Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 29.10.1969, Blaðsíða 13
Benedikt Gröndal hvers konar málefnum sem að útvegi og sjómennsku lúta. Og alls konar aukablöð önn- ur hafa komið út eftir hentug- leikum. . Eitt er það verkfæri sem meira hefur verið formælt á Alþýðublaðinu heldur en öðr- um, og það er pressan, þ. e. prentvélin. Hún er nú orðin 22 ára og furða að hún er enn í heilu lagi svo mögnuð fúk- yrði sem hún hefur fengið um dagana. Þegar hún kom ný til landsins 1947 var hún allra yndi. íslenzk dagblöð voru þá prentuð í þess konar prentvél um og enginn hugsaði svo hátt i alvöru að fá sér rótasjóns- pressu. En nú seinni árin er henni kennt um allar vammir ,og skammir sem f-yrir koma. Satt er það að hún er orðin 'gömul og skilar blaðinu stund- um kámugu og gráu, enda er það hún sem hefir sett það á prent þessi ár, og það er alveg sérstök tilfinning sem fylgir því að heyra þunglamalegt ganghljóð hennar berast uppá ritst j órnarskrif stofurnar neð- an úr kjallaranum. . —v-— Saga á víst að vera virðu- leg. En þetta 'er ekki saga, þetta er bara spjall. Þess vegna er óþarfi að láta undir höfuð leggjast að minnast skoplegra atvika. Sumar prentvillur eru hrein ar skrýtlur, en maður getur samt ekki glaðzt yfir þeim nema þær séu leiðréttar áður en blaðið fer í prentvélina. Ýmis önnur atvik geta líka verið spaugileg, jafnvel við- töl. Höfuðverkefni blaðamanns eru alls konar viðtöl við fólk, sum bein biaðaviðtöl, sum við töl til að afla frétta eða ein- hverrar nauðsynlegrar vit- neskju. Blaðamaður talar mik- ið, gerir mikið að því að hringja í fólk. Og stundum hringir fólk í hann og þá ekki -alltaf í góðu skapi. Gylfi Gröndal Hér kemur eitt viðtal sem ekki var meiningin að birta í blaðinu: Einhverju sinni henti það að nokkurra línu klausu vantaði í einn dálkinn þegar átti að fara að loka blaðinu. Eg bjó þá til örstutta frétt, ef frétt skyldi kalla, til að fylla þá eyðu, en gallinn var bara sá að hvern- ig sem ég leitaði í huga mér mundi ég ekki eftir neinu sem unnt var að nota nema helzt því að lögreglan hafði sagt mér að kona nokkur hefði dottið í stiga vestur í bæ, látið kalla á sjúkrabíl og lögreglu, en reynzt alls óslösuð, þegar hún var rannsökuð uppá Landspítala. Þetta var vandræðaleg lausn, ég skal viðurkenna það, en það var enginn tími til neins, blað- ið var að fara í prentun. Daginn eftir fékk ég upp- hringingu, og ég skrifaði við- talið upp strax og því var lok- ið þótt ekki væri það ætlað til þirtingar. — Alþýðublaðið? (Það er hvatskeytsleg konurödd í sím- anum.) Get ég fengið að tala við manninn sem skrifaði frétt ina um konuna sem datt í stig- anum? — Þetta er hann. — Hvaða leyfi hafið þér til að segja frá svonalöguðu? (Enn háværari) Einsog það sé ekki einkamál hvort maður dettur heima hjá sér eða ekki. — En þér létuð kalla á lög- reglu og sjúkrabíl svo þetta er komið í dagbækur þeirra . . . — Eg held því fram að þetta sé einkamál jafnvel þótt mað- ur sé fótbrotinn, en ég var ekki fótbrotin sem betur fer, eða eruð þér ekki sammála um að það sé betra, ha? — Jú, frá. — Eg heimta að þér biðjizt afsökunar, biðjizt opinberlega afsökunar fyrir þetta. Þér heyr ið það. Og svo er ég alls ekki frú. — Fyrirgefið ungfr . . . . fröken, meina ég. En fyrir hvað Framhald á bls. 57 Notið sumarmánuöina til endurbóta d hitakerfinu í húsakynnum ydar Ef þér viljið ná himun fullkamnu hitaþa'gindum og jafnframt lœkka hitakostnaðinn, þá a-ttuð þér að líta mcð gágnrýni' á hanðstilltu lokana og láta setja Danfoss hitastýrða ofnventla í stað þeirra. Ðanfoss hitastýrða ojhloka getið þér sttflt' á þa<y hitastig, sem ' U. hentur yður hezt i hverju herhergi, og hitinn helzt jajh og stöðugur, án tillits til veóurs og vinda. Dunfoss ojhhitastillana má setja á allar gerðir miðstöóvarofna. Látið sérfraóinga okkar leiöbeina yður. Kostnaóurinn er minni en þér haldió. Danjoss ofnhitastillir yjjwssrð* er lykillinn að þœgindum KENTÁR rafgeymar, í bifreiðar, báta og vinnuvélar, 36 mismunandi stærðir, í allar bifreiðar, m.a. Cortina, VW, Skoda 1000, MB, Vauxhall, Fiat, Renault. — Þér getið fengið K iE N T Á R rafgeyma |hvar sem er á landinu, eða tilsenda gegn póstkröfu, bar (sem ekki er umboðsmaður. 1 - M>*J=-M^F3F=-|F^EDI SÍfS/ll SI2T7S Sölustaðir í Reykjavík, Rafgeymahleðslan, Síðumúla 21, Egill Vilhjálmsson, Lauga- vegi 118, Hamarsbúðin h.f., Hamarshúsi og víðar. 1 .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.