Vísir - 04.12.1977, Side 11

Vísir - 04.12.1977, Side 11
VISIH Sunnudagur 4. desember 1977. 11 andi. Allt er þetta ungt fólk og hjón i meirihluta. Þau segja okkur að samkoman sé fámenn- ari en oftast áður. Ennú hefst Bibliulestur. Skúli tekur að sér að lesa og spjalla m.a. um Lúkasarguðspjall og Mat theusarguðspjall. Hver 0g einn hefur sina Bibliu með sér og márgir eru með möppur sem þeirskrifa eitthvaði hjá sér.'Ut- an á einni möppunni er limmiði, sem á stendur Jesus Loves Me. Skúli talar um hvernig Jesus dó fyrir syndir mannkyns, að laun syndarinnar séu dauði og um starf lærissveinanna. ..Það hafa allir rétt á að heyra fagnaðarerindið’’,segir hann og „við berum ábyrgð á okkar tið." Hannsegirað postularnir hafi borið ábyrgð á sinni tið, sem er liðin, en að nú þurfi að ná til tveggja kynslóða ,,og við berum ábyrgð á þeim.” Skúlihefur aðallega orðið. en smám saman koma menn með spurningar og það er rætt um kristniboð m.a. Eftir að hafa svo rætt um hugtakið: sælla er að gefa en þiggja, er gitarinn gripinn aftur og sunginn söngur sem byrjar á orðunum „Stattu uppOg allir standa upp. Við tökum eftir þvi að sumir kunna textana utanbókar og þurfa ekki á söngbókinni að halda. Þá er sunginn texti á ensku og annar á islensku: Þvi svo elsk- aði guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn’’ og „Já, hann er besti vinur sem þú eignast getur hér, þvi hann gaf sitt lif á krossi fyrir þig.” Hugvekja „Við ætlum að hafa einsog >tt á mánudagskvöldum, stutta hugleiðslu”, segir Steing:- :n- að söngnum loknum, og þ;1.' ur greinilega i góðan jar • Þau lesa kafla úr Bibliu: siðan á að spjalla uns . kafla. Aður biðja þau sa Þaö cr svo hljótt á meða: ; iu lesa að það mætti hrei:. ga hevr.a saumnál detta, er, , kki liður á löngu áður en Steingrim- ur segir að .nú verði þ>, ,.ð stoppa. Þvi næstsegir hver fyrir sig hvernig hann skildi viðkom- andi kafla. L'm svipað leyti berst barns- grátur niður i herbergið og Þor- anna tkona Steingrimsi fer fram. Þau spjalla saman á.fram en stuttu siðar kemur Þóranna aítur með litinn snáða, Rikharð Orn. eins og hálfs árs son þeirra. Hann fær aö vera við- staddur það sem eftir er og fær meira að segja að slá taktinn með i söngnum. Þvi enn er sungið. Það er siðan spjallaö um það hvers virði lifið er þegar tolk hefur meðtekið Krist og Þor- valdursegirfrá þviað hann hali spjallað við mann, sem átti ómögulegt með að skii.ia þ;i breytingu sem yrði á lifinu með þvi. Þó að Steingrimur segi s.tm- komunni lokið er sungið meira og þó að klukkan sé að nálgast eitt eftir miðnætti.eru þau enn i fullu fjöri þegar Við kveðjun, og Þóranna meira aðsegja fari>■>. að bera fram kaffi. — Þau sungu mikið og hressilega, og Þorvaldur sá um undirieikinn. Kristi — á krossi er gaf sitt blóð.” Okkur fannst viont að hafa ekki segulband og verra að söngurinn getur ekki komið fram á myndunum, þvi hann var hinn hressilegasti. Og enn var sungið: „Til frels- is frelsaði — Kristur oss — látið ekki aftur — leggja á yður — ánauðarok, en standið stöðug- ir.” Beðið af innlifun „Við skulum biðja saman”, sc-gir Steingrimur. sá er stýrir samkomunni þetta kvöld, að söngnum loknum. Hann biður upphátt og fólk spennir greipar eða hylur andlit sin i lófunum. Það er beðið af mikilli innlifun. Sumir taka undir með einu og einu orði, nafni Krists eða að- eins jái. Þegar Steingrimur hefur lokið bæninni, tekur Þorvaldur við. Hann biður þess m.a. að gest- irnir fái rétta mynd af því sem gerist á þessari samkomu og leggur það i Hans hendur. Sá þriðjisem biður upphátter gestur hópsins, Skúli Svavars- son kristniboði, sem m.a. hefur verið i Eþiópiu. Að þvibúnu er slegið á léttari -strengi, þvi gitarinn er gripinn og sungið á ny. Það eru ein- göngu kristiíegir söngvar sungnir þetta kvöld. Biblíulestur..... Menn eru greinilega óþvingaðir, og léttur andi rikj- // Gosið á sinn þátt í því að fólkið er opnara í Eyjum" — segja þau Steingrímur Ágúst Jónsson og Þóranna Sigurbergsdóttir „Við köllum þennan hóp ekki neitt. Við byggjum fyrst og fremst á þvi sem Biblian segir. Og við viljum leggja áherslu á það, að við erum innan þjóð- kirkjunnar, en erum alls ekki sértrúarsöfnuður. Við erum ekki bundin nokkrum samtök- um.” „Við viljum tilheyra Landa- kirkju. Samstarfið á milli okkar ogkirkjunnar hér er ekki mikið, en gott það sem er. Við tökum til dæmis þátt i barna messunum og sækjum reglulega messur.” Steingrimur Ágúst Jónsson og Þóranna Sigurbergsdóttir heita þau, og eiga greinilega stóran þátt i þvi að sá 20-25 manna hópur sem starfar saman i Eyj- um nú, myndaðist upphaflega. Steingrimur og Þóranna bjuggu áður i Kópavogi og störf- uðu þar. En þau fluttu til Eyja um miðjan september I haust og búa nú i ibúð i KFUM-húsinu við Vestmannabraut. Fluttu þau m.a. til að vera með barnastarf á vegum KFUM. „Við komum hingað I ágúst á vegum hreyfingar sem kallar sig Ungt fólk með hlutverk. Sú hreyfing hefur það markmið að glæða og efla lif innan islensku þjóðkirkjunnar. Það var farið viða um landið i sumar og haldnar samkomur. A sam- komurnarsem haldnar voru hér i Eyjum komu flestir af þeim sem nú starfa i hópnum.” Þau segja að undirtektir og aðsókn hafifarið framar vonum i Vestmannaeyjum og starfið þargekk betur en annars staðar á landinu. „Fólk virðist mjög opið i Eyj- um og tilbúið til að ræða þessi mál án þess að vera nokkuð að gantast . Það er hægt að ræða þetta af meiri einlægni hér.” Mikil vakning i heiminum „Sfðan fyrir gos hefur verið mikil vakning i heiminum. Það er ekki gott að segja hvað veld- ur þvi að fólk er opnara hér en annars staðar, en gosið á sinn þátt i þvi. Það var beðið mikið fyrir Vestmannaeyjum á meðan á gosinu stóð, viða um heim. Þessar bænir, sem Guð heyrði, hafa orðið þess valdandi, að fólk er opnara hér.” „Mjög fáir þeirra sem við töl- um við eru neikvæðir, og flestir eru jákvæðir. En auðvitað eru þeir til, sem ekkert vilja með þetta hafa.” Steingrimur var einmitt sá sem stýrði þeirri samkomu sem við fengum að fylgjast með. Það eru nokkur ár siðan hann ákvað að snúa sér alveg að kristilegu starfi og sama er að segja um Þórönnu konu hans, en þau kynntust i kristilegum félags- skap. ,,Ef fólkgetur samið við Guð og samviskuna” Við erum 20-25 sem höldum hópinn reglulega hér i Eyjum”, segja þau. „Flest eru það hjón. Hópurinn kemur saman á sunnudagskvöldum, en þá eru almennar samkomur. A mánu- dagskvöldum er bibliulestur og þá er oft tekið fyrir ákveðið efni sem siðan er spjallað um. A miðvikudagskvöldum er hjóna- kvöld. Þá hittast hjónin og rabba saman. Til dæmis er rætt um barnauppeldi og stundum eru tekin fyrir persónuleg vandamál, en þessir fundir á miðvikudagskvöldum eru með- al annars æt'.aðir til þess. A lausardöguri koma allir með börn sin með sér seinni part dags. A meðan fullorðna fólkið rabbar saman og les úr Bi bliunni leika börnin sér”. „Friöur, gleði öryggi” Um trú sina segir Steingrim- ur: „Ég hef fengið að reyna það að Guð hefur leitt mig. Hann hefur verið með mér og gelið mér það sem ég þarfnast mest, frið, gleði og öryggi.” —EA nleika" unni sem við fórum á var beðið fyrir þessu. Þá læknaðist ég algjörlega”. Margrét hafði húðsjúkdóm i andliti. „Það var beðið fyrir þvi nokkru seinna. Siðan hef ég fengið mjög mikinn bata”. Þau nefna li'ka dæmi um lækningu á fólki sem var orðið mjög háð áfengi en fékk lækningu. Breytingin á lifi þeirra? Margrét: „Ég hlakka til hvers dags. Hver einasti dagur er spennandi. Aður var margt svo innantómt. Nú finn ég ekki fyrir sliku. Guð er með i öllu sem við gerum. Aður vann ég úti, en Guð talaði til min og sagði mér að börnin þörfnuðust min. Þess vegna hætti ég að ■vinna úti”. Þorvaldur: „Lif okkar er svo rikt núna. A hverjum degi upp- lifum við eitthvað nýtt. Við höf- um lært að treysta Guði og við leggjum allt i hendur hans. Fólk heldur að þetta sé þurrt líf og afneitun. En þetta er ekki afneitun. Við fáum að taka á móti einhverju, og lif okkar er meira spennandi en nokkurn tima áður. Það hefur svo margt gerst á þessum siðustu mánuð- um að mér gengur verr að rifja upp öll þau atvik, en ef ég ætti að rifja upp stór atvik allrar minnar ævi”. ,,Guð er miðpunktur- inn” „Ef við gefumst Kristi, eign- umst við frið og kærleika. Hann kennir okkur að elska alla menn. Aður settum við okkur sjálf númer eitt. Siðan komu aðrir. Nú er þessu algjörlega snúið við og Guð er miðpunktur- inn”. „Við hefðum aldrei trúað þvi að kærleikurinn gæti orðið svona miidll til annars fólks. En nú byggjum við allt okkar lif á kærleika og sannleika. Okkur finnst það stórt sem gerst hefur i lifi okkar, en ef við litum á allt sköpunarverkið, þá sjáum við að það er litið miðað við það sem Guð getur gert”. Ætla á Bibliuskóla Þorvaldur og Margrét hafa starfað við barnamessur i Landakirkju og aðstoðað við söng. En þau eru ekki i kirkju- kórnum. „Við vorum að hugsa um að fara i kórinn. En við lögð- um það fyrir Guð og fengum ekki ábendingu um það. Okkur fannst að okkur væri heldur bent á að verða almennir kirkjugestir. Það þarf jú lika söfnuð og þó að góður kirkjukór sé geysilega mikils virði fyrir kirkjuna, er hann einskis virði ef söfnuðinn vantar”. Þorvaldur söng áður með Samkórnum i Vestmannaeyjum enerhættur þvi. „Astæðan fyrir þvi varalls ekki sú að mér fynd- ist söngurinn þar og kristilegur söngur ekki fara saman. Ætlun- in er hins vegar sú að við Gréta förum á Bibliuskóla i Englandi i vor,einmitt um sama leyti og Samkórinn leggur siðustu hönd á undirbúning tónleika. Ég sá þvi engan tilgang i að syngja með þeim i vetur og undirbúa tónleikana en hlaupa svo i burtu fyrir lokaátakið”. — Hvað tekur svo við að skól- anum loknum? „Það vitum við ekki. Guð leið- ir okkur og stjórnar lifi okkar hér eftir”. Hvað um börnin þrjú sem nú eru á heimilinu? „Guð sendi þau til okkar. Við höfðum hugsað um að vera með skóladagheimili inni á okkar heimili, en við höfðum ekki gert annað en að hugsa um þaö og leggja það i Guðs hendur. Þá vorum við beðin að taka þessi börn, þar sem þau þurftu á samastað að halda á meðan móðir þeirra er á sjúkrahúsi. Þau búa hér nú og gista eins og það væri þeirra heimili”. „En við viljum að það komi fram að við hugsum ekki sem svo að við verðum að gera eitt- hvað gott af þvi að við erum kristin. Við finnum einfaldlega hjá okkur þörf fyrir að gera gott”. — Hvernig talar Guð til ykk- ar? „Á ýmsan hátt. Það geta ver- ið ábendingar sem við fáum. Það eru viss orð sem við finnum og stundum getur þetta verið myndrænt i huganum. En Guð talar, það er öruggt. Við finnum nærveru hans. Það er ekki gott að lýsa þessu, og við getum ekki skýrt þetta öðru vísi en að segja frá þeirri reynslu sem við höf- um sjálf orðiö fyrir. En það sem við höfum sagt nú er aðeins brot ’af ölluþvi sem við höfum upplif- að”. — Hvernig tekur fólk þessu? „Yfirleitt vel. En almennt skilur það þetta ekki. Það er eins og fólk segi: „Mikið er það núgott, aðþið skuliðhafa fundið þetta, en reynið nú ekki að troða þessu upp á okkur”. „Svonaer þetta. Okkurfannst þetta ofstæki áður, og þannig Þorvaldur Halldórsson: „Varð fyrir þvf láni að konan min gaf mér Bibliu”. erum við dæmd i dag. En nú er þetta ökkur jafn eðlilegt og að borða og sofa”. „Og við höfum þá trú að nú sé sérstakur náðartimi. Guð er ekki alltaf jafn opinn fyrir okk- ur, og við trúum þvi að það sé sérstök náð þegar hann er op- inn. Vald Guðs er þannig að hann gæti sagt: Verið kristin. Ogallt mannkynyrðikristið. En hann hefur skapað manninn með eigin vilja. Honum er gefið að ráða sjálfur”. —EA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.