Tíminn - 09.03.1969, Qupperneq 7

Tíminn - 09.03.1969, Qupperneq 7
\ SUNNUDAGUR 9. marz 1969. TÍMINN 7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson. Rltstjórar: Þórartnn Þórartnsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriBl G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs- ingastjóri: Steingrimur Glslason Ritstjómarskrtfstofur 1 Eddu- húsinu, símar 18300—18306 Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusími: 12323. Auglýsingasimi: 19523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 150,00 á mán. innanlands — f lausasölu kr 10.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h.í. Raunhæf þróun atvinnuveganna Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri Rann- sóknaráSs ríkisins, flutti fyrir nokkru mjög fróölegt er- indi í Framsóknarfélagi Reykjavíkur um raunhæfa þró- un atvinnuvega. Útdráttur úr því hefur verið birtur hér í blaðinu. Eins og þar kom fram, rakti Steingrímur einkum þá möguleika, sem virðast fyrir hendi til að auka fjölbreyttni atvinnuveganna og skjóta þannig nýjura stoðum undir afkomu þjóðarinnar. M. a. reyndi Stein- grímur að skipa þessum möguleikum í ákveðna flokka eftir því, hvað mætti telja öruggt og framkvæmanlegt í náinni framtíð og hvað þyrfti nánari athugun og und- irbúning áður en hægt væri að hefjast handa. Meðal þess, sem Steingrímur taldi öruggt og fram- kvæmanlegt í sambandi við sjávarútveginn, voru endur- bætur á frystiiðnaðinum, niðursuða, vinnsla nýrra hrá- efna (t. d. loðnu, spærlings og sandsílis) og aukin rækjuveiði. í sambandi við landbúnaðinn nefndi Stein- grímur fullnýtingu á ull og gærum, minkaeldi, fiskeldi og gróðurhúsarækt. í sambandi við smærri iðnað nefndi hann eina þaraþurrkstöð, 3—4 þangvinntelustöðvar, auk- inn keramikiðnað, skipasmíði, vefnað og byggingarefni ýmiskonar. Á sviði stærri iðnaðar nefndi hann tvöföldun álbræðslunnar, sem mun þegar hafa verið ákveðin, olíu- hreinsunarstöð og stækkun hluta Áburðarverksmiðj- unnar. í framhaldi af þessu nefndi Steingrímur svo ýmsar fleiri nýjar atvinnugreinar, sem enn yrði að telja óviss- ari og fjarlægari, eins og vinnslu skelfisks og mjöls til manneldis, endurbættan kjötiðnað, vinnslu perlusteins og veggflísa, aukna sementsframleiðslu og salthluta sjó- efnaiðju. Loks nefndi Steingrímur í flokki, sem hann taldi mjög óvissann og ólíklegann, basaltbræðslu, ýmsan tækniiðnað, framhald sjóefnaiðju, koparvinnslu, aðra álbræðslu o.fl. Allt þyrfti þetta þó nánari athugunar. Þessi upptalning Steingríms sýnir, að við höfum marga möguleika til að auka fjölbreytni atvinnuvega okkar. Við þurfum að vinna ötullega og markvisst að því að hag- nýta okkur þá. Frumskilyrði þess er að við rannsökum þá sem bezt og reynum að hefjast handa í réttri röð. Þessvegna er slík flokkun, eins og Steingrímur gerði, mjög nauðsynleg, en vitanlega var hér þó ekki um neina bindandi flokkun að ræða, því að nýjar athuganir geta breytt henni. Einnig geta komið til sögu alveg nýir möguleikar, sem menn eygja ekki nú. Þá eru ekki taldar hér ýmsar svonefndar þjónustu- greinar, eins og t. d. aukinn móttaka erlendra ferða- manna, sem á vafalaust eftir að vera vaxandi atvinnu- grein. En öllu þessu þarf að sýna mikinn áhuga. Því miður er flestri rannsóknarstarfsemi okkar mjög áfátt vegna fjárskorts. Úr því verður að bæta. Rannsóknirnar eru undirstaða þess, sem gera skal. Þeir erfiðleikar, sem nú eru, eiga að vera þjóðinni hvatning til aukinna athafna í þessum efnum. Þannig var það á kreppuárunum 1934—39. Þá var ráðist í fyrstu Sogsvirkjunina, frystiiðnaðinum komið á fót og grundvöllur lagður að sements- og áburðarvinnslu, svo að nokkuð sé nefnt. Á sama hátt þarf að vinna nú. JAMES RESTON: Rússar sýna, að þeir eru fúsir tii að semja við Bandaríkjamenn Þessvegna hafa rússnesku blöðin skrifað mjög varkárlega um Nixon Kosygin forsætisráSherra Sovétríkjanna FRÓÐLEGT hefur verið a3 fylgjast með viðbrögðum og athöfnum sovézku stjórnmála- mannanna meðan á Evrópuferð Nixons forseta stóð. Embættis- menn í Moskvu hafa varla bor ið sér í munn yfirlýsingu for- setans um hollustu og tryggð við Vestur-Þjóðverja og At- lantshafsbandalagið. Þeir virð- ast líta svo á, að ferð haus sé kurteisisheimsókn til ná- granna áður en hinn raunveru- lega mikilvægi fundur forustu manna Bandaríkjanna og Sovét ríkjanna hefst. Um ferð forsetans hefur fjölmargt verið sagt, sem fyrr á tímum hefði valdið reiðióp- um í Moskvu. Auðvelt hefði verið fyrir rússneska áróðurs- menn að hafa skraf Nixons um vestræna einingu að háði og spotti í ljósi hinnar opinberu deilu valdamanna í London og París, en þeir hafa verið und- arlega hljóðlátir, að ekki sé sagt hógværir. SATT að segja hafa sovézk- ir stjórnmálamenn gert sér sérstakt og óvenjulegt far um að gera sem minnst úr nýjustu deilu Austur- og Vestur-Þjóð- verja um Berlín. Stappar nærri, að Austur-Þjóðverjum hafi verið gefið í skyn, að Moskvumenn ákvæðu einir stefnuna gagnvart Vesturlönd- um ef og þegar þessi deila kynni að verða til ógagns ósk- um þeirra ,um að komast hjá alvarlegum átökum. Sovézkir embættismenn f Washington, hjá Sameinuðu þjóðunum, og í öllum höfuð- borgum Vesturlanda og hinna nálægari Austurlanda, hafa einnig hvatt eindregið til gætni og hófsemi og staðhæft, að ekki ætti að láta Berlínardeil- una, Vietnamstyrjöldina eða ýfingar á öðrum stöðum, hindra á nokkurn hátt að úr viðræð- um Bandaríkjamanna og Sovét- manna geti orðið um eftirlit með vígbúnáði og átökin milli Araba og ísraelsmanna, svo fljótt sem verða má. 1 þessu sambandi kann að vera táknrænt, að ríkisstjórn Sovétríkjanna hefur ákveðið að Dobrynin ambassador verði kyrr í Washington fyrst um sinn, en ekki kvaddur heim í febrúarlok eins og áður hafði verið tilkynnt. Hann hefur á- unnið sér eins mikið traust áhrifamikilla Repúblikana engu síður en Demókrata í höfuð- borginni og nokkur annar sov- ézkur sendiherra sfðan að kalda stríðið hófst. Þá hefur Dobrynin einnig tekizt að koma á sambandi við Nixon forseta og helztu ráðgjafa hans í utanríkismálum. VERA MA, að þarna sé að einhverju leyti að xinna skýr- inguna á því, hvers vegna sovézkir framámenn hafa ver- ið svo fáorðir um Nixon sem raun ber vitni síðan að hann hlaut útnefningu sem forseta- efni í fyrra, jafn harðorðir ,og þeir voru í hans garð áður. Þetta kann og að skýra, hvers vegna þeir hafa nú verið ó- venjulega og undarlega hófsam ir í umsögnum um Evrópuferð hans og hlýleg ummæli hans um þýzka og vestræna „ein- ingu“. Nixon forseti og aðstoðar- menn hans hafa sýnilega gert sér grein fyrir, hvað þetta táknar. Forsetinn hefur hvar- vetna þar, sem hann hefur komið, lagt á það höfuð- áherzlu, að hann sé trúr og tryggur vestrænu bandalagi, en ætli að ræða við Sovétmenn eins fljótt og við verður komið um þann meginvanda heims- málanna, sem ekki verður leyst ur, nema í samráði við vald- hafanna í Washington og Moskvu. Viðræðurnar milli Sovét- manna og Bandarfkjamanna eru mjög mikilvægar, bæði fyr ir Nixon og leiðtoga Sovétríkj- anna. Evrópumenn geta lítið lagt af mörkum til þess að auðvelda Nixon þann vanda, sem við er að stríða. Hann þarf á að halda samkomulagi um Vietnam og vígbúnaðar- kapphlaupið til þess að geta útvegað það fé, sem hann vanhagar um til þess að geta tekizt á við erfiðleikana heima fyrir í félagsmálum, kynþátta- málum, efnahagsmálum og stjórnmálum yfirleitt. SOVÉTMENN eiga við svip aðan vanda að strfða. Þeir hafa þungar áhyggjur út af Kínverjum og verða að svara kröfum um bætt lífskjör heima fyrir. Þeim veitist eins erfitt að hafa hemil á Aröbum eins og valdhöfunum í Was- hington að hemja ísraelsmenn. Af þessum ástæðum er þeim keppikefli að koma á viðræð- um við Nixon forseta og vilja ekki með neinu móti, að ónauð synlegar truflanir verði út af deilum Frakka og Breta eða jafnvel Berlín meðan svo stendur. Nixon forseti er þetta allt saman vel ljóst og hann hefir búið valdhafana í höfuðborg- um Evrópu undir væntanlegar viðræður við Sovétmenn. Að þessu leyti hefir Evrópuferð hans lániazt eins vel og á verð ur kosið. A'ð öðru leyti hefir ýmislegt sigið á pgæfuhlið. Til dæmis hefir Víetnam-styrjöld- in magnazt að umfangi og ill- I skeytni meðan hann var í burtu, og þetta minnir hann óþægilega á hinn ískalda veru leika. , MANNTJÓN Bandar,íkja- manna i Víetnam hefir að und anförnu verið meira en nokkru sinni fyrr síðan að Nixon flutti í Hvítahúsið. Aðal fyrirsagnir blaðanna fjalla um heimsókn Nixons til valdamanna erlendis og klæðaburð hans og fram- komu. Þetta er skemmtilegt umræ'ðuefni, einkum þó fyrir ritstjóra rabbdálka blaðanna. En vandinn, sem erfiðleikum veldur, snýst um stefnur en ekki klæðnað eða ytri áferð. Og lausnarinnar á vandanum er að leita í Washington og Moskvu en ekki í Evrópu. Sem betur fer, er svo að sjá, að bæði Nixon og ráða- menn Sovétríkjanna hafi gert sér þetta ljóst. Nixon gerir sérstakar gælur við leiðtoga Evrópuríkjanna, en leiðtogarn ir í Moskvu láta þá lönd og lei'ð, — og fyrir báðum vakir nákvæmlega það sama: Þeim er mest í mun að taka megin málin til álita, þegar þar að kemur. Moskvumenn eru reiðu búnir til viðræðna, en hin nýja ríkisstjórn Nixons hefir ekki enn haft tíma til að gaumgæfa málavexti til hlítar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.