Vísir - 15.03.1978, Page 5
VI3IR Miðvikudagur 15. mars 1978
5
DOLLARINN LÆKKAR
ENN GAGNVART YENI
Gengi dollarans i Tokyo var
lægra i gæren nokkru sinni áður
frá striðslokum. Skráð gengi 233
yen þegar lokað var I gær en var
236 yen i fyrradag. Dollarinn
hefði fallið enn meira ef ekki
hefði komið tii aðstoð frá seðla-
bankanum i Japan sem keypti
120 milljónir dala.
Traustið á dollaranum hefur
ekki aukist eftir að sameigin-
legar ráðstafanir Vestur Þjóð-
verja og Bandarikjamanna
voru gerðar opinberar. Samt
sem áður hafaýmsirorðið til að
lýsa yfir ánægju sinni með þess-
ar ráðstafanir.
Japanski forsætisráðherrann
Takeo Fukuda sagðist vera
ánægður með ráðstafanirnar.
Kvaðst hann þeirrar skoðunar
að þær hefðu jákvæð áhrif og
viðbrögð á gjaldeyrismörkuð-
um væru hin furðulegustu
Framkvæmdanefnd Efna-
hagsbandalagsins fagnar sam-
komulaginu um dollarann og
vonaraðþetta verði upphafið að
stöðugu gengi dollarans. Fram-
kvæmdanefndin kveðst búast
Vjty\Bersen________VÍSIR
CENGI OC CJALDMIDLAR
við að staða dollarans verði
rædd á fundi fjSrmálaráð-
herra Efnahagsbandalagsland-
anna sem haldinn veröur i
næstu viku. Einnig á fundi i
Sviss og fleiri fundum fyrir
toppfund vestrænna leiðtoga og
ráðamanna Japans i júli.
Dollarinn var stöðugri á
mörkuðum i Evrópu i gær held-
ur en i fyrradag. Við skráningu i
Frankfurt varð rikisbankinn að
kaupa 27,3 milljónir dala á
genginu 2.0535 mörk en það var
2.0841 í fyrradag.
Franski frankinn stendur vel
eftir úrslit kosninganna þar sem
búist er við að stjórnarflokkarn-
ir muni sigra i siðari umferð-
inni.
Danska krónan er á botni
gjaldeyrissnáksins en allt er
með kyrrum kjörum á þeim
slóðum.
—Peter Brixtofte/—SG.
-- " ' - *
GENGISSKRÁNING
Gengino.45, Gengi nr. 47
lO.mars kl.13. 14. mars kl. 13
Kaup Sala: Kaup. Sala:
1 Bandarikjadollar... 253750 254.10 254.10 254.70
1 Sterlingspund 486.50 487.70 483.55 484.75
1 Kanadadollar 225.80 226.30 225.95 226.45
10(1 Danskar krónur .. 4498.70 4509.30 4496.35 4504.95
lOONorskarkrónur .. 4733.90 4745.10 4744.65 4755.85
100 Sænskar krónur .. 5442.25 5455.15 5484.80 5497.80
lOOFinnsk mörk 6070.40 6084.80 6055.75 6070.05
100 Franskir frankar. 5196.55 5208.85 5357.35 5370.05
100 Belg. frankar 796.00 797.90 796.80 798.70
100 Svissn. frankar ... • 12.958.45 12.989.15 12990.80 13021.50
lOOGvIlini • 11.591.20 11.618.70 11596.10 11623.10
100 V-þýsk mörk • 12.380.95 12.410.25 12377.00 12406.20
100 Lirur 29.53 29.68 29.52 29.59
100 Austurr. Sch 1720.40 1724.50 1718.65 1722.65
lOOEscudos 615.30 616.70 618.60 620.10
100 Pesetar 315.70 316.40 316.50 317.30
100 Yen 107.81 107.07, 108.86 109.11
★ Athugið ★
Tiskupermanent-klippingar og
blástur (Litanir og hárskol).
Nýkomnir hinir vinsœlu
mánaðasteinar, með
sérstökum lit fyrir
hvern mánuð
Ath. Fást
aðeins hjá
okkur
Skjótum
'göt \ eyru
r
a
sársaukalausan
hátt:
MUNIÐ
SNYRTIHORNIÐ
Hárgreiðslustofan
LOKKUR
Strandgötu 1-3 (Skiphól)
Hafnarfirði, sími 51388.
PASSAMYNDIR
teknar i litum
tilbutiar strax I
barna & f lölskvldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
Milljónatjón í Hnífsdal
Milljónatjón varð i gær þegar
Smjörlikisgerð tsafjarðar varö
eldi að bráð.
Miklar skemmdir uröu á hinu
150 fermetra húsi sem fyrirtæk-
ið hefur nýlega flutt i og einnig
eyöilögðust tæki og birgðir.
Slökkviliðinu á Isafiröi barst
tilkynning um eldinn klukkan
hálf sex en þá þegar logaði glatt
i öllu húsinu, sérstaklega þó i
öðrum hluta þess.
Slökkvistarfið gekk vel enda
var veður hagstætt, logn og
bliða.
Tjónið af völdum eldsins hef-
ur ekki verið kannað en ljóst er
að það skiptir milljónum, auk
þess tjóns sem verður af völdum
framleiðslustöðvunar.
—GA
Narfi inn til
Njarðvíkur
með um
1100 lestir
Mjög slæmt veður var á
loðnumiðunum úti af Ingólfs-
höfða f gærkvöldi og nótt. Ekki
einn einasti bátur hefur tilkynnt
Loðnunefnd um afla siðan
klukkan átta í gærkvöldi en þá
heyrðist f einum sem var með
nokkrar lestir.
I morgun var veður enn slæmt
á þessum slóðum og hélt flotinn
sjó. Margir bátar eru i höfn, þar
af lönduðu nokkrir i Faxaflóa-
höfnum i gær.
ísafold HG kom t.d. til
Reykjavikur i gær með um 800
lestir og er það i annað sinn á
þessari vertfð sem þetta
dansk/islenska skip landar i
Reykjavik. Þá kom Narfi inn til
Njarðvikur i gær með um 1100
lestir, sem er einn mesti loðnu-
afli sem eitt skip hefur komið
með að landi á loðnuvertiöinni i
vetur.
—klp—
Frá Framsóknarþinginu i gær. Vfsismynd: BP
Ný miðstjórn
Framsóknar kjörin
Flokksþingi Framsóknarflokks-
ins lauk i gær. Þá voru kosnir 25
fulltrúar i miðstjórn fiokksins.
Þessirhlutu kosningu: Þórar-
inn Þórarinsson 252 atkvæði,
Dagbjört Höskuldsdóttir 246
atkv., Eysteinn Jónsson 246
atkv., Gerður Steinþórsdóttir
223 atkv.
Næstir komu Magnús Ólafs-
son, Asgeir Bjarnason, Eirikur
Tómasson, Haukur Ingibergs-
son, Magnús Bjarnfreðsson,
Markús Á. Einarsson, Erlendur
Einarsson, Kristján Benedikts-
son, Helgi Bergs, Valur Arn-
þórsson, Ragnheiður Svein-
björnsdóttir, Gunnar Guð-
bjartsson, Halldór Kristjáns-
son, Daniel Agústinusson, Guð-
mundur G- Þórarinsson, Guð-
mundur Bjarnason, Ólafur
Þórðarson, Pétur Einarsson,
Guðrún Benediktsdóttir, Hauk-
ur Halldórsson og Halldór Páls-
son. — KS
Loðnuv^iðin:
NYJUNG!
HEITIR LJUFFENGIR
DRYKKIR ALLAN
SÓLARHRINGINN
Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með
frá 2 upp í 6 tegundir í einu, svo sem kafíi, te, kakó og súpu, og það tekur
ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn.
Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í
handfangið og þá rennur efnið í bollann, siðan scturðu bollann undir
kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú ert búinn að hræra
í bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk.
Þctta er þrifalcgt, einfalt og ódýrt, ekkert fer til spillis, enginn uppþvottur,
og drykkirnir eru alltaf nýjir og ferskir.
Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þær eru jafnvel ekki dýrari
en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar, sem óskað er
heitra ljúffengra drykkja.
Hringið í síma 16463 og fáið sölumann í heimsókn, hann mun gefa vkkur
að smakka og allar nánari upplýsingar.
KOMIST A BRAGÐIÐ OG YKKUR MUN VEI. LIKA
& ÍTTT-
SIMI 16463