Vísir - 17.02.1978, Blaðsíða 3
3
VTSIR Föstudagur 17. febrúar 1978
sem fólk i fjarlægum löndum veit
það eitt um tsland að þar háðu
Fischer og Spassky sitt einvigi”,
sagði Haraldur.
Meðal þeirra ungu manna sem
vinna við skákmótið er Jóhannes
Gisli Jónsson 14 ára gamall og
mikill skákmaður.
verður hálfum vinningi á eftir”,
sagði Vilmundur Gylfason
snöggur upp á lagið. Við spurðum
Halldór Ilalldórsson hvort hann
væri sammála:
,,Ég get auðvitað ekki verið
sammála Vilmundi. Friðrik vinn-
ur og Larsen verður hálfum á eft-
Hluti áhorfenda í skýringasal.
„Þeir Larsen og Miles verða
efstir, en þó held ég að Larsen
verði númer eitt. Næst koma svo
Polugaevsky eða Friðrik”, sagði
Jóhann og mátti ómögulega vera
að frekara spjalli.
Tveir þekktir dálkahöfundar
sátu á hljóðskrafi yfir kaffibolla,
báðir tiðir gestir á skákmótum
milli þess sem þeir fletta ofan af
hneykslismálum.
„Larsen vinnur og Friðrik
ir”, sagði Halldór.
Þeir létu litið yfir eigin leikni
við skákborðið „Ég er sæmilegur
fjórðaflokksmaður” sagði Hall-
dór, en Vilmundur taldi sig góðan
þriöjaflokksmann. Þeir voru
sammála um að skákmótið væri
mjög skemmtilegt og nauðsyn-
legur viðburöur i borgarlifinu.
Jón er kominn heim
Að lokum hittum við að máli
Miles á hraðferð um gangana.
Jón Hálfdánarson.
hinn gamalkunna skákmann Jón |
Hálfdánarson. Hann hefur verið
búsettur i Þýskalandi við nám og
störf siðan árið 1967 og er prófess-
or við háskóla ytra, doktor i efna-
eðlisfræði. Jón var einn af okkar
bestu skákmönnum áður en hann
flutti út og hann hyggst flytja aft-1
ur heim áður en langt um liður.
„Ég var rétt að koma og get
ekkert sagt um þetta mót, en hér
eru margir sterkir skákmenn”,
sagði Jón.
Hann sagöi að svona mót væri
ef til vill i það sterkasta fyrir
ungu skákmennina okkar, en það
væri góð reynsla sem þeir fengju
á svona móti. Auðvitað væri
heimsmeistaraeinvigið einstæður
viðburður, en það væri spurning
hve langt ætti að teygja sig þegar
svo gifurlegir fjármunir væru
komnir i spilið. Jón vildi engu lofa
um hvort hann tæki til við taflið á
ný þegar hann flytti heim, en við-
urkenndi þó að hann tefldi tals-
vert i klúbbakeppni i Þýskalandi
og áhuginn væri fyrir hendi.
Jón vildi engu spá um úrslit
þessa móts og við Jens förum að
dæmi hans og látum alla spá-
dóma lönd og leið. Skákmótinu
lýkur um helgina og þá kemur i
ljós hver sigrar.
Tekur við Krossa-
nesverksmiðjunni
Fyrir nokkru sagði Guð-
mundur Guðlaugsson fram-
kvæmdastjóri Krossanesverk-
smiðjunnar á Akureyri starfi
sinu lausu en hann hefur
stjórnað þeirri verksmiðju af
röggsemi í mörg ár.
Nú hefur stjórn verksmiðj-
unnar ráðið nýjan fram-
kvæmdastjóra i stað Guðmund-
ar. Er það Pétur Antonsson sem
verið hefur verksmiðjustjóri h já
Fiskimjöli og Lýsi h.f. i Grinda-
vik undanfarin ár.
Pétur hefur góða þekkingu og
reynslu á þessu sviði sem koma
mun að góðu gagni i verksmiðj-
unni við Eyjafjörð þvi fyrir-
hugaðar eru gagngerar endur-
bætur og breytingar á henni.
—KLP
Hinn nýji framkvæmdastjóri
Krossanesverksmiðjunnar,
Pétur Antonsson. Ljósmynd
HB.
Tvð ný frímerki
Póst og simamálastofnunin
gefur út tvö ný frimerki þann
8. mars. Um er að ræða
50króna merki með mynd af
Þorvaldi Thoroddsen og 60
króna merki með mynd af
Bríet Bjarnhéðinsdóttur.
Nýju frimerkin eru græn og
brún. Þau eru unnin i prent-
smiðju frönsku póstþjónust-
unnar.
Drengur fyrir bíl
Umferðaslys varð i Keflavik i
fyrradag. Fjögurra ára gamall
drengur varð fyrir bil á
Hringbraut. Hann var fluttur á
sjúkrahúsið i Keflavfk til
rannsóknar.
Óánœgja með nýja
áœtlun Ríkisskip
Mikil óánægja er víða
úti á landi með hið nýja
skipulag á ferðum hjá
Skipaútgerð ríkisins, ekki
sístá Vestf jörðum. Hér á
Bíldudal hefur þjónustan
til dæmis versnað mikið.
Þegar gamla Hekla og gamla
Esja voru á ferðinni var komið
við hér á 8-10 daga fresti. Sam-
kvæmt nýju áætluninni eru ekki
farnar hingaö nema tvær ferðir
I mánuði, og þá einungis þegar
skipin eru á suöurleið.
Síðast þegar skip kom hér við
voru liðnir tuttugu dagar frá
siðustu „heimsókn”, og skipið
var þá búið að safna í sig áttatfu
lestum sem áttu aö koma hing-
að.
Aldrei áður hefur svona mikiö
vörumagn verið látið safnast
fyrir. Við erum þvi mjög
óánægðir og ef ekki verður ein-
hver breyting á þessu verðum
við bara að leggjast á bæn og
biðja þess að snjóa leysi sem
fyrst, svo að bilar geti feröast og
við fáum almennilega þjónustu.
— HF,Bildudal/OT.
Nú getu Sovétmenn
lakkað hjá sér
Nýlega voru undirritaðir i
skrifstofu sovéska verslunar-
fulltrúans i Reykjavik, Valdi-
mars K. Valssonar samningar
um sölu á 1000 tonnum af hvitu
lakki sem afgreiðast eiga á
næstu mánuðum. Málninga-
verksmiðjan Harpa h/f selur 800
tonn en Sjöfn á Akureyri 200
tonn.
Fob-verðmæti þessa
samnings er um 260 milljónir
króna auk þess sem Sovétmenn
greiða islensku skipafélögunum
yfir 25 milljónir i flutningsgjöld.
Þetta er þrettánda árið sem
Rússar kaupa málningu frá Is-
landi en fyrsti samningurinn
var gerður við Hörpu h/f árið
1965.
20 þúsund komu á kvikmyndahátiðina:
Þokkaleg útkoma
fjárhagslega
Yfir 20 þúsund manns komu á
kvikmyndahátið Listahátiðar i
Reykjavik, en henni er nýlokiö
sem kunnugt er. Alls voru sýnd-
ar nitján erlendar kvikmyndir á
hátíðinni. Er það tveim færra en
i upphafi var ætiað.
— Ein mynd kom ekki til
landsins og önnur var bönnuð af
yfirvöldum.
Ljóst er að fjárhagsleg af-
koma kvikmyndahátiöar er
þokkaleg. Upphafleg fjárhags-
áætlun var upp á 6 milljónir, en
aukakostnaður var mikill. Atta
milljónir komu inn sem aö-
gangseyrir. — GA
MELABRAUT 57
Seltjarnarnesi
Sími
20785
Opið alla daga til kl. 22.00
ATH. Einnig laugardaga
og sunnudaga
SJÁLFSAFGREIÐSLA:
Brauð Mjólk
Kjötvörur
—EA