Vísir - 27.02.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 27.02.1978, Blaðsíða 6
GÆSLUVARÐHALDS- FANGELSI Tilboö óskast í jarövinnu og steypu sökkla og kjallara gæsluvarðhaldsfangelsis að Tungu- hálsi 6/ Reykjavik. Verkinu skal lokiö 15. ágúst 1978. útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 15.000 kr. skila- tryggingu. Tilboö veröa opnuð á sama stað miövikudag- inn 15. mars 1978 kl. 11.30 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Á undan timanum i 100 ár léttir meðfærilegir viðhaldslitlir fyrir stein- steypu. f Ávallt fyrirliggjandi. Góö varahlutaþjónusta. m Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640 þjöppur slipivelar # dælur sagarbloð j/ 1 steypusagir Þjoppur lí bindivirsnillur Móttaka á gömlum munum: Fimmtudaga kl. 5-7 e h Föstudaga kl. 5-7 e Smurbrauðstofan Njólsgötu 49 — Simi 15105 MáuudaRur 27. febrúar 1978 VISIR „Vorgleöin”, samkvæmt bylt ingaralmanaki flokksins, en fagnabur hins nýja árs — árs hestsins — sam- kvæmt gömlum siðum. Ár hestsins Verður þoð uppgjör Hua og Tengs? Kina fagnaði nýju ári i siðustu viku með þriggja daga inn- kaupaæði, sem stóð ekki langt að baki jóla- ös i auðvaldslöndum. Með nýfengnar kaup- hækkanir og loforð stjórnar Hua formanns um bónusa i árslok upp á vasann fylltust allar verslanir i Peking af fólki, sem hamstraði vörur af þvi tagi, sem áður voru skömmtun- um háðar. O.pinberlega heitir þessi hátið „vorgleðin” á byltingaralman- akinu, en að gömlum sið var fagnað nýju ári, nefnilega ári hestsins að þessu sinni. Ar, sem gömlu spekingarnir segja vel til fallið til að afla nýrra vina, vel fallið til nýbyggingar og endur- reisnar. Það er einmitt það, sem Hua og hinir nýju leiðtogar Kina hafa lagt sig fram við siðustu mánuðina. Einbeitt sér að þvi að efla vinsældir stjórnarinnar meðal alþýðunnar, efla efna- haginn og losa sig við siðustu róttæklingana úr flokknum. En menn velta þvi fyrir sér, hvort endurskipulagning hins nýja árs eigi eftir að fela i sér hnignun á áhrifum Hua for- manns, og biða óþreyjufullir fimmta þings alþýðunnar, sem kemur saman i Peking undir mánaðamótin. Þar munu linur skýrast. Að visu hefur þetta þrjú þúsund fulltrúa þing aldrei verið annað en afgreiðsla ákvarðana, sem miðstjórn kommúnistaflokksins var búin að taka áður, og er ekki von á þvi að þetta þing verði neitt öðruvisi. En menn telja, að þessa dagana sé miðstjórnin éinmitt að ákveða, hvort Hua Kuo-feng eða aðstoðarforsætis- ráðherrann, Teng Hsiao-ping skuli stjórna Kina á þessu nýja ári. Það er talið hugsanlegt að gerð verði breyting á stjórnar- skránni til þess að endurvekja forsætisembættið, sem fjórða alþýðuþingið lagði formlega niður 1975. Sá maður, sem siðast fór með það embætti var Liu Shao-chi, sem féll frá i hreins- ununurn 1966, þegar Mao Tse- tung formanni stóð orðið stugg- ur af alþýðuhylli hans. Hinn lifseigi Teng hefur komið fram sem þjóðarleiðtogi upp á siðkastið. Uppgangur Tengs að undan- förnu hefur ekki farið framhjá neinum. Hann hefur i æ meiri mæli komið fram sem þjóðar- leiðtogi. Hann hefur tekið á móti erlendum þjóðhöfðingjum, flutt aðalræður við heiðursveislur og verið fuljtrúi Kina i opinberum heimsóknum til Burma og Nep- al. Verði hann settur i forsætis- embættið, þykir liklegt, að það verði áhrifamesta valdastaða landsins, meðan formannsem- bætti Hua og forsætisráðherra- embætti yrðu meiri tylliem- bætti. Séð frá sjónarhóli Austur- landabúans mundi Hua litið vinna með þvi að ná undir sig forsætisembættinu. Sennilegast þykir, að þá yrði Teng gerður að forsætisráðherra og stjórna landinu sem slikur. Eini mögu- leikinn til þess að Hua haldi öll- um völdum er að hánn hafi á eigin hendi öll þrjú lykilembætt- in — forsetans, forsætisráðherr- ans og formannsins. Og þó svo, að þingið endur- veki ekki forsetaembættið, þyk- ir eftir sem áður möguleiki á þvi, að Teng verði gerður for- sætisráðherra. Endurkoma Tengs til valda og áhrifa er orðin þjóðsagnakennd. Tvivegis hefur hann fallið i ónáð. 1 hreinsunum menningar- byltingarinnar og svo aftur i orrahriðinni, þegar svarf til stáls við róttæklinga og ekkju Maos formanns. Hinn 73 ára gamli Teng á sin itök meðal eldri manna embætt- iskerfisins og hersins, sem margirhverjir,likt og hann féllu i ónáð i menningarbyltingunni og hafa fyrst nýlega hlotið upp- reisn. Ahrif Hua, sem er miklu yngri maður, eru talin byggjast á fáum útvöldum mönnum inn- an valdaklikunnar, sem hjálp- uðu honum til valda eftir fráfall Maos formanns 1976. Það bar einmitt að, þegar Teng var fjarri i einni hreinsunarónáð- inni. En hvað sem liður spádómum manna um væntanlegur árekst- ur þeirra Hua og Tengs i tog- streitunni um æðstu völdin, þá virðist enginn ágreiningur rikja milli þeirra um, hvaða stefnu Kina skuli taka i náinni framtið. Þar sitja i fyrirrúmi ör hagvöxt- ur, staðviðri i stjórnmálunum, hefðbundin menntun, og fylgt troðnum slóðum i hugmynda- fræði flokksins. Niðurstaða fimmta alþýðu- þingsins er þvi fyrirsjáanleg. Þar verður fylgt áfram „stefnu jafnvægis og einingar”, eins og fréttastofan Nýja Kina kallar það. Skiptir i þvi tilliti engu máli, hvor heldur um stjórnar- taumana á ári hestsins. (News- week).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.