Vísir - 02.01.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 02.01.1978, Blaðsíða 6
6 Mánudagur 2.janúar 1978 VISIR Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 3. janúar: Hrúturinn, 21. mars — 20. april: Haltu áfram þar sem frá var horfið i gær, ef þér finnst þaö þess viröi. Óvænt viöfangsefni berst' þér i hendur. Reyndu aö meta gjafmildi annarra. Nautiö, 21. april — 21. mai: Dagurinn er ekki siður vel fallinn til aö stofna til náinna kynna en gærdagurinn. Einhver sem þú treystir reynist þér vel. Bjartsýni er smitandi. Tviburarnir, 22. mai — 21. júni: Byrjaðu daginn snemma ef þú þarft að fara á ráðstefnu eða i feröaiag og leggja drög aö fram- tiðinni. Lestu allt sem þú kemur höndum yfir. Krabbinn, 22. júní — 23. júli: Taktu þig á i dag. Það eru margir fúsir til að aðstoða þig, bæöi vinir og kunningjar. Breyttu um aöferð og framkomu. Það getur verið happadrjúgt. Ljónið, _ 24. júli — 23. ágúst: Reyndu að ganga frá viðamiklum -1 verkefnum og ljúka af öllum feröalögum. Þér heppnast allt vel' þessa dagana. Vertu öruggur með sjálfan þig. | Meyjan, 24. ágúst — 23. sept: Þetta getur orðiö spennandi dagur. Þú leysir öll vandamál I einum hvelli. Þú ert mjög ánægötur! yfir hrósi sem maki þinn fær. Vogin, 24. sept. — 22. nóv: Þig dauölangar til aö stokka spilin upp á nýtt, en það er litill vinningur að hlaupast i burtu frá vandanum. Þaö litur út fyrir að blási byrlega i hjónabandinu eöa i ástarmálunum. Drekinn, 24. okt. — 22. nóv.: Feimnislegur og góðgjarn vináttuvottur veitir þér mikla- gleði. Gerðu þér grein fyrir kröf- um þinum. Einhver kemur þér á óvart i kvöld. Bogmaðurinn, 23. nóv. — 21. des.: Láttu i ljós' áh'iga þinn að ná frama i starfi eða persónulega. Ferðalög og iþróttaiðkun er efst á óskalistanum þessa dagana. Heillandi vinur eða vinkona koma þér á óvart i kvöld. Steingeitin, 22. des. — 20. jan.: Fyrri partur dags er Heppilegur til að vinna að félagsmálum eöa aö ganga frá tryggingum á eign- um. Nýttu hvert tækifæri til aö sýna gestrisni þina. Astarmálin eru efst á baugi i kvöld. Vatnsbcrinn, 21. jan. — 19. feb.: Nú skaltu mæta á fundum eöa taka rikan þátt i félagslifi, þér tekst auðveldlega að vinna aðra á þitt band. Börnin gætu komist upp á kant við félaga sina i dag. Fiskarnir, 20. feb. — 20. mars: I dag er tækifæri til að umgangast áhrifamikið fólk. það gæti orðið þér til ávinmngs. Láttu ekki happ úr hendi sleppa.og fylgdu málun- um eftir með atorku. ^ ^ ^ ^.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.