Vísir - 17.02.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 17.02.1978, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 17. febrúar 1978 c r . 1 ó Akureyri Af hverju skáleggur þú bil þinum hér i Hafnar- stræti? Stefán Bjarnason, úrsmiöur: Til þess að Vestur-tslendingar geti hlegiö að okkur. Ég sá á skugga- myndasýningu þar vestra einmitt mynd héðan úr götunni, bilar langs og nærri þvert. Synt sem dæmi um hvernig ekki átti að leggja bi'lum, og það var mikið hlegið. Bergvin Jóhannsson, bóndi: Af þvi að það er þægilegra að kom- ast þannig út i umferðina aftur. Ég held að ætti að breyta hér i skálögn og kæmust þá fleiri bilar fyrir. Anney Halldórsson, húsmóðir: Af þvi að allir aörir gera það. Aðalsteinn Bergdal, leikari (at- vinnuleikari): Ég legg nákvæm- lega eins og þeir bilstjórar sem fyrir voru komnir þó að ég viti að það er rangt. En öðruvisi var alls ekkert pláss Þórdis Bjarnadóttir, húsmóðir: Af þvi aö það liggur beinast viö, og aörir hér á undan hafa gert það sama. Það hefur enn einu sinni sannast að skákaáhugi is- lendinga er með ólíkind- um. Hundruð manna sitja heilu kvöldin í sölum og göngum Loftleiðahótelsins og fylgjast með Reykja- víkurskákmótinu, útvarp- að er tvisvar á kvöldi frá mótinu og sjónvarpið skýr- ir skákir í 15 mínútur hvert kvöld á besta tíma. Þetta gæti ekki gerstannarsstað- ar en hér. Segja má aö einvigi tveggja manna við skákborðið sé liklegra til að vekja athygli heldur en fjöl- mennt mót. begar tveir berjast skiptast menn gjarnan i tvo flokka og halda með öörum kepp- enda og vilja veg hans sem mest- an. Það er til dæmis mjög eðlilegt að öll þjóðin skuli hafa fylgst með einvigi Friðriks og Larsens á sin- um tima, heimsmeistaraeinvigi Fischhers og Spasskýs eða ein- vigi Horts og Spasskys. En þegar áhuginn er litlu minni hjá fólki á Reykjavikurskákmótinu þar sem 14 menn tefla á hverju kvöldi er ljóst að það er skáklistin sjálf sem mjög heillar janft unga sem gamla, en ekki að fólk sé aö fylgj- ast meö „sinum” manni. Þó eiga margir sinn uppáhaldsskákmann á þessu móti eins og eðlilegt er. Fjörugar skýringar Framkvæmd Reykjavikur- skákmótsins er Skáksambandinu og forráðamönnum Loftleiðahót- els mjög til sóma. Ahorfendur geta setiö inn i keppnissalnum sjálfum og fylgst hljóðir meö keppendum og er þar jafnan set- inn bekkkurinn. Aðrir vilja hlusta á skýringar kunnáttumanna um ( gang skákanna og gjarnan láta á- lit sitt i ljós þegar þurfa þykir i heyranda hljóði og skeggræða við kunningjana um einstaka leiki. Þessir áhorfendur sitja gjarnan i ráðstefnusal þar sem skákir eru skýrðar á stórum borðum og menn geta sér til um næstu leiki. Umræður eru þar oft mjög fjör- ugar og deila menn hástöfum um hvað leika skuli. Aðrir sitja á gangi og fylgjast með skákum af sjónvarpsskermum. A Reykjavikurskákmótinu gilda ný timamörk sem ekki hafa verið á skákmótum til þessa. Keppendur skulu ljúka 30 leikjum á þremur klukkustundum og næstu 20 leikjum á 60 minútum. Spenna er þvi komin i skákirnar mjög snemma og mjög litið um biðskákir. Spáð um úrslit Ahorfendur voru djúpt hugsi yf- ir skák Friðriks og Smejkals á þriðjudagskvöldiö þegar við Jens ljósmyndari vorum þar á ferli. Friðrik fórnaði manni og töldu sumir að nú heföi honum orðið illilega á i messunni, aðrir töldu sig sjá lengra fram i timann og Fylgst með Reykjavíkurskákmótinu Sigurbjörn Pétursson. sögðu að öllu væri óhætt. A meöan menn voru að þjarka um þetta vikum við okkur að nokkrum á- horfendum og tókum þá tali. ,,Ég spái þvi að Friðrik og Lar- sen verði efstir og jafnir”, sagði Sigurbjörn Pétursson tannlæknir. Haraldur ólafsson. Hann kvaðst spá Hort og Miles næstu sætum, en vildi ekki hafa uppi frekari spádóma um röðina. ,,Já, ég hef fylgst mikið með mótinu og það er mjög skemmti- legt. Timamörkin auka mjög spennuna fyrir áhorfendur og er Vilmundur og Halldór. Jóhannes Gisli. þetta gjörólikt fyrri mótum,” sagöi Sigurbjörn. Hann taldi aö ungu mennirnir okkar heföu stað- iösig vel, ekki væri viö neina auk- visa að etja þar sem erlendu stór- meistararnir væru. Skákmót sem þessi væru vel til þess fallin að vekja áhuga á skákinni, en auð- vitað hefði verið skemmtilegt ef reynt hefði verið að fá heims- meistaraeinvigið hingaö. Larsen vinnur ,,Ég hef alltaf gaman af að sjá Larsen keppa og ég held að hann vinni þetta mót, en tveir til þrir koma til greina i annað sætið”, sagði Haraldur óiafsson lektor. „Timamörkin eru skemmtileg fyrir áhorfendur en erfið fyrir keppendur”, sagði Haraldur enn- fremur. Við spurðum hvort hann væri þvi hlynntur að frekar væri lagt kapp á að halda svona mót heldur en sækjast eftir einviginu um heimsmeistaratitilinn. „Svona mót eru ákaflega skemmtileg, en einvigin hafa ó- trúlegt gildi. Ég hef nokkuð ferð- ast um veröldina og oft er það Hvers vegna leggja þeir bílunum svona? Þeir, sem átt hafa leið um Hafnarstræti á Akureyri, hafa eflaust veitt þvi athygli, hve margir bileigendur leggja þar bflum sinum á ská inn að blla- stæðum við götuna. Sliktþrengir mjög að eðlilegri umferð um götuna og getur valdið vandrææðum. Eflaust hafa margir undrast þetta háttalag bileigenda á Akureyri, og til þess aðforvitnast um hvað valdi þessu, fór fréttamaður Visis á Akureyri, Matthias Gestsson, á stúfana og spurði nokkra þeirra, sem þarna höfðu skálagt bilum sinum, um ástæðuna fyrir þvi. Svör þeirra eru hér við hliðina i dálknum okkar Vísir spyr og vonandi getur þetta orðið til þess að bæta umferðarmenninguna i Hafnar- stræti á Akureyri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.