt hafði verið inn í öll
skrifstofuherbergin og farið þar
í skúffur og skápa og alls kyns
skjöl og aðrir pappírar lágu eins
og hráviði um allt húsið, tekur
tíma að koma reglu á þetta aftur,
og fyrr er ekki hægt að segja
með vissu, hve miklu var stolið.
f gærkvöldi var dansleikur í
Lindarbæ, sem er í kjallara húss-
ins. Var það yfirgefið af öðrum
en þjófunum kl. 2,30 í nótt. Lík-
legast er talið að þjófarnir hafi
leynzt í húsinu þegar því var lok-
að, og tekið til við iðju sína
þegar aðrir voru búnir að læsa
dyrum og ganga tryggilega frá
Framhald á bis. 14
Stór peningaskápur og fjórir litlir peningakassar voru brotnir upp á skrifstofu Dagsbrúnar í nótt. Rótað
var í öllum hirzlum á skrifstofunni til að leita að peningum. Á stærri myndinni sést stóri peningaskáp-
urinn, sem gert var gat á og einnig var hurðin brotín upp. Á efri myndinni eru verkfærin sem þjófarn-
ir höfðu meðferðis, en skildu eftir þegar þeir yfirgáfu staðinn. (Tímamyndir—GE).
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði um gengisfellinguna:
Ein harkalegasta árás sem gerð
hefur verið á alþýðu manna hér
EJ-Reykjavik, föstudag.
I í gær , fimmtudag, og var þar stórfellda gengisfelling sem nú
rætt um kjaramál verkalýðsins og hefur verið skellt yfir þjóðina.
Verkamannafélagið Hlíf í Hafn* gerð ályktun um það efni. Segir
arfirði hélt mjög fjölmennan fund | þar, að fundurinn telji, „að hin
ásamt boðuðu afnámi kaupgjalas
vísitölu, sé ein harkalegasta árás,
sem gerð hefur verið á alþýðu
manna í þessu landi.“
Segir í ályktuninni, að fundur-
inn „fordæmir þau vinnubrögð
rikisstjórnarinnar að grípa til
Framhald á bis, i4
ASÍ-FUNDUR
í dag klukkan 15.30 hefst úti-
fundur við Miðbæjarbarnaskól-
ann, sem ASÍ efnir til vegna síð-
ustu ráðistafana ríkisstjórnarinn-
ar. Hannibal Valdimarsson for-
seti ASÍ verður fundarstjóri. en
ræðumcnn: Eðvarð Sigurðsson for
maður Dagsbrúnar og Jón Sig-
urðsson formaður Sjómannasamb.
íslands. í lok fundarins munu
fulltrúar, sem fundurinn velur,
halda til Stjórnarráðsins og af-
henda forsætisráðherra þar mót-
mælayfirlýsiaau.
GENGIS-
FELLINGAR I
KOKKTEILL
KJ-Reykjavik, föstudag.
í gær var haldinn í Sjálf-
stœðirhúsinu í Reykjavik geng
islækkunarkokkteill á vegum
dr. Bjarna Benediktssonar,
flokksformanns, og voru í i
kokkteilinn boðnir framámenn :
flokksins í Reykjavík, svo og .
margir uugir og efnilegir
menn innan flokksins.
Það, sem vakti kannslki hvað
mesta athygli í sambandi við
ge ngisl æk ku n ar kokkteilinm, var
að margir þeirra, sem boðnir
höfðu verið, mættu ekki. Að
sjáifsögðu ávarpaði dr. Bjarni
formaður viðstadda, en ekki
fara sögur af fleiri ræðumönn
um, enda yfirleitt ekki siður
í kokkteilboðum, að menn séu
að halda langar ræður, heldur ;
eru málin rædd í smáhópum.
Reyndi dr. Bjarni formaður að
sjálfsögðu að stappa stálinu
í menn í fyrstu viku gengis-
lækkunarinnar, en ekki voru
þó allir, sem tóku við þessu
síðdegissakramenti, með bros
á vör — fyrr en undir lokin!
Viðreisnar
hrunið fyrir
fastaráðið
FB-Reykjavík, laugardag.
j Fyrst í vikunni var borinn
fram tillaga í stjórnmála-
nefnd þeirri, sem starfaði á ■
vegum fundar þingmanna-
sambands NATO í Briissel, um
stuðning við ísland vegna fjár-
hagsvandræða íslendinga. Til- •
i laga þessi var tekin fyrir á
j fundi sjálfs þingmannasam-
bands í gær, og samþykkt þar
og verður henni nú vísað til
fastaráðsins.
í umræðunum um tillögu
þessa var bent á, að í NATO-
sáttmálanum væri gert ráð fyr-
ir því. að stuðlað sé að efna-
hagslegum framförum í aðild-
arríkjunum, og benti einn full-
trúinn á, að þar af leiðandi
væri það eiginlega skylda
'NATO-ríkjanna að reyna að
koma í veg fyrir að tím^bundn
ir erfiðleikar yrðu að langvar-
Framhald á bls. 14