Vísir - 04.12.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 04.12.1977, Blaðsíða 2
Sunnudagur 4. desember 1977. VISIH TEXTI: GUÐJON ARNGRIMSSON i dag veröur sett KSI þing á Akureyri. Eins og knattspyrnu- mönnum er kunnugt hefur þetta þing æösta vald i málefnum knattspyrnunnar á tslandi. Þar er stjórn kosin og allar breytingar á lögum sambandsins þurfa sam- þykki þingsins. Sjálfsagt veröa, eins og fyrri daginn mörg mál tekin fyrir á þinginu á Akureyri. Þó má búast viö aö eitt mál veröi kannski öör- um frcmur i sviösljósinu, enda boöar þaö stórbreytingu, nái þaö frain aö ganga. Þaö er breyting á núverandi deildarfyrirkomulagi. Kélögin sem leika i annarri deild hafa skipst á bréfum um þessi mál og nokkur þeirra hyggj- ast leggja fyrir þingiö tillögur til breytinga. Ilelgarblaöiö rahbaöi viö for- ráðamenn sumra þessara liða og spurði þá álits á núvcrandi fyrir komulagi, og forvitnaðist jaf Iramt um leiöir til úrbóta. ,.Þeir fá allar tekjurnar — viö þurfum að borga brúsann” — Segja má að i hnotskurn sé þetta þaö sem forráðamenn liða sem leika i annarri deild islandsmóts- ins i knattspyrnu hafi aö segja um afdrifaríka samþykkt sem gerð var á KSÍ þingi fyrir nokkrum ár- u m. Þá varákveðiðað fjölga liöum I fyrstu og annarri deild tslands- mólsins upp i tíu i hvorri deild. llugmyndin á bak viö þetta var að skapa meiri breidd í islenska knattspvrnu, að fjölga leikjum yfir keppnistimabiliö, lengja það og þannig að auka gæöi knatt- spyrnunnar sjálfrar. Ljóst má vera aö sumpart hcf- ur þetta heppnast. Breiddin i fót- holtanum er sennilega meiri en hún hefur áöur verið og gæða- niunur á 10-12 bestu liðum lands- ins hefur sennilega aldrei verið minni. Einnig má færa rök íyrir þvi að gæöi knattspyrnunnar sé oröin meiri en fyrir þrem til fjór- um árum. Ilinsvegar er hæpiö aö menn hafi gert sér grein fvrir hvernig skiptingin inilli deildanna yrði. Auövitaö er skipt um lið árlega i deildunum —nú fara tvö liö upp i þá fyrstu og i staöinn koma tvö niöur i aöra. Og þannig cr það einnig með aöra og þriöju deild- ina — tvö upp og tvö niður. En hreyfingin er samt ekki eins mikil og menn kunna aö ætla. Þaö eru yfirhöfuð sömu liðin sem hoppa á inilli deilda — upp annað áriö og niður hitt. Klest þau lið sem detta i aðra deild staldra þar stutt við og sömu sögu er að scgja um þá þriðju. Liöin sem leika I annarri deild eru dreiíð uin landiö þvert og endi- langt. Þrjú þeirra eru i Revkja- vik, eitt i Haínarfirði, Sandgerði, Eskifirði, Neskaupstað, Húsavik, Akureyri og isafiröi. Og viöloö- andi deildina hafa veriö liö eins og Reynir á Arskógströnd, Sel- foss, Ólafsvikurvikingar, Vest- mannaeyingar, Þróttur Reykja- vík og fleiri öll sitt úr hvorri átt- inni. Fyrstu deildina skipa hins- vegar lið sem öll utan eitt eru af suö-vesturhorninu. Meðal feröakostnaöur liðs i annarri deild 1977 var einhvers staöar i kringum tvær milljónir — sumstaðar meira og annarsstað- ar minna. Tekjur liöanna af leikj- um sinum voru einhverstaöar i kringum 3 hundruð þúsund. Og þaö þarf ekki aö segja íslending um hvaö þaö er erfitt aö græöa þau 17 hundruð þúsund sem þarna vantar uppá, á einu sumri. Enda reynist það félögunum fullt starf. Eins og eölilegt verður að telj- ast fá fyrstudeildar liðin að jafn- aði mun fleiri áhorfendur á sina leiki en liðin i annarri deild, og þar af lciðandi rneiri tekjur. Það hlýtur þvi eitthvaö að vera bogið einhversstaðar þegar þaö kostar mun meira aö reka annarrar- deildarlið en fvrstudeildarlið. Það þarf jafnniarga leikmenn, þaö þarf völl, þjálfara, búnings- aöstöðu og þessháttar alveg til jafns við það sem þarf i fyrstu deildinni. Lög KSI gera að minnsta kosti ekki greinarmun þar á. Þá þurfa dómararnir sitt eins og i þeirri fyrstu. Megnið af öllu starfi þeirra félaga sem eru svo ólánsöm að eiga lið i annarri deild fer i aö borga ferðalög liðsins. Hvorki starfskraftar né fjármunir eru eftir til að sinna nauösynlegu uppbyggingarstarfi. Yngri flokk- ar félaganna hljóta óhjákvæmi- iega að sitja dálitið á hakanum, þrátt fyrir góðan vilja. Þetta hefur óhjákvæmilega þær afleiðingar að um framfarir verð- ur ekki að ræða. Það er of seint að kenna mönnum knattspyrnu á meistaraflokksaldri. Það er þvi nokkuð ljóst að vera liðs i annarrideild nálgast það að vera hægfara dauðdagi þess — nema eitthvað stórkostlegt eigi sér stað. Og varla er hægt að ætl- ast til þess. Önnur deildin og þriðja deildin má segja að séu deildir lands- byggðarinnar, á meðan fyrsta deiídin er deild höfuðborgar- svæðisins. Það standa jafn marg- ir á bak viö liðin i neðri deildun- um og i þeirri fyrstu. Það er þvi full ástæða fyrir KSÍ aö sýna mál- efnum þeirra athygli. —GA ,Einn leikurinn kostaði meira en kvartmilljón' — segir Guðmundur Bjarnason, Þrótti Neskaupstað ,,Við erum að sjálf- sögðu mjög óhressir" sagði Guðmundur Bjarnason, formaður knattspy rnudei Idar Þróttar á Neskaupstað í samtali við Helgarblaðið. ,, Kosnaðurinn sem við þurfum að kljúfa er gifurlega hár. Beinn ferðakostnaður vegna annarardeildarinnar í ár var 1600 þúsund, og það gefur auga leið að erfitt er að standa undir slíku. Tekjurnar af leikjunum eru sáralitlar þegar á heildina er litið. Sem dæmi má kannski nefna að það kostaði okkur 260 þúsund að fara á Isafjörð i ár, og þegar þangað kom þurftum við að gjöra svo vel og borga 7 þúsund uppi kostnað við leikinn, dóm- ara og þess háttar.” Þetta kemur kannski eitthvað niður á yngri flokkunum i félag- inu, en þó höfum við reynt að gera sem mest fyrir þá. Ég tel frekar að þetta komi niður á annari iþróttastarfsemi i bæn- um, en segja má að knattspyrn- an sé eina iþróttin sem stunduð er hér af alvöru. Við öflum fjár eftir mörgum leiðum, t.d. með þvi að halda happadrætti, bingó og skemmtanir af mörgu tagi og svo fáum við styrk frá bæjar- félaginu. Þannig fáum við enda til að ná saman. Annars ætlum við að bera fram tillögu á KSl þinginu þess efnis að tekjur sem fást af leikj- um skiptist ekki jafnt milli lið- anna sem leika, heldur fái heimaliðið þær óskiptar. Við teljum að það mundi ýta undir stemmninguna á hverjum stað og yrði félögunum hvatning. Ástandið er þannig núna aö maður hefur jafnvel orðið þess var að félög eru að stinga undan nokkrum aurum svo þeir þurfi ekki að koma til skiptanna”. Or leik Þróttar og Hauka I Hafnarfirði. Ekki er hægt að segja að áhorfendurnir séu til mikilla erfið- leika. „Nólgast að um hreina uppgjðf sé að rœða" r — segir Olafur Sigurgeirsson, Haukum Ólafur Sigurgeirsson, formaöur knattspyrnu- déildar Hauka í Hafnar- f irði, sagði að hljóðið í sér og félögum sínum væri Ijótt, þegar önnur deildin væri til umræðu. „Þetta nálgast alltaf meira og meira uppgjöf. Alltaf versnar þetta og alltaf verður kostnaðurinn meiri. Ég hef ekki ferðakostnaðinn samantekinn fyrir árið i ár en hann er vel á aðra milljón. Við fjármörgnum þetta á snikjum og förum eftir venju- legum fjáröflunarleiðum svona félaga. En við eigum sennilega óvenju erfitt að þvi leyti að við fáum engan styrk frá bæjar félaginu nema hvað við fáum inni i iþróttahúsinu. Það verður að gera eitthvað og áður en langt um liður. Ég er ekki frá þvi að það ætti aö skipta þessu i tvo riðla, eða eitthvað i þá áttiná. En eitthvað verður að geraV f

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.