Vísir - 16.10.1977, Blaðsíða 5

Vísir - 16.10.1977, Blaðsíða 5
VISIR Sunnudagur 16. október 1977. 5 EGAR BOXAÐ VAR Á ÍSLANDI! Hnefaleikaíþróttin barst fyrst hingaö til lands í kringum 1920. Fljótlega upp úr því var farið að iðka þessa iþrótt af miklu kappi hér undir leiðsögn þeirra Þorsteins Gislasonar og Guðmund- ar Arasonar, en þeir höfðu báðir haft talsverð kynni af iþróttinni. Þorsteinn hafði kynnst hnefaleikum í Dan- mörku, iðkað þá þar og numið margt af færum þjálfurum Dana. En þeir sem kenndu Guðmundi „leyndardóma" íþróttar- innar fyrst og fremst voru Guðjón Mýrdal, Norðmaðurinn Rögnvald Kjellvold, Sveinn Sveins- son og ekki hvað sist Pét- ur Wigelund. Þorsteinn Þeir félagar hófu kennslu hér á landi, Þor- steinn hjá KR og ÍR, en Guðmundur hjá Ar- Guömundur manni. Helgarblaðið hitti þá félaga að máli á dögun- um. Með þeim kom til Birgir fundar við okkur Birgir Þorvaldsson, margfaldur meistari i hnefaleikum hér áður f yrr, og formað- ur Hnefaleikaráðsins á þeim tíma er iþróttin var bönnuð hér á landi og iðk- un hennar lagðist niður. Það skal tekiö skýrt fram, að Vísir leggur engan dóm á það sem fram kemur i frásögnum hér á eftir. Þetta var mikið hitamál á sinum tíma, og hér eru það ein- ungis skoðanir manna sem framarlega stóðu í hnefaleikahreyf ingunni sem fram koma. Þá ræddum við einnig við Kjartan Johannsson lækni, en hann var annar tveggja þingmanna sem fluttu tillögu á Alþingi þess efnis að hnefaleikar skyldu bannaðir á is- landi, og var sú tillaga samþykkt. „ÞAÐ ÁTTU SÉR ALDREI STAÐ NEIN MEIÐSLI" - UM ENDALOK HNEFALEIKANNA Á ÍSLANDI OG FLEIRA MERKILEGT í SAMBANDI VIÐ BANNIÐ Á ÍÞRÓTTINNI Við spurðum þá Guð- mund, Birgi og Þorstein hver hafi verið fyrstu til- drögin að því að hnefa- leikar voru bannaðir á is- landi. Birgir: „Það er engin ástæða til að leyna þvi að sá maður sem fyrstur barðist gegn hnefaleik- um hér á landi var Thorolf heit- inn Smith fréttamaður. Hann hafði þó sýnt þessari iþrótt mik- inn áhuga fram að þvi að þetta kom upp, svo við áttum erfitt með að skilja þessa snöggu hug- arfarsbreytingu. Ég get nefnt sem dæmi aö 1953 skrifaði Thorolf um hnefaleika- keppni sem fram fór á Háloga- landi og skrifaði þá m.a.: „Þar mátti sjá mörg þung högg eins og vera bar. En það meiddist enginn og engin blóögaðist!...” Siðar i grein sinni vék Thorolf að þvi að greinileg hugarfars- breyting hefði átt sér stað hjá hnefaleikaforustunni hvað ruddaskap og hörku varðaöi, og kvað þetta vita á gott. — En ég vil spyrja: Hvað olli þá þessari skyndilegu hugarfarsbreytingu Thorolfs að fara siðan að beita sér fyrir þvi að þessi iþrótt skyldi lögð niður?.” Guðmundur: „Okkur fannst þessi áróður svo mikil vitleysa að við sinntum þvi ekki að svara þessu, — við uggðum ekki að okkur. En svo skyndilega og öllum að óvörum var málið allt i einu Og hafðu þennan! — Hnefaleikakeppni I fullum gangi 1 Hálogaiandshúsinu. Pétur Wigelund er hring dómari og fylgist meö fullur áhuga eins og vera ber.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.