Vísir - 27.02.1978, Qupperneq 9

Vísir - 27.02.1978, Qupperneq 9
VISIR Mánudagur 27. febrúar 1978 9 arnir mœtast"? Okkur hefur borist bréf frá fjórum nemendum i Fjölbrauta- skólanum i Breiðholti. Þar varpa þeir fram þeirri spurn- ingu hvort fjölbrautaskólarnir séu ekki viðurkenndir sem framhaldsskóiar af öðrum rík- isstofnunum. Bréf fjórmenning- anna fer hér á eftir: Af gefnu tilefni viljum vér nemar i Fjölbrautaskólanum i Breiðholti vekja athygli á þvi við Ríkisútvarpið, sjónvarp, og aðrar stofnanir sem eru rfkis- reknar, að fjölbrautaskólar eru framhaldsskólar samþykktir af Alþingi íslendinga. Sjónvarpið hefur nú hafið sýningar á spurn- ingaþætti sem ber nafnið „Menntaskólarnir mætast” og þar eigast við allir menntaskól- arnir á landinu auk Verslunar- skóla tslands. Fjölbrautaskólunum var ekki boðin þátttaka i þessari keppni þó svo að meginkjarni þessara skóla samanstandi af nemend- um á menntaskóla- og við- skiptasviði. Undirritaðir höfðu samband við Rikisútvarpið, sjónvarp, og spurðust fyrir um hvers vegna fjölbrautaskólunum hefðu ekki verið boðin þátttaka i fyrirhug- aðri keppni. Fengust þau svör að þátturinn hefði orðið of viðamikill og kostnaðurinn við ferðir og gist- ingu of mikill. Þess má geta að fjölbrautaskólarnir eru þegar orðnir fjórir og eru þeir allir á suðvesturhorninu, það er i Reykjavik, Hafnarfirði, Kefla- vik og á Akranesi. t stað 7 þátta hefðu þættirnir orðið 11 að tölu með tilkomu fjölbrautaskólanna og þvi að öllum likindum orðið fjölbreytt- ari. Það er von okkar nemenda i Fjölbrautaskólanum i Breið- holti að þessi stofnun athugi sinn gang og sjái sér fært að bjóða fjölbrautaskólunum til væntanlegrar keppni. Virðingarfyllst, Gisli Hafliði Guðmundsson Ingi Þór Hermannsson Jón Jósef Bjarnason Sigurjón Einarsson. Em um klám og ekki klám 0347, sem er að norðan, skrifar: Ég get nú varla þagað lengur, þvi það er með mig eins og svo marga aðra, ég hef vissa skoðun á málunum. Ég hefði haft gam- an af að sjá myndina „Veldi tilfinningana” þvi ef hún er sóðalegri en „Dauðasyndirnar þrjár” þá skil ég vel að hún hafi verið bönnuð. Ekki var bannað að sýna „Dauðasyndirnar þrjár”, þrátt fyrir að þar mátti sjá hroðalegar pyntingar á kvenfólki. Maður hefur heyrt ýmsar sögur af kvikmyndinni „Sæt mynd” en hún var sýnd á kvikmyndahátiðinni. Er sadismi i myndinni „Veldi tilfinninganna”? Eða samfarir við dýr.? Ég get fallist á að kalla það klám þegar fleiri en tveir eiga aðild að samförum. En sam- skipti manns og konu kalla ég ekki klám. Af hverju má fólk ekki ráða þvi sjálft hvað það sér? Mér finnst að i dómnefndum sem eiga að fjalla um hvort leyfa á sýningar á kvikmynd- um eigi að vera sálfræðingar og félagsráðgjafar, en ekki lög- reglan og slíkt fólk. Það var gaman aö umræðu- þættinum i sjónvarpinu þar sem fjallað var um þessi mál. Ég hló dátt að ákafanum i þátttakend- um. Hvers vegna eru fjðl- brautaskólarnir ekki með í „Menntaskól- Nauðungaruppboð sem auglýst var i 81., 83. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1976 á eigninni Sléttahrauni 26, ibúð á 3. hæð t.v., Hafn- arfirði, þingl. eign Hans Kristjánssonar, fer fram, eftir kröfu Hafsteins Sigurðssonar, hrl., á eigninni sjálfri fimmtudaginn 2. mars 1978 kl. 3.00 e.h. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 57. og 61. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1977# á eigninni Asbúð 28, Garðakaupstað, þinglesinni eign Arna Hróbjartssonar, fer fram, eftir kröfu Garða- kaupstaðar og Kristins Sigurjónssonar, hrl., á eigninni sjálfri fimmtudaginn 2. mars 1978 kl. 2.00 e.h. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Köldukinn 6, efri hæð, Hafnar- firði, þinglesinni eign Guðrúnar Hafliðadóttur, fram fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 2. mars 1978, kl. 4.00 e.h. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Breiðvangi 8, 4. hæð B, Hafn- arfirði, þinglesinni eign Björns Halldórssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 2. mars 1978 kl. 3.30 e.h. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. PASSAIUYNDIR feknar i litum tilbúnar strax I ; barna x. f lölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 Bifreiðaeigendur athugið Við lagfærum hemla á öllum gerðum bif- reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður góða þjónustu. Framkvæmum ennfremur almennar viðgerðir, ef óskað er. Höfum á- vallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar gerðir ameriskra bifreiða á mjög hag- stæðu verði. STILLJNG HF.“n 31340-82740. SAMVINNUTRYGGINGAR Armúla 3 - Reykjavik - Simi 38500 Óskað er eftir tilboðum i bifr. sem hafa skemmst i umferðaróhöppum. Meðal annars: tegund árgerö Volvo 144 1973 Blazer 1974 Landrover disel 1974 Fiat 127 1974 Mercury Comet 1974 Mazda 4976 Datsun 4979 Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmuvegi 26,Kópavogi. mánudaginn 27.2.’78 kl. 12-17. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga/ bifreiðadeild/fyrir kl. 17 þriðjudaginn 28.2. ’78.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.