Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 10
26 — AlþýðublaðiððO ára RÆTT VIÐ GISLA J. ASTÞORSSON UM RITSTJÓRASTÖRF HANS GÍSLI J. ÁSTÞÓRSSON var ritstjóri Alþýðublaðsins 1958 til 1963 framan af ásamt Helga Sæmundssyni, en síðar Bene- dikt Gröndal. Þessi ár eru eitt þeirra tímabila er blaðið var mikið keypt, líklega aldrei ver- ið útbreiddara en þá. í því tilefni hefur tíðinda- maður blaðsins átt tal við Gísla sem nú hefur lagt blaðamennsk- una á hilluna. — Alþýðublaðið tók mikl- um stakkaskiptum er þú hófst ritstjóraferil þinn? Hvaða sjónarmið hafðir þú einkum í huga er þú byrjaðir? — Ég trúi því satt að segja að dagblað geti verið hressi- lega skrifað og haft hressilegt yfirbragð og þó verið fröðlegt íog komið víða við og svo þar að auki verið hið þarfasta bar- áttublað. Það sem er dauft og leiðinlegt er ekki ævinlega yf irflóandi af andagift, og það leiðir ekki heldur af sjálfu sér að það sem er flókið og tyrf- ið þurfi jafnframt alltaf að vera merkilegra en hið ein- falda. Ég vildi þegar ég tók við ritstjórn Alþýðublaðsins forð- ast óþarfa mælgi í dálkum þess og skera mjög niður langhunda, en þá veizt bezt sjálfur sem gamall og reyndur blaðamaður hvað það er auðvelt að komast upp með þess háttar kúnstir! Ég lagðist til dæmis öndverð- ur á móti því frá upphafi að pólitískar rséður flokksmanna væru birtar sjálfkrafa, nánast sem einskonar kækur. Ég á ennþá eftir að sjá erlend blöð þar sem lýðræði ríkir birta upp á tvær þrjár siður, jafnvel þó að ekki minni kallar en til dæmis Wilson eða Nixon hafi stigið í stólinn. Aftur á móti hafa góðar ræður það alltaf sér til ágætis meðal annars að ræðumaður segir þó eitt- hvað fréttnæmt og athyglis- vert, og þá er auðvitað sjálf- sagt að birta gullkornin í frétta dálkunum. En það er ákaflega mikið flutt af slæmum ræðum. Hvaða sjónarmið önnur hafði ég í huga þegar við vorum að bylta blaðinu við? Jú, það er ótalið sem hefði kannski átt að koma fyrst. Það var vitan- lega keppikefli mitt að Al- þýðublaðið yrði víðlesið og umtalað blað — já, og líka um- deilt blað ef því væri að skipta — þó að aldrei væri nema vegna sjálfs mín. Ætli nokkuð sé meira sálardrepandi en að vinna við hálfdautt blað, og sem helmingur landsmanna veit varla að er til og hinn Þetta er hin fræga mynd sem kom í erlendum blöðum. Hún var að hrekkja mig. Gísli J. Ástbórsson helmingurinn hefur skömm á? — Þú styttir brot blaðsins, hvers vegna? — Þegar við styttum brot blaðsins, þá var það meðal annars út af því að okkur fannst útlitið snotrara þannig. Þetta var semsagt partur af útlitsbreytingunni sem varð gríðarmikil áður en öllu var lokíð. Við fórum til dæmis úr átta til tólf síðum upp í sextán síður. Svo hafði nýja brotið þann mikla kost, að við skárum okkur úr; ekkert annað blað hafði sams konar brot. Og stutta tízkan okkar bafði fleiri kosti. Við lögðum þá meira en önnur blöð upp úr birtingu athyglis- verða fréttamynda, mynda sem voru meira en síðuskreyting, mynda sem fólk horfði á leng- ur en brot úr sekúndu. Og myndirnar okkar fóru betur í blaðinu eftir að við skárum af því — og sýndust raunar stærri fyrir bragðið, en við fórum ekki hátt með það, ef ég man rétt. — Hver var höfuð orsök þeirrar miklu útbreiðslu sem blaðið fékk í þinni tíð? — Höfuðorsökin var „harð- ur“ fréttaflutningur en sem var líka heiðarlegur, því að við fórum hvorki í manngreinar- álit né skoðuðum gaumgæfi- lega pólitísku mörkin á mönn- um áður en við sögðum af þeim almennar fréttir, góðar eða illar. Ég held, að þetta hafi ekki farið fram hjá fólki og komið því notalega á óvart, sjáifskipaðir „ritstjórar“ og baktjaldamenn gáfu mér nátt- úrlega marga skammademb- una fyrir uppátækið — sem unun var á að hlýða. Áki Jak- obsson var formaður blað- stjórnar þegar ég var ráðinn á Alþýðublaðið. Hann reyndi aldrei að bola mér frá rit- vélinni. Við vorum ekki alltaf hjartanlega sammála um aðal- atriðið, nefnilega að ritstjór- inn ætti merkilegt nokk að rit- stýra skútunni. Maður var ekki aldeilis ber að baki með Áka sem oddvita blaðstjórnar. — Framlag hans var ómetanlegt. Ég stend í þakkarskuld við hann — og það gera raunar fleiri. Auk þess sem við vorum ó- feimnir við að segja fréttir, þá vorum við iíka þó að óg segi sjálfur frá, ekki ósjaldan fyrst- ur með þær. Við fengum líka oftar en einu sinni að eiga stórfbréttir nánast einir — væntanlega á st'undum að minnsta kosti af því þeir sjálf- skipuðu á hinum blöðunum tóku völdin af blaðamönnun- um. Fréttirnar eru semsagt núm- er eitt að mínum dómi, úr því maður er að reyna að heita fréttablað. Og loks var blaðið svo iánsamt að hafa alltaf á að skipa tveimur þremur afbragðs blaðamönnum sem gengu í slaginn af lífi og sál. Þeir voru naskir og útsjónasamir og sprettharðir og hvergi bangnir. — Ertu feginn að hafa skil- ið við blaðamennsku eða sakn- arðu hennar? — Jú, ég sakna blaðamennsk- unnar stundum, einkanlega þegar eitthvað stórt er að ger- ast. Og ég sakna félagsskapar- ins og þessa sérstæða, ólýsan- lega andrúmsloft sem er á rit- stjórnarskrifstofum og í blaða- prentsmiðjum þar sem og þeg- ar hlutirnir eru í lagi. Pólitík- in er dragbítur að vísu — þó hún þurfi að sjálfsögðu ekki að vera það, samanber það sem ég sagði áðan um erlendu blöðin — en blaðamaðurinn hefur allt um það á sína vísu öllu meira olnbogarými — frjálsræði — en menn í öðrum stéttum. Hann hlýtur að hlýða ritstjóra sínum, rétt eins og há- setinn hlýðir „kallinum,“ en blaðamaðurinn er samt æði oft einn á'bát þegar á reynir, sem sagt þegar hann er að eltast við fréttina. Þá segir það strax til sín, hvort hann er góður blaða- maður eða bara miðlungsgózð-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.