Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 3
Alþýðublaðið 50 ára — 19 Haraldur Guðmundsson Einar Magriússon þeir tekið að sér að prenta blaðið fyrir þau laun, sem Prentarafélagið hafði gert kröfu um í deilunni. Blaðið var síðan prentað á Bergstaðastræt vinu, þar til Alþýðuprentsmiðj- an tók til starfa 1. febrúar 1926. Skömmu eftir að Alþýðu- prent.smiðjan tók við prentun blaðsins var broti þess breytt. Blaðið var stækkað talsvert, dálkarnir urðu fjórir á síðu og síðurnar lengdust að sama skapi. Uppsetning var þó í höf- uðdráttum hin sama og áður, fyrirsagnir flestar eindálka og greinar oftast látnar rekja sig áfram ein af annarri eins og áður. Auglýsingar eru oftast á forsíðu, en þó er ekki að sjá að það verði að algildri reglu fyrr en síðar. Hallbjörn Halldórsson lætur af ritst.jórn um áramótin 1927 til 1928 og við tekur Haraldur Guðmundsson. Haraldur var ritstjóri blaðsins fram á árið 1930, en var þá skipaður banka útibússtjóri á Seyðisfirði og sleppti ritstjórninni. Við blað- inu tók þá fyrsti ritstjóri þess á ný, Ólafur Friðriksson. Ólaf- ur var öðru sinni ritstjóri þar til 19. júní 1933, en í árslok 1932 hafði sú breyting verið gerð á ritstjórninni að stjórn- málaritstjórnin var skilin frá almennri ritstjórn og hafði Ól- afur hina almennu ritstjórn með hendi, en sérstök nefnd annaðist um stjórnmálahliðina. Var sú nefnd skipuð þremur mönnum, Einari Magnússyni kennara, Héðni Valdimarssyni alþingismanni og Stefáni Jóh. Stefánssyni bæjarfulltrúa. Var Einar Magnússon formaður nefndarinnar, og hann tók að öllu við ritstjórn blaðsins um sumarið þegar Ólafur hætti endanlega. Einar var þó ekki ritstjóri nema til 1. október um haustið; þá varð Vilhjálmur S. Vilhjálmsson ábyrgðarmaður um skeið, en á afmælisdegi blaðsins 29. október kom blað- ið út i gjörbreyttri mynd. Finn- bogi Rútur Valdimarsson var orðinn ritstjóri blaðsins og þar með hélt nútíminn innreið sína í íslenzka blaðamennsku. Verð ur sú saga sem síðan hefur gerzt rakin í öðrum greinum í þessu blaði. Kristján Bersi Ólafsson. Það er hagkvæmf að skipta við HAGFRENT HAGPRENT hf. Sætúni 8 — Reykjavík — sími 21650. Óskum Alþýðublaðinu til hamingju í tilefni 50 ára af- mælis bess. Á. JÓHANNSSON & SMITH ALLTAF FJOLCAR VOLKSWAGEN VOLKSWAGEN árgerð 1970 er kornin V. W. 1200 Vélarstærð 41,5 hö. öryggis stýrisás. — Öryggis stýrishjól. Tvöfalt bremsukerfi. Fáanlegur með sjálfskiptingu. V. W. 1300 Vélarstærð 50. hö. öryggis stýrisás. — öryggis stýrishjól. Tvöfalt bremsukerfi. — Loftræstikerfi. Fáanlegur með sjálfskiptingu. V. W. 1500 Vélarstærð 53 hö. öryggis stýrisás. — öryggis stýrishjól. Tvöfalt bremsukerfi. — Diskabremsur að framan. Loftræstikerfi. Fáanlegur með sjálfskiptingu. Öryggisbelti VÉLA-ENDURBÆTUR. — Þessar véla-endurbætur hafa verið gerðar á V.W. 1200 — 1300 og 1500. Stærri olíugöng. Nýr oliuþrýstijöfnunar-ventill, endur- bætt olíuhús, hitastilit inntak fyrir heitt loft á blöndung, nýr og endurbættur olíulofthreinsari. Meira öryggi — Meiri þœgindi — Meira notagildi Aðrar endurbætur á V. W. eru t. d. að nú eru felgur málaðar í möttum krómlit, fleiri lóðrétt loftinntök eru á vélarloki V. W. 1500. Hitastreymilokur frammí að neðan hafa verið endurbættar. Stuðarahorn með gúmmí eru fáan- leg á 1300 og 1500 gerðimar. Útblásturskerfi vélanna hefur verið breytt til samræmis við nýjar reglur í Evrópu, varðandi afgas. Auk þess er hægt að fá lúxus útbúnað á 1300/1500 gerðirnar, sem býður upp á skemmtilegra útlit og aukin þægindi. Ódýr í rekstri — Auðveldur í akstri — Cáð þjónusta Volkswagen breytir ekki um útlit, — en er árlega endurbættur. Allar þessar geröir Volkswagen eru með loftkældri vél-, 15" felgum-, sjálfstæðri fjöðrun á hverju hjóli — sjálfvirku innsogi — þægilegum og vönduðum búnaði að innan. Varahluta- og viðgerðarþjónustan er landskunn. — Hátt endursöluverð — Þér gerið góða fjárfestingu með því að fá yður VOLKSWAGEN. Sýningarbílar á staðnum, komið, skoðið og reynsluakið Simi 21240 HEKLA hf Laugavegi 170-172

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.