Vísir - 12.01.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 12.01.1978, Blaðsíða 10
10 VÍSIR utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdarstjóri: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson (ábm) ólafur Ragnarsson Ritstjornarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Frettastjori erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Edda Andresdóttir. Elias Snæland Jónsson, Guðjon Arngrimsson- Jonina Michaelsdottir, Kjartan L. Palsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jonsdottir, Sæmundur Guðvinsson. Iþrottir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjónsson. Ljosmyndir: Jens Alexandersson, Jon Einar Guðjónsson. utlit- og honnun: Jon Oskar Hafsteinsson, AAagnus Olafsson. Auglysinga- og sölustjori: Pall Stefansson. Dreifingarstjori: Sjgurður R Petursson. Auglysingar og skrifstofur: Siöumula 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjorn: Siöumula 14. Simi 86611 (7 linur) Askriftargjald kr. 1500 a manuði innanlands. Verö i lausasölu kr. 80 eintakiö. Prentun: Blaöaprent. Veður hofa skipast í lofti i byrjun þess þings, sem nú situr sem fastast i jóla- leyfi, hófust miklar umræður um nauðsynlegar breyt- ingar á kjördæmaskipan og kosningaháttum. Umræð- urnar snerust að mestu um þau tvö meginmarkmið að jafna vægi atkvæða milli kjördæma og auka möguleika kjósenda til þess að velja einstaklinga til setu á Alþingi. Af hálfu ríkisstjórnarinnar voru gefin fyrirheit, sem bentu til þess að tekið yrði á málinu fyrir kosningar. Nú hafa veður hins vegar skipast í lofti og fátt sem gefur ástæðu til að ætla að þingið taki málið til alvarlegrar meðferðar á siðari hluta þingtímans. Vísir hefur fengið þingmenn úr öllum stjórnmála- f lokkum til þess að skrifa þjóðmálagreinar í blaðið fram að kosningum i sumar. Jón Skaftason ríður á vaðið i blaðinu i dag og ítrekar enn í grein sinni nauðsyn þess að Alþingi beiti sér fyrir jafnari kosningarétti og persónu- bundnara kjöri til Alþingis. í grein Jóns Skaftasonar kemur m.a. fram gagnrýni á starfshætti stjórnarskrárnefndar, sem eftir sex ára starf hefur enn ekki skilað áliti. Þessi gagnrýni er um margt réttmæt. Á það er að líta, að kjördæmaskipanin er eina veigamikla atriðið, sem þessi nefnd hefur þurft að fjalla um. Aðrar stjórnarskrárbreytingar skipta ekki ýkja miklu máli, og að því leyti kemur ekki að sök þó að nefndin flýti sér hægt. Stjórnarskrárnefndin hefði á hinn bóginn þurft að koma fram með mótaðar hugmyndir að breyttri kjör- dæmaskipan og nýjum kosningaháttum á þessu þingi þannig að unnt hefði verið að taka afstöðu til þeirra fyrir kosningar. Eins og málum er komið sýnist útilokað að á þessu þingi verði komið til móts við þær ákveðnu óskir, sem fram hafa komið um úrbætur á þessu sviði. Það er með öllu óverjandi að kjósendur i einu kjördæmi hafi allt að fimmfalt gildari atkvæði en kjós- endur annars staðar á landinu eins og nú á sér stað með Vestfirðinga og Reyknesinga. Kosningarétti er ekki með rökum unnt að rugla saman við aðgerðir til þess að jafna aðstöðumun vegna búsetu í einstökum landshlutum. Kosningarétturinn lýtur að mannréttindum og þvi verða allir aðsitja viðsama borð í þeim efnum. Svo virðistsem menn séu orðnir almennt sammála um að breytingar á kosningalögunum einum út af fyrir sig séu kák eitt. Á það verður að fallast að innan þess ramma verður ekki fundin sú heildarlausn, sem gilt get- ur til frambúðar. Hér þarf þvi stjórnarskrárbreytingu og það er gagnrýnisvert, ef þingið skýtur því máli á frest og gildir einu, þó að benda megi á sleifarlag stjórnar- skrárnefndarinnar. Virðingarverð viðbrögð Fyrr í þessari viku benti Vísir á, að rannsókn Lands- bankamálsins hefði að einu leyti verið áfátt fyrir þá sök að utanaðkomandi aðila var ekki veriö falin yfirstjórn heildarrannsóknar á ábyrgðardeild bankans. Svipuð gagnrýni hafði einnig komið fram á öðrum vettvangi. Stjórn Landsbankans brást fljótt og skynsamlega við þessum ábendingum með því að óska eftir þvi við rann- sóknarlögreglustjóra ríkisins að hann skipaði löggiltan endurskoðanda, óháðan bankanum, til þess að hafa yfir- umsjón með þessum þætti rannsóknarinnar. Vafalaust er, að þessi skipan á rannsókn málsins eykur traust bankans út á við, eftir það áfall, sem hann hefur orðið fyrir. Viðbrögð stjórnar bankans við þessari gagnrýni á meðferð málsins benda ótvírætt til þess að hún taki þetta alvarlega mál föstum tökum, sem ekki er ástæða til að finna að umfram þetta atriði. Það er mikils virði, því að peningastofnanir verða umfram ailt að njóta óskoraðs trausts. Fimmtudagur 12. janúar 1978, vism Fréttir af eldsumbrot- um við Kröflu hafa verið með nokkuð öðrum hætti en við höfum átt að venj- ast. Fyrir leikmann er annaðhvort eldgos ein- hversstaðar, eða ekki, en Krafla hefur ekki far- ið eftir þeirri formúlu. Þar hefur land risiö, land sigið, land skolfið og hraunkvika streymt, en þess hafa ááralitil merki sést á yfirboröinu. Hver fjárinn er þá eiginlega að gerast þarna fyrir norðan? Það kemur sjálfsagt einhverj- um á óvart að frétta að það er fyrst og fremst það sem visinda- mennkalla landrek,sem þarna er um að kenna. Island er að gliðna i sundur: Vestfiröir eru á leið i vestur og Austfirðir á leið i aust- ur. Ekki eru þó likur til að þessir landshlutar hverfi yfir sjóndeild- arhringinn á næstunni, þvi þetta gerist allt ákaflega hægt og ró- lega, þótt lætin séu svosem nógu mikil. 1 grein sem dr. Axel Björnsson, skrifaði i „Náttúrufræðinginn” er drepið á þetta. Dr. Axel segir meðal annars: Nú er landrekstimabil Eftir Atlantshafinu endilöngu liggur virkt jarðskjálftabelti svo- kallaður Miðatlantshafshryggur. Flestir jarðskjálftar sem veröa á Atlantshafi eiga upptök sin á þessum hrygg, svo og eldgos, er orðið hefur vart viö neðansjávar, á þessu svæði. Samkvæmt hugmyndum flestra jarðvisindamanna er þessihryggurmót tveggja platna i jarðskorpunni, Evrópuplötunnar svonefndu og Amerikuplötunnar. A mörkum þessara platna kem- ur stöðugt upp nýttefni úr iðrum jafðar og myndar nýtt land eða nýjan sjávarbotn. Evrópuplatan mjakast við þetta til austurs en Amerikuplat- an til vesturs um einn sentimeter á ári, að meðaltali. Þessi hreyfing platnanna, eða landrek eins og HVAÐ B ERAÐ I GERAST I UNDIR I KRÖFLU? I það hefur verið nefnt, verður sennilegairykkjumeða stökkum, en ekki jafnt og þétt. Eitt slikt timabil örrar gliönunar á sér nú staö á Norðausturlandi. Island er staðsett á miðjum þessum hrygg og má glöggt sjá framhald hans á landinu sjálfu. Eftir neðanjarðargöng- um Siðar i grein sinni fjallar dr. Axel Björnsson um orsakir jarð- hræringa við Kröflu og Námafjall og ástæðurnar fyrir þvi að ekki hefur enn orðið verulegt eldgos á þessu svæði. Frumorsakir jarðhræringanna liggja i landrekinu. Þegar jarð- skorpuplöturnar reka hvor frá annarri verður landsig á mótum þeirra. Hraunkvika leitar neöan úr möttli jarðar upp i jarðskorpuna á plötumótunum, þar sem sig verður. 1 svona tilvikum brýst kvikan stundum upp á yfirborð jarðarog þá er komið eldgos svo ekki verður um villst. En kvikan getur lika safnast saman i geysimiklum tómarúm- um, eða hólfum undir yfirborðinu og/eða runnið eftir sprungum neðanjarðarog það er einmitt það sem gerst hefur við Kröflu. Kvikuþróin undir Kröflu Jarðfræðingar telja að á þriggja til sjö kilómetra dýpi i jarðskorpunni, undir Kröflu, sé geysimikil þró sem kvikan streymir i, úr iðrum jarðar. Þegar þróin fyllist og þrýsting- urinn ihenni eykst verður landris yfir henni. Landrisinu fylgja miklir jarðskjálftar sem verða þegar berg brotnar undun þrýst- ingnum og jarðlög ganga til. Þrýstingurinn heldur áfram að aukast þartil eitthvað gerist: rúmmál kvikuþróarinnar getur aukist vegna landreks (Austfirðir ogVestfirðirtogast á og sprungur gliðna og breikka), eða þá að kvikan finnur sér leið út úr þrónni. Þá er aðeins um tvær leiðir að velja: beint upp (og þá höfum við eldgos)eða lárétt eftir sprungum i skorpunni. Hingað til höfum við verið svo heppin að hraunkvikan hefur Jón Skaftason al- þingismaöur skrifar um kjördæmaskipan og kosningatilhögun. Hann ræöir m.a. þá róttæku breytingu, sem hann hefur lagt til aö gerö verði á kosn- ingalögum, að kjós- endur eigi þess kost aö raða frambjóðendum sjálfir þannig að al- mennar kosningar yröu bæði miili flokka og einstaklinga. Velflestir tslendingar lýsa hneykslun yfir þeim órétti, sem þeldökkir borgarar Ródesíu og S-Afríku eru beittir aö þvf er tek- ur til atkvæðisréttar. Þeir telja það brot á mannréttindum og svartan blett á því lýðræöi og þingræöi, sem forystumenn þessara þjóöa segja að ríki þar. Þetta er réttmæt hneykslun. Ég ætla ekki að líkja stjórnar- fari okkar vi'ö það stjórnarfar, sem I þessum löndum ríkir. En hér rikir þó — eins og þar — mikiö misrétti aö því er tekur til at- kvæöisréttar. Hér er mönnum hins vegar mismunaö eftir búsetu en ekki kynþáttum og þótt enginn sé hér atkvæðisréttarlaus með öllu er misræmið þó mjög mikið og fer vaxandi. Svo rfkt kveður orðið aö þvf, aö það brýtur gegn helgustu mannréttindum um sem jafnastan atkvæðisrétt lands- manna, sem er undirstaða lýö- ræðis og þingræöis f landinu. Furðuleg vinnubrögð og tómlæti Kjördæmaskipan og kosninga- tilhögun hér á landi hafa lengst af verið afar gallaðar og óréttlátar. Þetta er ekki svo furöulegt, ef aö- dragandi helstu stjórnarskrár- breytinga er athugaður. Tilraunir stjórnarandstöðuflokka til að fleyga rfkisstjórnarsamstarf eöa stjórnarflokka til þess að rjúfa rfkisstjórnir vegna erfiöleika f stjórnarsambúö hafa oft verið aflvaki slfkra breytinga. Aðal- kjördæmabreytingar okkar — 1934, 1942 og 1959 — bera þessu vitni. Reynslan hefur oröið sú, að slfkar hagkvæmnilausnir hafa bætt úr brýnasta óréttlætinu skamman tíma, en sföan hefur sótt í svipað horf á ný. Grund- vallarbreytinga er þvf þörf — bæði á hugarfari þeirra, sem að kjördæmabreytingu standa, pg vinnubrögðum þeirra. Koma þarf Þingmenn skrifa fram að kosningum Visir hefur leitað til þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum og farið þess á leit aö þeir skrifuðu reglulega þjóðmálagreinar fram að alþingiskosningum Jón Skaftason byrjar þennan þingmannaþátt með grein sinni um kjördæmaskipan og kosningatilhogun. Auk hans munu skrifa Gylfi Þ. Gislason, Lárus Jónsson, Magnus Kjartansson og Magnús Torfi ólafsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.