Tíminn - 28.12.1968, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
LAUGART>AGTJR 28. (íesember 1968.
GeimfariS í sjónum eftir lendingu.
(Símamynd—UPI)
MET SLEGIN
km. á meðan þeir voru á braut
umhverfis tunglið 24. des.
Þeir urðu fyrstir allra til
þess að komast á braut um-
hverfis tunglið.
Þeir urðu fyrstir til þess að
fara út fyrir aðdráttarsvið
jarðarinnar.
Þeir urðu fyrstir til að !:om-
ast inn á aðdráttarsvið tungls-
íns.
Þeir urðu fyrstir til að sjá
dimmu hlið tunglsins.
Þeir urðu fyrstir til að sjá
tunglið í nálægð, eða um það
bil 3000 sinnum nær, en menn-
irnir hér á jörðunni sjá það.
Október 1957:
Sovétmenn senda upp fyrsta
gerfihnött sinn — Sputnik 1.
Nóvember:
Sputnik 2 flutti tíkina Laika
út í geiminn.
Janúar 1958:
Fyrsta gerfihnetti Bandaríkj-
anna, Explorer, skotið á loft.
Apríl 1961:
Sovézka geimfarinu Vostok 1
skotið á loft, innanborðs var
fyrsti maðurinn, sem út í geim
inn fór, Jurí Gagarín.
Maí:
Alan Shephard skotið út í
gciminn.
Febrúar 1962:
John Glenn fer þrjá hringi um-
hverfis jörðina.
Júní 1963:
Fyrsti kvengcimfarinn, Valen-
tina Tereshkova, er í 48 klst. á
ferð umhverfis jörðina í Vos-
tok 6.
Október 1964:
Fyrsta sovézka geimfarið Vos-
tok, sem rúmaði fleiri en einn
geimfara flytur þrjá menn út
í geiminn.
Marz 1965:
Sovézki geimfarinn Aleksej
Leono'v varð fyrstur allra til
þess að bregða sér í gönguferð
úti í geimnum.
Júní:
Bandaríski geimfarinn Edward
White gengur í geimnum.
Desember:
Tvö bandarísk Gemini-geimför
hvort um sig með tvo geimfara
innanborðs, mætast í geimnum.
Aðeins um 30 cm voru á milli
geimfaranna.
Vigfús ísleifsson,
bóndi, Flókastöðum, Fljótshlíð,
lézt að heimili sínu 25. þ.m. Jarðarförin verður auglýst sígar.
Vandamenn.
Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
Hallfríður Jónasdóttir,
Hraunbæ 98,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. desember
kl. 1,30. Þeir, sem vildu minnast hennar eru vinsamlegast beðnir
um að láta þá félagsstarfsemi sem hún lét sér annt um, njóta þess.
Brynjólfur Bjarnason
Elín Bryn jólfsdóttir
Gottfred Westergaard.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Arnlaugar Samúelsdóttur,
fyrrverandi húsfreyju á Seljalandi.
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Marfa Kristjánsdóttir, Sigurður Jónsson
Sigríður Kristjánsdóttir, Hálfdán Auðunsson,
Ólafur Kristjánsson, Guðrún Helgadóttir,
Þuríður Kristjánsdóttir, Guðjón Einarsson,
Svanlaug Sigurjónsdóttir, Guðni Jóhannsson,
Aðalbjörg Kristjánsdóttir, Andrés Ágústsson,
Magnús Kristjánsson, Laufey Guðjónsdóttir
og barnabörn hinnar látnu.
OTTESEN
Framhaiö a: bls 16
ár alls á 52 þingum eða lengur en
nokkur annar maður allar götur
síðan Alþingi var endureist 1845.
Á þingi kvað svo að honum, að
hann hlýtur að teljast í hópi þing
skörunga. Hann var góðviljaður.
Hann naut óvenjulegst trausts í
heimahéraði sínu langt út fynr
stjórnmálasamstöðu og jafnan kos
inn þar með yfirgnæfandi meiri-
hluta. Hann var kjördæmi sínu
traustur fulltrúi.
Fjölmörg ti-únaðarstöi-f voru
falin honum, og uinstakt mun, að
hann sat í stjórnum meginsamtaka
tveggja höfuðatvinnuvega lands-
manna, landbúnaðar og sjávarút-
vegs, mjög lengi.
í sjálfstæðismálum þjóðarinnar
var hann jafnan í fararbroddi, með
an þau voru efst á baugi, og undi
aldrei hálfum sigri. Hann beitti
sér á efri árum fast að endur-
heimt íslenzku handritanna, og hon
um var mjög í mun að gera gild
andi fornan samríkisrétt íslands
og Grænlands. Landhelgismálið var
honum hugleikið baráttumál. Þótt
Pétur væri alla tíð Sjálfstæðis-
flokksmaður, var afstaða hans til
mála ætíð mjög sjálfstæð og
persónuleg, og hann gerði oftar
en einu sinni opinberan ágreining
við flokksforystuna.
Pétur Ottesen var kvæntur
Petrínu Helgu Jónsdóttur frá
Káraneskoti í Kjós.
Hans mun nánar verða getið í
íslendingaþáttum Tímans.
Nærmynd af mánanum, jörðin sést í fjarska.
ÓEIRÐIR
Framhald af bls. 16.
stað frá Austurvelli og gekk und
ir fánum og spjöldum beint í flas-
ið á fjölda lögreglumanna, sem
höfðu raðað sér þvert yfir endann
á Austurstræti við Lækjargötu.
Fjöldi manns varð vitni að þegar
fylkingunum laust saman. Stóðu
lögreglumenn fast fyrir en urðu að
hörfa í fyrstu undan þunganum
og bai'st þá liðsauki og þokaðist
nú þvagan niður í Austurstræti aft
ur. Einkennishúfur lögregluiþjón-
anna flugu eins og skæðadrífa um
loítið og fánastengur, spjöld og
kylfur voru á lofti.. Margir göngu
manna komust aftur fyrir varnar-
vegg lögreglunnar og upp í Banka
strætið en héldu þó ekki áfram
göngunni heldur reyndu að ryðj-
ast aftur fram fyrir lögregiuþjón-
ana til að ryðjast að þeim framan-
frá aftur.
Svona var þvælst um fram og
til baka í nær 40 mínúttir. Spjöld
og fánar voru lengi vel á lofti en
fækkaði ef.tir því sem á leið og
sama er að segja um húfur lög-
reglumanna.
Eins og fyrr segir var fjöldi
manns í miðbænum í verzlunarer-
indum og lentu margir vegfarend-
ur í stimpingum, sumir óvart, en
aðrir til að taka þátt í bardagan-
um. Sumir reyndu að veita lögregl
unni lið, en það var heldur illa
þegið og þótti lögreglumönnun-
um orðin erfið aðstaða að þurfa
bæði að fást við göngumenn og
vernda þá fyrir mönnum sem vildu
aðstoða verði laganna. Talsverð
hætta var á að þarna træðist fólk
undir, en svo varð ekki. Einkenn-
ishúningur sumra lögreglumann-
anna voru illa leiknir eftir að-
gerðirnar. M.a. voru skorin klæði
utan af einum lögregluiþjóni. Var
sá sem hafði hnífinn á lofti hand-
tekinn.
Forsprakkar göngumanna voru
sumir hverjir handteknir fljót-
lega og um síðir komst ró á. Alls
voru 12 menn handteknir. Var
þeim haldið fram yfir miðnætti
og sleppt siðan. Hafa þessir menn
verið kærðir til sa'kadómara fyrir
sakir sem þær að sparka í
lögreglumenn, ber'ja þá og hræ'kja
á þá og skemma einkennistoúninga
Nókkrir vegfarendur urðu fyrir
meiðslum, sumir af völdum lög-
reglumanna, en þetta fólk lenti
inni í þvögunni, mest fyrir for-
vitni og óaðgæzlu. Nokkrir aðilar
hafa komið á lögregluvarðstöðina
til að kæra lögregluna fyrir mis-
þyrmingar á sér. Var þeim vísað
til sakadómara með kærurnar. í
dag hafði embættinu ekki toorizt
neinar kærur frá þessu fólki.
KYRRLÁT
Framhald af bls. 16.
kvatt út, en hvergi var um al-
varlega bruna að ræða.
Á Akureyri voru hvít iól hald
in í stillu og Jöluverðu frosti.
Hátfðin fór hið oezta fram, kirkju
sókn var mikil, jg ekki urðu veru
leg óhöpp jóladagana. Þó var
slökkvilið Akurevrar kvatt að
Fjólugötu 5 á jóiadag. Þar hafði
kviknað í eldhúsrofti. os þrátt fyr
ir að slökkvistarfið hefði gengið
vel, urðu allmiklar skemmdir af
eldi og vatni. Fvri? hádegið á að
fangadag urðu fimm minniháttar
árekstrar í umferðinni um mið
bæinn, sem var gríðamikil. Á
jóladag urðu einnig smáárekstrar.
skemmdir á bílum urðu litlar, og
engin meiðsli á mönnum.
Ljósadýrð var í Akureyrarhöfn
um hátíðina, því skip SÍS, Helga-
fell og Dísai-fell og Mánafoss Eim
skipafélagsins voru þar stödd.
Nokkrir síldarbátar láu einn'g
í höfn, A'kureyrarbátarnir Súlan
og Snæfell og slangur af aðkomu
bátum. Allir Akureyrartogararnir
voru á veiðum um jólin. Nú standa
jólaböll barnanna yfir, og ára-
mótaundirbúningun er í fullum
gangi. Leyfi hefur verið fengið
fyrir 17 áramótabrennum hjá lög
reglunni á Akureyri. Þær stærstu
verða á Klöppunum við Þórunn-
arstræti, og Krókeyri fyrir innan
bæ og á auðu ^væði á Oddeyri,
skamm't frá Slippstöðinni.
ÞREFALT
SYSTKINA
BRÚÐKAUP
Þ.Þ.-Reykhólum, 9. des. 1968
Á sunnudaginn var haldið þre-
falt systkinabrúðkaup á Brjáns-
læk á Barðaströnd. Gifti þá Guð-
mundur Einarsson, bóndi á Brj«Ans
læk 3 dætur sínar þrem bræðr-
um, og eru þeir synir Þórðar
Njálssonar, bónda og kennara á
Auðkúlu.
Prófasturinn í Barðastrandar-
sýslu, séra Þórarinn Þór á Reyk-
hólum vígði brúðhjónin í kirkj-
unni á Brjánslæk að viðstöddum
nær hálft hundrað gestum. Flaug
hann vestur á Barðaströnd á laug
ardag með flugvél frá Flugþjón-
ustu Björns Pálssonar, sem kom
til Reykhóla með lækni úr Reykja
vík.
Að lokinni hjónavíxlunni var
efnt til veglegrar brúðkaupsveizlu
á heimili Guðmundar Einarssonar
og konu hans Theódóru Guð-
mundsdóttur og var þar vel veitt
i mat og drykk og stóð veizlan
langt fram á nótt við glaum og
gleði.
Brúðirnar heita í aldursröð:
Hildigunnur Guðmundsdóttir, sem
giftist Hreini Þórðarsyni; Ragn-
hildur Guðmundsdóttir, sem gift-
ist Sigurði Þórðarsyni og flytjast
þær með.eiginmönnum sínum norð
ur í Auðkúlu, þar sem bræðurn-
ir báðir eru bændur. Yngsta dótt
irin, Hildur Inga Guðmundsdóttir
giftist Þorkeli Þórðarsyni og verð
ur heimili þein-a fyrst um sinn
á Brjánslæk.