Tíminn - 12.02.1969, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.02.1969, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. wrnrn 35. tbl. — Miðvikudagur 12. febr. 1969. — 53. árg. Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323. Ólafur Jóhannesson, formaóur Framsóknarflokksíns, í vidtali við Tímann: Þingrof og mgar i Aðeins alger stefnubreyting í atvinnu- og efnahagsmálum getur bætt úr því alvarlega ástandi, sem nú ríkir í landinu. Eitt ár á ísnum EJ-Reykjavik, þriðjudag. — 21. febrúar næstkomandi — eftir að- eins 10 daga — er eitt ár liðið síðan fjórir menn hófu ferð sína á hundasleðum frá Point Barrow í Alaska yfir Norðurheimsskautið til Svalbarða. Áætlað var, að ferð in tæki öll 16 mánuði — en nú eru tæpir 12 mánuðir farartímans liðnir og enn er um helmingur leiðarinnar eftir. Leiðangursmenn verða því að leggja að baki á 100 dögum jafn Ianga leið og þeir hafa farið til þessa — og í skeyti frá leiðangursstjóranum, Wally Herbert, á dögunum segir, nð Ieið angursmennirnir séu staðráðnir í að halda þá áætlun og koma til Svalbarða í júnímánuði næstkom- andi. Ferðalag fjórmenninganna gekk illa í fyrra, einkum vegna þess hversu ísinn reyndis.t illur yfir- Framhald á bls. 14. SEÐLABANKINN OG LANDSBANKINN LÝSA YFIR: SÍS ER SAKLAUST FISKSÖLUMÁLUNUM KrÞ-Reykjavík, þriðjudag. ★ f dag barst Tímanum fréttatil- kynning frá Seðlabanka fslands og Landsbankanum, þar sem skýrt er frá því, að ekkert athugavert hafi komið í ljós við þá rannsókn, sem fyrrgreindir bankar létu gera vegna dráttar á greiðslu andvirð- is freðfisks, sem fluttur hafði ver- ið út af sjávarafurðadeild SÍS. ★ Þá er skýrt frá þvi, að bank- arnir hafi krafizt þess við upphaf málsins, að Sverri Magnússyni, framkvæmdastjóra Iceland Prot- duct Inc., yrði vikið úr starfi á meðan rannsókn stæði yfir. En 11. júní 1968 tilkynntu bankarn- ir umboðsmanni Sverris að for- sendur fyrir brottvikningu væru ekki lengur fyrir hendi. ★ f fréttatilkynningunni er því lýst yfir sérstaklega, að ekki hafi verið um misferli að ræða varð- andi gjaldeyrisskil. Jafnframt er skýrður drátturinn á greiðslu af- urðaandvirðisins. Mikið verðfall varð á hraðfrystum fislci á Banda- rikjamarkaði seinni hluta árs 1966 og höfuðástæðan fyrir greiðslu- drætti var sú staðreynd, að SÍS tók á sig verðfallið, sem annars hefði lent af fullum þunga á hrað- frystihúsunum. Stjórn SÍS hefur greitt Landsbankanum þetta fé að fullu. Fróttatilkynning bankanna fer hér á eftir: „Hinn 15. febrúar 1968 til- Framhald á bls. 14. SAMIÐ í NÓTT? EJ-Reykjavfk, þriðjudag. Elukkan 20,30 í gærkivöldi hófst sáttafundur í sjó- mannadeilunni, og stóð Framhald á bls. 15. ALGJORT NEYÐARASTAND I hOsnædismAlum háskúlans SJ-Reykjavík, þriðjudag. Mikið vandræðaástand ríkir nú í húsnæðismálum Háskóla íslands. Óhætt er að fullyrða, að af þessum sökum sé nú orð- ið mun erfiðara fyrir stúdenta að ljúka námi sínu en áðm var. Á næstu árum kemur fjöldi stúdenta til með að vaxa gífurlega, má jafnvel búast við að hann tvöfaldist á næstu þremur árum. Af þessu má sjá að algjört neyðarástand er vfirvofandi í málum Iláskólans verði ekki eitthvað að gert og það hið fyrsta. En verði svo ekki mun Háskóli íslands ekki geta gegnt hlutverki sínu og má jafnvel segja að beinast liggi við að loka stofnuninni. Húsnæði Háskólans sjálfs er gjörnýtt frá því kl. 8 á morgn ana til 6 og 7 á kvöldin, en einnig er kennt í leiguhúsnæði á öðrum stöðum í borginni. Að sókn að sumum greinum er orðin það mikil, að nemendur fá ekki allir sæti i kennslustof um, verða að standa upp á endann eða sitja á gólfinu. í þessum troðfullu stofum vill bera við að þeir nemendur sem aftast sitja heyri illa til prófessora sinna eða nemendur verði fyrir öðrum truflunum vegna þessa mikla fjölda nem enda. Þá eru stundatöflur margra nemenda Háskólans ó- þægilegar vegna þrengsla í r’ramnaiC - ols M TK-Reykjavík, þriðjudag. „Ef frumvörp oy tillögur Fram sóknarmanna, sem lagðar hafa verið fyrir Alþingi, næðu fram að ganga, myndi það hafa í för með sér gerbreytta og heillavænlegri stefnu í atvinnu- og efnahagsmál- um landsins“, sagði Ólafur Jó- hannesson, formaður Framsókn- arflokksins, í viðtali við Tímann í dag. „Framsóknarflokkurinn hef ur nú útfært í einstökum atrið- um í formi þiugmála þá stefnu og afstöðu til vandamála efna- hags- og atvinnulífsins, sem hann lagði áherzlu á í viðræðum stjóm málaflokkanna í haust. Það er þvi eins ljóst og frekast má verða, hver stefna og afstaða flokksins til þessara mála er. Þessi fmmvörp scm við höfum flutt, eru bæði um bráðabirgðaráðstafanir nú þegar til að bægja frá vanda i vissum greinum, en einnig um frambúð- ar skipan atvinnu- og efnahags- málanna. Við teljum, að nú liggi nægjanlega ljóst fyrir, að stjóra- arstefnan hefur gengið sér alger- lega til húðar og að vandamál efnahags- og atvinnulífsins verði ekki leyst nema tekin sé upp ný stefna. Við teljum atvinnuíeysis- vandamálin orðin svo geigvænleg að til þurfi að koma snör hand- tök og tafarlausar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar og Alþingis. Forsætisráðherrann hefur nú við- urkennt að útdeiling 300 milljón- anna muni taka all langan tíma, en hér má engum tíma sóa, á- standið er orðið svo alvarlegt og lireint neyðarástand í ýmsum plássum. Sjómannadeilan á sinn þátt í því og svo lítið virðist bera á milli núna, að >verjandi er að leysa málið ekki þegar í stað. Ríkisstjórn, sem getur ekki stjórn að og beðið hefur algert skipbrot, á að víkja. Það á að rjúfa þing og leyfa þjóðinni að kveða upp sinn dóm. Það virðist eina leiðin til að knýja fram nauðsynlega stefnubreytingu“. Tíiminn sneri sér í dag til Ólafs Jóhannessonar, forimanns Fram- Framhald á bls. 2. Ólafur Jóhannesson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.