Vísir - 17.02.1978, Side 24

Vísir - 17.02.1978, Side 24
VÍSIR Ólafur B. Thors gef ur kost á sér „Ég er búinn að taka þá ákvörðun að verða við til- mælum kjörnefndar og gefa kost á mér i prófkjör vegna borgarstjórnarkosning- anna”, sagði ólafur B. Thors forseti borgarstjórnar i sam- tali við Visi, en sem kunnugt er gaf Ólafur ekki kost á sér þegar kjörnefnd auglýsti eft- ir framboðum i prófkjörið. „Astæðan fyrir þvi að ég ætlaði ekki i framboð” sagöi Ólafur „var að á uiidanförnum árum hef ég varið miklum tima i vinnu fyrir borgina og fannst mér það ekki samræmast starfi minu hjá Almennum trygg- ingum. En vegna eindreg- inna hvatninga flokksfélaga hefur mér snúist hugur og hef ég rætt þessi mál við stjórn fyrirtækisins sem ég vinn fyrir.” Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins i Reykjavik vegna borgarstjórnarkosninganna fer fram fyrstu helgina i mars. — KS Jón Skúlason póst- og símamólastjóri: „Hefði eyðilagt orðspor okkar i frimerkja útgáfu „Við höfum enga heimild til að búa til fjármuni á þennan hátt og slík útgáfa aðeins til þess fallin aö eyöi- leggja orðspor okkar I frimerkjaútgáfu”, sagði Jón Skúlason póst- og simamála- stjóri i samtali við Visi. Jón sagði að hugmyndin um útgáfu frimerkjaseriu til aö fjármagna heims- meistaraeinvigið hefði greinilega ekki veriö hugsuð til enda. „Tilboðið sem við settum saman hljððaöi upp á 1.1 milljón svissneskra franka, eöa um 146 milljónir króna. Við álitum að hugmyndin um frimerkjaútgáfu hafi verið framkvæmanleg og slik seria hefði skilað 750 milljón- um brúttó. En þetta gekk sem sagt ekki — þvi miöur”, sagði Einar S. Einarsson forseti Skáksambandsins er Visir ræddi við hann. —SG Veitt úr mól- frelsissjóði Guðsteinn Þengilsson, læknir fékk i gær afhentar krónur 321.550 frá Málfrels- issjóði, til að standa straum af kostnaði vegna hæstarétt- armáls sem til varð vegna skrifa hans um undirskrift- arsöfnun Varins lands. Tólf menn stefndu Guð- steini, en þaö var álit stjórn- ar Málfrelsissjóðsins að málalok þau sem orðið hafa á máli Guðsteins séu til þess fallin að letja menn að taka þátt I umræöum um alvarleg deilumál, eins og segir i frétt frá sjóðnum. ga Smáauglýsing í Visi er enginQ»|« öauglýsing Ooið virka daaa til kl. 22.00 m Opið virka daga til kl. 22.00 Laugardaga kl. 10-12 ^^^^^^^unnudag£jd^J8-22^^^^^ simi 86611 FÆR KAUPANDINN AÐ HALDA STOLNU VINNUVÉLINNI? KANNAÐ VERÐUR HVORT FLEIRI STOLNAR VINNUVÉLAR HAFI VERIÐ FLUTTAR INN FRA ÞYSKALANDI „Ég hafði að sjálf- sögðu enga hugmynd um að þessi vél væri stolin. Ég tengist mál- inu einfaldlega á þann hátt að þýsku aðilarnir báðu mig um aðstoð við að selja vélina, sem ég og gerði”. Þetta sagði islenski umboös- maðurinn sem tengist sölunni á stolnu vinnuvélinni sem viö sögöum frá i blaöinu I gær, þeg- ar Vísir hafði samband við hann f gær til að fá nánari upplýsing- ar um málið. „Þegar rökstuddur grunur fékkst á að vélin væri stolin, hafði ég samband við þýskan lögmann”, sagði hann. „Þessi lögmaður gekk siðan til samn- inga við tryggingafélag þaö i Þýskalandi, sem vélin var upp- haflega tryggö hjá. Fyrirtækið sem átti vélina þegar henni var stolið I Ham- borg hafði fengið hana bætta hjá tryggingafélaginu þannig að það er nú raunverulegur eigandi hennar. • Til að maðurinn sem keypti vélina hér á Islandi yröi ekki fýrir tjóni, hefur verið gengið til samninga við tryggingaféiagið Þetta er hin umtalaöa vélskófla sem stoliö var I Hamborg I Vestur-Þýskalandi fyrir nokkrum mánuöum og siðan seld her á islandi fyrir 20 milljónir króna. Ljósmynd JA. og eru þéir samningar langt á veg komriir. Ég er þess fullviss eftir öll þau samtöl og skeyti sem ég hef átt við hinn þýska lögfræðing, að kaupandinn hérfái aö halda vél- inni, og er þá þetta leiöindamál úr minum höndum”. Aðspurður sagði umboðsmað- urinn ekki vita hvort hinir þýsku útflytjendur vélarinnar, hafi vitaö að hún væri stolin. Hann þekkti ekki til þeirrar hliðar málsins, og heldur ekki hvort þeir hefðu sdt fleiri vélar hér á landi. Kannsóknarlögregla rlRisins fékk málið i hendurnar i fyrra- kvöid og var þá strax hafist handa við að yfirheyra þá sem þvi tengjast hér á Islandi. Rannsóknin beinist meðal ann- ars að þvi hvort viðkomandi að- ilar hefðu flutt margar slikar vélar inn til landsins, og þá hvort þær hafi allar verið heið- arlega fengnar i upphafi. Hjá rannsóknarlögreglunni fékk Visir þær fréttir að ekkert væri komið fram i málinu um- fram það sem sagt hefði verið frá I Visi. Enn ætti eftir að yfir- heyra fólk og að afla upplýsinga frá Vestur-Þýskalandi og viðar að. 28 BUNIR SKRÁ SIG Undirbúningur rallýkeppni Bifreiöalþróttaklúbbs Reykja- víkur er nú I algleymingi bæöi hjá stjórnendum og keppend- um. Siðari skráningarfrestur rann útá miövikudaginn var, og eru 28 búnir aö láta skrá sig. Eins og fram hefur komiö er bú- iö aö fresta keppninni um eina viku, vegna þess, aö veltigrind- urnar sem skylda er aö hafa i öllum bilunum gátu ekki komiö til landsins á tilskyldum tima. Veröur keppnin því laugardag- inn 4. mars. Keppnin hefst og henni lýkur I BUasölunni Skeif- unni, Skeifunni 11. Bilarnir verða skoðaðir þar kl. 10 um morguninn, og eftir hádegiö er ætlunin að fara i hóp- akstur gegnum bæinn. Eftir þaö veröa bilarnir til sýnis hjá Bila- sölunni Skeifunni þar til ræst AÐ LATA í RALLIÐ verður, en það verður liklega um kl. 23 um kvöldið. Einnig er áætlað að hafa þar opið fram eftir nóttu og á sunnudag þar sem hægt verði að fylgjast með gangi keppninnar, en áætlað er að bilarnir komi aftur til Reykjavikur siðdegis á sunnu- dag. Undanfarnar helgar hafa tveir af stjórnarmönnum BIKR verið að mæla hugsanlegar leið- ir fyrir keppnina og er búið að mæla töluvert meira en notað verður, en leiðin verður endan- lega valin með tilliti til ferðar þegar þar að kemur. Er áætlað að leiðin verði á bilinu 550 til 650 km. Endanlega leiðin verður ekki birt fyrr en sólarhring fyrir keppni þar sem nú verður notuö leiðabók á ferjuleiðum en skilti á sérleiöum. — ÓG. „Skáksombandið œtti að senda viljayfirlýsingu" — segir Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs um heimsmeistaraeinvígið „Mér er ljóst aö þaö hefur veriö erfiöleikum bundiö aö taka afstööu til málsins vegna timaskorts, en hér var um aö ræöa slikt tækifæri til alhliöa landkynningar aö ekki veröur metiö til fjár”, sagöi Hcimir Hannesson formaöur Feröa- málaráös I samtali við Visi. Feröamálaráð hafði mikinn • áhuga á að gert yrði tilboð um að halda hér heims- meistaraeinvigið Skák og bauö fram fjárupphæð i þvi skyni. Ekki varþó komið fram með tilboö fyrr en of seint eins og greint var frá i VIsi I gær og var það þvi ekki sent. „Éghef ástæðu tilað ætla að tilboösmálin hafi ekki verið rædd sem skyldi meðan tlmi gafst til. Allir aðilar málsins komu aldrei saman til að ræöa möguleika á fjármögnun og þvi fór sem fór”, sagði Heimir Hannesson. Hann kvaðst vera þeirrar skoöunar aðSkáksam- bandið ætti aö senda viljayfir- lýsingu tilFIDE um einvigis- haldiö ef þær aðstæður sköp- uðust til dæmis að keppendur óskuðu eftir þvf aö tefla hér. —SG i ;i IfiÍÍBwíPw^l Þaö er Arni Arnason formaöur BÍKR sem þarna er aö teikna upp leiöina sem ekin veröur I rallýinu 4. mars. verður á morgun Sprenghlægileg gamanmynd/ Munster- f jölskyldan, verður sýnd í Visisblóí klukkan þrjú á morgun. Myndin verður sýnd í Lauganás biói. i rudd Hellisheiöi er lokuö og veröur leiöin ekki opnuö strax, samkvæmt upplýsingum sem Visir fékk hjá lögreglunni i Árbæ. Þrengslum veröur hins vegar haldiö opnum og er sú . leiö vel fær núna. Hellis- heiöin hefur hins vegar veriö lokuð siöan I fyrradag, og veröur liklega ekki rudd, fyrr en séö veröur að leiðin veröi opin til einhvers tima. —EA

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.