Vísir - 20.09.1977, Blaðsíða 2
}
Þriöjudagur 20. september 1977 VISIK
C
á Lœkjartorgi
.."V........
3
Hvað finnst þér um iðn-
kynningarframkvæmd-
irnar á þessum stað?
simstjóri: Mér finnst sérstaklega
gaman aö sjá hér gegnum hljóð-
múrinn eftir Asmund, en þaö er
leitt aö hún skuli ekki fá aö vera
lengur á landinu. Annars vona ég
aö þessar framkvæmdir nái til-
ætluðum árangri, aö kynna reyk-
vfskan iönaö.
Ilalldór Grönvold, nemi: Ekki
neitt, — ég hef ekkert kynnt mér
þetta.
Ililmar Báröarson, bygginga-
maöur: Mér finnst þetta nú bara
nokk i lagi, þaö sem ég hef séð.
Fjóla Bender, afgreiöslustúlka:
Mér finnst gosbrunnurinn fall-
egur, og þaö er tilbreyting að
þessu, en ég veit ekkert um
árangurinn.
Hanna Bára Guöjónsdóttir, vinn-J
ur á Torginu: Mér finnst þetta|
bara skemmtilegt. Ég sá iðn-|
kynninguna á Egilsstöðum, og|
hún var mjög athyglisverð, þó aö|
hún væri ekki eins mikil um sig ogl
þessi. I
Fœr Orkubú
Vestfjorða
milljarða
eignir fyrir
500 milljón-
ir króna?
V__________________J
Með stofnun Orkubús Vest-
fjaröa var aö ýmsu leyti mótuö
ný stefna I orkumálum okkar ts-
lendinga. Allir samningar rikis-
stjórnarinnar viö Orkubúið
hljótaþviaö veröa teknir til fyr-
irmyndar þegar aörir lands-
hiutar stofna eigin orkuveitur,
sem allt útlit er fyrir aö veröi
innan tiöar.
t samningum Orkubús Vest-
fjaröa viö iönaðarráöherra hef-
ur veriö gert ráð fyrir að Orku-
búinu verðiafhentarallar eignir
Raf magnsveitna rikisins á
Vestfjörðum gegn þvi aö Orku-
búið taki á sig 500 milljóna
króna skuldir sem hvila á eign-
unum. Bókfært verð eignanna
er nú 3-3,5 milljarðar króna.
Visi tókst ekki aö ná tali af
Gunnari Thoroddsen iðnaðar-
ráöherra til aö fá tölur þessar
staöfestar, en Páll Flygenring
ráðuneytisstjóri i iðnaðarráðu-
neytinu staöfesti að þessi upp-
hæö hafi verið nefnd.
Páll sagði aö Rafveitur Isa-
fjaröar og Patreksfjaröar og
Hitaveita Suðureyrar legðu
einnig fram eignir til búsins,’en
sveitarfélögin á Vestfjörðum
eiga 60% i Orkubúinu á móti
40% rikisins.
Verðjöfnunargjaldinu
skipt
Þá staðfesti Páll að ráöherra
hafi heitið þvi að rikisstjórnin
myndi beita sér fyrir þvi á Al-
þingi þaö Vestfiröingar fengju
20% af svokölluðu verö-
jönfunargjaldi, en það hefur
veriö 13% skattur á smásölu-
verð allrar raforkusölu til al-
mennra nota i landinu. Hefur
verðjöfnunargjaldiö verið notaö
til þess að greiöa raforkudreif-
ingu Rafmagnsveitna rikisins
til landsbyggöarinnar.
Samtimis þessari skeröingu
verðjöfnunargjalds sagöi Páll
að Rafmagnsveitur rlkisins
losnuöu viö tapið af rekstrinum
á Vestfjörðum.
Háspennulina úr
Hrútafirði
A stofnfundi Orkubússins lýsti
iðnaðarráðherra þvi jafnframt
yfir aö hann heföi falið Raf-
magnsveitum rikisins aö gera
áætlun um kostnaö viö lagningu
háspennulinu úr Hrútafirði aö
Mjólkárvirkjun. 1 framhaldi af
þvi yröi siöan fjárlagatillaga
undirbúin og er þaö siöan á
valdi Alþingis hvort rikissjóður
tekur aö sér þann kostnaö sem
þeirri linubyggingu fylgir, en
hann mun vera áætlaöur um 2,5
milljarðar króna.
Ekki vist að meira
lendi á ríkinu
Páll Flygenring sagöi aö til-
gangurinn meö þessum eigna-
og teknatilfærslum til Orkubús
Vestfjarða væri sá að Orkubúið
gæti staðið undir sér og Vest-
firðingar þar með setiö viö
sama borö og aörir landsmenn
hvað varðaði raforkuverö.
Ýmsir hafa orðið til þess að
benda á að yfirfærslur þessar
þýði stóraukin útgjöld rikissjóös
til raforkuiðnaöar, auk þess
sem Rafmagnsveitur rikisins
missa þarna tdtjustofn. Hafa
milljarðar króna veriö nefndir I
þessu sambandi.
Páll sagöi aö veriö gæti að
rikissjóður muni taka við aukn-
um skuldum af Rafmagnsveit-
um rlkisins viö þessar breyting-
ar. Þó sagði hann að ekki væri
vist að rikissjóður yrði fyrir
auknum útgjöldum við þetta og
taldi jafnvel að þau myndu
minnka i framtiðinni.
—SJ
Glœsileg
verðlaun í
nýju sntá-
auglýsinga-
happdrœtti
Vísis
Nýtt og glæsilegt smá-
auglýsingahappdrætti
Vísis er nú hafið. Vinn-
ingur er ekki af lakara
taginu, hljómf lutnings-
tæki af ullkomnustu gerð.
Hér er um að ræða Ken-
wood plötuspilara, magn-
ara, tvo hátalara og kas-
ettu segulbandstæki.
Þessi tæki kosta um 275
þúsund krónur út úr búð i
dag, en það er Fá Ikinn við
Suðurlandsbraut sem er
með umboð fyrir hljóm-
f lutningstækin.
Allir þeir sem koma
smáauglýsingu í Vísi á
næstu vikum verða um
leið þátttakendur i þessu
glæsilega happdrætti án
nokkurs aukakostnaðar.
Dregið verur þann 15.
október.
—SG
Arný Leifsdóttir starfsstúlka Fálkans kynnir hér hin fullkomnu hljómflutningstæki sem dregið verður
um I smáauglýsingahappdrætti Visis.
(Ljósm.: Ege)