Tíminn - 17.11.1968, Síða 16

Tíminn - 17.11.1968, Síða 16
SJ-Reykjavík, f rigningunni nú á fimmtudagimi leit ung stúlka inn á ritstjórnina hjá okkur. Hún var klædd brúnni, stuttri leðurkápu í síðri, brúnni prjónapeysu með belti og brúnu pilsi og hin frjálslegasta í fasi. Þetta var Shady Owens. Margir kannast orðið við þessa ungu stúlku, þótt ekki sé enn liðið eitt ár síðan hún fór að syngja með vinsæl- um íslenzkum dægurhljómsveitum. Hún kvað líka syngja betur en sjálfur páfinn, og þá vekur erlent nafn hennar forvitni margra. Fólk spyr, hvort hún sé íslenzk eða bandarísk, eða kannski vestur-íslenzk, þessi unga söngkona. í lok mánaðarins er væntan leg á markaðinn 12 laga hæg geng hljómplata, þar sem Shady syngur nokkur lög með Hljómum, en hún hefur sung ið með þeirri hljómsveit síðan í ágúst í sumar. Sex íslenzk lög eftir Gunnar Þórðarson, hljómsveitarstjóra Hljóma, eru á plötunni, sum í þjóðlagastíl, og sex erlend, öll með íslenzk um textum, þ.á.m. eitt eftirlæt islag Shady, Windows of the World, sem Dionne Warwick Ihefur sungið. Segir Shady, að lögin á plötunni séu mjög fjöl breytt, bæði róleg lög, beat lög o.fl. Platan var tekin upp í London og mjög til hennar vandað í hvívetna, enda mun hún eflaust kosta á fimmta hundrað krónur, nú að afstað inni gengisfellingu. Við gripum sem sagt tæki færið að svala forvitni okkar, þegar Shady rak á okkar fjör ur, og tókum hana tali. Shady heitir fullu nafni Patricia Gail Owens og á ís lenzka móður, en bandarískan föður. Hún fæddist í Banda ríkjunum 16. júlí 1949 og hef ur alið þar mestan sinn aldur, einkum í St. Louis, Missouri. Hún kom fyrst til íslands 1956 í heimsókn, en síðan kom hún affcur 1962 og var þá hér í tvö og hálft ár og stundaði nám í Gagnfræðaskóla Kópavogs. Þar féll henni vel, nema að því leyti, að námið gekk ekki sem bezt, enda kunni hún ekkert í íslenzku, þegar hún kom. Ætlaði að iæra sálfræði Shady fór því aftur til Banda ríkjanna og lauk námi við ragnfræðaskóla í St. Louis. Þar var námið að ýmsu leyti val Ifrjálst og svara gagnfræðaskól ar í Bandaríkjunum raunar til gagnfræðaskóla og tveggja ára í menntaskóla hér. Shady var byrjuð að læra svolítið í sál fræði og hafði áhuga á að stunda framhaldsnám í þeirri grein eða annað svipað nám, verða félagsráðgjafi eða eitt hvað þess háttar. Þá segist hún einnig hafa haft áhuga á að starfa með friðarsveitum hjá frumstæðum eða vanþró uðum þjóðum. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Shady kom hingað í þriðja sinn í júní 1967 og ætl aði að vera hér í eitt ár eða svo hjá móður sinni og stjúpa, sem búa á Keflavíkurflugvelli, og ætlaði hún að vinna á skrif stofu. Síðan var ætlunin að fara aftur til Bandaríkjanna og halda áfram námi. En áð ur en árið var liðið, setti söng urinn strik í reikninginn, og enn er Shady ófarin- Shady kom fyrst fram, þeg ar hún var 16 ára og söng þá ásamt pilti, sem lék undir á gítar sem skemmtiatriði í hléi á íþróttakappleik. Þau sungu einnig á skólaskemmtun og þá lög eftir Sonny og Cher — og af því hlaut hún gælunafnið. en þau voru kölluð Sonny og Shady eftir það. Síðan söng Shady með nokkrum hljóm- sveitum vestra og kom einnig fram á veitingahúsum og söng þá einkum þjóðlög og þess háttar. Söng með Óðmönnum á annan í jólum. — Hvenær söngstu fyrst op inberlega hér á íslandi, Shady? — Ég kom fyrst fram með hljómsveitinni Óðmenn í Ungó í Keflavík á annan í jólum í fyrra. Þá söng ég aðeins nokk ur lög, í fyrstu kom ég aðeins fram einu sinni á kvöldi sem skemmtiatriði, en svo í febrú ar varð ég föst söngkona með hljómsveitinni. — Hvernig gekk og hvernig voru viðtökurnar í fyrsta sinn, sem þú söngst með Óðmönn um? — Það var svo margt fólk og góð stemning, og allt gekk svo vel. Ég var mjög ánægð. þetta var ofsalega gaman. — Hvaða lög söngstu? — T.d. Always something there to remind me, Heatwave og Anyone who had a heart. Þetta eru lög, sem Sandy Show og Cilla Black hafa gert þekkt. Síðan söng ég aftur á gamlárs kvöld i Ungó. Það gekk líka ágætlega. — Ertu ekkert taugaóstyrk? — Nei, nei, svolítið hrædd, kannski. Ég verð alltaf tauga óstyrk á að bíða eftir að koma fram. En þegar ég er alltaf á sviðinu, finn ég ekkert til þess. — Samstarfið við Óðmenn? — Alveg prýðilegt, þetta eru góðir strákar, ég sakna þeirra allra, sérstaklega Péturs Östlund, það var svo margt af honum að læra. Annars var þetta ofsalega erfitt, sérstak lega meðan ég vann á skrif stofunni. Ég fór að vinna í Navy Exehange á Keflavíkur flugvelli haustið ‘67,_ en svo hætti ég því í apríl. Ég er oft ekki komin heim fyrr en seint á nóttunni og svo æfum við allan liðlangan daginn, þá daga sem við spilum ekki. — Hvar æfið þið? — í Stapa í Keflavík. — Hvað spilið þið oft í viku á dansleikjum? — Næstum á hverju kvöldi, alltaf fimm kvöld í viku. — Hvernig kanntu við fé laga þína í Hljómum? — Mjög vel alla saman. Ég er sérstaklega hrifin af Gunn ari (Þórðarsyni), hann er svo góður og rólegur. Hann er svo músíkalskur og ég hef margt af honum lært og hann er alltaf jafn þolinmóður. Bítlagæjar eru frjálsari en aðrir strákar. — Kýst þú t'remur að karl menn ‘eða ungir piltar séu síð hærðir og í kæruleysislegum skraut'klæðum, en að þeir klæði sig og klippi hár sitt á þennan gamla og borgaralega hátt? — Ég tek ekki eftir útliti fóíks, ef mér fellur við það sem einstaklinga. Annars finnst mér bítlagæjarnir ofsa Framhald & 15. síðu Shady Owens syngur í innlifunarstíl (Tímam. ■Gunnar). 251. BS!

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.